Vísir - 23.01.1979, Qupperneq 14
14
Þriöjudagur 23. janúar 1979,
vísm
Verdlaunakross- og mynda-
góta Flugfraktdeildar Flugleiða
og Frjólsrar verzlunor, Sjóvar-
frétta og Iðnaðarblaðsins ER
FRAMLENGD TIL 15. FEBR. NK.
FJÓRAR
UTANLANDSFERÐIR í
VERÐLAUN
Sendið luusnir til Frjálsrar verzlunar, Ármúla 18, Reykjavík eða Flugfraktdeildar Flug-
leiða h.f., Tollhúsinu, Tryggvagötu 19, Reykjavík fyrir 15. janúar.
Nafn...................
Heimili................
Nafnnúmer ............
Fyrirtæki:Vinnuveitandi .
Sími .................
Ljósa-
gangur
og för
í snjó
„Það sást feiknamik-
ið, skært ljós, sem lýsti
umhverfið svo mikið
upp, að runnar sáust frá
bænum Sultum i Keldu-
hverfi, en þetta var rétt
eftir miðnætti,” sagði
Viðar M. Jóhannsson,
fréttaritari Visis i
Kelduhverfi.
„ÞaB var á þrettándanum, aö
fólk á Sultum sá þetta ljós.
Reyndi heimilisfólk aö gera sér
grein fyrir því, hvar ljósiö var.
Daginn eftir var svo fariö á staö-
inn og fundust tvö för i snjónum,
allstór. Þetta voru för en ekki
spor, þvi þaö var eins og snjórinn
heföi bráönaö”, sagöi Viöar.
Ekki hafa menn viljaö giska á,
hvaö þarna var á feröinni.
—ATA
Seyðfirð-
ingar fá
vökva-
knúinn
snjóbíl
„Hérhafa veriö ýmsir snjóbilar
áöur, bæöi kanadlskir og sænskir,
ogenginn þeirra getað leyst þann
vanda aö komast þegar færö er
erfiöust. En viö álitum aö þessi
bfll muni komast i nokkurn veg-
inn hvaöa færö sem er”, sagöi
Ástvaldur Kristófersson á Seyöis-
firöi i samtali viö Vísi, en hann er
forstjóri Vélsmiðjunnar Stál, sem
sér um ferðir yfir Fjaröarheiöi
upp á Egilsstaöi.
Það er bæjarstjórnin á Seyöis-
firöi sem er eigandi bilsins og
bauö hún i gær fréttamönnum i
ökuferð til aö kynna fyrir þeim
kosti þessa farartækis. Aö sögn
Ástvaldar er þetta þýskur bill af
Kassbohrer-gerð, meö stýrishúsi,
og sætum fyrir sextán farþega.
„Þessibill er mikil framför frá
þvi sem við höfum átt aö venjast.
Hann er sérstaklega hannaöur til
að klifra mikinn bratta og er með
vökvastýröri ýtutönn þannig aö
hann getur lagaö fyrir sig slóðir.
Hann er allur vökvaknúinn og
einnig stýröur meö vökva. Þetta
er elektrónisk vökvastýring sem
gerir stýringu ákaflega auövelda.
Meö húsinu kostaði hann þrjá-
tiu og fjórar milljónir króna”,
sagði Ástvaldur. —JM
Hið íslenska
bókmenntafélag
1 frétt i blaöinu I gær þar
sem skýrt var frá kjöri for-
seta, varaforseta og fulltrúa-
ráös Hins islenska bók-
menntafélags féll niöur hluti
texta.
Rétt er setningin þannig:
Varaforseti var kosinn Ósk-
ar Halldórsson en I fulltrúa-
ráö voru kosnir Kristján
Karlsson og Reynir Axels-
son. Stefán Karlsson, Helga
Kress, Heimir Pálsson og
Jón Böövarsson fengu einnig
atkvæöi.