Morgunblaðið - 04.01.2001, Síða 3

Morgunblaðið - 04.01.2001, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001 B 3 ÍÞRÓTTIR Eiður til- nefndur EIÐUR Smári Guðjohnsen er einn fimm leikmanna sem tilnefndir eru hjá enska net- miðlinum fa-premier.com sem leikmenn desem- bermánaðar í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu. Kosið er á vefnum á milli Eiðs Smára, Ole Gunnars Solskjær, Manchester Unit- ed, Steven Gerrard, Liv- erpool, James Beattie, Southampton, og Mart Poom, Derby. Eiður Smári var mjög heitur í framlínunni hjá Chelsea og skoraði fimm mörk í jafnmörgum leikjum Lundúnaliðsins. Hann skyggði algjörlega á Hol- lendinginn Jimmy Floyd Hasselbaink sem mátti sætta sig við að fylgjast með Eiði í þremur þessara leikja en hann tók út þriggja leikja bann í desember. FÓLK  DARREN Anderton vill fara að dæmi Sol Campbell, fyrirliða Tott- enham, og vera um kyrrt hjá félaginu en samningar þeirra renna út í sumar.  BELGÍSKI landsliðsmaðurinn Gilles de Bilde er aftur kominn í herbúðir enska 1. deildarliðsins Sheffield Wednesday eftir að hafa verið í leigu hjá Aston Villa í þrjá mánuði.  JUAN Pablo Angel, kólumbíski landsliðsmaðurinn sem Aston Villa festi kaup á fyrir skömmu á 1 milljarð króna, er kominn með at- vinnuleyfi á Englandi og mun hann leika sinn fyrsta leik í bún- ingi Aston Villa þegar liðið leikur gegn Liverpool hinn 13. janúar.  STAFFAN Olsson hefur farið að dæmi félaga síns, Magnusar Wis- landers, og framlengt samning sinn við þýsku meistarana í hand- knattleik, Kiel, til vorsins 2002. Olsson, sem er 36 ára gamall, var með tilboð frá sænsku 1. deild- arliði um að gerast þar þjálfari og leikmaður en gaf Kiel jákvætt svar á þriðjudag.  NENAD Perunicic, stórskytta Kiel og júgóslavneska landsliðsins, er að öllum líkindum á förum frá þýsku meisturunum en hann er sagður mjög óánægður þar. Mörg lið í Þýskalandi hafa sýnt honum áhuga og þar eru Íslendingafélög- in Essen og Magdeburg nefnd til sögunnar. Perunicic er rétthent skytta, 2,03 metrar á hæð.  NORÐMENN sigruðu Pólverja, 29:22, og Alsír vann Sádi-Arabíu, 24:16, á alþjóðlegu handknattleiks- móti sem hófst í Noregi í gær. All- ar þjóðirnar nema Pólverjar leika á HM í Frakklandi síðar í þessum mánuði. Steinar Ege markvörður var í aðalhlutverki hjá norska lið- inu í gær.  NORÐMENN hafa ekki tilkynnt HM lið sitt ennþá. Kristian Kjell- ing, sem átti að vera með á HM, fótbrotnaði fyrir viku og ekki er ólíklegt að Kenneth Klev taki stöðu hans. Klev er mikill skytta og gerði Haukum lífið leitt í leik liðanna í Sandefjord.  KR vann Stjörnuna, 5:0, í úr- slitaleik á jólamóti KR í meist- araflokki kvenna í innanhússknatt- spyrnu. Hrefna Jóhannesdóttir skoraði tvö marka KR. Valur og ÍBV urðu í 3.–4. sæti en átta lið tóku þátt í mótinu. María Björk Ágústsdóttir, markvörður Stjörn- unnar, var valin besti leikmaður mótsins. Það þóttu stórtíðindi í handknatt-leiksheiminum seint á síðasta ári þegar kvennaliði Grænlands tókst að tryggja sér sæti á HM kvenna sem fram fer á Ítalíu síðar á þessu ári. Og ekki þóttu það minni tíðindi þegar karlalið Grænlands fékk farseðilinn á HM óvænt á silf- urfati en eftir að Kúbumenn drógu þátttöku sína til baka á mótinu fengu Grænlendingar, sem urðu í fimmta sæti í Ameríkuriðli undankeppni HM, boð um að taka þátt í HM sem fyrsta varaþjóð. Grænlendingar þáðu boðið og verða því með á HM í fyrsta sinn. Grænlendingar eru nán- ast nýgræðingar á sviði alþjóðlegs handknattleiks. Samtals hefur Grænland aðeins leikið 27 landsleiki. Grænlenska handknattleikssam- bandið var stofnað árið 1974 en varð ekki fullgildur meðlimur í Alþjóða handknattleikssambandinu