Vísir - 19.10.1978, Síða 6

Vísir - 19.10.1978, Síða 6
6 vism Helena Rubinstein Brautryðjandi í nútíma snyrtivöruiramleiðslu Þrotlaus vísindastörf í nær 80 ár hafa lagt grunninn að HEILNÆMI OG FEGRUN FEGRUNARSÉRFRÆÐINGUR LEIDBEINIR ALLA DAGA SNYR TIVORU i VERSLUNIN 'Vakf Skófavórdustfg 2 VISIR Bústaðahverfi I Asgarður Hólmgarður Hæðargarður Skipholt Bolholt Hjálmholt BLAÐBURÐAR- 4 BÖRN ÓSKAST Skúlagata Borgartún Skúlagata 57-70 Skúlatún Stigahiið Bogahlið Grænahlið Stigahlið Gamalt pólitískt morð grafíð upp ór skúmi í Portúgal Tuttugu ára gamall harmleikur var dreginn út úr skúminu og fram i dagsljósið fyrir herdóm- stól i Lissabon á dögunum. Akærunum um , .siðfe rðilega ábyrgð á dauða Humbertos Delgados hershöföingja” var beint gegn þrem eldri mönnum, veiklulegum ásýndum, þar sem þeir sátu dauðskelkaðir á sak- borningabekknum. Hershöfðingi, sem söðlaði um Delgado — það munu ekki margir utan Portúgals muna það nafn eða reyfarakennda söguna, sem þvi er tengt. En i augum margra Portúgala stendur það nafn hálfu fimmta ári eftir „blómabyltinguna”, sem batt enda á einræöisstjórnina i Portú- gal enn sem tákn andstöðu, frjálslyndis, garpsskapar. Nafn herforingjans sem fylgdi eftir sinni sannfæringu, fyrirgerði glæstum framavonum i hernum til þess að snúast gegn Salazar, einræðisherra Portúgals, bauð sig fram gegn honum i' forseta- kosningum 1958, varð landflótta, . enhélt samtáfram frelsisbaráttu sinni I útlegð fram til 1965, þegar hann var svikinn á hinn svivirði- legasta hátt og myrtur á laun. Hvernig skeði þaö og hver var valdur að þvi? Um þaö snúast réttarhöldin, sem þessa dagana standa yfir i Lissabon. Humberto Delgado var aðeins tvitugur að aldri, þegar hann tók þátt i' byltingu hersins 1926, sem batt endi á deyjandi lýörasði Portúgals. Arum saman gekk hann erinda herforingjastjórnar- innar og átti glæstan feril i hern- um. Aöeins 41 árs að aldri var Humberto Delgado, hershöfðingi og andspyrnu- maður. hann orðinn hershöfðingi. Hann varö hermálafulltrúi Portúgals i USA og við NATO og skiptu þau ár sköpum f lifi hans. Augu hans opnuöust fyrir kostum lýðræðisins og hreinlyndur og opinskár eins og hann var leyndi hann ekki hugarfarsbreytingum sinum gagnvart einræðinu, þegar hann snéri aftur heim til fööur- landsins 1958. Það var ári áöur en fram áttu að fara einar af þessum forsetakosningum, þar sem her- HVERNIG SEM VIÐRAR UTI Ef bíllinn þinn er í fullkomnu lagi/ eigulegur og ó sanngjörnu verði - og hreinn þó máttu setja hann inn á gólf til okkar án nokkurs gjalds á meðan húsrúm leyfir Opið 9-7 einnig á laugardögum i sýningahöllinni Bíldshöfða, simar 81199-81410 foringjastjórnin fékk venjulega sinn mann kjörinn mótstöðulaust. Undir stjórn Salazars, sem stundum var nefnd „stálhnefinn i silkihanskanum” hafði veriö við- haldið ákveönu lýðræðislegu yfir- bragöi. A svipstundu varð Delgado hershöfðingi frambjóð- andi stjórnarandstöðunnar, skin- andi ræðumaður sem vakti hylli kjósenda og fylkti alþýðunni aö baki sér, þrátt fyrir ýmsar tak- markanir, sem settar voru á kosningabaráttuna. Það hrikti i stoðum einræðisstjórnarinnar. Tölur þess opinbera um úrslit kosninganna syndu, aö forsetinn, Thomaz aðmiráll haföi sigrað. Flestir gengu út frá því visu að þessar tölur væru falsaðar. Þó þoröu þeir ekki neðar með at- kvæöamagn Delgados en 25%. í útlegðinni Þessi stjórnarandstæöingur var of hættulegur. Hann var hrakinn i útlegö til Braziliu og rekinn úr hernum. Delgado hófst þá handa viö beina andstöðu, þar sem öll- um ráöum var beitt, hrein upp- reisn gegn Salazar-stjórninni. Hann greip til skæruhernaðar, hryöjuverka, rána á borö við það sem heimurinn fékk að kynnast betur siðar hjá pólitiskum öfga- mönnum. Til dæmis rændu menn hans portúgalska lúxusfarþega- skipinu „Santa Maria” árið 1%1. Þeir vörpuðu dreifimiðum úr flugvélum yfir Lissabon, einu sinni úr flugvél sem þeir höfðu rænt. Eitt sinn reyndu þeir barna- lega uppreisn I bænum Beja. Þetta kom auðvitað ekki til mikils en dugöi þó til þess aö vekja heimsathygli á baráttu lýð- ræðissinna gegn öðru af tveim einræöisrikjum Vestur-Evrópu. Svo mikiðumtal hlaust af að ein- hversstaðar i stjórnkerfi Portú- gals tók einhver ákvörðun um að loka yrði munninum á Delgado — i eitt skipti fyrir öll. 1 byrjun sjöunda áratugsins stýrði Delgado aðgerðum lýö- raéðissinna frá Alsir. En hann skorti flest það sem árangursrik- ur samsærismaður þarf að hafa til að bera til neðanjaröarstarf- semi. Hann var of opinskár, of hreinlyndur. Hann fór ekki dult meö sambönd sin og treysti of umhverfi sinu og mönnunum. Þaö var auðvelt fyrir portúgölsku öryggislögregluna, hina hötuðu PIDE, aö koma erindrekum sin-

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.