Vísir - 22.08.1978, Blaðsíða 2
2
Hefur þú ferðast með ís7
lensku farþegaskipi?
I
Vilhjálmur Oddsson: Þaö er ekkil
laust við það. Ég var búrmaður á
Esjunni siðasta árið sem hún
sigldi hér við land.
Guðni Gislason,sjómaður: Já, ég
var smyrjari á Esjunni i rúm tvö
ár. Það var gott skip og við
þyrftum að fá annað likt þvi.
Margrét Pálmarsdóttir, klinik-
dama:Nei, aldrei, en mig langar|
ógurlega til þess.
Sigþór Hjörleifsson, vinnur hjá
Búnaðarfélagi Borgfirðinga: Nei, |
ekki svo heitiö geti, en ég hef þó|
farið ferð með Akraborginni.
Valgerður Guðmundsdóttir,fóstra
og húsmóöir: Nei, það hef ég ekki
gert. Ég hef ekki einu sinni siglt
með Akraborginni.
Þriðjudagur 22. ágúst 1978
visir
Bátaflotinn i Sandgeröi liggur bundinn í höfn.
Pollarnir i Keflavlk láta ekki lokun fiskvinnslustöðva eöa atvinnu-
leysi á sig fá, heldur dorga áfram eins og ekkert hafi I skorist.
Þeir gáfu sér jafnvel tima til að kenna blaðamanninum réttu hand-
tökin.
SKY ATVINNUltYSIS
YFIR SUÐURNíSJUM
Atvinnuleysi er nú orðið staðreynd á Suðurnesjum
og hafa um níu hundruð sjómenn og landverkamenn
þegar misst vinnuna vegna lokunar f rystihúsanna og
annarra fiskvinnslufyrirtækja.
Margir haf a nú þegar látið skrá sig atvinnulausa, og
f leiri bætast við á hverjum degi, þó margir þráist við
þar sem þeir leggja metnað sinn í að þiggja ekki at-
vinnuleysisstyrk. Þá eru einnig allmargir sem eru
hræddir við að þiggja atvinnuleysisbætur þar sem
þeir telja sig þá vera búna að segja sig til sveitar.
Vísismenn voru á f erð um Suðurnes f yrir stuttu, og
ræddu þá meðal annars við verkafólk í f iskiðnaðinum.
íSandgerði
Við hús Miðness h.f. i Sand-
gerði rákumst við á nokkra
menn sem voru að mála húsin
utan og dytta að, en Miðnes i
Sandgerði er i eigu sona Ólafs
Jónssonar, þeirra Ólafs B., Jóns
Ægis, Asgeirs og Gunnars.
Mennirnir sem við hittum að
máli sögðu að hjá fyrirtækinu
hefðu unnið um 20 konur, en
þeim hefði verið sagt upp störf-
um og væru nú aðeins fáir menn
að störfum við lagfæringar og
tiltektir. Fyrirtækið hefur verið
lokað i rúmlega hálfan mánuð,
og þeir kváðust ekki vita frekar
en aörir hvenær það opnaði
aftur eða hvenær rættist yfir-
leitt úr vanda fiskvinnslufyrir-
tækjanna.
Skammt frá húsum Miðness
er svo starfandi fyrirtækið Rafn
hf og er Visismenn litu þar við
var allt i fullum gangi, og um 20
stúlkur aö vinnu sinni i flökun-
arsalnum.
Þær sem við ræddum við
sögöu að fyrirtækið færi örugg-
lega ekki á hausinn, ,,þvi við er-
um svo duglegar” sögðu þær
þegar við spurðum hvers vegna
þar væri opið en ekki annars
staðar.
Starfsstúlkurnar hjá Rafni
h.f. sögöu að þær kæmu viöa aö,
frá Sandgerði, Njarövik og
Keflavik og viðar, og fara þær á
milli i rútu.
Ekki höfðum við lengi spjall-
að við þær er þær ruddust út i
góða veðrið, og sögðust vera að
taka sér pásu. Það sögöust þær
gera klukkan tvö, fjögur, og
jafnvel klukkan sex ef unnið er
til sjö.
Ýmist færu þær þá út að sóla
sig og fá sér friskt loft (og sigar-
ettur) eöa inn á kaffistofu,allt
eftir þvi hvernig veðrið væri.
Við höfnina i Sandgerði var
hins vegar ekki sérlega liflegt
um að litast, nema hvað verið
var aö landa loðnu úr Gigjunni,
og var það i annað skipti í sum-
ar sem loðna kemur til Sand-
gerðis, en áður haföi Ársæll
landað þar loðnu.
Flestir aðrir bátar lágu inni á
höfninni, enda til litils að veiða
ef enginn er til að taka við aflan-
um er hann berst á land.
i Keflavík
A heimleiðinni ókum við svo i
gegn um Keflavik, og var þar
ekki mikið lif að sjá, nema hvað
nokkrir pollar voru aö veiðum á
einum bryggjusporðinum. Þeir
létu það greinilega ekki á sig fá
Hjá Miönesi vinna þeir, sem ekki hafa misst vinnuna, við að mála
og dytta að gluggum.
að frystihúsin væru lokuö, enda
kváöust þeir henda veiðinni
jafnóðum!
En skammt fyrir ofan er fyr-
irtækiö Keflavik h.f., og þar var
varla nokkurt lif að sjá. Þar
hafði verið lokað um mánaða-
mótin júli-ágúst, og salir þar
sem áður unnu milli 70 og 80
manns voru nú auðir og yfir-
gefnir.
Aö sögn Gisla Jónssonar aö-
stoðarverkstjóra er viö hittum
að máli fyrir utan flökunarsal-
inn, eru nú aðeins örfáir menn
við vinnu hjá fyrirtækinu, við
lagfæringar og annað þess
háttar.
Það litur þvi ekki allt of vel út
fyrir Suðurnesin á þessum tim-
um, en vonandi er að úr rætist
áður en langt um liður. —AH.
Eina llfsmarkiö viö höfnina i Sandgeröi var að verið var að landa
loönu úr Glgjunni er okkur bar þar að.
Texti: Anders Hansen.
Myndir: Sigurður H. Engilbertsson.