Tíminn - 12.10.1969, Blaðsíða 7

Tíminn - 12.10.1969, Blaðsíða 7
SUNNUDAGUR 12. október 1969 TIMINN 7 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Pramkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ristjómar: Tómas Karlsson. Auglýs. ingastjóri: Steingrímur Gístason. Ritstjórnarskrifstofur í Eddu. húsinu, símar 18300—18306. Skrifstofur Bankastræti 7 — Afgreiðslusimi: 12323. Auglýsingasími: 19523. Aðrar skrifstofur sími 18300. Áskriftargjald kr. 165.00 á mánuði, innanlands — f lausasölu kr. 10.00 eint. — Prentsmiðjan Edda h. f. Eining er fyrir öllu Það sést á mörgu, að stjórnarflokkarnir óttast mjög um aðstöðu sína í næstu þingkosningum. Þeim er ljóst, að stjórnin nýtur ekki trausts. Því verður ekki lejmt lengur, að henni hafa mistekizt mörg hin veigamestu verkefni, eins og að tryggja næga atvinnu og hliðstæð lífskjör og eru í nágrannalöndum okkar. Þess vegna fjölg- ar óðum þvi fólki, sem flýr land. Til þess að vega gegn hinu vaxandi álitsleysi ríkis- stjómarinnar, treysta stjórnarflokkarnir einkum á tvennt. Annað er, að þeir, sem hafa kosið stjórnarflokk- ana áður, haldi áfram að gera það af vana, þrátt fyrir óánægju sína. Hitt er það, að aukin sundrung í liði stjómarandstæðinga verði til þess að styrkja aðstöðu stjórnarflokkanna og tryggja þeim þingmeirihluta áfram, þíátt fyrir minnkandi kjósendafylgi. Því er ekki að neita, að sundrung sú, sem hefur átt sér stað og á sér stað innan svonefnds Alþýðubanda- lags, styður á vissan hátt þessar vonir stjórnarinnar. Alþýðubandalagið hefur reynt að helga sér líkan starfs- grundvöll og flokkur Aksels Larsens í Danmörku, sósí- alski þjóðflokkurinn í Noregi og vinstri flokkurinn — kommúnistaflokkurinn í Svíþjóð. Allir hafa þessir flokk- ar sundrazt og misst fylgi stórlega undanfarin misseri. Hjá Alþýðubandalaginu virðist þetta ætla að fara á sömu ieið. Það virðist nú klofið í þrennt og hafa allir þessir armar sitt eigið málgagn, Alþýðubandalagið sjálft hefur Nýja Útsýn, Hannibalistar hafa Nýtt land og hægri- kommúnistar hafa Nýja Dagsbrún. í fjórða lagi er svo Þjóðviljinn, sem enn virðist á valdi hins gamla komm- únistakjama frá dögum Kommúnistaflokksins, sem var að nafni til lagður niður 1939. En þótt sundrung ríki 1 þessum herbúðum, þarf það ekki að vera vatn á myllu stjórnarflokkanna. Þessi sundr- ung sýnir það enn betur en ella, hve nauðsynlegt það er að efla einn sterkan flokk frjálslyndra og umbóta- sinnaða manna, sem getur skapað nauðsynlegt mótvægi gegn stjórnarflokkunum. Það er í samræmi við þróunina í öðrum lýðræðislöndum, að kjósendur yfirgefa smá- flokkana og fylkja sér um stóm flokkana. Fleiri og fleiri kjósendur gera sér Ijóst, að einmitt innan stóm flokk- anna er hægt að hafa mest áhrif. Að skipta sér í áhrifa- laus flokksbrot, leiðir til fullkomins áhrifaleysis os hjálpar aðeins andstæðingunum. í dag er Framsóknarflokkurinn langsterkasti og samstæðasti andstöðuflokkur ríkisstjórnarinnar. Efling hans er það, sem stjórnarflokkarnir óttast mest og taka mest tillit til. Með því að efla hann, sameina menn kraftana, en