Vísir - 19.10.1978, Síða 2
2
Elisabet Halldórsdóttir, skrif-
stofustúlka:— Nei, það geri ég
ekki, þvi ég hef engan áhuga á þvi
að h lusta á þessa karla á þinginu.
Hver gerði ríkisstjórninm óskundann?
Hver gerði rikisstjórninni
barn, spyrja menn, þegar þeir
lesa I blöðum að kaupgjald á að
hækka um 10-12% fyrsta
desember, þegar reiknað hafði
verið með þvi að kauphækkunin
yrði 6,5%. Um þessar tölur
eigast við Þjóðhagsstofnunin
annars vegar og Hagstofan hins
vegar, og hefur forsætisráð-
herra iýst þvl yfir að skýringin á
hinum gífurlega mismun sé
trúnaðarmál. Að þvl leyti
kemur máliðheim og saman við
aðrar barneignir. Þær eru oft og
tfðum trúnaðarmál alveg fram
á siðustu stund.
Alkunn er sagan af reikni-
meistaranum góða, sem reikn-
aði barnið I kerlinguna. Hann
var þó einn að þvl starfi, en ekki
tvær voldugustu útreiknings-
stofnanir þjóðarinnar, sem
ekkert er ómáttugt I tækni og
mannafla. Þjóðhagsstofnunin
var höfð með I ráðum, þegar
núverandi stjórn var mynduð.
Þá var lagt á ráðin um nýaf-
staðna gengisfellingu, og talið
að hún myndi duga til að leysa
vanda efnahagsmálanna I bili.
Fljótlega kvisaðist þó að ein sjö
prósent hefði vantað upp á til að
gengisfellingin væri nóg.Það
dæmi var reiknað út I bæ, og
taliö að um væri að ræða venju-
legan kjaftagang I stjórnarand-
stöðu. Nú hefur Hagstofan hins
vegar skorið úr um það, að spá-
dómar um of litla gengisfellingu
voru réttir.
Hvað niöurgreiöslurnar
snertir er alveg ljóst, aö þær
hafa ekki náð tilgangi sinum,
þótt þær hafi hins vegar lækkað
vöruverð. Þrátt fyrir þær
stendur eftir að leysa um 6%
hækkun L desember, og verður
fróðiegt að sjá hvernig rlkis-
stjórnin bregst viö hinum nýja
vanda á dögum, þegar átti að
vera búið að leysa allan vanda I
bili. Það er meira að segja von á
skattseðlum á allra næstu
dögum vegna þess að kjörið ráð
þótti að endurskattleggja breiðu
bökin svo rikiskassinn hefði
fyrir niðurgreiöslum. En ekkert
af þessu fær staðist vegna þess
að Þjóðhagsstofnun hefur spáð
tómri vitleysu um kaupgjalds-
þróunina. Að minnsta kosti ber
henni ekki saman við
Hagstofuna. Og þetta er svo
sem ekki I fyrsta sinn sem Þjóð-
hagsstofnunin veit næsta lltið
um þróun verölagsmála, þegar
hún er að gefa rikisstjórnum
eða verðandi ráðherrum upp-
lýsingar. Þvl er jafnvel trúandi,
að prósentureikningar Lúðvlks
Jósepssonar, sem sagður er
hafa veriö að reikna sin dæmi
sjálfur á stjórnarmyndunar-
dögum, hafi verið mikið hald-
betri um niðurstöður en þessi
ósköp.
Þrátt fyrir trúnaðarmálið
hefur forsætisráðherra lýst þvl
yfir, að skýringuna væri að
hluta að finna I hækkunum á
vissum liðum landbúnaöarvara.
Kemur þar enn einu sinni á
daginn að hjarðmennskan I
búskap okkar er jafnvel orðin
dýrari en svo aö Þjóðhags-
stofnun ráði við að spð I hana.
Má raunar telja guðslán að ekki
var I upphafi hafinn búskapur
með rjúpur I stað sauðkinda,
sem skila af sér um tuttugu og
fimm kílóa fallþunga pr. kind á
ári á sama tima og t.d. svin
skilar af sér átta hundruö
kllóum á ársgrundvelli.
Talað hefur verið um að hin
nýja rlkisstjórn yrði að fá frið á
fyrstu dögum slnum til að sýna
hvers hún væri megnug. Og
mikil ósköp. Það er alveg sjálf-
Páll, Benediktsson, kennari: —
Nei, ég hlusta ekki á umræður úr
svona fjölleikahúsi, sem Alþingi
er.
Finney Kjartansdóttir, húsmóöir:
— Já, mér finnst gaman að þess-
um útsendingum og kveiki á
tækinu, þegar útvarpað er frá
sagt að hún fái allan þann frið
sem hún vill m.a. við að leiö-
rétta spár Þjóöhagsstofnunar.
Aftur á móti væri það skyn-
samleg tillaga að loka Hagstof-
unni á meöan hækkanirnar 1.
desember ganga yfir svo ekki sé
verið að gefa yfirlýsingar á vfxl
um hag og stöðu þjóðarbúsins.
