Tíminn - 08.10.1969, Blaðsíða 9

Tíminn - 08.10.1969, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 8. október 1969. TIMINN 9 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ristjómar: Tómas Karlsson. Auglýs. ingaistjóri: Steingrímur Gísleson Ritstjórnarskrifstofur í Eddu- húsinu, símar 18300—18306. Skrifstofur Bankastræti 7 — Afgreiðslusimi: 12323. Auglýslngasími: 19523. Aðrar skrifstofur sími 18300. Áskriftargjald kr. 165.00 á mánuði, mnanlands — f lausasölu kr. 10.00 eint. — Prentsmiðjan Edda h. f. Landgrunnsrétturinn Mikil ástæða er til þess að fagna því, að Emil Jónsson utanríkisráðherra hefur í ræðu, sem hanr flutti á fundi Evrópuráðsins, haldið skelegglega fram landgrunnsrétti íslendinga. Hér í blaðinu hefur það verið gagnrýnt, að þegar íslenzkir fulltrúar hafa talað seinustu árin á alls- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna eða á öðrum mikilvæg- um ráðstefnum, hafa þeir sleppt því að minnast á land- grunnsréttinn, enda þótt þeir hafi gert fiskveiðimálin og verndun fiskistofnanna að umtalsefni. Af þessu gátu út- lendingar vel dregið þá ályktun, að íslendingar væru að þreytast í landgrunnsmálinu. Með ræðu sinni á þingi Evrópuráðsins, hefur utan- ríkisráðherra kveðið niður efasemdir um þetta efni. Orðrétt fórust ráðherranum orð á þessa leið: „Hrygningarsvæði og uppeldissvæði fiskfeins þarf að vernda fullkomlega. Þau ná nú svo langt frá ströndinni að 12 mílna mörkin, sem hafa nú verið að mestu viður- kennd í reynd síðan Genfarráðstefnumar voru haldnar 1958 og 1960, ná þar ekki til. íslenzka ríkisstjórnin hefur marglýst því yfir, sem sinni stefnu að hún teldi nauðsyn- legt að friða allt landgrunnið kringum landið og ég efast ekki um að þetta verður talið nauðsynlegt í framtíðinni, ef ekki á um of að ganga á fiskistofninn. Landgrunnið hefur ekki verið nákvæmlega og endan- lega ákveðið, en venjulega er miðað við 200 m. dýpi En þeirri skoðun vex nú óðum fylgi að lengra þurfi að fara. Hafsbotnsnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur nú þetta mál til athugunar, að vísu í öðru sambandi en þar virðist stefna í sömu átt. Þó að þetta kunni að virðast harðir kostir í bili fyrir þær þjóðir sem fiska á fjarlægum mið- um, em þeir þó vissulega aðgengilegri en að uppræta stofninn, því að margir hafa takmarkaða trú á kvóta- kerfinu.“ Um þá stefnu, sem lýst er í framangreindum ummæl- um utanríkisráðherra, er öll þjóðin sammála. Það sýnir bezt, hvem árangur slíkur málflutningur ber, að brezkur þingmaður ,sem sat fund Evrópuráðsins, lýsti fullum skilningi á þessum ummælum íslenzka utan- ríkisráðherrans. Þingmaðurinn benti á, hve ólík væri aðstaða smáríkis, sem byggði afkomu sína eingöngu á sjávarútvegi, og stórþjóða, sem hefðu aðrar atvinnu- greinar og aðrar tekjulindir en sjávarútveg. Ótvírætt er því, að rétta leiðin er að ræða þetta mál opinskátt og útskýra það, en ekki að þegja, eins og gert hefur verið undanfarin ár. „Þetta gengur vel“ Morgunblaðið hefur þau ummæli eftir Sveini Guð- mundssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins og fram- kvæmdastjóra vélsmiðjunnar Héðins, þegai hann var nýlega spurður um rekstur fyrirtækisins: Þetta gengur vel. Sömu svör telur blaðið sig hafa fengið hjá forstjóra hampiðju, fataverksmiðju og húsgagnaverkstæðis. Ótrúlegt er annað en að ýmsum iðnrekendum þyki þetta athyglisverð svör og þó einkum svar Sveins Guð- mundssonar. Það væri t.d. fróðlegt, ef Sveinn vildi til viðbótar skýra frá því, hve mikil aukning hefur orðið á starfsmannafjölda hjá Héðni seinustu 10 árin. Og þá væri ekki síður athyglisvert, ef Mbl. vildi birta svör frá hampiðju, fataverksmiðju og húsgagnaverkstæði um það, hvemig þeim litist á reksturinn, þegar búið er að fella niður framleiðslustyrki og allar hömlur á tollum og innflutningi umræddra vara, eins og verða mun, ef ísland gengur í EFTA. Þ.