sundra þeim ekki. Aukinn styrkur hans er eina vænlega og örugga leiðin til að knýja fram breytta stjómarstefnu. Vopnum stjórnarblaðanna og stjórnar- flokkanna er líka fyrst og fremst beint gegn honum. Stjórnarherramir gera sér ljóst, að stjómarstefnunni verður aðeins hnekkt með eflingu hans. fslenzkir stjórnarandstæðingar verða að gera sér ljóst — hvar í flokki, sem þeir hafa áður staðið — að ólögum stjórnarstefnunnar verður aðeins hnekkt með því að kraftarnir séu sameinaðir. Hitt er aðeins óvinafagnaður að sundra þeim enn meira en orðið er. Þess vegna skiptir það höfuðmáli, að Framsóknarflokkurinn eflist í þeim bæjar- og sveitarstjórnarkosningum og þingkosningum, sem eru framundan. Þ.Þ. ÞORARINN ÞÓRARINSSON: Um vesfur-þýzk stjórnmál llL á kosningahátí ö með Schiller eg Willy Brandt í Dortmund Schrller er nú vinsælasti stjórnmálamaðurinn í Vestur-Þýzkalandi. KARL SCHILLER BLAÐAMANNAHÓPURINN, sem óg var í, átti þess kost að fylg'jast mcð Willy Brandt, utanríikisráðherra, seinasta dag hinna opinbem kosninigabar- áttu eða föstudaginn 26. sept., en kosið var sunnudiaginn 28. september. Seinasta daginn fyrir kosningarnar héidu flokfc- arnir enga opinbera fundi og foringj arnir héldu kyrru fyrir oig biðu úrsiitanna. Eins og eðOilegt mátti telja, helgaði Willy Brandt Ruhrhér- aðinu seinasta dag kosnintga- baráttunniar, en Ruhr-ihéraðið er hið sterka vígi sósíaldemó- krata. Dortimund er taiinn höf- uðborg þess oig þar lutou þeir sameiginlega kosningabarátt- unni Willy Brandt og Karl Sohiller, á mjög fjlölmennri kosningahiátíð, sem m.ia. var haldin þeim tii heiðurs, en Schilier er þingmaður eins af kjördæmum Dortmundborgar. Uppihaflega hafði verið ráð- gert að Willy Brandt héldi þrjá stóra fundi þennan dag, í Gelsenkirehen kl. 14, Herne fcl. 15,30 og Dortimund tol. 18,30 en tveimur var bætt við síðar. Vegna stjórnarstarfa í Bonn, seinkaði Brandt, svo að fund- irnir byrjuðu allir seinna en auiglýst var. Brandt fyigdi þeirri áæti'Un næstum alian tímann sem aðalkosningabaráttan stóð, eða á annan miáriuð, að fara til Bonn að kveldi og vinna í utan ríkisráðuneytinu fyrir hádegi, en hefja síðan kosningaleiðang- ur eftir hádegi, og heimsækja þá jafnan fleiri staði. Að sjálf sögðu fór hann oftast flugleiðis, þegar um meiriháttar vega- leiðir var að ræða. Þessi miklu ferðalög oig fundarhöld, ásamt vinnu við stjórnarstörf, hljóta að hafa verið mjög þreytandi, enda báru ræður Brandts þess merki. Þær voru skilmerkilega fluttar, en báru þess keim, að þær væru fluttar meira af seiglh og vana, en af innblæstri og eldmóði. Brandt hafði líka valið sér þann stíL, ef svo mætti segja, að sfcírskota meira til skynsemi en tilfinninga. Hann beitti því Htt vígorðum í málflutningi sínum né gaman- yrðum, heldur flutti mál sitt ákveðið og virðulega. Allir voru þessir fundir úti- fundir, mjög fjölsóttir, oig fylg- ismenn Brandts bersýniega í yf irgnæfandi meirihluta. Mál hans var litið truflað og hann fékk gott klapp öðru hvoru. Ekki bar eins mikið á ungu fólki og á fundum hjó Scheel, en samt mun yngri kynslóðin hafa