Vísir


Vísir - 05.12.1978, Qupperneq 7

Vísir - 05.12.1978, Qupperneq 7
AFTAKA MEÐ OLLU AÐ KEISARINN VÍKI íransstjórn hefur visað gersamlega á bug öllum hugmyndum um, að keisarinn sem mætir nú hatrammri andstöðu trúarlegri sem pólitískri viki úr hásætinu eftir 37 ár á valdastóli. Upplýsingamálaráöherrann lét frá sér fara yfirlýsingu i gær- kvöldi, þar sem hann bar til baka orðskvitt um, að myndaö yrði rikisráö sem skyldi taka við em- bættisverkum keisarans. Mótmælaaðgerðunum heldur enn áfram vegna banns stjórn- valda við hinum árlegu minningarathöfnum shi’ite-mú- hammeðstrilarmanna um þessar mundir. Aöalhátiðisdagurinn er á mánudaginn, en þá er dánaraf- mæli Husseins sonarsonar spá- mannsins. t gærkvöldi fimmta kvöldið I röö virti fólk i Teheran útgöngu- banniö að vettugi. Hópaöist þaö út á götur, eða þá út á þök húsa sinna og hrópaði trúarleg slagorö. Hefur jafnan komið til átaka milli lögreglu og mótmælenda öll kvöldin. Fréttir herma aö tólf hafi látið llfið og fimmtíu og fimm særst i þessum róstum. 1 gærdag létu spellvirkjar tölu- vertaö sér kveða með skothrið og sprengjutilræðum við lögregluna. Féll einn lögreglumaður og tveir særðust. — Þaö er i fyrsta sinn sem til vopnaðra átaka kemur I höfuðborginni eftir að nýja rikis- stjórnin var mynduð fyrir mánuöi. Verkfall er nú I oliuvinnslunni og er þaö annað verkfalliö á sex vikum. Er framleiðslan ekki nema 60% af þvi sem hún afkast- ar viö eölilegar aöstæöur. Yfir- völd hafa boðað strangar aö- geröir gegn verkfallsmönnum, en ekki hefur frést af neinum hand- tökum. Varið ykkur á sértrúarflokkum! KVALIRNAR HÖFÐU NÆR KNÚIÐ JERRY LEWIS TIL SJÁLFSMORÐS Gamanleikarinn frægi, Jerry Lewis, seg- ir, að hann hafi i vimu kvalastillandi lyfja verið kominn á fremsta hlunn með að fyrirfara sér, fyrir fimm árum. „Guöi sé lof fyrir, aö ég heyröi börnin min hlæja og hlaupa um frammi á gangi, þvi aö viö þaö kom ég til sjálfs min”, er haft eftir honum i vikublaöinu „People”. Segir i viötalinu, aö þetta hafi skeð á 29 ára brúökaupsafmæli þeirra hjóna. Lewis var staddur i baöherberginu á heimili þeirra i Bel Air, og haföi stungiö hlaupi skammbyssu upp i sig. Var hann kominn með fingurinn á gikkinn, þegar hann heyröi i börnunum. Hann haföi hlotiö bakmeiösl viö sýningu i Las Vegas 1965, og þurfti að taka inn kvalastillandi lyf vegna þeirra. Hét þaö percodan. Frá þvi aö taka eina töflu á dag var hann kominn upp I sjö eöa átta töfhir. Haft er eftir Jerry Lewis, aö hann heföi aldrei látiö sér til hug- ar koma aö fyrirfara sér, ef hann heföi ekki veriö undir áhrifum lyfjanna. — Heföi sú hugsun aldrei hvarflaö aö honum siöan. Svo fór, aö læknir hans ráölagöi honum aö gangast undir skuröaö- gerö. Viö undirbúningsrannsókn kom i ljós, aö Lewis var einnig kominn meö magasár, sem hann haföi ekki fundiö til vegna deyfi- lyfjanna. Var hann tekinn af lyfj- unum og siöan tókst aögeröin mjög vel. Þótt hann sé ekki meö öllu verkjalaus, er llðan hans miklu bærilegri. Áhlaup á sendiráð Búlgaríu í Kairó Óeirðalögreglan i Kairó tók hús á búl- garska sendiráðinu þar i borg i gærkvöldi vegna einhverrar deilu, sem spratt út af húsa- leigugreiðslum. Sendiherrann, Georgi Vladi- kov, sagöi aö stjórn Búlgariu hlyti aö slita stjórnmálasam- bandi viö Egyptaland út af þessum atburöum. — Sagöi hann að 300 egypskir lögreglu- menn heföu tekið sendiráös- bygginguna meö áhlaupi. Egypsk yfirvöld segja aö sendiherrann hafi neitaö aö af- henda skotvopn sem starfsmenn hans heföu beitt á laugardaginn. Skutu þeir þá yfir höfuö múgs, sem geröi aösúg aö sendiráöinu til þess aö mótmæla barsmiö á þrem egypskum konum, sem búa I ibúö I sendiráösbygging- unni. — Neyöaróp kvennanna höföu dregiö fólk aö. Endurbætið og lagfærið heimiiið með B/acks. Decker áferð. Hentug til sprautunar með nær hvaða tegund málningar sem er. Sprautan er einnig hentug til að sprauta t.d. skordýraeitri, olíu og fleira. Kraftmikill "loftlaus" mótor gefur góða yfirferö án þess að rykaefninu upp. DN 75 hefill. Þetta kraftmikla tæki heflartrófljótt og auðveldlega. Gamalt timbur verður sem nýtt og grófsagað timbur slétt og fellt á svipstundu. AtækinuernákvæmdýptarstillingfráO.1 mmtil 1 5mm sem skapar betri og réttari áferð. G. Þorsteinsson & Johnson ÁRMÚLA 1 - SÍMI 85533 Pú getur gert heimili pitt að þægilegri íverustaö meö Black og Decker sérbyggðum verkfærum. bau hafa rétt afl og hraða, því mótorinn er innbyggður. Fjölskylda þín og vinir munu dást að þvf sem þú getur gert með Black og Decker sérbyggðum verkfærum. DN 54127mm hjólsög. Sérbyggð sög með eigin vélaraf li. Sög með sérstaklega sterkum 450 w mótor. Stillanleg sögunardýpt allt að 36 mm. Halli á skurðialltað45°. Fylgihlutir: venjulegt hjólsagarblað og og hliðarland fyrir nákvæma sögun. efni sem er þvf sórstök blöð eru fáanleg fyrir járn, plastikogfleira. Vélin sagar allt að 50 mm þykkan við og 25 mm harðvið. DN 65 fræsari. Hraðgengt verkfæri til allskonar fræsivinnu. Snúningshraðinn er 30.000 snúningar á mínútu og tekur þessi fræsari tennur allt upp í 19 mm, úrval af tönnumerfáanlegt.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.