Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 18
18 E MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HeimiliFasteignir
Opið virka daga frá kl. 8-12 og 13-17
Magnús Leópoldsson
lögg. fasteignasali
BÚJARÐIR
Á söluskrá FM eru núna yfir 40 sumarhús
og um 100 jarðir af ýmsum stærðum.
Póstsendum söluskrár um land allt.
Hæðir
BRÆÐRABORGARSTÍGUR
Mjög áhugaverð hæð ásamt risi í
eldra tvíbýlishúsi í vesturbænum.
Íbúðin hefur tvo sérinnganga. Á
hæðinni er eldhús, hol, samliggjandi
stofur og eitt svefnh. og uppi eru tvö
herb og baðherb. Parket á gólfum á
hæðinni. 5448
4ra herb. og stærri
KÓPALIND
Til sölu mjög glæsileg fullbúin fjög-
urra herb. 123 fm íbúð á jarðhæð í
glæsilegu litlu fjölbýli við Kópalind.
Vandaðar innréttingar og gólfefni.
Stór sólpallur. Eign sem vert er að
skoða. Verð 16,2 m. 3707
3ja herb. íbúðir
STANGARHOLT
Áhugaverð íbúð í þessum vinsælu
húsum við Stangarholt. Íbúðin er
samtals um 91 fm, hæð og ris. Á að-
alhæð er eldhús, stofur, svefnher-
bergi og baðherbergi. Í risi eru tvö
herb. ásamt óinnréttuðu rými. 2997
ÞINGHÓLSBRAUT
Glæsileg þriggja herb. íbúð á fyrstu
hæð í nýlegu fjórbýlishúsi í vesturbæ
Kópavogs. Sérinngangur og sólrík
verönd fyrir utan stofu. Þvottahús í
íbúð. Vandaðar innréttingar í eldhúsi,
forstofu og herb. Flísalagt baðherb.
með innréttingu. Parket og flísar á
gólfum. 2959
2ja herb. íbúðir
GRETTISGATA
Skemmtileg tveggja herb ósamþykkt
íbúð á 2. hæð í bakhúsi. Húsið er
steinhús, byggt 1921. Hátt er til lofts
í íbúðinni, um 2,80 m. Eldhúsið er
með eldri málaðri viðarinnréttingu.
Baðherbergið er með litlu baðkari
undir súð, með hvítum tækjum og
gólfborðum á gólfi. Á gólfum í stofu
og herb. eru falleg gólfborð. 1732
Atvinnuhúsnæði
FISKISLÓÐ - FJÁRFESTAR
Til sölu 347 fm áhugavert atvinnu-
húsnæði við Fiskislóð. Húsnæðið er
á tveimur hæðum. Efri hæðin er inn-
réttuð fyrir skrifstofur, neðri hæðin
innréttuð sem afgreiðsla og lager.
Húsnæðið er í góðri leigu undir
snyrtilegan rekstur. Nánari uppl. á
skrifstofu. 9410
HAFNARSTRÆTI
Til sölu eða leigu glæsileg húseign
við Hafnarstræti. Húsið hefur allt ver-
ið endurnýjað að utan og að hluta að
innan. Stærð 745 fm. Hús sem gefur
mikla notkunarmöguleika. Teikningar
og nánari uppl. á skrifstofu. TILBOÐ
ÓSKAST. 9343
Landsbyggðin
TJARNARKOT
Til sölu jörðin Tjarnarkot í Húnaþingi
vestra. Byggingar á jörðinni eru m.a.
íbúðarhús, fjárhús, hlaða og hesthús.
Greiðslumark í sauðfé 166 ærgildi.
Jörðin selst án bústofns og véla.
Nánari uppl. á skrifstofu. 10731
GRINDAVÍK
Til sölu gott 117 fm hús ásamt 11 fm
geymslu. Húsið er timburhús, byggt
1973. Ágætt ástand. Laust fljótlega.
