Vísir - 16.06.1978, Qupperneq 17

Vísir - 16.06.1978, Qupperneq 17
VISIR Föstudagur 16. júnl 1978 1978 ■ Alþingiskosningar 1978 - Alþingiskosníngar 1978 - Alþingiskosningar 1978 - Alþingiskosn V Sjálfstæöisflokksins á Vestfjörð- um. „Sjósókn og aflabrögð hafa verið góðviðast hvar á Vestfjörðum og að minum dómi hefur afkoma fólks þar verið góð. Hitt er aftur annað mál sem einnig verður barist fyrir en það er að byggja upp á Vestfjörðum þjónustu- greinar, sem eru viða mjög tak- markaðar, þannig að minnsta kosti stærri staðirnir þurfi sem allra minnst að leita annaö. Samgöngumálin eru mjög stór þáttur i öllu vestra. Það hefur að visu mikið verið gert i vegamál- um en við Vestfirðingar erum þó ekki i sambandi við landið allt nema rétt yfir sumarið. Og flug- samgöngur eru stopular, þannig að samgöngur eru langt frá þvi að vera góðar þrátt fyrir allt sem gert hefur verið. t heilbrigðismálum er mjög ör uppbygging og ég vona að innan tiltölulega fárra ára verði þau mál komin i mjög gott horf og við getum vel við unað. Við munum haga baráttunni á þann hátt að við minnum á það sem gert hefur verið en leggjum þó miklu frekar áherslu á sem við ætlum að berjast fyrir. Og við högum baráttu okkar á þann veg að við getum ekki einangrað okkur sem þingmenn Vestfirð- inga.Við verðum að leita viðtæks samstarfs við aðra þingmenn til þessaðkoma héraðsmálum okk- ar fram og skilja hvað vantar i öðrum héruðum. A þetta legg ég og við Sjálfstæðismenn sérstak- lega mikla áherslu en aðal- baráttumál okkar er það að halda uppi skynsamlegri stefnu i fisk- veiði og fiskverndarmálum. Og það er sú stefna sem ég hef fyrst og fremst markað i núverandi l rikisstjórn i góðri samvinnu við alla rikisstjórnina ogþeirristefnu erákaflega vel tekið á Vestfjörð- um af fólki úr öllum flokkum. Ég tel að hlutur okkar Sjálf- stæðismanna sé nokkuð góður þó að þvi sé ekki að leyna að með þrotlausum áróðri, einkum fjöl- miðla, sem draga alltaf fram dökku hliðarnar i lifinu og allt sem miður fer þá, virðist vera komið inn hjá mörgu fólki allt sem hægt er að setja út á en öllu þvi góða er gleymt og þeim miklu sigrum sem unnir hafa verið. Og þó alveg sérstaklega þeim sigri sem þessi rikisstjórn hefur unniö með útfærslu landhelginnar i 200 milur. Þetta er auðvitað stærsta máliö sem um á að hugsa en and- stæðingar okkar vilja ekkert um það ræða. Ég fullyröi að fólkinu i landinu hefur aldrei liði betur en undir forystu þessarar rikis- stjórnar. Ég er þeirrar skoðunar að Sjálfstæðisflokkurinn eigi enga afstöðu að taka til stjórnarmynd- unar fyrirfram. Við verðum að sjá úrslit kosninganna. Þá mun A-LISTI 1. Sighvatur Björgvinsson. alþingismaður, Kriuhólum 2, Rvk. 2. Jón Baldvin Hannibals- son, skólam., Pólgötu 10, isafiröi 3. Gunnar R. Pétursson, raf- virki, Hjöllum 13, Patreks- firði 4. Kristján L. Möller, kenn- ari, Siglufirði 5. Jóhann R. Simonarsson, skipstjóri, Sætúni 1, ísa- firöi F-LISTI 1. Bergur Torfason, Felli, Mýrahreppi, V-ts 2. Bjarni Pálsson, Núpi, Mýrarhreppi, V;ts. 3. Kolbrún Ingólfsdóttir, Reykhólum, Reykhólahr. A-Barð. 4. Katrln Siguröardóttir, Höfðagötu 2, Hólmavlk. 