Vísir - 13.03.1979, Side 3

Vísir - 13.03.1979, Side 3
Þriöjudagur 13. mars 1979 3 SAFNA í SUND- LAUG Hjálparstofnun kirkjunnar og Lions-hreyfingin á tslandi hafa á- kveöið aö taka höndum saman og leggja sitt af mörkum til aö koma upp sundlaug Sjálfsbjargar. t þessu skyni gangast samtökin fyrir landssöfnun fþessari viku. Sundlaugarbyggingin hefur veriö baráttumál Sjálfsbjargar um margra ára skeiö. Grunnur sundlaugarinnar var steyptur ár- iö 1966, en siöan hefur hvorki gengiö né rekið með bygginguna, sem ris viðendurhæfingarstöðina aö Hátúni 12-i Reykjavik. Framlögum má koma á giró- reikning Hjálparstofnunar kirkj- unnar nr. 20005, á skrifstofu Hjálparstofhunar, Klapparstlg 2^ og til sóknarpresta um land allt. - KP. Lýst eftir vitnum Ekiö var utan I Volkswagen Golf LS bíll G-2515 sem stóö viö Alfaskeiö 43 I Hafnarfiröi 9. þessa mánaðar.BQlinn er grásanseraö- ur, Sá sem ók utan i bilinn, fór af staðnum, en lögreglan í Hafnar- firöi biður hugsanleg vitni aö hafa samband viö sig. — EA Mickie með heimsmetið en heldur sarnt ófram Mickie Gee náði heimsmetinu i plötu- snúningnum klukkan þrjú i gærdag, og hafði þá snúið plötum sam- fleytt i 1176 klukku- stundir. En ekki er allt búiö meö þvi. Mickie ætlar sér meira en það og hyggst halda áfram aö snúa plötunum næstu dagajielst fram á sunnudag. Þá verður hann ör- uggur heimsmeistari i þvi að snúa plötum, samkvæmt Guinn- es-metabókinni. Mickie var hinn hressasti i gærdag, og klukkan þrjú var komiö meö kakó og vöfflur i til-, efni dagsins. Þegar öllu lýkur verður svo boðið i góöan kvöld- verð, þaö er að segja ekki fyrr en um næstu helgi. Fyrr fær Mickie ekki að snæða þungan mat. En á meðan á öllu þessu hefur staöið, hefur hann verið undir lækniseftirliti. — EA Þórdis Bachmann óskar Mickie til hamingju með heimsmetið. Visismynd: JA Skuldir 406 bœnda kannaðar H ver þeirra skuldar um 6 miUjenir Þar af eru um 3 milljónir lausaskuldir ,,Ju, það er rétt aö lausafjár- skuldir 406 bænda nema þú u.þ.b. 1200 milljónum króna og föst lán nema svipaðri upphæö” sagöi Arni Jónsson hjá Stétta- sambandi bænda, en á nýaf- stöönu Búnaöarþingi var meðal annars fjallað um þessi mál. Arni sagði að skuldir þessar sem næmu um 6 millj. kr. á hvern bónda,stöfuöu einkum af tvennu: 1 fyrsta lagi stofnuðu ungir bændur, er væru að byrja búskap sér oft I miklar skuldir, en jarðakaupalán næmu aðeins 20% af kaupverði jarða — i öðru lagi þyrftu þessir bændur svo aö kaupa sér bústofn og vélar og stofnlánin brúuðu hæst 60% af þeirri fjárþörf. Það sem á vantaði yrðu þessir bændur svo að útvega sjálfir og þannig stofnuðu þeir til þessara lausa- fjárskulda er áður getur. Arni kvaö Búnaðarþing hafa fjallað um þetta mál og gefiö umsögn sina við frumvarpi, er nefnd á vegum landbúnaðarráö- herra hefði samið, til þess að breyta þessum lausafjárskuld- um i föst lán. Ekki væri fullfrá- gengið hvernig það yröi gert. Þó væri rætt um aö Búnaðarbank- inn gæfi út sérstakan flokk af veðskuldabréfum sem yrðu með svipuðum kjörum og al- menn lán t.d. hjá stofnlána- deildinni og þá meö verulegri verðtryggingu en lágum vöxt- um. Þessi flokkur skuldabréfa yrði að vera sambærilegur við aðra flokka svo aö þau gætu gengið inn i hið almenna banka- kerfi. Þetta er þó háð samþykki skuldunautanna, en af þeim væru kaupfélögin stærst með um 600 millj. kr. i útistandandi skuldum. Að auki ætlar landbúnaðar- ráðherra að leggja fram um 200 millj.kr. af lánsfjáráætlun.sem yrðu þá notaðar til þess að leysa þetta mál að hluta, svo að bænd- ur þyrftu ekki að taka lánin að öllu leyti i skuldabréfum. Þá kom fram hjá Arna að slik lagasetning er breytíi lausa- fjárskuldum i föst lán væri ekkert nýtt fyrirbrigði. Það hefði síðast verið gert 1969. Þessi staða kæmi ávallt upp hjá bændum, sem væru að byrja búskap og þannig söfnuöust þessar skuldir smám saman. Ekki taldi Arni að fjár- hagsstaöa bænda væri nú neitt verrien endranær. Hér væri aö- eins um aö ræða mál er kæmi upp á vissu árabili og þyrfti þá að leiðrétta. —HR ' >5*-» i •• ■. ® ■r-s-w • ■ „. - Heyvinna meö handafli og vélarafli: Margir ungir bændur'TTáfa stofnað til mikilla lausafjárskulda vegna vélakaupa og uppbygging ar i landbúnaði. ktor í tölvuf rœðum Jóhann Malmquist Jóhann Malmquist varöi nýlega doktorsritgerö i tölvufræöum viö Pennsylvania State University 1 BandarDijunum. Hann mun vera fyrsti tslendingurinn sem hlýtur doktorsnafnbót i þessari fræöi- grein. Undanfarið hefur Jóhann verið búsettur ÍPenmylvaniu og stundaö kennslustörf viðPennsylvania State University ásamt vinnu viö doktorsritgerð. Jóhann er sonur hjónanna Eð-. valds B.Malmquist og Astu Thor- oddsen. Hann er kvæntur Svövu Friðriksdóttur og eiga þau tvo syni. - KP.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.