Tíminn - 24.09.1969, Page 1

Tíminn - 24.09.1969, Page 1
Tré, bílar og hús fuku eins og hráviðí í tólf vindstigum — Sextán manns hafa látizt NTB-þriðjudag. Sextán manns munu hafa látið lífið ■' óveðrinu sem gekk yfir Suður-Svíþjóð, Norður-Danmörku og Kattegat í gær. Tala særðra er komin upp í nokkur hundruð og þó eru ekki öll kurl komin til grafar. Veðrið olli tug- milljóna króna tjóni. Miklar rafmagnstruflanir hafa orð- ið, samgöngur hafa farið úr skorðum og símasambands- laust er enn við mörg héruð. Talið er, að annað hvort hús á Skagen hafi skemmzt mældist þar tólf vindstig. Fréttir eru sífellt að berast af afleiðinigum óveðursins, sem er sagt það versta í manna minnum. Víðast hvar er þó ekki greint frá meiri veðurhæð en 10—12 vindstigum, en þó mæld ust 14 vindstig í Noregi í verstu hrinunum. Mest er tjónið talið hafa orðið á Skagen á Norður Jótlandi, og er sagt að annað hvort hús þar hafi orðið fyrir skemmdum. Sjö manns fórust þar og einnig fórust nokikrir í Gautaborg. Alls staðar fauik allt, sem laus legt var og jafrevel þungir kran ar. Tveir stórir kranar í Hauga sundi í Noregi, sem báðir voru múraðir niður, fúku út í sjó. Annar var 50 lesta þungur. Óvíst er, hvort hægt verður að bjarga þeim á þurrt aftur. Þak fauk af skóla þar í grenndinni og varð að senda 350 nemend ur heim. Þá munu tugir húsa í byggingu á eyju fyrir strönd Noregs hafa gjöreyðilagzt og fjölmargir bátar hafa brotnað í spón. Rafmagnið fór víða af og bærinn Farsund var aillan mánudaginn bæði rafmagns- og símasambandslaus. Rúður í skólanum í Furulundi fuku inn á gólf og brotnuðu þar og síðan fuku trjáhútar inn um glugg ana. af völdum stormsins, sem Hundrað og sjötíu bátar og skip leituðu hafnar í Kristian sand á mánudagisnóttina. Hluti af beykiskógireun. við Larvik, sem er eimi skógur sinnar tegundar í Noregi er nú eins og eyðimörk á að líta, en þar brotnuðu 30 ára gömul tré eins og eldspýtur. Símalínur í Suður-Noregi liggja víða niðri og vegir eru lokaðir af skriðum, trjábolum og húsahlutum. I Þelamörk varð tugmilljóna tjón af völdum veðursins. Þar skildi stormurinn eftir sig slóð af brotnum trjám, fjölda hús þaka á víð og dreif bílskúrar ,fuku til í heilu lagi, eða brotn uðu niður og 30 hlöður eyði- lögðust. Ekki urðu skaðar á mönnum í Þelamörk, en mjóu munaði, þegar hraðiestin -frá Kristianssand var með naum- induim stöðvuð, áður en hún ók á trjábol, sem lá þvert yfir teinana. Síma- og rafmagnslín ur slitnuðu og flæktust og urenu 150 manns fram á nótt við að greiða flækjurnár og koma Mnunum saman. í fréttum frá Stavangri seg- ir, að sambandslaust hafi verið við umheiminn nokkurn tiíma, en nú hafi verið komið upp Framhald á bls. 14. SJA LÆGDIRNAR KOMA AÐ EJ-Reykjavík. þriðjudag. Eins og frá var skýrt í Tím- anum 12. september síðastlið inn, Kom aðfaranótt þessa dags mikil rigninig víða á landinu, einkum þó sunnanlands — bvert ofan á veðurspá daginn áður Sagði Veðurstofan. að ekki hefðj uerið hægt að spá fyrir um rigninguna. þar sem hún kom vegna lægðar sem myndaðist á Grænlandshafi að krvöldi þess 11., og veðurskipt- in því óvænt. VESTAN ívar ívarsson á Kirkju- hvammi á Rauðasandj hafði samband við blaðið í dag, og sagði að allir þar um slóðir hefðu öúízt við rigningu-nni að faranótt 12. september. Sagði hann. að vegn.a rigningar nótt- Lna fyrir pann 11 september