Vísir - 21.02.1979, Page 7
VlSIR
Miðvikudagur 21. febrúar 1979.
Umsjón Guðmundur Pétursson
Samtökin ætla leiðangrinum
aft veraselveiðimönnum til ama
og trafala fyrst kanadfsk yfir-
völd neituöu að verða viðóskum
um að set ja selnum griö f tvö ár.
V
Hengdu
galdrahyskið
Sex menn og ein kona voru
færð I gálgann í Harper í Liberiu
fyrir helgi vegna morðs, sem
þau frömdu I djöfladýrkun fyrir
tveim árum. — Þetta var fjöl-
mennasta aftaka, sem fram
hefur fariö I Lfberfu fyrir einn
giæp.
Hópurinn söng sálm, þegar
hann var leiddur f gálgana, en I
honum var einn fyrrverandi
þingmaður, annar var sonur
varaforseta Liberiu og þriöji
var þingmannssonur.
Þeir höfðu drepið manninn til
þess að nota einhverja iikams-
hluta hans I sciö, sem átti að
tryggja þeim pólitiskan frama.
Sendiherrann
Adolph Dubs, sendiherra
Bandarikjanna, sem myrtur
var í Afganistan i sfðustu viku,
var fylgt til grafar í Fort Myer i
Virginfu í gær. Margt fyrir-
manna var viðstatt jarðarför-
ina, eins og sjá má hér á mynd-
inni til hægri. Þar voru Mondale
varaforseti, Hosalynn Carter
forsetafrú og Cyrus Vance utan-
i rikisráðherra.
Líklegir
Óskarar
Tvær kvikmyndir, sem fjalla
um áhrif Vietnamsstriðsins á
mannlff i Bandarikjunum, hafa
hlotiö flestar tilnefningar til
Óskars-verölaunanna. Slikar
myndir hefðu kvikmyndahús I
Bandarikjunum talið dauða-
dæmdar til aðsóknar fyrir aðeins
ári.
önnur myndin er „The Deer
Hunter”, en hin er „Coming
Home”. Báðar hafa hlotið sam-
tals 17 tilnefningar.
MyndWarren Beatty, „Heaven
Can Wait”, hefur hlotiö niu
tilnefningar til Óskarsverðlauna.
Robert de Niro og Jane Fonda
hafa hlotið flestar tilnefningar til
Óskarsverðlauna sem besti leik-
ari og leikkona. Jon Voigt hefur
einnig verið tilnefndur, svo og Sir
Laurence Olivier, sem hlaut
Óskarsverðlaunin 1948 fyrir túlk-
un slna á Hamlet, en þetta er i
^ellefta sinn, sem hann er tilnefnd-
ur.
Ingrid Bergman hefur einnig
verið tilnefnd sem besta leikkona
fyrir leik sinn I „Haust-sónata”.
Snýst gegn
samherjum
Khomeiny æðstiprestur hefur
nú snúist af heift gegn samherj-
um sinum, vinstrisinna hryðju-
verkamönnum, sem hjálpuðu
honum að brjóta niður stuðning
við keisarann. Hefur hann for-
dæmt þá og kallaö „tækifæris-
sinna, sem væru and-
múhammeðskir”.
I sjónvarps- og útvarpsræðu i
gærkvöldi hvatti hann borgara
til þess að mæta ekki I kröfu-
göngu, sem boðuð hefur.verið á
morgun. Ætluðu vinstrisinnar
að leiða kröfugönguna framhjá
heimili Khomeinys. „Þeir eru
ekki múhammeðstrúar og gegn
Islam” sagði hann.
Þessi yfirlýsing æðstaprests-
ins er fyrsti votturinn um klofn-
ing, sem kominn er upp milli
trúaraflanna og vinstriaflanna.
Talsmaður vinstrisinna sagði,
að berlega ætti nú að æsa
múginn gegn þeim, eins og gert
hafði verið gegn keisaranum. —
Gervihnöttur
kannar mengun
í andrúmsloftinu N
Bacall i hlutverki
nírœðrar konu
Bandarikin hafa sent á ioft
nýjan gervihnött á braut um-
hverfis jörðu, og á hann aö
kanna, hvaöa skaða „aerosol"
(sem framkallar úðann I
,,spray”-brúsum> hefur unnið á
ósonlögum gufuhvolfsins, en
þau vernda jarðlifiö fyrir hinum
banvænu últra-fjólubláu geisl-
um sólarinnar.
Það hefur verið visinda-
mönnum áhyggjuefni, aö
óson-lögin sýnast vera að
eyðast, en af þvl leiöir breyting
á veðurfari og aukning á húö-
sjúkdómum meöal manna.
Gervihnötturinn veröur úti I
himingeimnum f heilt ár og
mun byrja -aö senda til jaröar
einhvern næstu daga.
Þjófar brutust um helgina inn
I Ustasafnið I Toronto og höfðu
þaöan á brott með sér málverk
eftir Picasso sem metiö hefur
veriö til 425 þúsund kanadiskra
dollara (um 11 milljónir kr.).
