Vísir - 19.10.1978, Side 5
VÍSIR
Fimmtudagur 19. október 1978
Stjórn SIA, f.v. Gunnar Gunnarsson, Ólafur Stephensen og Halldór Guö-
mundsson.
Auglýsingastof-
ur stofna með
sér samband
Sjö auglýsingastofur
hafa stofnað með sér
Samband islenskra
auglýsingastofa, sem er
skammstafað SÍA.
Aðilar að sambandinu geta orð-
ið þau fyrirtæki, er uppfylla
ákveðin skilyrði sambandsins,
svo sem að auglýsingafyrirtækið
starfi óháð hvers konar auglýs-
ingamiðlum og sé fjárhagslega
óháð viðskiptavinum sinum.
Aðildarfyrirtæki verða að geta
innt af hendi alla faglega vinnu á
verksviöi almennrar auglýsinga-
þjónustu og starfi þau i fullu sam-
ræmi við siðareglur Alþjóða
verslunarráðsins og Alþjóðasam-
bands auglýsingastofa.
Tilgangur meö stofnun SÍA er
m.a. að annast almenna kynn-
ingarstarfsemi til aö auka þekk-
ingu og skilning á auglýsinga-
fræðum og starf i auglýsingastofa.
Að auka hæfni aðildarfyrirtækja
til að veita fullkomnasta þjón-
ustu. Koma fram fyrir hönd
aðildarfyrirtækjanna gagnvart
opiberum aöilum og hagsmuna-
samtökum. Einnig að vinna að
viðurkenningu hins opinbera á
starfi auglýsingastofa.
Formaður SÍA er ' ólafur
Stephensen, en aörir i stjórn er
þeir Halldór Guðmundsson og
Gunnar Gunnarsson .
í kvöld
fullkomnasta
vídco á landínu
5
FRUMVARP TIL STJÓRNSKIPUNARLAGA:
Þingmenn þiggi ekki
laun utan Alþingis
Frumvarp til stjórn-
skipunarlaga um að
þingmenn þiggi ekki
önnur laun en fyrir
störf, sem eru unnin á
Alþingi, verður brátt
lagt fram i neðri deild
Alþingis. Flutnings-
maður er Gunnlaugur
Stefánsson.
Samkvæmt tillögunni er auk
þess gert ráð fyrir að embættis-
menn þurfi ekki leyfi stjórnar-
innar til að þiggja kosningu, en
þeir séu skyldir til, án kostnaöar
fyrirrikissjóð, að sjá um aö em-
bættisstörfum þeirra veröi
gegnt á þann hátt, sem stjórnin
telur nægja. Ennfremur er
ákvæði um að alþingismenn séu
eingöngu bundnir við sannfær-
ingu sina, en ekki við neinar
reglur frá kjósendum sinum.
,,Það er ekki óeðlilegt aö ætla,
að ein afleiðing þess aö margir
þingmenn hafi oft verið upp-
teknir af öðrum störfum sam-
hliða þingmannsstörfum, sé sú,
að dregið hafi úr afköstum Al-
þingis hin seinni ár, miðað viö
nútimakröfur um virkni Alþing-
is”, sagði Gunnlaugur i viðtali
við Visi i gær. „Það verður aö
telja að starf þingmanns sé fullt
starf, enda viröist þaö mat ráða
við ákvörðun um laun alþingis-
manna, sem eru nú a.m.k. rúm-
lega mannsæmandi”. —GBG
Þingflokkur
Sjálf stœðisf lokksins:
Gunnar
formaður
Olafur
varaformaður
A fundi þingflokks Sjálf-
stæöisflokksins i gærdag var
Gunnar Thoroddsen kjörinn
formaður* þingflokksins.
Varaformaður var kjörinn
Ólafur G. Einarsson, og rit-
ari Þorvaldur Garðar
Kristjánsson.
Geir Hallgrimsson, sem
áður var varaformaður
þingflokksins, gaf ekki kost á
sér til endurkjörs. Engin
önnur framboð til þessara
embætta komu fram á fund-
inum. —GBG
Nýkomid
mikið úrval a
herra- og
dömupey
sportjökk
og úlpum «
herra og
dömur, en
fremur kjc
og pils
Við þjónum stór
Reykjav
Gunnlaugur Stefánsson og Finnur Torfi Stefánsson
BRÆÐUR FLUTTU
JÓMFRÚRRÆÐUR
Bræðurnir Gunnlaugur og Finnur
Torfi Stefánsson fluttu báöir
jómfrúrræður á fundi neðri deild-
ar i gær. Mæltu þeir báöir fyrir
frumvörpum um breytingar á
stjórnskipunarlögum, Gunnlaug-
ur um að lækka kosningaaldurinn
i 18 ár og Finnur Torfi um afnám
deildaskiptingar Alþingis. Fjör-
ugar umræöur urðu um fyrra
máliö, og lýstu formenn
þingflokka Alþýðubandalagsins
og Sjálfstæðisflokksins sig sam-
þykka lækkun kosningaaldurs og
formaður þingflokks Fram-
sóknarflokks sagðist ekki vita til
þess að andstaöa væri gegn þeirri
breytingu i Framsóknarflokkn-
um.
—GBG