Tíminn - 03.09.1969, Side 6
TI M I N N
MIÐVIKUDAGUR 3. september 1969.
HÓBALT OG BÚRBÓN
BLANDAST VEL
I sérhverju þjóðfélagi er
jafnan einhver hluti þegnanna;
serri '^dur fast í gamlar venj
ur og siðu, og á bágt með að
semja sig að nýjungum og að-
laða &ig breyttum viðhorfum.
Þotta/fólk er að finna í þeirri
kynslóðinni, sem er að kveðja
og líða undir lok. í suður- og
suðvesturfyikjum Bandaríkj-
anna er talið vera margt slíkt
fól'k, og er helzt tekið til þess,
að skoðanir þess á sambúð
hivítna við svarta samrýmist
ekki skoðunum ríkisvaldsins og
væntanlega meirihluta þjóðar-'
innar, sem viljað hefir gera’
jafnrétti litarflokkanna að
raunveruleika.
Um daginn hitti ég einn fuil
trúa hinna afturhaldssömu. Ég
stóð úti fyrir anddyri hótels *
nokkuns í Houston í Texas að
kveldlagi og beið kunningja
míns, sem ætlaði að ná í mig í
snæðing. Á hótelinu stóð yfir
margra daga ráðstefna einhvers
blámannafélags, og voru fulltrú
axnir og fjölskyldur þeirra á
sífelldum þönum um hlaðið og
reyndar ailan staðinn. Þetta
voru blámenn úr röðum stönd
ugra kaupsýslumanna og em,b-
ættismanna, svo þeir voru prúð
, búriir og.. djásnum skreyttir.
Komu þeir. í allan stað vel
fram og kurteislega, bæði við
aðra g’éSti og starfsfólk.
Þar sem ég stóð þarna og
virti fyrir mér Texas kvöld-
himininn, gekk til mín maður
nokkur og ávarpaði mig upp
úr' þurru: „Andskoti vérð ég
feginn, þegar þetta niggara-
þing er búið. Það eru ekki
mörg ár liðin síðan það hefði
verið óhugsandi, að niggari
fengi inngönigu á svona- hótel
nema bakdyramegin, og þá að-
eins til að 'tæma öskutunnurn
ar eða vaska dis<ka.“
Maður þessi talaði hásum
rómi og það var auðlyktanlegt,
að hann hafði fengið sér neðaní
glas af þjóðardrykk þeirra
suðurfylkjamanna, búrbónvískíi
og vatni. Hann var hávaxinn,
beinaber og horaður, likiega
um sjötugt. Húðin var útitek-
in og þykk eins og á mörgum
bændum þar suður frá, sém
vi-nna úti undir sterkri sól.
Maðurinn leit ekki reglulega
vel út.
„Ég heiti Sam Russel frá
Kilgore. Það er í austur Texas.
Ég hefi varla talað við nokkurn
mann í margar vikur. Lengi
vel gat ég ekki komið upp
nokkru orði, en síðan ég fór
að geta talað, hefi ég ekki
fundið neinn í þessari andskot
ans borg, sem hefir haft tíma
til að tala við mig. Þú ætlar
náttúrulega að rjúka strax
burtu, þegar ég byrja að tala
við þig. Hvers vegna er öll
þjóðin að flýta sér svona mik-
ið?“
Ég svaraði þessum opinskáa
manni fáu, en sagðist gjarnan
myndu ræða við hann þar til
kunningja min bæri að garði.
Von bráðar benti Sam mér á
hálsinn á sér, en á hann voru
teiknaðir eða litaðir þrír bláir
hringir, hver innan í öðrum.
Hinn minnjsti var yfir barka
kýlinu. Hann sagðist vera með
krabbamein í hálsinum, og
gengi í kóbaltgeislun á einum
af hinum frægu krabbameins-
spítölum borgarinnar. Hringirn
ir á hálsinum væru til þess að
læknarnir gætu miðið kóbalt-
byssum sínum á réttan stað.
Sam sagðist vera búinn að vera
hér I fjórar vikur, en ætti eft
ir að hanga hér í sex í við-
Philip Morris vekur athygli
á mest seldu
amerísku filtersigarettunni
í Evrópu.
Reynið pakka af Marlboro og þér sannreynið hvað kallað er
raunverulegur tóbakskeimur.
Keimur, réttur keimur. Fullþroskað fyrsta flokks tóbak gefur Marlboro
þennan góða keim. Er þetta ekki það sem þér leitið að í filtersigarettunni?
mFILTER“ • RÉTTUR KEIMUR • „FLIP TOP“ PAKKI.
bót. Röddin befði yfirgefið sig
alveg um nokkurt skeið, en nú
gæti hann talað aftur.