Þetta málverker frá þvi 1939
og er af konu, sem heldur á
kindarhaus'oger eitt af tuttugu
og átta málverka-safni sem
fengiö hefur verið ti| sýningar
að láni frá evrópskum lista-
verkasölum.
Þetta er annar þjófnaðurinn á
Picasso-málverki I Toronto á
þessu ári. Hinu var stoliö úr
ibúð.
að
Biðja Japani að beita sér
við Kínverja
Hanoi-stjórnin hefur skorað á kalli heim herlið
Japan að beita áhrifum sinum viö — eftir þvl sem
Pckingstjórnina til þess að hún rlkisráöuneytið
sitt úr Vietnam
japanska utan-
upplýsti.
1 Tókýó hefur ekki frést frekar
af bardögunum i Vietnam, en I
gærkvöldi sögðu Kinverjar og
Vletnamar, að heraflar þeirra
ættu enn I bardögum á f jórða degi
eftir aö kinverskt herlið réðst inn
i Vietnam.
Samkvæmt fréttum, sem
Japanir höföu fengið af átök-
unum, hafði kinverska herliðið
sótt tiu til tuttugu kilómetra inn
yfir landamæri Vietnams.
Bandarikin virtust i morgun
komin á fremsta hlunn með að
krefjast aukafundar i öryggisráöi
Sameinuðu þjóðanna til þess að
ræða ástandið i Indó-kina. Munu
fulltrúar þeirra fimmtán rikja,
sem sæti eiga i öryggisráðinu,
ræða þennan möguleika i dag sin
á milli á óformlegum fundum.
Þetta er fyrsta myndin, sem
borist hefur frá landamæra-
héruðunum, þar sem átök Kln-
verja og Vletnama hafa helst átt
sér stað. Er hún tekin I Kina og
sýnir, hvar kennslukona og
bekkur hennar hafa leitað hælis
I hellisskúta.
Fundir í
Camp David
Egyptar og Israelar hefja að
nýju i dag friðarviðræöur slnar I
Camp David, en báðir eygja litlar
vonir til, að siðustu ágreinings-
atriðin leysist I bili.
Mustapha Khalil, forsætisráð-
herra Egyptalands, og Moshe
Dayan, utanrikisráðherra tsra-
els, komu báðir til Camp David I
gærkvöldi, en Cyrus Vance, utan-
rikisráðherra fer til fundar við þá
i dag.
Helsti þröskuldurinn i viðræð-
unum er krafa Egypta um að
tengja hugsanlega friðarsamn-
inga við áætlun um sjálfstjórn til
handa Palestinuaröbum á vestur-
bakka árinnar Jórdan og á Gaza-
svæðinu, en til þess eru tsraels-
menn mjög tregir.
Moshe Dayan, utanrikisráðherra Israel, sést hér við kom-
una til Bandarikjanna I gærmorgun — á leið til fundanna I
Camp David.
Laureen Bacall sem þykir
furöu ungleg miðað við 54 ára
aldur. hefur nú boöist hlulverk
þar sem aldurinn skiptir ekki
höfuðmáli. Hún á aö leika I
kvikmyndinni „Heilsunni” og
fara þar með hlutverk nlræðrar
kerlingar sem er formaöur al-
heimssamtaka um heilsusam-
legt mátaræði.
Laskað olíuskip
í Lissabon
Grlska risaolluskipið Andros
Patria sem laskaðist I
sprengingu á gamlársdag með
þeim afleiðingum að 30 fórust
hefur fengið leyfi portúgalskra
yfirvalda til þess að sigla inn á
höfnina i Lissabon
Tveir hollenskir dráttarbátar
drógu olluskipið inn eftir að af-
gangurinn af farminum, 167
þúsund smálestir af hráoliu frá
Iran voru losuð yfir I olhiskip
BP suður af Azúreyjum. — Nú
standa fyrir dyrum viðgerðir á
skipinu ef þær þykja ekki of
kostn aðarsamar.
Bankasprenging
Frá Varsjá berast þær fréttir,
að frumrannsókn hafi leitt i ijós,
að sprengíng I sparisjóði þar I
siðustu viku hafi veriö af völd-
um gasleka. — 45 manns fóruSt I
sprengingunni.
Gasið haföi lekiö úr aöalæö úti
I götu inn I kjallara bankans.
'Engin frekari skýring hefur
kontið fratn á þvi, hvernig þaö
mátti veröa. Engar gasleiðslur
voru i bankanum sjálfum.
Um 400 manns voru inni I
bankanum, þegar sprengingin
varð. 110 voru lagðir slasaðir á
sjúkrahús.
Stálu Picasso-
málverki
Selaleiðangur hjá Greenpeace
Greenpeace-umh verfis-
verndarsamtökin gerðu út núna
um siöustu helgi skipið „Rain-
bow Warrior” til austurstrand-
ar Kanada, þar sem selveiðin er
að hefjast. Iieimildir eru fyrir
veiði á 195 þúsund selum þessa
vertlðina.