Vísir - 21.02.1979, Blaðsíða 9
9
vism
Miðvikudagur 21. febrúar 1979.
Það var glatt á hjalla i afmælishófi Stjórnarráðsins.
Gleðjumst og
verum glaðir
Snjólfur skrifar:
Sannarlega er ástæða til að
gleðjast, þegar þess er minnst,
að nú hefir Stjórnarráð Islands
starfað i 75 ár. Minnast þeirra
manna sem fyrstir höfðu for-
ystuna og einnig hinna mörgu
mánna, sem tóku við hver af
öðrum. Vafalaust hafa þeir,
sem nú eru i fararbroddi, til
stjórnunar lýðs og lands, naft
efst i huga þakkir til þeirra
mörgu ágætu manna sem
frmstir voru i viglinunni og
einnig þeirra karla og kvenna,
sem studdu og styrktu foringj-
ana. Rikisútvarpið rakti I stór-
um dráttum sögu þess timabils.
Ráðherrann, Hannes Hafstein,
var aðeins einn til að bvria með.
1 75 ára afmælishófi sem for-
ystumenn þjóðarinnar héldu i
tilefni þessara merku tima-
móta, var efnt til gleðihófs, þar
sem ríkisstjórn og starfsfólk
ráðuneytanna kom saman með
gleðitár i augum i djúpri
þakkartilfinningu til þeirra,sem
rutt höfðu leiðina og sigrast á
þeim örðugleikum sem, að
sjálfsögðu urðu á vegi þeirra.
Nöfn þurfti ekki að nefna, mörg
voru meira að segja nútimakyn-
slóð kunn. Sagan geymir mörg
þeirra nafna og ósjáanlegir eru
þeir en gleðjast með glöðum.
Tölu veislugesta er ekki ná-
kvæmt vitað um, en ágiskun um
að muni hafa verið um 500, en
svo margt er nú ekki starfandi
fólk Stjónarráðsins, Enda með
bæði makar og fyrrv.starfsfólk.
Hin örvandi gleði þessa kvölds,
hjálpaði til með að tæma 1600
glös.að sjálfsögðuléttra vina á
einni klukkustund og eitthvað
runnið niður á eftir með dýrum
kræsingum, sem svo var fram
borið. Eins og við vitum er mat-
ur mannsins megin.
Nokkrum kvöldum siðar leit-
aði „Kastljós” álits nokkurra
þekktra manna hvernig heppi-
legast myndi vera að haga vin-
veitingum I veitingahúsum svo
að skaðsemi áfengis minnkaði
frá þvi sem nú er. öllum virtist
ljóst að æska landsins biði sér-
saklega tjón á ofneyslu þess.
Þjóðin öll væri i hættu og fram-
tið einstaklinganna. Þessi alda
gengur reyndar yfir allan hnött-
inn. Ætli að fordæmi og
hugsunarháttur hinna eldri,
uppalendanna, vegi þar ekki
þungt á metaskálum. „Hvað
höfðingjarnir hafast að hinir
ætli sér leyfist £að,” sá máls-
háttur verður sígildur. Spurn-
ingin er, — hvaða eiginleika
þarf einstaklingurinn aö hafa til
þess aö vera höfðingi. Látum
svo útrætt um það.
A þessum timamótum er á-
stæða til að gera samanburð á
aðstöðu núverandi kynslóðar og
þeirri, sem lifði fyrir 75 árum.
Þá var vart hægt að seðja
fjölskylduheimili, þótt unnið
væri 14 stundir daglega við
landbúnað eða sjósókn. 1 sveit-
um voru hýbýlin viðst byggð úr
torfi,upphitunarlitil. Núerual-
mennt risin góð Ibúðarhús og
peningshús. Viða raflýst með
tilheyrandi þægindum.
1 kauptúnum og kaupstöðum
eru viða komnar stilfallegar I-
búðabyggingar og glæsilegar
hallir, Auðvitað allt byggt úr
steiniog innviðir úr dýrasta ný-
tiskuviði. Steininn geymir pen-
ingana best, þvi þar slgur ekki
verðgildið, heldur vex, að
minnsta kosti á þeim tima, sem
við nú lifum á. Allviða eru hús-
gögn og húsmunir, sem þola
samanburð við erlenda tisku-
gróðamanna og slær þá jafnvel
út. Rafmagn og raftæki til
flestra hluta, svo maturinn
kemur næstum á færiböndum til
neytendanna.
