Vísir - 05.12.1978, Síða 24

Vísir - 05.12.1978, Síða 24
VISIR Erfitt hefur veriö aö ná sambandi viö útlönd vegna bil- ana i sæsfmastrengnum Scotice. Myndin er frá af- greiöslu talsambandsins viö útlönd. Vfsismynd: GVA Lengsta bilun- in á Scoffce „Alert, sem er sama skipiöog lagöi strenginn I árslok 1961, lagöi af staö um hádegi I gær, en skipiö haföi veriö I vari viö Fær- eyjar. Ætlunin er aö vera viö bilunarstaö, ef veöriö gengur niöur, en þaö er ekkert hægt aö gera, ef vindstyrkur er yfir 5 vind- stig”, sagöi Þorvaröur Jónsson hjá Pósti og slma er hann var I morgun spuröur eftir viögerö á Scotice, sem hefur veriö bilaöur i heilan mánuö. „Bilun varö á strengnum um 70 mflur norö-vestur af Færeyjum. Viögerö mun væntanlega taka um einn sólarhring, þegar unnt veröur aö hefja vinnu. Þaö hefur veriö skipt um skip frá þvl bilunin varö. Upphaflega áttí kapalskip- iö iris aö annast viögerö- ina, en þá bilaöi bóman, sem notuö er, og eitthvaö fleira. Þaö varö þvl aö fara meöskipiö til viögeröar og þá fengum viö annaö skip frá British Post Office”. Aöspuröur sagöi Þor- varöur, aö þetta væri lengsta rof sem hann myndi eftír á Scotice frá þvl hann var tekinn I notkun I janúar 1962. —B.A. Litil hreyfíng á ávisanamáfínu Avlsanamáliö stóra hefur verið til athugunar hjá rikissaksóknara slðustu mánuði og veröur þaö eflaust I langan tima enn. Rannsókn málsins var lokið siðast liöiö vor. „Þetta er heilt herbergi af skjölum og gögnum sem þarf aö fara yfir og þvl litil hreyfing á þessu”, sagöi Bragi Steinarsson, vara- rlkissaksóknari, er Vlsir spuröist fyrir um hvaö málinu liöi. Þaö var áriö 1976 sem upp komst um stóran ávaisanahring sem velti gifurlegum f járhæöum sem oft var engin innistæöa fyr- ir. Jafnframt kom I ljós aö bankar höföu tekiö háa dráttarvexti af reiknings- eigendum sem stunduöu gúmmltékkaútgáfu. Til rannsóknar voru teknir ávlsanareikningar 17 manna og viö tölvuvinnslu komu fram 90.000 tékka- hreyfingar. Upphæö tékka sem teknir voru I vinnslu nam liölega þrem milljörö- um króna.. —SG. Fœðiitgum á íslandi ffcskkar: Aðeins þriðjungur frumburða fmðist innan hjónabands Fjögur þúsund tuttugu og eitt barn fæddist á slðasta ári. Fæðingar urðu alls þrjú þúsund niuhundruð áttatiu og ein, þar af þrjátiu og sjö tvlburafæöingar. Fæðingar hafa ekki oröið færri slðan árið 1949, Tiðni fjölburafæö- inga er nú um helmingur þess sem var um siöustu alda- mót. Þessar upplýsingar koma fram I Hagtfðindum. 36% allra barna sem fæddust áriö 1977 voru fædd utan hjónabands, en 67,5% frumburöa. Um helmingur foreldra óskilgetinna barna er i óvlgöri sambúö. Fækkun lifandi fæddra barna á hverja þúsund | Ibúa, úr 28,2% árin 1956- 19601 18% áriö 1977, nemur 36%. 