Vísir - 02.03.1979, Page 3
Föstudagur 2. mars 1979
1S
útvarp kl. 20,45 Á LAUGARDAG: IM| Sjónvqrp kl. 17,00 á sunnudag:
Stjórnaðu
sjálfum þér
, .Megineíui þáttarins er viötal
við Jónas Kristjánsson ritstjóra
Dagblaðsins og konu hans
Kristinu Haildórsdóttur rit-
stjóra Vlkunnar, „sagði Þörunn
Gestsdóttir umsjónarmaður
þáttarins „Lifsmynstur”, sem
er á dagskrá útvarps kl. 20,45 á
laugardag.
Tilgangurinn með viðtölunum
er aö fá innsýn inn I lif smynstur
þeirra hjóna. Þau vinna úti all-
an daginn og rætt er m.a. um á-
hugamál þeirra og hvernig þau
verja fjölskyldustundunum og
hvernig þau skipta timanum
milli fjölskyldu og vinnu.
Laga val i þættinum er i hönd-
um barna þeirra hjóna, sem eru
áaldrinum fíá fimm ára til fjór-
tán ára.
Segja má aö þátturinn sé
sprottinn upptir umræöum, sem
átt hafa sér staö i þjóðfélaginu
um börnin, heimilin og skólana
og manninn sjálfan i umhveri
slnu.
Þetta er fyrsti þátturinn undir
heitinu „Llfsmynstur”, en ég
býst við aö ég veröi meö þrjá
samsvarandi þætti I mars um
lifstilhögun fólks.
Þetta er þáttur fyrir alla fjöl-
skylduna, hann er stuttur um 35
minútur og mikil tónlist er i
þættinum og m.a. er eitt lag sem
Jónas og Kristin velja sjálf og
þaö heitir „Kontrol your self”
með Cleo Lane, sem segja mætti
aö væri táknrænt fyrir þennan
Ritstjórarnir og hjónin Jónas Kristjánsson og Krlstin Haildórs-
dóttir ræða um lifstilhögun sina og hvernig þeim tekst að sam-
ræma vinnu sina og heimili, i þættinum „Lifsmynstur,” sem er á
dagskrá útvarps kl. 20,45 á laugardag.
Stjörnur á himni
„svartrar" tónlistar
Annar þáttur myndaflokksins
„Alþýðutónlistin” verður sýnd-
ur i sjónvarpi á sunnudagskvöld
og nefnist þessi þáttur „Börn
Guðs” og fjallar um „svarta
tónlist, afriska og amerfska.
Fjallaö veröur m.a. um Paul
Oliver, Duke Ellington, Fats
Domino, Jerry Wexler, Ray
Charles, James Brown, og Tinu
Turner.
Höfundur myndaflokksins,
Tony Palmer, er kunnur fyrir
tónlistarskrif i Englandi. Fyrir
riímum áratug geröi hann
fyrstu heimildakvikmynd sina.
Nefnist hún „All My Loving” og
fjallaði um áhrif Bitlanna á
samtimatónlist.
1 upphafi þessa áratugs hófst
Tony Palmer handa um gerö
þessa myndafiokks. Þetta varö
ótrúlega umfangsmikiö verk. A
nokkrum árum kvikmynduöu
samstarfsmenn Palmers 250.000
m af filmu meö viötölum og tón-
listarfluttningi. Til gamans má
geta þess aö þaö tekur meira en
30 sólarhringa aö sýna 500 km
langa filmu.
—ÞF
Ivar Lo-Johansson, sem hlaut bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs I vetur, Hjðrtur Pálsson les úr
verðlaunasögu hans „Gelgjuskeið" í útvarpinu í kvöld.
ég þýöi og les föstudag, laugardag Stokkhólmi” og „Astin og tónlist-
og sunnudag, en kaflarnir heita, in”.”
„Amerikubréf,” „Skókaup i —ÞF
Vandomói nú-
linianiannsns
„t þessum þætti býður Gai-
braith heim ýmsu heimskunnu
fólki til umræðna,” sagði Gyifi
Þ. Gislason þýðandi mynda-
flokksins „A óvissum tfmum”.
„t þættinum eru aöalþátt-
takendurnir Edward Heath
fyrrverandi forsætisráöherra
Breta, Arbatov, ráöunautur
Brezhnefs I málefnum Banda-
rikjanna, Ralf Dahrendorf,
Þjóðverji sem nú ér rektor
London School of Economics,
Shirley Williams ráöherra i
bresku stjórninni, Arthur
Schlesinger bandariskur sagn-
fræöingur og fyrrverandi ráö-
herra i stjórn Kennedys,
Pramoj, fyrrverandi forsætis-
ráöherra Tailands, Jones bresk-
ur verkalýösleiðtogi, og einn af
eigendum Washington Post.
