Vísir - 23.01.1979, Blaðsíða 9

Vísir - 23.01.1979, Blaðsíða 9
VÍSLR Þriöjudagur 23. janúar 1979 Til að leiðrétta misskilning Fimmtudaginn 18. 1. birtist hér i lesendadálknum bréf eftir undirritaöan, þar sem fariö var mjög höröum oröum um þaö, aö borgaryfirvöld skuli hafa hætt snjómokstri klukkan 21 laugar- dagskvöldiö 13. janúar. Ég bendi á þaö í bréfi mlnu, aö kæmi slys fyrir I bænum, hvort sem þaö-væri i úthverfum eöa ekki, þá ætti lögregla, sjúkrabil- ar eöa slökkviliö mjög erfitt meö aö komast á vettvang. Þetta taldi ég óábyrgt hjá borgaryfirvöldum. Útaf þessu bréfi hringdi i mig maöur frá snjómokstursdeild borgarinnar, Jón Hannesson minnir mig hann hafi heitiö, og taldi hann í bréfinu vegiö aö snjómokstursmönnunum sjálf- um. Þaö er alrangt enda hef ég fylgst meö störfum þeirra og tel þá yfirleitt færa i sinu starfi. Hins vegar eru þaö vanbúnir bilar sem tefja fyrir störfum þessara manna. Bilar sem eru yfirgefnir eða komast ekki áfram sökum fannfergis. Jón Hannesson (sé þaö hans nafn) sagöi aö tilkynningin sem lesin var i útvarpiö þetta um- rætt laugardagskvöld, hafi verib hótun, sem átti aö hafa þann tilgang, að bifreiðaeigend- ur snertu ekki bila sina og gæfist þá snjómokstursdeildinni tæki- færi til aö ryöja göturnar sóma- samlega. Enda þótt ég kjósi nú frekar að kalla hlutina sinum réttu nöfnum en segja eitt og meina annaö, þá má kannski segja i þessu tilfelli, aö tilraunin hafi veriö ágæt. Samt sem áöur hættu flestar snjóruöningsvélar vinnu sinni og um nóttina var komin mjög slæm færö, svo slæm aö leigubifreiðir hættu akstri. Um morguninn átti siöan lögreglan fullt i fangi meö aö koma starfsfólki sjúkrahúsanna til vinnu sinnar. Ég er ekki aö kenna snjó- ruðningsmönnunum um, skuld- inni skelli ég á borgaryfirvöld. Siguröur Sigurösson, blm. IWONA ÞUSUNDLJM! Góð reynsla þeirra Jjölmörgu sem auglýsa reglulega í þjónustuauglýsingum Vísis er til vitnis um ágæti þeirra og áhrifamátt. - ^v' CCW^ o'i itrfrír * oö laHV C áL jfslun 15S-Í nn Ef þú býður þjónustu af einhverju tagi er smáauglýsing í Vísi sterkasti vettvangurinn til viðskipta, þar eru þær lesnar af tugþúsundum og þjóna þúsundum. ÍM252S®66611 smáauglýsingar husbyggjendur ylurinn er U Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið frá mánudegi — föstudags. Afhendum vöruna á byggingarstað, viðskiptamönnum að kostnaðar lausu. Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi. Borgarplast hf Borgameal »(mi 93 7370 Vvötd 09 hdsanimi 93 7355 iðcmúu 5 nvn sim Ábyrgð hf, hefur flutt skrifstofur sínar frá Skúlagötu 63 í nýtt eigið húsnæð á 6. hæð Lágmúla 5, Reykjavik. Betri þjónustn Ábyrgð hf. hefur nú i 18 ár leitast við að veita bindindisfólki fullkomna þjón- ustu með ýmsum trygginganýjungum og hagstæðari kjörum en annars bjóðast. Með bættum húsakynnum eigum við hægar með að veita viðskipta- vinum okkar enn betri þjónustu. Verið velkomin i Lágmúla 5. ABYRGD TRYGGINGAFÉLAG FYRIR BINDINDISMENN. Umboösfélag ANSVAR INTERNATIONAL LTD. ER ÁFENGIS- VANDAMÁL: Hjá þér? í fjölskyldunni? Á vinnustaðnum? „ÞAÐ ER TIL LAUSN” Þin lausn kann aö liggja i aö panta viötal viö ráögefendur okkar i sima 82399. jFræöslu-og leiöbeiningarstöö : Láginúla 9, simi 82399.^ <3C3í3i3a630C3ÖS3C3£3tNXÍ: ►3C3C3C3C3C3C

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.