Þ. Vokhigasti maöur Norðurianda varð sjötugur á sunoudaginn Um 180 þúsund manns vinna við fyrirtaeki Waiienbergs-ættarinnar Marcus Wallenberg, formaður stjórnar Saab, þakkar Marcusl Wallenberg, varaformanni stjórnar Scania Vabis í tilefni af því aS fyrlrtaekin hafa veriS sameinuS. (Gamanmynd úr sænsku blaSi). EF SVARA ætti þeirri spurn ingu, hvaöa maður væri vold- ugastur á Norðurlöndum, væri ekki fjarri lagi að nefna Mare us Wallenberg, sem mjög var rætt um í norrænum blöðum síðastl. sunnudag, en hann átti þá 70 ára afmæli. Þessi blaðaskrif stöfuðu þó ekki af því, að Mareus Wallenberg hefði óskað eftir þeim eða beitt hinum miklu áhrifum sínum í þá átt. Hann befur aldrei sótzt eftir því að vera umtalaður og seninilega má telja þá blaða- Im'enrn á fmgrum sér, er hafa náð því langþráða marki að eiga viðtal við hann. Marc us Wallenberg hefur unnið störf sín í kyrrþey, oftast á bak við lokaðar dyr. En þau hafa etoki orðið árangursminni vegna þess. Svíar giska á að um 180 þúsund manns vinni nú við þau fyrirtæki, sem Mareus Wall enberg stjórnar beint eða ó- beint. Árið 1964 var talið að einkaeign Wallenbergsættarinn ar næcni 125 millj. sænskra króna, en þar af væri eign þeirra bræðranna Jacobs og Mareusar 80%. En hér var vafalítið hvergi nærri allt tal ið, því að erfitt er að grafa upp, hvernig öllum eiginum ætt arinnar er komið fyrir. Aðalatr iðið er hitt, að Wallenbergarn ir eiga stærsta eða annan stærsta bankann í Svíþjóð, En skilda Banken, og frá honum og í gegnum hann liggja þræðir í ailar áttir, sem ráða því að Wallenbergarnir eru aðaleigend ur eða meðeigendur nær allra stærstu fyrirtækja Svíþjóðar og ei'gnir þeirra er að finna víðsveg ar frá nyrstu héruðum Sví- þjóðar og suður undir miðbaug. Meðal þeirra stórfyrirtækja, sem Marcus Wallenberg hefur sett á laggirnar og stjórnar að mestu, er norræna flugfélagið SAS. Fyrir nokkrum vikum steypti hann saman tveimur sæns'kum stórfyrirtækjum, Saab og Scania Vabis, til að sikapa þeim betri samkeppnis stöðu á heimsmarkaðinum í framtíðinni. WALLENBERGSÆTTIN er gömul og gróin ætt embættis- rnanna, er upphaflega bar nafnið Wallberg. Frægastur hinna eldri W'allenberga er sennilega Marcus Wallenberg biskup í Lintoöpinig, er þótti mjög róttækur og uppreisnar gjarn á stúdentsárum sínum. Sonur hans, André Oscar, gerð ist sjómaður og skipstjóri, sem sigldi um öll heimshöf, unz hann stofrnaði sitt eigið skipa- félag í Sundsvall. Það hélt fyrst uppi siglki'gum milli Þét ursborgar og Grimsby. Fyrir- tætoið gekk misjafnlega og stoorti oft retostrarfé. André Oscar greip því til þess ráðs að stofna eigin bantoa, en það var ekki ótítt í þá daga, að atvinnurekendur reyndu að afla sér lánsfjár á þann hátt. Það var árið 1856, sem André Oscar stofnaði Enskilda Bank en, sem nú er voldugasta fjár- málastofnun Svíþjóðar. Bank inn getok misjafnlega í fyrstu og varð ríkið einu sinni að fcoma til aðstoðar og bjarga honum frá gjaldþroti. Síðar gekk þetta betur. André Oscar varð þingmaður og hlaut margs toomar viðurkenningarorður fyr ir fjármálastörf sín. ÞAÐ varð þó fyrst undir sam eiginlegri stjórn sona hans, Knut Agathons og Marcusar Wallenbergs, sem Enskilda Banken færði út kvíarnar. Eink um var það þó Marcus, sem reyndist snjall fjármálamaður. Hann fór inn á þá braut að gerast stofnandi og meðeigandi ýmissa fyrirtækja, sem nú eru í hópi helztu fyrirtækja Svi- þjóðar. Sjálfur gerðist hann stjórnarformaður margra þeirra, en átti sæti í stjórn annarra. Hann var óragur við að taka við rekstri fyrirtækja, sem höfðu gengið illa, ef hann taldi þau hafa álitleg starfs- sikilyrði. Allt veltur á stjórninni. sagði hann. Það er ekkert fyrir tæki svo traust, að lélegur stjórnandi geti etoki eyðilagt það og það er ekki til neitt svo lélegt fyrirtæki, að góð stjórn geti ekki endurreist það. Und antekningarlítið mun honum hafa orðið að þessari trú sinni. Þegar Marcus Wallenberg, sem bar titil héraðshöfðingja, féll frá, tóku við stjórn En- skilda Banken tveir synir hans, Jakob og Marcus sá, sem varð sjötuigur á sunnudaginn. Eink- um er það þó Marcus, sem hef ur látið stjórn bankans og dótt- urfyrirtækja hang taka til sín. Þau fyrirtæki, sem hann stjórn ar beint og óbeint, skipta mörg um tugum, og meðal þeirra er að finna ýmis helztu stórfyrir tæki Svía. Eins og áður segir, hefur verið reiknað út, að tala starfsmanna við þessi fyrirtæki, sé um 180 þús. Þótt sóisíaldemókratar hafi farið með stjórn í Svíþjóð sein ustu fjóra áratugina, hefur það etoki orðið tii að draga úr veldi Wallenbergsættarinnar. Senni lega hefur það aldrei eflzt meira en á þeim tíma. Nú ráð- gera sósíaldemókratar að fara óbeint í slóð Wallenberganna með þvi að stofna fjárfestmg- arbanka ríkisins, sem verði enn öflugri en Enskilda Banken. Þannig hyggjast þeir að efla og skipuleggja fjárfestinguna og tryggja þ-átttöku ríkisins 1 atvinnurefcstrinum og stjórn atvinnufyrirtækj anna. Illvfljað- ar tungur segja, að þeir virðist þanoig hafa lært meira af Wallenberg en af Karli Marx. Þ.Þ. mj

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.