5. Eirlkur Bjarnason, Tún- götu 20, isafirði Sjálfstæðisflokkurinn gera það upp við sig hvort hann vill eiga sæti i rikisstjórn, og hvort hann nær samstöðu við aðra flokka. Þar vil ég helst láta málefnin ráða. —ÓM/—KS sagði Karvel aðspurður, og um hugsanlegt stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- bandalags sagöi hann: ,,Ég sé ekki neitt sem bendir til þess aö þeir hafi afneitað þvi algjörlega. Það er vitað að það eru öfl i Al- þýðubandalaginu sem gjarnan vilja það. Hvort þau veröa ofa á vil ég ekkert um segja.” Karvel sagði að framboð hans hefði fengið mjög góðan hljóm- grunn hjá kjósendum og er hann var spurður að þvi hvort hann og Samtökin myndu ekki bitast um sama fylgið sagði hann að þeir ætluðu sér aö fá fylgi frá öllum flokkum þvi kjósendur væru orðnir þreyttir á samtryggingu gömlu flokkanna. —KS Karvel Pálmason „Ætlum að fá fylgi frá öllum flokkum" — segir Karvel Pálmason „Það verður kosið um kjara- og byggðamálin að okkar áliti og svo um það grundvallarsjónarmiö sem liggur að baki okkar fram- boöi, en það er baráttan gegn flokksræði”, sagöi Karvel Pálmason, efsti maður á lista óháðra kjósenda. „Við berjumst gegn þvi að til- tölulega fámennar flokksklikur geti ráðiö þvi ár eftir ár hverjir sitji á þingi fyrir Vestfirðinga. Ikjaramálum beitum við okkur fyrir þvi að endurheimta þá kjarasamninga sem við höfðum forystu um hér á Vestfjörðum 1977. I byggðastefnunni er margt sem mætti tina til. Grundvallar- sjónarmiðið er það að fá rikis- valdið til þess að taka tillit til þeirrar sérstöðu sem Vestfirðir eru i að þvi er varðar samgöngu- málin. I þeim efnum eru við sér á báti og langverst settir. Hafnarmál eru ekki 'heldur I góðu lagi. Það gefur auga leið. Siðastliöið kjörtimabil fengu Vestfirðir næstlægstu fjárfram- lög til hafnarmála. Kjördæmi sem skilar hlutfallslega mestu I þjóðarbúiö. Stjórnvöld verða að sjá það, hver sem þau eru, að vandi efna- hagsmála verður ekki leystur nema i samráði við verkalýös- hreyfinguna. Það hefur verka- lýðshreyfingin boðið samninga eftir samninga en þvi hefur verið hafnað. Ég treysti mér ekki til að spá um stjórnarmyndun eftir kosningar eins og staðan er nú”, B-LISTI 1. Steingrlmur Hermanns- son, alþm., Mávanesi 19, Garðabæ. 2. Gunnlaugur Finsson. alþm., Hvilft, önundar- firði 3. Ólafur Þ. Þórðarson, skólastjóri, Eyrargötu 1, Suðurey ri 4. Jónas R. Jónsson, bóndi, Melum, Bæjarhreppi, Hrútafirði 5. össur Guðbjartsson, bóndi, Láganúpi, Rauöa- sandshreppi G-LISTI 1. Kjartan ólafsson, Alf- heimum 68, Reykjavlk. 2. Aage Steinsson, Selja- landsvegi 16, tsafirði 3. Unnar Þór Böövarsson, Krossholti, Barðastranda- hreppi 4. Gestur Kristinsson, Hllðarvegi 4, Suöureyri. 5. Ingibjörg Guðmunds- dóttir, Silfurgötu 7, tsa- firði \ Kjartan ólafsson vopn i kjara- baráttunni,r — segir Kjarfan Ólafsson „t kosningabaráttunni leggur Alþýðubandalagið megináherslu á að kjörseðillinn sé vopn I kjara- baráttu alþýðuflótks á tslandi”, sagði Kjartan óiafsson, efsti maður á lista Alþýöubandalags- ins. „Við teljum að mestu skipti aö allur almenningur neyti þess tækifæris sem kosningarnar gefa til að tryggja kjarasamningana i gildi á ný. Hér á Vestfjörðum vinnur mjög stór hluti vinnandi fólks við fisk- vinnslu og flest af þessu fólki leggur á sig mikla yfirvinnu. Bráðabirgöalög rikisstjórnarinn- ar gera ráð fyrir þvi að siðar á þessu ári verði kaup fyrir eftir- vinnu aðeins 17% hærra en fyrir dagvinnu og fyrir næturvinnu að- eins 50% hærra en fyrir dagvinnu. Þessu vill Alþýöubandalagið að sjálfsögðu hnekkja og sú er krafa verkalýðshreyfingarinnar. Alþýöubandalagið leggur I kosningabaráttunni rika áherslu á nauðsyn þess aö efla byggðar- D-LISTI 1. Matthias Bjarnason, ráð- herra, tsafirði 2. Þorvaldur Garöar Krist ján sson, alþm., Reykjavik 3. Sigurlaug Bjarnadóttir, alþm., Reykjavik 4. Jóhannes Arnason, sýslu- maður, Patreksfirði 5. Engilbert Ingvarsson, bóndi, Tyröilmýri H-LISTI 1. Karvel Pálmason, al- þingismaður, Traðarstlg 12, Bolv. 2. Asgeir Erling Gunnars- son, framkv.stj. Sund- stræti 26, ts. 3. Hjördis Hjörleifsdóttir, kennari, Mosvöllum, ön- undarfirði. 