Morgunblaðið - 28.01.2001, Qupperneq 2
BÍLAR
2 D SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MÆLABORÐ sem vekur ökumann ú
móki er tækni sem á eftir að auka veruleg
umferðaröryggi. Þetta er mat vísinda
manna sem hafa rannsakað hvað gerist
huga ökumanns þegar hann ekur á beinum
þjóðvegum. Þessari tækni er ætlað a
halda vissum hluta heilastarfseminnar
viðbragðsstöðu meðan á viðburðasnauðum
akstri á beinum vegum stendur.
Tilraunir í ökuhermi Nissan hafa sýnt a
eftir aðeins fimm mínútna akstur á þjóð
vegi reyna ökumenn framúrakstur
skemmri vegalengdum en þeir mynd
reyna við upphaf akstursins. Ástæðan fyri
þessu er sú að með því að beina sjónum
löngum stundum að veginum virðist sem
breyting verði á heilastarfseminni. Rann
sóknadeild Nissan í Bandaríkjunum hefu
komist að þeirri niðurstöðu að ökumen
eiga við þessar aðstæður erfiðara með a
leggja rétt mat á vegalengdir. Fyrirtæki
er í þessu skyni að hanna ljósabúnað
mælaborði sem dregur athygli ökumanns
stutta stund frá sjálfum veginum og rýfu
þar með þá einhæfni sem fylgir löngum
akstri.
Mælaborð sem
rjúfa einhæfni
þjóðvegaaksturs
HUYNDAI Accent var valinn bestu kaup
in í flokki smærri fólksbíla í neytendakönn
un ráðgjafar og markaðsrannsóknafyrir
tækisins Strategic Vision í Banda
ríkjunum. Könnunin náði yfir alla smærr
fólksbíla á Bandaríkjamarkaði og eru nið
urstöðurnar byggðar á svörum frá all
55.000 kaupendum nýrra bifreiða í janúar
febrúar og mars árið 2000. Accent hlau
alls 744 stig af 1.000 mögulegum.
Fyrstu átta mánuðina á markaði
Bandaríkjunum seldust rúmlega 46.000
Accent, sem er um 58,7% söluaukning frá
árinu 1999. Hér á landi hófst sala á nýjum
Accent vorið 1999.
Hyundai Accent
bestu kaupin í
Bandaríkjunum
AUDI hefur kynnt nýjan þriggja lítra A2
Með þriggja lítra er ekki vísað til slagrým
is vélarinnar heldur þess að hægt á að vera
að aka bílnum 100 km á aðeins þremur lítr
um eldsneytis. Vélin er 1,2 lítrar að slag
rými, þriggja strokka og gengur fyrir dísil
olíu. Þetta er sama vél og í þriggja lítra VW
Lupo. Bíllinn er hins vegar ekkert sérlega
frár því hann er heilar 14,8 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km hraða. A2 þriggja lítra
er eins og almenna útgáfa bílsins að þv
undanskildu að hann er á afar léttum létt
málmsfelgum og mjóum dekkjum. Bíllinn
kemur á markað í Þýskalandi í næsta mán
uði.
Þriggja lítra
Audi A2
AFAR fátítt er hér á landi að skipt sé
um öryggisbelti í bílum eftir að þeir
hafa lent í umferðaróhappi. Atli Vil-
hjálmsson, þjónustustjóri hjá B&L,
segir að í flestum tilvikum eyðilegg-
ist öryggisbeltin þegar bíll hefur lent
í árekstri þar sem reynir á beltin.
Hann telur að fjöldi bíla sé í umferð
hérlendis með varasöm bílbelti.
Hann segir að sömuleiðis sé fátítt að
bíleigendur láti endurnýja öryggis-
loftpúða, sem er nauðsynlegt að gera
hafi púðinn blásist upp einu sinni.
Hávaðinn allt
að 70 desibel
„Ökumanni og farþega bregður
mikið þegar öryggisloftpúði blæs
upp. Í pokanum er mikið púður og
hvítt duft verður í bílnum eftir að
púðinn blæs upp og sömuleiðis fylgir
þessu mikill hávaði, allt að 70 desibel.