1 Hagtlöindum er hins vegar vakin athygli á þvi, aö þar sem konum á barns- buröaraldri hefur fjölgaö aö tiltölu viö þjóöina alla, felist I þessu enn meiri lækkun á frjósemi kvenna. Leitað að brennuvörgum — íkveikjur á allmörgum stöðum að undanförnu Lögreglan leitar nú ákaft aö manni eöa mönnum sem hafa kveikt elda á allmörgum stöðum I borginni undanfarnar vikur. Meðal annars er taliö vist að eldarnir I fæöingadeild Landspltal- ans og I Kleppsspltala hafi veriö af manna völd- um. „I nokkrum þessara til- fella teljum viö vist aö krakkar hafi veriö aö verki”, sagöi Helgi Danielsson, rannsóknar- lögreglumaöur, viö VIsi I morgun. „Hinsvegar höfum viö ástæöu til aö ætla aö I sumum tilfellum hafi ver- iö fullorönir aö verki, og þótt fikt krakka meö eld sé slæmt, er hitt sýnu alvarlegra. Sérstaklega er þaö alvarlegt þegar ráöist er á heilbrigöisstofnanir eins og Landspitalann og Klepp þar sem menn geta átt erfitt meö aö foröa sér ef illa fer. Þaö hefur tekist aö slökkva þessa elda áöur en slys yröu en hinsvegar hafa oröiö miklar skemmdir. Jafnvel þótt eldur sé litill og á tak- mörkuöu svæöi, getur reykurinn frá honum valdiö milljóna-skemmd- um. Og þaö sem er alvar- legra, reykur getur hæg- lega oröiö mönnum aö fjörtjóni. Þegar krakkar fikta meö eld geta þeir þvl orö- iö mannsbanar og valdiö geýsilegu tjóni, þótt báliö sé ekki stórt”. Helgi sagöi aö lögregl- an heföi ekki ástæöu til aö ætla aö einhver einn kolóöur brennuvargur væri á ferö um borgina þótt hugsanlegt sé aö einn maöur sé valdur aö fleiri en einum bruna. Lögregl- an leggur nú allt kapp á aö hafa upp á þeim sem þarna hafa veriö aö verki. —ÓT. aö öllu með gát. Undanfarið hefur veriö flutt út talsvert af saltsfld og er hér verið að skipa út sild I Reykjavlk- urhöfn- (VIsism.JAj Sfldveiðar hafa veriö að aukast smátt og smátt á ný hér við land og standa vonir til að hægt verði að veiöa umtalsvert magn innan nokkurra ára, ef farið verður Dularfullt hvarf á é>' varnarliðshjólbörðum Eftir því sem best er vitað fer nú fram rann- sókn á hvarfl nokkur þús- und hjólbarða er áttu að fara til varnarliösins á Keflavlkurflugvelli. Hjól- barðarnir munu hafa veriðsendir meðEimskip frá New York til Kefla- vikurvallar en virðast ekki hafa komið þar fram. Vlsir spuröist fyrir um þetta mál hjá Hallvaröi Einvarössyni, rann- sóknarlögreglustjóra í morgun, en hann tók fyrirspumina óstinnt upp. , ,Ég veit ekkert um máliö, segi ekkert um máliö”, svaraöi Hall- varöur. Hann var þá spuröur hvort þaö væri rétt aö hingaö væri kom- inn maöur frá FBI vegna rannsóknarinnar. „Þú heyröir hvaö ég sagöi, ég segi ekki orö” sagöi þá rannsóknarlög- reglustjóri. Er Vlsir haföi tal af Sigurlaugi Þorkelssyni, blaöafulltrúa Eimskips sagöi hann aö ekki heföi veriö haft samband viö félagiö vegna þessamáls og þar vissu menn ekki annaö en þaö sem þeir heföu lesiö I blööum_____SG Mjólk, smjör, kjöt og kartöflur lœkka Mjólk, undanrenna, smjör, kindakjöt og kar- töflur munu lækka I dag. Aftur á móti mun verð á osti, skyri og nautakjöti vera það sama. Mjólkurlítrinn mun lækkaum 8 til 9 krónur og kostar þvl eftir lækkunina um 134 krónur. Undan- renna veröur um 9 krónur ódýrari en mjólkin. Þá mun kflóiö af smjöri kosta 1150 krónur og klló- iö af kartöflum 103 krónur. Verö á kindakjöti mun lækka um 90 krónur, og kostarum 850krónur eftir lækkunina. —KP TEPPABUÐIN Síöumúli 31. Sími 84850 ÓDTRU TEPPIN fást hjá okkwr

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.