Vísir - 19.10.1978, Side 8
8
....og eflir brcytinguna.
Umsjón: Óli Tynes
Gréta í „sólskinsrútunni"
,,Sólskinsrútan" get-
um við kailað bílinn.
Og undir stýri situr
fimmtiu og fimm ára
gömul kona, sem heitir
Grete Eriksen og er
norsk. Grete ekur
öldruðum og fötluðum
um i þessum bil á veg-
um Rauða krossins i
Osló. Grete er sjálf-
boðaliði, en hennar
starf er annars að vera
húsmóðir og móðir.
AAeira próf i akstri
mun hún hafa tekið
fyrir nokkrum árum,
og athugasemdir við
þaðaðamma (sem hún
er) aki rútu hefur hún
aldrei heyrt. „Ég hef
sagt þeim sem vinna
með mér, að þegar
þeim þyki ég orðin
heldur gömul og sein-
virk, þá skuli þeir bara
nefna það, og ég muni
afhenda lyklana að
bílnum án nokkurra
mótmæla", segir hún.
„En það líður vonandi
á löngu áður en það
verður. Þvi af þessum
ferðum vildi ég ekki
missa fyrir nokkurn
mun".
Dyan Cannon fyrir breyung-
una
„Var orðin þreytl
og leið ó
hlutverkunum"
Þeir sem sáu sjón-
varpsmyndina sl. laug-
ardagskvöld muna að
öllumlikindum eftir
Dyan Cannon. Ljós-
hærðu konunni með
siða hárið sem lék Alice.
Leikkonan hefur
heldur betur snúið
blaðinu við. Cannon,
sem er fyrrverandi
eiginkona Cary
Grants, sagði skilið við
leik i kvikmyndum
fyrir nokkrum árum.
„Ég var orðin svo
þreytt og leið á þessum
hlutverkum sem ég
fékk, að ég hugsaði
mmeð mér að ég yrði
vitlaus, ef ég héldi
svona áfram. Ég hætti
þvi að leika í fjögur
ár." En hún er komin
aftur fram á sjónar-
sviðið, eftir að hafa
sjálf gert kvikmynd
Number One, sem hún
skrifaði handritið að
og leikstýrði sjálf. Hún
tok svo hlutverki í
myndinni Bleiki
pardusinn snýr aftur, á
móti Peter Sellers. Og
hún lék fyrir stuttu á
móti Warren Beatty í
annarri gamanmynd.
„Það eru myndir sem
ég get farið með dóttur
mina, Jennifer, að sjá.
Og sem milljonir
manna um allan heim
hafa gaman af. En
hvað var að hlutverk-
unum sem henni stóðu
til boða áður? „Það
var allt i lagi með eina
eða tvær myndir",
segir hún. „Til dæmis
Bob og Carol og Ted og
Alice. En yfirleitt sáu
framleiðendur mig
aðeinssem kyntákn, og
ég fékk hlutverk I sam-
ræmi við það."
Fimmtudagur 19. október 19?8^7T^t114.
datt hann beint f gildruna sem búin var til fyrir hann. ,22<r