Tíminn - 25.10.1969, Qupperneq 12
ONASSIS KEYPTI DEMANT
FYRIR 90 MILLJÚNIR KR.
Nýlega var seldur á uppboði
í New York, einn af stærstu
demöntum heimsins eða 69,42
karöt. Sagt er, að það hafi ver
ið Aristoteles Onassis sem
keypti demantinn handa konu
sinni, Jaqueline, fyrrum Kenne
dy. Kaupverðið var rúmlega ein
milljón dollara, eða um 90 millj
ónir fel. króna.
Á uppboðinu var umboðsmað
ur hjónanna Liz Taylor og
Riehard Burton og bauð hann
lengi vel í steininn, sem er á
stærð við sveskjustein, en þeg
ar komið var upp að milljón
dollurum hætti hann, svo að
leikaraparið varð af demantin-
um.
Þetta mun vera hæsta verð,
sem nokkru sinni hefur verið
greitt fyrir einn demant
Á að taka upp einmenningskjördæmi eða láta
sitja við þá kjördæmaskipan sem nú er?
Um þetba verður rætt á fundi Framsókn-
arfélaganna í Tjarnarbúð (Oddfellowhúsinu)
kl. 2 á morgun, sunnudag. Frummælandi er
Sigurður Gizurarson lögfræðingur. Að er-
indinu ioknu verða almennar umræður. —
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Félag Framsóknarkvenna, Framsóknar-
félag Reykjavíkur, FUF, Reykjavík.
GUNNAR
SKIPAÐUR
HÆSTA-
RÉTTAR-
DÓMARI
FB-Keykjavík, föstudag —
I frétt frá Dóms og kirkju
málaráðuneytinu segir, að for
seti Islauds hafi í dag skipað
dr. Gunnar Thoroddsen, sendi
herra, dómana við Hæstarétt
frá 1. janúar 1970 að telja.
Dóims og kinkjumálaráðu
neytið, 24. október 1969.
FAGNAÐ MEÐ
NELLIKUM
Rússneska sendiráðsfólkið fjöl-
mennti niður á hafnarbakka í
Sundahöfn í gærdag, þegar rúss-
nesku herskipin tvö lögðust þar að,
nærri tveim tímum á eftir fyrir-
fram gerðri áætlun og konurnar
veifuðu nellikum. Sjóliðarnir stóðu
í röðum á þilförum skipanna, og
þegar á daginn leið stóðu þeir enn,
og horfðu til lands. Mátti varla á
milli sjá hverjir væru forvitnari,
þeir, eða íslendingarnir, sem lögðu
leið sína inn í Stmdahöfn til að
skoða þessa rússnesku bryndreka
sem búnir eru radarstýrðum eld-
flaugavopnum, eftir því sem bezt
verður séð. Aðmírállinn sem skip-
m heyra undir, Soloviev, gekk á
lamd eftir landtöku skipanna, í síð
um frakka og með sverð, og á
fund ýmissa embættismanna, og
að rússneskum sið hefur hann lík
lega kysst þá á báða vanga.
GYLFI Þ. GISLASON:
EFT A-VIDRÆÐLR
Á LOKASTIGI
EJ-Reykjavík, föstudag.
„I byrjun næstu viku heldur
fastaráð EFTA í Genf fund. ís-
lenzkir embættismenn munu þá
eiga viðræður við EFTA-ráðið í
ljósi þeirrar niðurstöðu, sem náðst
hefur í viðræðum um freðfiskinn-
flutninginn til Brcllands. Úr því
ætti að geta verið algjörlega ljóst,
með hvaða skilyrðum ísland gæti
gerzt aðili að EFTA“, — sagði
Gylfi Þ. Gíslason, viðsiptamálaráð
herra, í ræðu á aðalfundi Verzlun
arráðs íslands í dag.
GyMi sagði, að viðskiptamála-
ráðuneytið muni „nú alveg á næst
unni gera heildarskýrslu um mál-
ið. Þegar rfidsstjórnin og EFTA-
nefndin hafa fjallað um þá skýrslu
miun málið verða lagt fyrir Al-
þingi til ákvörðunar um, hvort ís-
land eigi að gerast aðili að EFTA
eða ekki“.