fyrr en í septembermánuði 1998. Þjóðin mjög stolt „Ég er búinn að búa í Grænlandi í mörg ár. Ég hef verið þjálfari bæði karla- og kvennaliða, hef setið í stjórn handknattleikssambandsins og hef aðstoð leikmenn við að kom- ast til erlendra félaga. Undanfarin ár hef ég verið með karlalandsliðinu sem liðsstjóri og ég gat ekki hugsað mér að sleppa heimsmeistarakeppn- inni þegar þetta kom upp á,“ segir Guðmundur í samtali við Morgun- blaðið. En hvað segja Grænlendingar um þessi tíðindi að eiga fulltrúa á HM bæði í karla- og kvennaflokki? „Þjóðin er auðvitað mjög stolt af þessu og ég er ekki í neinum vafa um að þátttaka liðanna á eftir að verða mikil lyftistöng fyrir handboltann og ekki síst fyrir íþróttirnar í heild í Grænlandi. Það eru ekki nema þrjú ár síðan við vorum undir hatti danska sambandsins svo eðlilega ríkir mikill spenningur hjá fólki út af þessu.“ Handboltinn þjóðaríþrótt Það má segja að handboltinn sé þjóðaríþrótt Grænlendinga en 3,5% af 55.000 íbúum eyjarinnar leggja stund á íþróttina. Meðlimir græn- lenska handknattleikssambandsins eru rúmlega 1.800 manns og miðað við höfðatölu eru Grænlendingar í öðru sæti á þeim vígstöðvum á eftir Íslendingum. Félögin sem leggja stund á handknattleik eru 21 talsins og eru allir leikmenn áhugamenn. Grænlendingar munu leika í C- riðli á HM í Frakklandi og af mörg- um er þetta talinn einn sterkasti rið- ill mótins. Auk Grænlendinga í riðl- inum eru: Króatar, Þjóðverjar, Spánverjar, Kóreumenn og Banda- ríkjamenn. En hvaða væntingar fara Græn- lendingar með til Frakklands? „Við förum aðallega í þessa keppni til að vera með og öðlast reynslu. Riðillinn er gríðarlega sterkur og aðalmarkmið liðsins er að gera eins vel og það getur. Ég sá það á heimasíðu keppnninar að það yrði talinn sögulegur viðburður ef Græn- land fengi stig á mótinu og það má alveg segja að það sé rétt ályktun,“ segir Guðmundur. Ulrik Winther Hansen, mark- vörður Grænlendinga, segir í viðtali á heimasíðu heimsmeistaramótsins að stefnan hafi verið tekin að leggja Bandaríkjamenn að velli og þá eigi liðið möguleika gegn Kóreu. Skårup byrjaði Guðmundur segir að landslið Grænlendinga sé góð blanda yngri og eldri leikmanna. Nokkrir leik- manna liðsins spila með dönskum félagsliðum, markvörðurinn Ulrik Winther Hansen leikur með norska úrvalsdeildarliðinu Heimdal og Hans Peter Motzfeldt, sem var hjá FH-ingum fyrir nokkrum árum, leikur með Bregenz, toppliði Aust- urríkis. Þjálfari grænlenska lands- liðsins er Dani, Bo Roy að nafni, og aðstoðarþjálfarinn er Hans Peter Munk Andersson, fyrrverandi landsliðsmaður Dana. Danir hafa komið talsvert við sögu varðandi uppbyggingu og þjálfun í Grænlandi en fyrsti landsliðsþjálfarinn var Per Skårup, fyrrverandi landsliðsmaður og þjálfari Framara á árum áður. Hvernig hefur liðið undirbúið sig fyrir mótið? „Liðið var í æfingabúðum í Dan- mörku fyrir jólin en lokaundirbún- ingurinn hefst á morgun (í dag) og við erum að reyna að semja við Dani um að spila leiki gegn þeim. Það er erfitt að fá þjóðir til að koma til okk- ar og spila. Við erum langt í burtu og fjárhagurinn er ekki ýkja traustur. “ Guðmundur segir að kvennahand- boltinn í Grænlandi sé á mikilli upp- leið og hann þakkar það heimsókn danska landsliðsins sem sótti Græn- lendinga heim fyrir um áratug. Hann segir að grænlensku konurnar séu tæknilega mjög góðar og hann segist hlakka mikið til að fylgjast með þeim á HM á Ítalíu síðar á árinu. Guðmundur hefur starfað við hitt og þetta í Grænlandi þau ár sem hann hefur búið þar en hann er gift- ur Benediktu Þorsteinsson sem um tíma var ráðherra í heimastjórninni. Ástæðan fyrir