mjög fylgt sér um sósíaldemókrata. Brandt var alls staðar vel tekið, en þó hvergi nærri hyMtur á borð við Kiesinger. Svo virðist sem Brandt ætti meira traust manna en aðdáun. ÞAÐ var líka eitt aðalatrið- ið í ræðu Brandts, að Þjóðverj- ar þyrftu að vinna sér traust. Engin þjóð þarfnast meira vina en Þjóðverjar, sagði hann. Það er ekki nóg, að aðrir diáist að iiminni nriiiiiii awiaa—w árangri ofckar á sviði efnahags- mála. Við þurfum að vinna okk ur tiltrú annarra þjóða og það gerum við bezt með réttlátum stjórnarháttum og heilbrigðu lýðræði. Við þurfum að tryggja batnandi lifskjör og jafnari, og beita til þess jöfnum höndum úrræðum skipulagshyggju og samkeppni. Tryggingakerfið þarf að auka og bæta, einkum ellitrygigingar. Allt skólakerfið þarf að umskapast, kennisian að breytast til samræmis við nýja/ tíma og stúdentar að fá hlut- deild í málefnum háskólanna. Við eigum að mæta óánægju og gagnrýni ungu kynslóðarinn ar með jákvæðum aðgerðum. Lýðræðið þarf að verða traust ara og fullkomnara með virkri þátttöku sem allra flestra. Verkamenn þurfa að fá hiut- deild í stjórn fyrirtækjanna og jafnvel gerast meðeigendur þeirra að einhverju leyti. Langur kafli í öllum ræð-um Brandts fjallaði um utanríkis- málin. Það verður að stefna kappsamlega að því að draga úr spennu í Evrópu og koma þar á traustari skipan öryggis og friðar. Þetta tekst ekki á ein- um degi, en það verður að ur að stefna af einlægni og þol- inmæði að því marki. Efnahags bandalag Evrópu þarf að efla með þátttöku Breta, Ira, Norð- manna og Dana. Sambúðina við Austur-Evrópu þarf að bæta eftir því, sem kostur er. Það þarf að leita samninga við Aust ur-Þýzkaland, en viðurkenning á því kemur þó ekki til greina meðan valdhafarnir þar vilja efcki semja um að komið sé á eðlilegu ástandi í skiptum land anna. Vestur-Þjóðverjar eiga að vera reiðubúnir til að lýsa yfir því, að þeir viðurkenni og virði öll núiv. landamæri Evr- ópu, þar með talinn vestur- landamæri Póllands, unz þau hafa verið endanlega ákveðin með friðansamningi. Vestur- ÞýZkaland á að gera sitt ýtrasta til að samningar náist um að draga úr vígbúnaði. Þess vegna ber því að undirrita samninginn um bann við notkun kjarnorku- vopna og afsala sér öllu tilkalli til kjarnorkuvopna. Þátttaka í Nato er Vestur-Þýzkalandi eðli- leg og nauðtsynleg. RÆÐUR Willy Brandts tóku oftast tæpan klukkutíma og töluðu ekkd aðrir en hann, þegar undan er skilin stutt kynning. Þó brá út af þessu í Dortmund. Þar talaði einnig Karl Sohiller efnahagsm.ráðh. og héldu þeir sína hálf tíma ræðuna hvor. Ræða Schillers var sú kosningaræðan, sem ég ég heyrði, er bersýnilega féll áheyrendum bezt í geð. Hann er málhagari og harðfengnari ræðumaður en Willy Brandt. Schiller deildi óspart á Kiesing er og Strauss og lét einkum fjúka spauigsyrði um hin fyrr- nefnda. Óneitanlega var það líka Schiller, sem átti meginþáttinn í kosningasigri sósíaldemókrata. Skoðanakannanir sýndu, að hann naut en meira álits en Kiesinger. Þetta stafaði af því, Eramhald á bls. 10.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.