Tíminn - 25.10.1969, Blaðsíða 4
4
TIMINN
LAUGARDAGUR 25. október 1969
Fálag járn-
iðnaðarmanna
FÉLAGSFUNDUR
verður haldinn þriðjudaginn 28 okt. 1969 kl.
8,30 e. h. í Góðtemplarahúsinu Suðurgötu 7, Hafn
arfirði.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Um starfsmat, Gunnar Guttormsson
3. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.
SMYRILL
Ármúla 7.
Simi 84450.
Rafsuðukapall
35 m/m2 og 50 m/m2
Rafsuðujbráður
Mjög góð tegund
1,5, 2.5—3,25 og 4 m/m.
Rafsuðuhjálmar
Þriár gerðir
Rafsuðutangir
í úrvali.
-=5—25555
14444
WMísm
BILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
V W Sendiferðabifreið-VW 5 manna-VWsvefnvagn
VW 9 manna - Landrover 7manna
M
A
VIÐA-
VANGI
Frá Eggert kemur
Ekkert
Pétur Axel Jónsson, sem rit-
ar fastan sjávarútvegsmálaþátt
í AlþýðublaSið, segir m. a. í
pistli sínum á miðvikudag:
„Togarakaup eru stanzlaust
á dagskrá, sein vonlegt er.
Stjórnmálamennirnir eru bún-
ir a3 sitja í nefndum frá því
maður man eftir sér, og enn
er lausnin ekkert nema aftur-
kreistingur um „nákvæma yfir
vegun“. „flana ekk> að neinu"
og svo framv Ég held satt að
segja. að þeir ættu að taka sig
saman í andlitinu og eyða eins
og einum *il tveimur dögum
til að KAUPA togara . . . .“
Þannig er komið, að Al-
þýðublaðið verður að skrifa
með þessum hætti um vanefnd
ir kosningaloforða Alþýðu-
flokksins úr tveimur síðustu
alþingskosningum. Allan tím-
ann hafa ráðlierrar Alþýðu-
flokksins farið með stjórn sjáv
arútvegsmálanna. Frá Eggert
kemur Ekkert.
Hinar frjálsu
umræður á „vísinda-
íandsfundinum"
Eins og öllum er kunnugt,
hefur verið talsverður órói og
óánægja í Sjálfstæðisflokkn-
um. Landsfund flokksins átti
að réttum regium að halda á
s.I. vetri. Þá bótti ástandið
svo slæmt í flokknum, að á-
kveðið var að fresta honum til
haustsins í von um betra veð-
ur. Fomsta flokksins var ugg-
andi samt sem áður. Þótt
ástandið hefði kannski eitthvað
skánað, þá var það slæmt. Það
Kom revndar áþreifanlega í
ijós á landsfundinum er 114
vildu fella Jóhann Hafstein úr
sæti varaformanns flokksins.
Enn betur hefði þetta þó kom-
ið í Ijós, ef hinum almenna
landsfundarfullt'úa hefði gef-
izt tóm til þátttöku í frjálsum
rökræðum um ágreiningsmál-
in. En fyrir það vildl forysta
flokksins girða og fyrir það
tókst henni að girða með
„góðri skipulagningu“. Hún
ákvað að þetta skyldi verða
„vísindalandsfundur“ og tími
frjálsra umræðna landsfundar-
fulltrúa rækilega ásettir ræð-
um vísindamanna. Ekki færri
en 7 vísindamenn voru fengn-
ir til að halda löng erindi um
vísindmálefnf á aðal umræðu-
tíma fundarins.
Það er auðvitað ekki nema
eitt um það að segja, að ráð-
herrar Sjálfstæðisflokksins
hafi áhuga á að sinna vísinda-
málum á landsfundum Sjálf-
stæðisflokksins Enn betra
væri þó að þeir hefðu áhuga á
að standa að myndarlegum
stuðningi við hagnýtar rann-
sóknir atvinnuveganna í ríkis-
stjórninni.
Þessi ræðuflutningur á
Landsfundinum var þó í tals-
verðum mæli upptugga. Rétt
fyrir Landsfundinn efndu ung-
ir Sjálfstæðismenn til vísinda-
ráðstefnu, þar sem allir sömu
ræðumeimirnir tóku til máls
og fluttu að meginkjarna sömu
ræðurnar. Útdráttur úr öllum
þessum ræðum var birtur í
Morgunhlaðinu áður en Lands
fundurinr hófst. Þessar ræður
hafa ná verið endurbirtar all-
ar í heild í blaðinu.
