Vísir - 23.01.1979, Blaðsíða 10

Vísir - 23.01.1979, Blaðsíða 10
10 Útgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davfó Guömundsson Ritstjórar: ólafur Ragnarsson Höröur Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson. Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Umsjón meö Helaarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Jónina Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrln Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson,Oli Tynes, Sigurður Sigurðarson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson, Þor- valdur-Friðriksson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljós- myndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Útlitog hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús ölafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Slöumúla 8. Sfmar 88611 og 82260. Afgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Ritstjórn: Sföumúla 14 simi 86611 7 linur. Askrift er kr. 2500 á mánuöi innanlands. Verö f lausasölu kr. 125 eintakiö. Prentun Blaöaprent h/f Rýrnun og rnnnsókn Enn ein staðfesting hef ur nú fengist á því, að ekki hef- ur allt verið með felldu í Fríhöfninni undanfarin ár. [ frétt í Visi í dag kemur fram, að heildarrýrnun í Frí- höfninni minnkaði um 46% i fyrra miðað við árin á undan og einnig jukust gjaldeyrisskil verulega. Svo sem menn rekur minni til var það ekki f yrr en eftir mitt árið sem skipulagsbreytingarnar í fyrirtækinu voru gerðar og allt eftirlit hert. Það er því eðlilegt að sú spurning vakni, hve miklu minni vörurýrnunin hefði orð- ið ef slíkt aðhald hefði verið veitt allt síðasta ár, — að ekki sé nú talað um síðustu árin. Ekki hafa forráðamenn Frihafnarinnar fengist til að gefa upp hve há rýrnunin er í prósentum af veltu fyrir- tækisins, en segja, að hún séorðin tiltölulega lltil. I skrif um Vísis um Fríhafnarmálið, sem leiddu til þess að lögreglurannsókn var hafin á meintu misferli þar, kom meðal annars f ram, að ríkisendurskoðun hefði bent á óeðlilega rýrnun i versluninni fyrir fjórum árum. Þegar blaðið fór fram á að fá aðgang að bréf um ríkis- endurskoðunar til utanríkisráðuneytisins um þetta mál var svarið þvert nei. Lögreglurannsókninni á því hvort aukagjald haf i verið lagt á ákveðnar vörutegundir i Fríhöfninni til þess að fela hluta rýrnunarinnar er nú langt komið og er niður- staðna af henni að vænta fljótlega. Utanríkisráðherra tók þannig til orða, er Vísir ræddi við hann um rannsóknina að hann vænti þess að sann- leikans yrði leitað i þessu máli. Vonandi hefur sú leit borið einhvern árangur. Reyklaus dagur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur hvatt aðildar- riki Sameinuðu þjóðanna til þess að leggja verulega aukna áherslu á baráttuna gegn reykingum. Sérf ræðing- ar stofnunarinnar telja að ekkert geti orðið jafn árangursríkt til þess að bæta heilsufar fólks í þessum löndum og veruleg minnkun reykinga. Hér á landi hafa áhugamannasamtök og opinberir aðilar síðustu árin verið að feta sig inn á nýjar brautir í þessu varnar- starfi. Ánægjulegter til þessað vita að það er unga kynslóðin, sem nú hef ur tekið forystuna I reykingavarnastarfinu og má búast við að reykleysi hennar muni innan fárra ára koma fram í minnkandi tóbakssölu. I dag er svonefndur reyklaus dagur hér á landi. Fjöl- margt fólk á vinnustöðum hefur tekið vel