Allt hefir þetta gerst á
framangreindu timabili. Land-
búnaðarvaran hefir aukist svo
hratt, að henni verður ekki torg-
að. Verður svo ekki hjá þvi
komist að selja hana öörum
þjóðum á miklu lægra verði en
Islendingar sjálfir kaupa hana
fyrir. Sjórinn er næstum þur-
austinn af fiskiog útliter fyrir að
bráðlega verði dauður sjór.
Þetta eru forystumenn þjóðar-
innar búnir að sjá fyrir löngu og
reynt að sporna við uppaustri
erlendra þjóða, en við ramman
reip hefir verið að draga.
Nú er þó svo komið, að þjóðin
virðist öll sameinuð i þessu máli
og vonandi verður hægtð bæta
úr ördeyðunni með skilningi og
samstilltum huga, svo ekki
þurfi að segja, eins og einn
merkur bóndi sagði við sam-
býliskonu sina, þegar hún vildi
fara að láta vel að honum á
dauðastund hans, sem ekki hafði
gerst fyrr: „Of seint, Gunna.”
Allstór er þó sá hópur fólks,
sem ekki nýtur þeirra gæða,
sem framfarir siðari áratuga
hefir byggt upp, án þess að
þurfa að vinna jafnlangan
vinnudag eins og gert var fyrir
75 árum, hugsi það sér að fá not-
ið þessara lífsgæða, sem al-
mennt er sóst svo fast eftir. Það
hlýtur einhver skekkja að hafa
orðið I dæminu, enda bendir það
eitt útaf fyrir sig til rangrar
efnahagsstefnu þjóðarbúsisn,
að skuldir Islendinga við er-
lendar þjóðir skuli nú vera orön-
ar um 60 milljarðar króna.
Kannski höfum við flýtt okkur of
hratt.
Þrátt fyrir allt samfögnum
við þvi öll, sem áunnist hefir á
liðnum 75 árum og vonum að
betur rætist úr en nú horfir. Til
þess þarf hugsunarháttur okkar
allra að breytast, kröfurnar að
verði vægari og lita ofurlitið til
aðstæöna samlanda okkar, ná-
unga vors. Þá munum við telja
eðlilegt og sjalfsagt að gleðjast
með glöðum, með þvi áheiti að
haga okkur sjálf svo að til eftir-
breytni verði uppvaxandi
æskufólki islensku þjóðarinnar
og það verði stöðugt „kastljá”
ungmennum íslands og þjóðar-
innar allrar hvernig uppalendur
og forráðamenn, hvar i stétt og
stöðu sem þeir eru, telji sér
skylt að veita gott fordæmi til
farsældar lifs einstaklings og
þjóðar.
Um Æfingoskólann
Vegna framkominna
tillagna um að leggja
Æfingaskólann niður,
ætla ég að skrifa
nokkrar linur.
Mér finnst það fáránleg hug-
mynd og ég vona aö hætt verði
við að leggja skólann niður. Ég
hef heyrt þaö á krökkum i
Æfingaskólanum, að þeir ætli að
hætta i skóla fyrir fullt og allt, ef
þessi skóli verður lagður niöur.
Talað hefur verið um aö
skipta krökkunum úr Æfinga-
skólanum niður á þrjá skóla i
grenndinni, Austurbæjar-
skólanum, Hliðarskólann og
Álftamýrarskólann. Það eru þvi
þrjár miklar umferðargötur,
sem krakkarnir þurfa að fara
yfir, Kringlumýrarbraut,
Miklabraut og Snorrabraut.
Við viljum hafa okkar skóla I
friði. Þvi vona ég, að ekkert
verði úr þessu.
D.S.
Svar umsjónarmanna:
Siðustu frétir herma, aö
menntamálaráðherra hafi lofað
þvi.að skólinn verði ekki lagöur
niður. D.S. þarf þvi ekki að hafa
áhyggjur út af þessu lengur.
1979
Með drifi ú ellum hjólum
SUBARU STATION 1600 framdrifsbila,
en með einu handtaki.án þess að stöðva.getur þú breytt honum I fjórhjóla-
drifsbll. Þá klifrar hann einsog geitog vinnur eins og hestur, en er þurftalft-
ill eins og fugl.
Dragið ekki að kynnast þessum frábæra fólksbil,sem jafnframt hefir eigin-
leika jeppans.
Verð miðað við gengi i dag kr. 4.450.000.-
*
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1
TTT
VESTUR-ÞÝSKU
LITSJÓNVARPSTÆKIN
Bræóraborgarstíg1-Sími 20080-
(Gengió inn frá Vesturgötu)
fcajcskijcakalc******************************************#.