En púðinn blæs ekki upp nema við
dágott högg,“ segir Atli.
Hann segir að ekki eigi mönnum
að stafa hætta af öryggispúða þegar
hann blæs út en þó geti þeir sem eru
reykjandi þegar þetta gerist orðið
fyrir bruna.“
Misskilningur ríkjandi
varðandi púðana
Atli segir að talsverður misskiln-
ingur ríki varðandi öryggisloftpúða
og virkni þeirra. Oft berist ábend-
ingar um að menn hafi ekki orðið
varir við þegar öryggisloftpúði hafi
blásist upp. Skýringin á þessu sé sú
að þetta ferli gerist eins og auga sé
deplað. Allt er yfirstaðið á 105 milli-
sekúndum, eða rúmlega einum tí-
unda úr sekúndu. Þetta gerist með
miklum þrýstingi því pokinn þarf að
rífa upp mælaborðið og til þess þarf
mikið afl. Eftir 20 millisekúndur er
púðinn hálfuppblásinn, eftir 40 milli-
sekúndur fullútblásinn og síðan tek-
ur það 65 millisekúndur fyrir púðann
að hjaðna á ný.
Á ekki alltaf
að blásast upp
„Margir telja að öryggisloftpúðinn
eigi alltaf að blásast upp við árekst-
ur. Þetta er mikill misskilningur.
Höggið við áreksturinn þarf að koma
á ákveðinn stað á bílnum og fyrir-
staðan þarf að vera föst til þess að
púðinn blásist upp. Sé ekið beint á
steinvegg á nægjanlegum hraða
blæs púðinn undantekningarlaust
upp. Sé fólksbíl ekið aftan á jeppa
kemur högg ofan við stuðara fólks-
bílsins. Þá þarf mikið til þess að púð-
inn blási upp. Fólksbíl getur sömu-
leiðis verið ekið á ljósastaur og hann
gengið alveg inn að vél bílsins án
þess að púðinn blási upp þar sem
mikil deyfing verður á högginu.
Komi högg hins vegar á bita í innra
brettinu og allt að fimmtán gráðum
út frá bitanum í hvora átt sem er og
hann krumpast á öryggispúðinn að
blásast upp í langflestum tilvikum,“
segir Atli.
Rafstraumur
kveikir í púðri
Stjórnkassi öryggispúðans er fest-
ur í botnplötu bílsins, yfirleitt fyrir
framan gírstöngina. Stjórnkassinn
er lítill kjarni inni í húsi. Þar er
gormur og við höggið þarf kjarninn
að færast í botn hússins til þess að
rafstraumur myndist sem kveikir í
púðrinu í öryggispúðanum og hann
blæs út. Mjög litlar líkur eru á því að
kvikni í púðanum komi höggið í 75
gráðu horni á bílinn nema hann sé
með svokallaða hliðaröryggisbelgi.
Atli segir að framleiðendur örygg-
isloftpúða hafi verið gagnrýndir fyrir
að of mikill hávaði fylgi því þegar
þeir blásist upp og sömuleiðis að
áferðin í sjálfum púðanum sé of gróf
sem geti m.ö.o. valdið bruna á andliti
fólks við núninginn.
Þegar púði hefur blásið út einu
sinni er hann ónýtur. Flestir bílar
eru nú orðið með bílbeltastrekkjara
og sumir með skynjara í sæti sem
skynjar hvort setið er í sætinu sem
síðan stjórnar því hvort öryggispúði
blæs út eður ei. Bílbeltastrekkjaran-
um er ætlað að vega upp á móti
teygju sem er í beltunum. „Þegar
bílar lenda í árekstri eru beltin í
rauninni ónýt. Þegar einu sinni hefur
strekkst á þeim geta þau hrokkið í
sundur við næsta högg. Hér eru belti
aldrei tekin úr notkun – trygginga-
félögin gera það aldrei og lögreglan
held ég að megi fullyrða aldrei. Víða
erlendis er þetta gert. Það er því
fjöldi bíla með varasöm belti í um-
ferð,“ segir Atli.