Verð 9,0 m. 14296
FLÚÐIR
Til sölu fasteignin Akurgerði 6 í
Hrunamannahreppi í Árnessýslu. Um
er að ræða hús, byggt 1995, stein-
steypt á einni hæð og klætt að utan
með Steni-klæðningu að hluta. Hús-
ið er 129 fm að stærð og lóðin er
1.400 fm. Húsið hefur verið notað
sem afgreiðsla og vinnuaðstaða fyrir
póst og síma á svæðinu og getur
auðveldlega nýst áfram fyrir annars-
konar starfsemi. Húsið er inni í íbúð-
arhverfi og gæti einnig nýst sem
íbúðarhús. Lóðin er stór, 1.400 fm,
öll frágengin með gróðri og stéttum
með hitalögnum og lýsingu. Mjög
gott aðgengi er að húsinu og mörg
bílastæði við það. 14288
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
SÍÐUMÚLI - HEIL HÚSEIGN
Til sölu mjög gott skrifstofuhús-
næði við Síðumúla. Húsnæðið,
sem er kjallari og þrjár hæðir, er
byggt 1983 og er um 1.000 fm.
Húsið hýsir í dag stóra verk-
fræðistofu. Allur aðbúnaður og
skipulag mjög gott. Húsið getur
verið laust seinni hluta árs 2002 og kemur til greina að leigja hús-
ið af væntanlegum kaupanda, a.m.k. til þess tíma. Nánari upplýs-
ingar á skrifstofu. 9400
FOSSHÁLS 27
Til sölu mjög vel staðsett húsnæði á götuhæð í þessu myndar-
lega húsi. Stærð rúmir 1.000 fm. Umtalsverður byggingarréttur
mögulegur, teikningar fyrirliggjandi. Mikil lofthæð og hægt að
hafa margar innkeyrsludyr. Eign sem gefur mikla möguleika. Nán-
ari uppl. á skrifstofu. 9417
Brúðurnar fimm sem sitja við borðið
eru allar þýskar. Þær drekka súkku-
laði úr fínum enskum bollum.
Drengurinn í rauðu matrósafötunum
er Kämmer & Reihardt brúða,
Stelpurnar í ljósrauðu kjólunum
með hrokkna hárið eru frá Simon &
Halbig. Stóra dúkkan til vinstri er
líka framleidd hjá því fyrirtæki en
strákurinn í stólnum er framleiddur
hjá Franz Schmidt, en þetta voru
allt frægir dúkkuframleiðendur fyrir
margt löngu síðan. Margir safna
dúkkum frá ýmsum tímum og t.d. í
Maastricht er frægt brúðusafn.
Brúðuheimilið
Þessi rússneski sleði, blámálaður,
er útskorinn úr tré að mestum
hluta. Hjólin eru aðeins til skrauts
og skreytingin er lárviðarkransar,
vængjaðar konur og sfinksar. Í
svona sleðum ók hið 0rússneska fyr-
irfólk 19. aldar í en þessi lenti í Dan-
mörku en enginn veit nú hvernig.
Rússneskur
sleði úr tré
HJÁ fasteignasölunni Kjöreign er
nú til sölu eða leigu nýbygging við
Lyngháls 4 í Reykjavík. „Þetta verð-
ur mjög glæsileg bygging, sem ætl-
uð er fyrir verzlun, skrifstofur og
þjónustustarfsemi,“ sagði Dan Wii-
um, fasteignasali hjá Kjöreign.
„Byggingin verðu fjórar hæðir og
með lyftu. Hver hæð er 1.145 ferm.
og góð nýting á hverri hæð og hægt
að fá keypt stæði í bílageymslu. Alls
verður þessi nýbygging því rúmlega
4.500 ferm. og hún stendur á miklum
útsýnisstað.
Það verður mikið í þessa byggingu
lagt, en hún verður einangruð að ut-
an og klædd með áli, en öll norð-
urhliðin verður úr gleri, sem gefur
byggingunni sérstakt yfirbragð og
gerir hana svipmeiri en ella. Hönn-
uður byggingarinnar er Pálmar
Kristmundsson arkitekt og tel ég að
hönnun byggingarinnar hafi tekizt
afar vel.“
Sameign í nýbyggingunni verður
frágengin og anddyri flísalagt. Í
kjallara verður bílageymsla með
stæðum sem verða fullfrágengin og
er hægt að fá þau keypt samkvæmt
framansögðu. Einnig verða lóð og
bílastæði á henni fullfrágengin, en
með bílageymslu verða alls 172 bíla-
stæði við húsið.