í ræðu sinni fjallaði Gylfi mik
ið um EFTA-málið, ræddi um ósfe
ir íslendinga í EFTA-viðrarftanum
og hvernig við þeim var tekíð.
Framhald á bls. 10.
Akranes
Fnamsóknarfélag Aibraness heldur
Framsóknarvist í FélagsheimiE sinu
Sunniubraut 21, sunnudaginin 26. okt.
kl. 20:30. Öllum heimiH aðgaugur
meðan húsrúm leyfir.
R
Ýmsar nýjungar í vetrardagskrá hljó&varpsins
VINSÆLASTA EFNIÐ A DAG-
SKRÁ UTAN SJÓNVARPSTÍMA
EJ-Reykjavík, föstudag.
Nokkrar breytingar verða á nið
urröðun efnis í vetrardagskrá hljóð
varpsins að þessu sinni, og eru
ýmsir gamlir dagskrárliðir færðir
á nýjan senditíma. Virðast breyt
ingarnar að hluta gerðar til að
vinsælt efni sé einkum á þeim
tíma, þegar minnst, eða ekkert er
hnrft á Sjónvarpið, auk þess sem
ýmiss önnur sjónarmið ráða.
Verða hér raktar helztu breyt
ingarnar, sem verða í vetrardag-
skránni.
■ár Fréttir verða lesnar klukk
an 11.00 alla virka daga. Síðdegis
fréttirnar á laugardögum verða
framvegis kl. 16.00 í stað kl. 15.00
áður. Þá vérður nýr fréttatími á
sunnudögum, kl. 16.00. Aðrar breyt
,ingar verða ekki á fréttum hljóð
varpsins.
★ Leikrit vikunnar — sem um
langan aldur hafa verið á laugar
dagskvöldum — verða nú á
fimmtudagskvöldum, það kvöld
sem ekki er sjónvarpað. Fram-
haldsleikritin verða nú flutt síð-
degis á sunnudögum, en síðar er
ætlað að þau verði endurtekin
miðvikudagskvöldið næst á eftir.
Fyrsta framhaldsleikrit vetrarins
heitir ,,Börn dauðans" og fjallar
um fauða Nathans Ketilssonar.
Höfundur er Þorgeir Þorgeirsson,
en flutningur hefst sunnudaginn 2.
nóvember næstkomandi.
★ Kvöldvökurnar verða á
sunnudagskvöldum í stað miðviku
da.gskvölda áður.
★ Nýr þáttur — „Bókavaka"
— hefur göngu sína á fimmtudag
inn kemur, og vcrður aðra hverja
viku — þá vikuna, sem Sinfóníu
tónleikar verða ekki. Indriði G.
Þorsteinsson og Jóhann Hjálmars
son hafa stjórn þessa þáttar með
höndum.
-k Tekið verður upp svonefnt
„Diskotek". en sá dagskrárliður
verður að loknum síðari kvöldfrétt
um á sunnudögum. Á ungt fól'k
að geta hringt og óskað eftir dans-
og dæglurlögum í þáttinn, og verð
ur reynt að uppfylla óskirnar jafn
harðan._
■k Óskalög sjúklinga, sem ver
ið hafa eftir hádegi á laugardög
um ianga hríð. flytjast nú fram
til kl. 10,25 á laugardagsmorgnum.
Eftir hádegi kemur nýr þáttur,
„Óskakonsertinn" Geta hlustendur
óskað bréflega eftir að heyra í
þeim þætti sígilda tónlist eða þætti
úr tónverkum.
★ Skemmtidagskrá á laugar-
dagskvöldum verður þannig fyrst
um sinn. að Jónas Jónasson mun
sjá um blandað efni og létt. Verð
ur bví hagað með ýmsu móti, og
stundum að viðstöddum áheyrend
um í útvarpssal.
★ í nóvemberiok hefst athygl
ísverður þáttur, sem er algjört ný-
mæli. íslenzkur bóndi, Steinþór
Þórðarson á Hala i Suðursveit —
bróðir Þórbergs Þórðarsonar —
mun segja sögu sína og minningar,
án þess að hafa ritað staf á blað.
Er bað í fyrsta sinn sem sl£k frá
saga er flutt óskráð í dagskrá út-
varpsins.
Framhald á bls. 10
Steinþór í Hala segir ævisögu sína.