tilmælum Samstarfsnefndar um reykingavarnir, læknafélaga og samtaka áhugamanna um heilbrigðismál, svo sem Hjartaverndar og Krabbameinsfélaganna,um að reykja ekki í dag, og margir munu ætla að nota þetta tækifæri til þess að hætta að reykja. Þetta mun vera I fyrsta sinn I heiminum sem heil- brigðisyfirvöld standa að sllkum reyklausum degi, en hliðstætt átak til þess að vekja athygli á skaðsemi reyk- inga hefur verið gert á vegum samtaka áhugamanna I fjórum löndum. Vísir hefur mörg undarnfarin ár stutt baráttuna gegn tóbaksreykingum eins og annað varnaðarstarf á sviði fyrirbyggjandi heilsugæslu. Blaðið væntir þess að sem víðtækust samstaða náist meðal landsmanna um að halda vinnustöðum og heimilum reyklausum í dag, þannig að Islendingar geti sýnt öðrum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna gott fordæmi á þessu sviði. Þriöjudagur 23. janúar 1979 VÍSIR Tvö sunnudagskvöld i viðbót, og þá verður loks komið að úrslita- keppninni um Islands- meistaratitilinn i diskódansi ’79. Og spenninginn vantar ekki. Hvorki i keppendur né á- horfendur. Á me&an keppendur dansa, klappa viöstaddir og hrópa eins og þeir geta til þess aö hvetja þá. Þaö vantaöi ekki aö sigur- vegararnirá sunnudagskvöldiö, Kristján Ari Einarsson og Val- geröur Jónsdóttir væru hvött. Númer tuttugu og sexog tuttugu og sjö voru þau, og komust i fyrsta sæti. Dansarinn Ricky Villard var i dómnefnd, en Ricky, sem er 19 ára varö annar i heims- meistarakeppninni idiskódansi, sem haldin var I fyrsta sinn i London fyrir nokkru. Þaö kom engum sem sáu hann dansa á sunnudagskvöldiö á ó- vartrgreinilega, aö hann skyldi lenda i þvi sætinu. Ricky dansar næstu kvöld i Óöali og þaö sem gifurlega at- hygli vekur er atriði þegar hann dansar eins og brúöa. Smátt og smátt fer „brúöan” aö hreyfa sig, eins og hön hafi veriö trekkt upp, svo er allt komiö á fullt... ,,Ég vissiekkert viö hverju ég áttiaö búast þegar ég kom til Is- lands”, sagöi Ricky. „En núna þegar ég er farin aö kynnast fólki hér, þá líkar mér vel. En ég er enn meö heimþrá...” — EA Ég er enn með heimþrá það. segir Ricky Villard, en hann lifir sig inn fdansinn fyrir „Ég negldi þetta ekki mður við ákveðinn dag" segir Benedikt Gröndal, utanríkisróðherra „Ég sagöi, aö ef rikisstjórnin næöi ekki samkomulagi um efnahagsmálin og viö launþega- hreyfingarnar, þá væru dagar hennar taldir”, sagöi Benedikt Gröndal, utanrikisráöherra þegar Vfsir spuröi hvort þaö heföi veriö rétteftir honum haft áblaöamannafundii Sviþjóö, að stjórnin væri fallin ef ekki næö- ist samkomuiag fyrir fyrsta febrúar. „Frásögnin I Morgunblaöinu er ekki röng, en hún er ekki alveg nákvæm. Ég sagöi þetta i viöara samhengi og negldi þetta ekki niöur viö ákveöinn dag. Þetta var klukkutima fundur og fréttamennirnir reyndust vera býsna vel inni i þvi sem er aö gerast hér á landi og spuröu meöal annars hvaö mundi ger- ast 1. febrúar. Ég svaraöi þvi til aö markmiöiö væri aö hafa til- búnar efnahagsáætlanir þá og nefndi I þvi sambandi viöunandi samkomulag viö launþega- hreyfinguna. Ég sagöi ekkert þarna úti Sem ekki hefur veriö margoft sagt hér heima. Þaö liggur i augum uppi aö ef stjórnin nær ekki samkomulagi um efnahags- áætlanir til lengri tima svo hún geti horfiö frá skammtlmaaö- geröum, þá er hún fallin”, sagöi utanrikisráöhe rra. —JM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.