Dahrendorf telur lifskjör betri
i Þýskalandi en Bretlandi, en
telur félagslegt jafnrétti meira
þar og segist taka breska þjóö-
félagiö fram yfir þaö þýska.
Breski ráöherran ræöir minnk-
andi samkeppni og aukin vöid
stórfyrirtadcja og telur þetta
hafa áhrif á lýðræðiö. Þegar
Rússinn gagnrýnir þetta kerfi,
segir Heath, að ef borgarar I
Sovétrikjunum fengju aö ráöa,
myndu þeir kjósa betri lifskjör
en minni vigbúnaö. Rússinn
svarar aö þeir vilji fyrst og
fremst friö.
Breski verkalýösleiötoginn
ræöir um nauösyn aukins af-
komuöryggis launafólks og auk-
ins atvinnulýöræöis, og veröa
um þaö athyglisveröar umræö-
ur. Menn hafa ólflcar skoöanir á
vinnu og striti og hvaö gera
megi til aö gera vinnuna meira
aölaöandi. Rætt er um samband
barns og skóla og þvi taliö
ábótavant. Ýmislegt athyglis-
vert er sagt um gagnsleysi þess
aö stytta vinnutima og fjölga
tómstundum, ef ekki sé aöstaöa
eöa skilningur á þvi aö nota þær
skynsamlega.
Þá er rætt um aöstoðina viö
þróunarlöndin. Arbatov telur
þaö brýnt viðfangsefni. En
Heath telur flest þaö, sem um
þau mál sé nú sagt rangt og úr-
elt. Hann segir Sovétrikin
siöastliöin 20 á ár ekkert hafa
gert til aö aðstoöa fátækar þjóö-
ir, nema til aö bæta þar aöstööu
sina. Heath spyr: Hverjar eru
nú auöugar þjóöir? Þaö eru oliu-
rikin. Og þau vilja ekki nota auö
sinn til aö hjálpa meöbræðrum
slnum. Arbatov svarar meö þvi
aö benda á, aö margar þessara
þjóöa séu fyrrverandi breskar
nýlendur og Bretum beri siö-
feröileg skylda til aö hjálpa
þeim. Málefni Kina ber á góma
og sýnist sitt hverjum.
Breski verkalýösleiötoginn
leggur áherslu á nauðsyn aö-
stoöar viö þróunarlöndin en hún
veröi aö vera óháö stjórnmál-
um. Fyrrverandi forsætisráö-
herra Tailands ræöir sam-
skipti lands sins og Japans og
telur þau ágæt, nema hvaö á-
góöi japanskra fyrirtækja I Tai-
landi hafni allur i Tókió. Hann
telur störf fjölþjóöafyrirtækja
gagnleg, en þaö veröi aö setja
alþjóölegar reglur um störf
þeirra.
Þá er ræddur sá vandi ein-
staklingsins i þjóöfélaginu sök-
um þess, aö fyrirtæki og
stofnanir séu alltaf aö stækka.
Allir eru sammála um, aö ein-
staklingurinn megi ekki tinast I
sliku þjóöfélagi en greinir á um,
hvernig þaö veröi tryggt, aö
slikt gerist ekki.”
- ÞF
'SavileRow
ér
u
^ualoit
sttocs of ustinctioh
The mark of a masíer shoemaker
HOFUM OPNAÐ NYJA SERVERSLUN
MEÐ HERRASKÓFATNAÐ
Teg WD 4163
Litir brúnt og svart
Verð kr. 15.400f00
Teg WD 4159
Litir brúnt og svart
Verð kr. 15.400,00
Teg WD 8915
Litur brúnt
Verð kr. 14.900,00
Teg WD 4119
Litur brúnt
Verð kr. 14.900,
Teg. K 2401
Skinnfóöraðir leðurskór
Litur brúnt
stærðir 41-45
Verð kr. 13.000,00
Teg K 2380 Sklnnfóðraðir leðurskór
Litur natur
Stærðir 40-44
Verð kr. 13.000,00
ALLT SKINNFÓÐRAÐIR LEÐURSKÓR Á LEÐURSÓLA
Póstsendum
MerraShöbúÓin
Armúla 7 • Sími 81646