Þá yrðu þau lfka færri trúnaðar-
mál ráöaleysisins, sem for-
sætisráðherra þyrfti að gæta.
Auövitaö var sagan um stærð-
fræðimeistarann og barnið I
kerlingunni lygasaga. Sagan
var eiginlega vlsindaskáld-
skapur sins tlma. En eins og um
margan slikan skáldskap hafa
fáránlegustu tilgátur hans ræst.
Og hver skyldi hafa trúað þvl,
einum sjötlu árum eftir að
sagan um stærðfræðinginn varð
til aö uppi yrði á Islandi reikni-
stofnun sem væri slikum
tækjum og mannviti búin, að
geta reiknað barn I heila rlkis-
stjórn.
Svarthöföi.
wmK
Fimmtudagur 19. október 1978 VISIR
ftm
AM
Hlustarðu á útvarp frá
Alþingi?
Sævar Hauksson, bílamálari: —
Já,ég geri það ef ég hef tima til
þess. Mér finnst þetta
skemmtilegt efni.
Ýr Einarsdóttir, afgreiöslustúlka:
— Þaðkemur fyrir.en þetta er nú
enginn uppáhaldsþáttur hjá mér.
•
„Aðstaðan er sennilega betri
hjá okkur en þeim sem hafa
fengist við minkarækt fyrir
sunnan. Sem dæmi má taka að
fóðuröflun er mun léttari þvi bú-
in eru svo aö segja viö hliöina á
frystihúsunum. Það hefur I
mörgum tilfellum þurftað flytja
langan veg til búanna fyrir
sunnan", sagði Reynir Barðdal
bústjóri á minkabdinu Loðfeldi
h/f á Sauðárkróki i samtali við
Vfsi, þegar hann var inntur eftir
hvernig reksturinn gengi.
Fjögur minkabú hafa verið
lögðniður sunnanlands. Það eru
búin að Skeggjastöðum I Helga-
dal, á Akranesi og i Hafnarfirði.
Þaðsiðasta.Lykkja á Kjalarnesi,
hefur áttviðmikla erfiðleika að
etja og liklegt er að það verði
lagt niður innan skamms.
Ekkert nýtt blóð frá
stofnun búsins.
„Það er miklum erfiðleikum
bundið aðfá dýrflutttil landsins
en það er æskilegt aö endurnýj-
un sé einu sinni á ári. Á búunum
á Norðurlöndum eru um fimm
prósent karldýra endurnýjuð
árlega. Það er mjög æskilegt að
fá nýtt blóö i stofninn en það er
ekki hlaupið að þvi. Þetta er
fariö aö há öllum búum veru-
lega en þau hafa ekki fengið dýr
Reynir Barðdal, bústjóri á minkabúinu Loðskinn h/f á Sauðárkróki.
Vlsismynd JA
Engin endurnýjun frú stofnun
— er farið að hó búunum verulega segir bústjórinn hjú Loðskinn h/f ú Sauðúrkróki
„Refarækt á góða
framtið fyrir sér.”
I mörg ár, eða frá stofnun, að
einu undanskildu'*sagöi Reynir.
Reglur um innflutning dýra
eru mjög strangar að sögn
Reynis. Þau þurfa að vera I
sóttkvi 116 mánuði áður en þau
mega blandast þeim dýrum sem
fyrir eru.
Hafa ekki aðgang að
neinum sjóðum
Minkabúin hafa ekki aðgang
að neinum lánasjóðum. „Þessu
var hleypt af stað og þau eru
rekin af áhuga hluthafanna.
Þegar illa gengur hlaupa hlut-
hafar frekar undir bagga,
heldur en að gefast upp. Þegar
farið var af stað með þetta á
sinum timaþáhéldumviðaðviö
værum á sama báti og land-
búnaðurinn en svo hefur
reynslan verið sú að stofnlána-
deildin hefur ekki viljað lána i
þessa búgrein,” sagði Reynir.
„Ég spái þvi að i framtiðinni
verði komið upp refabúum;ef til
vill hafa bændur þetta sem
hliðarbúgrein. Ég tel einnig
góðan grundvöll fyrir því að
reka þau samhliða minkarækt-
inni. Mér virðast stjórnvöld og
ráðamenn vera almennt mjög
dauf yfir þessum hlutum og
vilja litið ræða þetta og jafnvel
ekki kynna sér þessa búgrein.
Það er þvi langt i land með að
þetta komist upp eins og málin
standa í dag. Það þarf peninga i
þessa grein búskapar eins og
allt annaö.og kunnáttu. Refa-
rækt á góða framtið fyrir sér ef
lögð verður einhver rækt við bú-
greinina.”
„Minkabændur eru almennt
bjartsýnir á framtiðina og viö
viljum skora á yfirvöld að
endurskoða þessa búgrein og
kanna hvort þarna sé ekki meiri
grundvöllur til frekari rekstrar
og þá ekki sist I sambandi við
refaræktina,” sagði Reynir bú-
stjóri hjá Loðfeldi h/f. —KP
þinginu.