Verð á fermetra á verslunarhús-
næði á 1. hæð er 140.000 kr., á
geymsluhúsnæði á 1. hæð 80.000 kr.,
á verzlunarhúsnæði á 2. hæð 130.000
kr., á skrifstofuhúsnæði á 3. hæð
115.000 kr. og á skrifstofuhúsnæði á
4. hæð er fermetraverðið 125.000 kr.
„Það eru líklega komnir leigjend-
ur eða kaupendur að minnsta kosti
helmingi að þessari nýbyggingu og
því er ég mjög bjartsýnn á fram-
haldið,“ sagði Dan. „Byggingin hef-
ur líka mikla kosti. Það eru mörg
bílastæði við hana auk bílastæða-
húss, en góð bílastæði skipta að
sjálfsögðu miklu máli fyrir hús af
þessu tagi. Húsið stendur á hornlóð.
Það er því mjög áberandi og með af-
ar góðri aðkomu. Þetta hverfi hefur
mikið aðdráttarafl fyrir verzlun og
viðskipti, en það er nánast fullbyggt
og stór og öflug fyrirtæki hafa hasl-
að sér þar völl. Í nágrenni eru m.a.
Vífilfell, Orkuveitan, Osta- og smjör-
salan, Össur, Ölgerð Egils Skalla-
grímssonar og Plastprent, svo að
nokkuð sé nefnt.“
Dan sagði að það hefði færzt í vöxt
að stór fyrirtæki kysu heldur að
gera langtíma leigusamninga um
húsnæði frekar en að kaupa það.
„Þau telja sig fá betri ávöxtun á fjár-
magnið með því að nota það í rekst-
urinn í stað þess að hafa það bundið í
fasteignum,“ sagði Dan.
„Auk þess fer sú skoðun vaxandi
að það sé heppilegra að sérstök fyr-
irtæki sjái um viðhald og rekstur
fasteignanna. Þau geta þá sérhæft
sig á sínu sviði. Þetta fyrirkomulag á
vafalaust eftir að verða enn algeng-
ara í framtíðinni en nú er.“
Líflegur markaður
framundan
„Ég tel að markaðurinn verði líf-
legur á þessu nýbyrjaða ári, bæði í
íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði,“
sagði Dan Wiium ennfremur. „Það
verður áfram mikil eftirspurn eftir
íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæð-
inu, ekki hvað sízt sökum þess að
fólk mun halda áfram að flytja hing-
að utan af landsbyggðinni.
Í rauninni hefur aldrei tekizt að
metta þörfina á höfuðborgarsvæðinu
og hún er greinilega meiri en nokkru
sinni áður. Þetta sýnir ásóknin í nýja
hverfið í Grafarholti í Reykjavík og
við lóðaúthlutanir í Mosfellsbæ og
Garðabæ hafa umsækjendur verið
allt að þrisvar sinnum fleiri en þær
lóðir, sem til úthlutunar eru.“
Dan Wiium kvað afföllin af hús-
bréfunum draga minna úr markaðn-
um en áður. „Fólk er farið að sætta
sig við þau og það liggur í loftinu að
vextir eiga eftir að lækka í vetur,“
sagði hann.
Það mun hafa mjög jákvæð áhrif á
húsbréfin og á eftirspurn eftir at-
vinnuhúsnæði.“
Lyngháls 4
Útlitsteikning af nýbyggingunni, sem rís við Lyngháls 4. Hún verður fjórar
hæðir og með lyftu. Hver hæð er 1.145 ferm. og alls verður byggingin því rúmir
4.500 ferm. og góð nýting á hverri hæð. Hægt er að fá keypt stæði í bíla-
geymslu. Fjöldi bílastæða verður einnig á lóð. Byggingaraðili er Eykt ehf., en
hönnuður er Pálmar Kristmundsson arkitekt.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Byggingarframkvæmdir eru þegar komnar vel á veg, en húsið á að verða tilbúið næsta haust. Húsið er bæði til sölu og til leigu hjá Kjöreign.