4. Hjörleifur Guðmundsson, verkam. Urðarg 19, Patreksf 5. Birgir Þórðarson, versl- unarm. Vitabraut 5, Hólmavik lögin út um allt land og tryggja fólkinu sem þar býr bætta félags- lega aðstöðu og sem mest jafn- rétti á sem flestum sviðum.” Kjartan var beðinn að gera grein fyrir viðhorfum sínum fil stjórnarmyndunar eftir kosning- ar. „Mér sýnist að niðurstöður bæjarstjórnakosninganna”, sagöi Kjartan „feli I sér eindregna kröfu um vinstri stefnu i islensk- um stjórnmálum og min skoöun er sú aö við stjórnarmyndun beri að taka tillit til þeirrar augljósu kröfu”. —KS Steingrlmur Hermannsson „Fjórir menn slást um tvö saeti" — segir Steingrímur Hermannsson „Það sem einkennir kosninga- slaginn hér er að fjórir menn slást um tvö sæti, Kjartan, Karvel, Sighvatur og Gunnlaugur, annar maður okkar,” sagði Steingrimur Hermannsson efsti maöur á lista Framsóknarflokksins. „Við höfum að sjálfsögðu lagt áherslu á landhelgismáliö og góöan árangur rikisstjórnarinnar I þvi og þátt Framsóknarflokks- ins I landhelgismálinu sem viö teljum að hafi verið afgerandi. Viö höfum lagt áherslu á byggöa- málin og viðleitni okkar til þess sem við köllum gjarnan að byggja landið allt vel og beina fjármagni til uppbygginga at- vinnuveganna þar sem aðstaða er best á hverjum stað. Hér á Vest- fjörðum er það að sjálfsögðu sjávarútvegurinn sem þarf aö efl- ast. Við höfum reynt að ræða efna- hagsmálin af hreinskilni. Við höf- um bæöi lýst þvi sem betur heföi mátt gera i tiö þessarar rikis- stjórnar og einnig þvi sem vel hefur tekist. Við höfum lagt áherslu á okkar málefnagrund- völl fyrir næsta kjörtimabil. Viö viljum tryggja stööugt samstarf launþega, atvinnurekenda og rikisvalds um lausn á vanda efna- hagslifsins. Sérhver rikisstjórn verður aö vera ábyrg fyrir þjóðarhag og verður aö gripa i taumana ef til dæmis samningar fara úr böndum. Og við teljum að þessi rikisstjórn hafi ekki gert það af nægilegri hörku.ekki nægi- lega ákveðið og ekki nægilega snemma og þaö þurfi að breytast. Þaö þarf að draga úr þenslunni og minnka erlend lán en við vörum þó við þvi að ekki verði gengið það langt aö atvinnuleysi skapist.” ,,,Ég fyrir mitt leyti hef lagt áherslu á þann málefnagrundvöll sem flokkurinn samþykkti á siöasta flokksþingi”, sagði Stein- grimur er hann var spurður um væntanlega stjórnarmyndun ,"og itrekað að viö göngum óbundnir til kosninga. Ég hef jafnframt vakið athygli á þvi að allar vinstri stjórnir i þessu landi hafa verið myndaðar af Framsóknarflokkn- um. Og það er min skoðun aö vinstri stjórn verði ekki mynduð hér án forystu Framsóknar- flokksins og ég hef ekkert farið leynt með þá skoðun mina að ég tel eðlilegt fyrir Framsóknar- flokkinn, frjálslyndan umbóta- flokk að vinna meö þessum svo- kölluðu vinstri flokkum. Hins vegar mun að öllum likum reyn- ast ákaflega erfitt aö ná sam- starfi með Alþýðuflokknum og Alþýðubandalaginu.” -KS 1978 - Alþingiskosníngar 1978 - Alþingiskosningar 1978 - Alþingiskosningarnar 1978 - Alþingis |

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.