því að þau fluttu til Ís- lands er sú að Benedikta er sest á skólabekk hér á landi en þau stefna á að halda aftur til Grænlands eftir tvö til þrjú ár. Guðmundur Þorsteinsson liðsstjóri Grænlendinga á HM í Frakklandi Mætum gríðarlega sterkum þjóðum Í ÞAÐ minnsta einn Íslendingur mun halda með Grænlendingum á heimsmeistarakeppni í handknattleik karla sem hefst í Frakklandi 23. janúnar næstkomandi. Hann heitir Guðmundur Þorsteinsson og er liðsstjóri grænlenska landsliðsins. Guðmundur hefur verið bú- settur í Grænlandi undanfarin ár ásamt eiginkonu sinni, Benediktu Þorsteinsson,og hefur hann þjálfað félög á eyjunni ásamt því að starfa fyrir grænlenska handknattleikssambandið. Guðmundur og Benedikta eru flutt til Íslands í bili en það breytir því ekki að hann verður með grænlenska landsliðinu á HM og í gær hélt hann utan vegna undirbúnings liðsins fyrir mótið. Guðmundur Hilmarsson skrifar Morgunblaðið/Árni Sæberg (Keflavík) og Cedrick Holmes (ÍR) hafa reynst liðum sínum vel í vetur og ga- og frákastahæstu leikmanna úrvalsdeildarinnar. Kristni Árnasyni, klúbbmeistara úrGR, hefur verið bætt í hópinn sem t hefur saman í vetur en landslið Ís- ds eru þannig skipuð: A-lið kvenna: Helga Rut Svanbergs- ttir (Kili), Herborg Arnarsdóttir (GR), trín Dögg Hilmarsdóttir (Kili), Kol- n Sól Ingólfsdóttir (Keili), Kristín sa Erlendsdóttir (Keili), Nína Björk irsdóttir (Kili), Ólöf María Jónsdóttir eili) og Ragnhildur Sigurðardóttir R). A-lið karla: Björgvin Sigurbergsson eili), Helgi Birkir Þórisson (GS), Ottó gurðsson (GKG), Ólafur Már Sigurðs- n (Keili), Ómar Halldórsson (GA), Þor- inn Hallgrímsson (GR) og Örn Ævar artarson (GS) Aðrir í æfingahóp karlaliðsins eru: ðunn Einarsson (GÍ), Guðmundur gvi Einarsson (GSS ), Haraldur Heim- isson (GR), Heiðar Davíð Bragason (Kili), Ingvar Karl Hermannsson (GA), Kristinn Árnason (GR), Pétur Óskar Sig- urðsson (Oddi), Sigurpáll Sveinsson (GA), Tómas Salmon (GR), Tryggvi Pétursson (GR), Örn Sölvi Halldórsson (GR). Pilta- og stúlknalandslið Íslands verða einnig í æfingabúðum undir handleiðslu Staffans en landsliðin eru þannig skipuð: Gunnar Þór Gunnarsson (GKG), Hróð- mar Halldórsson (Leyni), Magnús Lár- usson (Kili), Magnús Ingi Magnússon (GR), Karl Haraldsson (GV), Sigmundur Einar Másson (GKG), Stefán Orri Ólafs- son (Leyni), Tómas Aðalsteinsson (Keili), Anna Lísa Jóhannsdóttir (GR), Helena Árnadóttir (GA), Karlotta Einarsdóttir (NK), Kristín Rós Kristjánsdóttir (GR), Lára Hannesdóttir (GR), Nína Björk Geirsdóttir (Kili) og Tinna Jóhannsdóttir (Keili). Golflandsliðin æfingabúðum NDSLIÐ Íslands í golfi komu saman til æfingabúða í gær og verða þau einn- saman í dag. Þetta er í annað sinn sem Staffan Johansson, landsliðsþjálfari Svíþjóð, kallar lið sitt saman á yfirstandandi undirbúningstímabili. Liðs- nn landsliðinna, sem eru búsettir hér á landi, hafa æft reglulega í vetur í ðhöllinni undir handleiðslu Ragnars Ólafssonar liðsstjóra, en þrír kylf- ar í A-landsliðum leika golf í Bandaríkjunum samhliða námi en þau eru f María Jónsdóttir, Keili, Örn Ævar Hjartarson úr GS og Ómar Halldórsson Akureyri. SSAM Hassan, framherji egypska dsliðsins í knattspyrnu, jafnar á laug- aginn landsleikjamet Þjóðverjans har Matthäus, en hann leikur sinn . landsleik er Egyptar mæta Samein- arabísku furstadæmunum. Metið mun svo falla á þriðjudag er Hassan leik- ur með Egyptum við Zambíu. Þvínæst er fjögurra þjóða móti í Íran og í lok janúar mæta Egyptar Marokkó í undankeppni HM. Hassan hóf landsliðsferilinn fyrir 15 árum með 3:0 tapi fyrir Norðmönnum. Hassan bætir landsleikjametið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.