Ekkert vörugjald er af öryggis-
loftpúðum eða bílbeltum en þetta er
dýr búnaður. Atli segir að í langflest-
um tilvikum biðji bíleigandi, eigi
hann sjálfur að greiða reikninginn,
um að mælaborðið, þar sem örygg-
ispúði hefur komið út, sé soðið saman
án þess að nýjum púða sé komið fyr-
ir. Kostnaður við einn öryggispúða
og fylgihluti ásamt ísetningu er á
bilinu 80-200 þúsund krónur. Sé
einnig skipt um bílbelti bætist við
kostnaður upp á um 30 þúsund krón-
ur við hvert belti.
Ný reglugerð
Í nýrri reglugerð um gerð og bún-
að ökutækja segir að öryggispúða
skuli komið fyrir samkvæmt fyrir-
mælum framleiðanda ökutækis.
Óheimilt er að fjarlægja öryggispúða
úr ökutæki nema allur búnaður og
merkingar hans séu fjarlægðar. Þá
er óheimilt, samkvæmt reglugerð-
inni, að aftengja öryggispúða nema
merkingar hans séu fjarlægðar.
Fjöldi bíla í
umferð með
varasöm
bílbelti
Fátítt er að skipt sé um bílbelti í bílum eftir
árekstur. Sömuleiðis veigra margir sér við
að endurnýja öryggisloftpúðann vegna mik-
ils kostnaðar. Atli Vilhjálmsson, þjónustu-
stjóri B&L, segir misskilning ríkjandi varð-
andi öryggisbúnað í bílum.
Wieck
Ekki er tryggt að öryggisloftpúði þenjist út þegar fólksbíll lendir saman
við háan bíl eins og jeppa.
Wieck
Öryggisloftpúði 50 millisekúndum eftir árekstur.
ÁRIÐ 1910 var stofnað fyrirtæki
sem seinna fékk heitið Bristol
Aeroplane Company. Fyrirtækið
framleiddi margar gerðir flugvéla.
Í síðari heimsstyrjöldinni fram-
leiddi Bristol yfir 14 þúsund flug-
vélar, þar á meðal Blenheim-orr-
ustuvélina.
Í stríðslok nýttu eigendur Brist-
ol sér umfram-
afkastagetu
verksmiðjunnar
til að framleiða
bíla. Tekin var
ákvörðun um að
halda fram-
leiðslunni í lág-
marki en smíða
einvörðungu gæðabíla. Bristol var
nafnið sem verksmiðjunni var gef-
ið því hún var staðsett í bænum
Filton við borgina Bristol. Merkið
er meira að segja sótt í skjald-
armerki Bristol-borgar.
Fyrsti Bristol-bíllinn, 400, var,
bæði hvað varðaði tækni og útlit,
náskyldur bílum BMW frá því fyr-
ir stríðið. Bílar Bristol voru allir
með þriggja stafa tölu, eins og
BMW-bílar, en nöfn þeirra byrj-
uðu á tölustafnum 4 allt fram til
1976 þegar við tók 603-gerðin. 603-
gerðin fékk einnig heitin Brit-
annia, Brigand og Beaufighter,
sem eru nöfn á flugvélum sem
Bristol framleiddi. Bíllinn sem fyr-
irtækið framleiðir í dag heitir
Blenheim.
Flugvélaarmur Bristol samein-
aðist British Aircraft Corporation
1960, sem í dag heitir Bristish
Aerospace. Þar með varð bílaverk-
smiðjan sjálfstætt fyrirtæki og við
stjórnartaumunum tók kappakst-
urskappinn Tony Crook.
Bristol er eini bílaframleiðand-
inn á Bretlandseyjum sem er að
öllu leyti í eigu heimamanna. Fyr-
irtækið hefur enga umboðsmenn
en hægt er að heimsækja það á
slóðinni www.bristolcars.co.uk.
Bílamerkin
– Bristol
Mikil saga, oft ósögð, er
tengd merkjum bíla-
framleiðenda. Hér verð-
ur stiklað á stóru í sögu
Bristol.
Bristol Blenheim 3 er með 5,9 lítra, V8 vél frá Chrysler.