hafði ekki bornað á grasi á Rauðasandi tyrr en kl. 3—4 síðdegis þaiin dag Þá var sjá- anlegt. að •"arið yrði að rigna íyrir háttatíma sama kvtíld, Frainhalu a bts. rb. I gærmorgun kvadrii göfugt og go+t skip íslonzka höfn í síðasta sinn. Það var Esjan, sem þjónað hefur hér við strendur í áratugi án nokkurra teljandi óhappa og því verið hið mesta kostaskrp. Margir hafa kvatt þetta skip með nokkrum trega, bæði þeir, sem á því hafa unnið árum saman, og einnig þeir, sem með því hafa ferðast. Þegar myndin var tekin við brottför Esju, veifuðu tveir drengir hennl. Það fór vel á því að æskan skyldi kveðja hana með því móti. (Tímamynd: GE) Samtök bænda í Laxárdal um aS selja ekki jarSir AK-Reykjavík, þriðjudag. f fyrradag héldu bændur í Lax árdal í Suður-Þingeyjarsýslu, með sér fund og bumlust samtökum um að selja ekki eða ráðstafa jörð um sínum til Laxárvirkjunar, né láta þær af hendi við aðra, nema í samráð: við sérstaka nefnd, er þeir kusu til forræðis i þessum málum. Sýnir þetta, að bændur í Laxár- ,dial ætla að standa fast og með ‘öruggum ráðstöfunum gegn svo- nefndri Glj úfurversvirkj un seim breyta mundi Laxárdal í stöðu- vatn og hafa margvíslegar aðrar breytingar í för með sér á vatna- svæði Laxár, Mývatns og Skjálf- andafljóts. Nefnd sú, sem bændur kusu til forráða í málnrn þessum, skipa Þóróllfur Jónsson, Jón Jónasson og Páll Magnússon lögtfræðingur. Þá samiþyík!k!tu bændur einnig að stofna fiskiræiktar- og veiðifé- lag um efri hluta Laxár, og var kijörin nefnd til undirbúnings mál ; inu, en þar eiga einnig hlut að bændiur úr Mývatnssveit á jörðum ! við Laxá. Þá hefur héraðsnefnd sú, sem ’ skipuð var á vegum hreppsfélaga og búnaðarsambands sýslunnar sent frá sér ýtanlega greinargerð í miótmæiaskyni, og verðúr hún • birt hér í blaðinu á morgun. Sýslunefnd hafði áður móbmælt ' 57 metra hárri stíflu í Laxárdal, : vegna Gljúfuiversvirkjunar. Færeyingar óttast iðnaö sinn í EFTA EJ-Reykjavík, þriðjudag. Svo virðist, sem ýmsir Færey- ingar harmi nú mjög inngöngu Færeyja í EFTA, og telja nauð- synlegt að Færeyingar reyni að fá sérstaka samninga við ráða- menn EFTA um undanþagur. Er það eir.kum vandamál iðnaðar- ins, sem nú koma i ljós. Blaðið „14. september" í Fær- eyjum skýrir svo frá 20. septem- ber síðastliðinn — uodii fyrirsögn inm ,Efta aðiidin voru mistök" — að þeir stjórnmálaflokkar í Færeyjum. sem samþykktu að Færeyjiar skyldu inn í EFTA, séu nú að sjá, að sú aðild fari að hafa slæm áhrif. Áætlað er, að Færeyjar verði fullgiidur aðili að EFTA árið 1973 og virðist lj'óst að þá muni færeyskur iðnaður eiga við mikla erfiðleika að stríða. Að sögin blaðsins kom það fram á fundi • iðnrekendafélagi Fær- eyja að sumii telja að færeysik- ur ðnaður „h.afi enga möguieika" þegar felia verður niður tolla og ’rinfhitnmg'Sgjöld. og færeyskur iðnaðui par með sviptur þeim stuðningi, er hann hefur haft í því formi, að fá álögu'mar á hráefnin endurgreidd. Eiren ræðumanna, Jógvan Sund- stein, lagði til að tekinar yrðu upp við,'æður við EFTA-nefndína til þess að bjarga færeyskum iðnaSi, og að Pæreyingar sjálfir önnuð- ust þær viðæður, en ekki Dan- ir. Blaðið oætir því víð frá eigin brjósti. að lítt muni þýða að ætla að fá nú oreyht aðildarskilyrðum. Það hefðu Færevingar átt að semja um fyi'irfram. (

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.