Val verkefna
og stefna Sjálf-
stæðísflokksins
Það sem þessir vísindamenn
sögðu um stefnuna í vísinda-
og raimsókiiarmálum þjóðar-
innar geta víst flestir skrifað
undir. Um meginefnið í þeirra
máli gætu víst allir stjórnmála
flokkar skrifað undir. En það
er framkvæmdina sem vantar
og forystuna og þar stendur
upp á þá ríkisstjórn, sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
veitt forstöðu i 10 ár. Og enn
vantar þó ákveðna stefnumörk
un og forystu og frumkvæði
að loknum landsfundi. Eða
eins og einn af landsfundar-
fulltrúunum, Ásgeir Jakobs-
son, segir í grein i Mbl. í gær:
„Vísindamennirnir reka
harðvítuga atvinnupólitík og
boða rannsóknir á öllu milli
himins og jarðar, en gleyma
að segja okkur á hverju eigi
að byrja, hvað eigi að rann-
saka fyrst, en það er talsvert
mikið atrið' sennilega að byrja
ekki á öfugum enda, svo mik-
ið sem þarf að rannsaka. Hver
og einn heldur fram sínu sér-
sviði. og þar sem þetta eru
heldur greindir menn og sæmi
lega rökfastir verður það vita
skuld manni ofviða að dæma
um hvern þeirra skuli fyrst
og helzt efla. Flestir sögðu að
lokiiu.-i lestri hverrar greinar,
því að hvert orð vísindamanns,
er endurprentað — já, mikið
rétt, þetta þarf nauðsynlega að
raiinsaka.“
Þarna kemur A. J. einmitt
að kjarna málsins. Rannsókn-
irnar verða að vera liður í
skynsamlegum áætlunarbú-
skap atvinnulífsins og þjóðar-
búsins og þar verður að raða
verkefni'm upp eftir gildi
þeirra og hve fljótt þær gætu
skilað arði. Landsfundur Sjálf
stæðisflokksins var einmitt
haldinn að því er manni helzt
skilst til að draga það enn
skýrar fram en verið hefur,
að Sjálfstæðisflokkurinn sé á
móti hvers konar áætlunarbú-
skap, a.m.k. vildi hinn „vin-
sæli varaformaður“ flokksins
leggja á það sérstaka áherzlu
í sjónvarpsv;ðtali að lndsfundi
loknum.
„Púðurhlunkarnir"
Og víst er það, að ýmsir
iandsfundarfulltrúar, sem
gjarna hefðr viljað taka til
máls og ræða vandamál líð-
andi stundar og stefnu flokks-
ins, hafa setið óróir undir
Iestri vlsindamannanna, sem
tóku upp allan hinn frjálsa
umræðutíma landsfundarfull-
'rúanna og það er ekki ör-
grannt um að ýmsir hafi hugs-
að þeim hreinlega þegjandi
þörfina þótt auðvitað hafi
þeir ekki átt beina sök á þess-
um langa ræðuflutningi, held-
ur forystan. Ásgeir Jakobsson
lýsir þessu í Mbl. í gær með
eftirfarandi orðum, þar sem
uann gerir því skóna, að ýmsir
landsfuiltrúar hafi spurt
sjálfa sig þessarar spurningar:
„Hvernig á að brauðfæða og
launa alla þessa bjargvætti
— og eru þeir að bjarga
nokkru nema sjálfum sér —
hvar fást peningar og hvenær
skila peir sér?
Svarið er jafnan:
í framtíðinni og myndi marg
ur kalla það eilítið loðið.
Engir menn hafa látið út úr
sér annað eins magn af hald-
lausu bulli og vísindamenn í
gegnum aldirnar. Trúin á vfs-
indamenn til Iausnar almenn-
um viðfangsefnum mannlífs-
ins hefur ekki við rök að styð.i
ast. Flestir beirra eru ósköp
venjulegir púðurhlunkar.“
Greinilegt er af þessu að
ekki eru allir ánægðir að lokn
um landsfundi eða telja að á
vandamálum þjóðlífsins i dag
hafi verið tekið með sérstak-
>ega raunsæum hætti á þess-
um margumrædda landsfundi.
T.K.
BÍLSKÚR
ÓSKAST
á tínunni milli Skúlagötu
og Skipasunds.
Tilboð sendiet blaðinu
merkt „Bílskúr 1011”.
GULLFISKABÚÐIN
AUGLÝSIR
Nýkomin sending af fóðri
og alls konar vítamínum
fyrir fugla.
Einnig gott úrval af fisk-
um, fuglum og gullhömstr-
um. Leikföng fyrir fugla.
Skraut fyrir fiskabúr.
Sendum gegn póstkröfu.
GULLFISKABÚÐIN,
Barónsstíg 12.
Heimasími 19037
fyrir hádegi.
Milliveggja
plötur
— fyrirliggjandi
HELLUSTEYPAN
Garðakauptúni, sími 52050
og 51551.
— POSTSENDUM —
BIKARKERPNIN
MEUVÖUUR
í DAG KL. 14.00 LEIKA
Akureyri — Selfoss
Á MELAVELLINUM.
Framlengt verður, ef jafntefli verður eftir 90 mín.
MÓTANEFND