Hann hafði erft 250 ekrur
af landi í Kilgore eftir föður
sinn. Sagði hann lífið hafa
verið fyllra og betra meðan
hann ræktaði land og búpening
en svo hefðj fumdizt olía hjá
sér eins og viðar í austur Tex-
as. Jú, hann h-efði orðið milljón
eri, en hann vildi svona rétt
láta þess getið, að manni liði
raunverulega ekkert betur þótt
maður ætti milljón dollara.
Nú sagðist hann vera 77 ára
og búinn að skipta auðnum
milli fjögurra barna sinna, sem
öll væru komin á miðjan aldur,
vd gift og í góðum stöðum.
Sagði hann mesta gildi olíupen
inganna hafa verið að greiða
fyrir góða menntun barnanna.
Sitt æviskeið væri brátt á
enda runnið, sagði Sam Russell,
svo hann hefði ekki áhyggjur
sjálfs sín vegna. En hann væri
uggandi um framtíð barnanna
og barnabarnanna, eins og
ástandið væri í þjóðfélaginu
þessa stundina.
Niggararnir væru láfnir kom
ast upp með ailt. Þeir færu
um heimtandi, hótandi, ræn-
andi, ruplandi og drepandi, og
skyldi ég rétt vita það, að
þetta -æri nú aðeins byrjunin.
Og hann kenndi stjórnarvöildun
um um, hvernig kornið væri.
Helv . . . fávitunum í Washing
ton. í staðinn fyrir að ganga
milli bols og höfuðs á Klu-
Klux-Klan hreyfingunni, hefði
rákisvaldið átt að styrkja hana
með ráðum og dáð. Klan bræð
urnir hefðu getað séð um að
halda niggurunum í skefjum,
eins og þeir hefðu verið búinir
að gera um áratugabil.
Þeg-ar ég spurði, hvort hann
væri þá ekki reiður fylkisbróð
ur sínum, Lyndon Johnson, fyr
ir að hafa gengið skelegglega
fram í réttlætismálum blá-
manna. sagði hann, að Lyndon,
sem væri reyndar persónulegur
vinur sinn, hefði fengið þetta
vandræðaáístand að erfðum frá
Kenuedy og Eisenhower. Það
hefði jú verið fíflið hann Eisen
hower, sem hefði byrjað með
því að senda herinn inn í Litle
Rock í Arkansas 1957 til að
troða ni.ggurum í skóla með
hvítum bömum.
Einkaframtakið væri að líða
undir lok í landinu. Ríkisvaldið
væri með nefið ofan í öllu,
skattabyrðarnar þyngdust með
ári hverju, því alltaf stækki
niggarahópurinn, sem nennti
ekki að vinna, og halda yrði
uppi af almannafé. Nei, hann
Sam Russell sagðist ekkert
vera ieiður yfir þvi, þótt síga
færi á seinni hlutann í lífi
sínu.
Nú rennur vinur minn í hlað
ið, svo ég kvaddi svartsýnis-
manninn. Ég sá hann olboga
sig gegum þvögu af blámönn
um, líklega til að fara inn á
hótelbarinn að fá sér tittlings
tár af búrbón með ögn af vatni
útí.
Þórir S. Gröndal.
Steingrímur Tómas
Sumarhátíð
Súgfirðinga
Eramsókn.armenii í Súigainda-
firði balida sumarbáitiíð á Suður-
eyri Laugiardiaginm 6. sept. og hefst
hiún M. 9 síSdegis.
Ræður flytja Steingrímiur Her-
mannsson, framfcvæmdastjóri og
Tómjas Karlsson, rltstj'ómarfull-
trúi. Ríó-trió sikemmtix, Jón Krist
jiásiisson syngUT gamanvisur við
undirleik Jóhannesar Pálmasonar.
Hlj imsveitin V.V. og Barði frá
ísafirði leikur fyrir damsimum.
Sumarhátíð Framsóknarm.
í Vestur-Húnavatnssýslu
Sumarhátíð Framsóknarmanna í Vestur-Húnavatns
sýslu verður í félagsheimilinu á Hvammstanga,
laugardaginn 6. september og hefst hún kl. 21.
Ræður flytja Ólafur Jóhannesson, formaður
Framsóknarflokksins og Björn Pálsson, stud. phil.
frá Syðri-Völlum, Þórunn Ólafsdóttir syngur við
undirleik Ólafs Vignis Albertssonar, Karl Einars
son, gamanleikari flytur skemmtiþátt og
Flamingo leikur fyrir dansi.
Kaxl
Björn Þórumi
Ólafur V.
u