Morgunblaðið - 04.02.2001, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.02.2001, Qupperneq 2
2 B SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Tökum lokið á Hringadróttinssögu J ACKSON taldi sig ekki geta gert sögu Tolkiens almennileg skil nema búa til úr henni þrjár bíómyndir í fullri lengd og hann komst að þeirri niðurstöðu í samráði við framleiðslufyrirtækið New Line Cinema, að best væri að taka myndirnar allar upp í einu. Framleiðend- ur The Matrix II og III kusu að fara sömu leið og gera báðar myndirnar samtímis en George Lucas gerir nýju Stjörnustríðsmyndirnar með nokkurra ára millibili. Það þarf líklega tals- verða trú á leikstjórann og söguefnið til þess að brúka fyrri aðferðina en seinni aðferðin gefur tækifæri til þess að lagfæra á milli mynda það sem þykir fara miður. Jackson taldi sig ekki geta verið höfundinum trúr með einni eða tveimur myndum þótt langar væru og gekk frá tímamótasamningi um þrjár myndir sem hann skyldi skila frá sér með árs millibili. Tökum er lokið Tökum á öllum myndunum þremur lauk rétt fyrir áramótin en óhætt er að segja að Hringa- dróttinssaga sé dýrasta kvikmyndaverkefni sem ráðist hefur verið í. Áætlanir gerðu ráð fyrir því í fyrstu að kostnaðurinn við mynd- irnar allar yrði 150 milljónir dollara en sagt er að hann hafi hækkað töluvert og sé kominn í 260– 270 milljónir dollara. Fram undan er 18 mánaða vinna við eftirvinnslu myndanna en sú fyrsta verður tilbúin til sýninga í lok þessa árs og verður jólamynd um heimsbyggðina alla. Stærðirnar eru allar miklar sem nefndar eru í tenglum við myndina. Tökudagarnir voru 438 svo eitthvað sé nefnt. Í myndinni koma fram 20.000 leikleysur („stadistar“) og alls taldi kvikmyndatökuhópurinn 300 manns. 1200 tölvubrelluatriði eru í myndunum en Jackson stofnaði sitt eigið tölvubrellufyrirtæki á Nýja- Sjálandi m.a. til þess að geta fullklárað mynd- ina í sínu heimalandi. Jackson hafði yfir þremur kvikmyndatöku- hópum að ráða í senn og fékk m.a. til liðs við sig einn af þekktari leikstjórum Nýja-Sjálands, Geoff Murphy (Freejack), til þess að stjórna einum hópnum. Hver mynd um sig er byggð á einni bók í trílógíu Tolkiens en helsta verkefni Jacksons er að fá myndinar til þess að virka jafnvel fyrir alla þá sem telja sig sérfræðinga í Tolkien og þá sem aldrei hafa heyrt hans gerið á ævinni. „Það er ekki nokkur leið að gera Hringadrótt- inssögu skil öðruvísi en með þremur kvik- myndum,“ er haft eftir leikstjóranum. Jackson er einn af nokkrum leikstjórum á Nýja-Sjálandi sem vakið hafa athygli fyrir myndir sínar gerðar heimafyrir og tekið upp samstarf við kvikmyndaverin í Hollywood í framhaldi af því. Í þeim hópi eru m.a. Lee Tamahori (Once We Were Warriors) og Jane Campion (Piano). Þekktasta mynd Jacksons er án efa Heavenly Creatures, sem byggði á sann- sögulegum atburðum frá því um miðja síðustu öld og fjallaði um óskiljanlegt morð dóttur á móður sinni. Hollywood krækti í Jackson, er fram að því hafði gert ódýrar hryllings- og spennumyndir, og hann gerði lunkna drauga- mynd í samstarfi við draumaverksmiðjuna sem hét The Frighteners og var með Michael J. Fox í aðalhlutverki. Síðan þá hefur Jackson unnið að Hringadróttinssögu og engu öðru. „Bilbó lifir“ „Hringadróttinssaga segir, eins og mörgum er kunnugt, frá því þegar hobbitinn Fróði held- ur ásamt þremur félögum sínum í ægilega æv- intýraferð að skila á réttan stað hring er býr yfir kynngimögnuðum krafti. Það er barna- og unglingastjarnan Elijah Wood sem fer með hlutverk Frodós en með önnur hlutverk fara m.a. Sean Astin, sem leikur Sóma, Ian Holm, Christopher Lee, Cate Blanchett, Sean Bean, Liv Tyler, Brad Dourif, Viggo Mortensen og John Rhys-Davis. Ian McKellen fer með hlutverk töframanns- ins Gandalfs en Ian Holm leikur Bilbó Bagga- son. McKellen hefur sett upp sína eigin heima- síðu og þar skrifaði hann eftir að hafa séð nokkra búta úr myndinni. „Bilbó lifir og ef aðr- ir í myndinni eru hálft eins góðir og Ian Holm í sínum hlutverkum verða þessar myndir ein- stök upplifun.“ Tónskáldið Howard Shore hefur verið fengið til þess að semja tónlist við allar myndirnar þrjár en hann er kunnur fyrir músíkina í myndum Jonathan Demmes eins og Lömbin þagna og Fíladelfía. Tökurnar gengu ekki alveg snuðrulaust fyr- ir sig enda varla við því að búast þegar ráðist er í slíkt stórvirki. Stuart Townsend var fenginn til þess að leika eitt af höfuðhlutverkunum, Aragorn, en það voru aðeins liðnir nokkrir tökudagar þegar hann hvarf á braut og ráðinn var nýr leikari í hlutverkið, Viggo Mortensen. Jackson hefur reynt að halda eins og framast er unnt leyndu því sem hann hefur verið að bauka en það hefur gengið erfiðlega. Starfs- menn við myndirnar seldu ljósmyndir af töku- stöðum auk þess sem áhættuleikari stal 13 myndböndum með senum úr myndunum en neyddist til þess að skila þeim aftur. „Ég hef reynt að skipuleggja út í eitt öll smá- atriði,“ var haft eftir Jackson en engu að síður tókst honum ekki að halda sig við upphaflega fjárhagsáætlun eins og kom fram hér að fram- an. Framleiðandinn, Barrie M. Osborne, segir það fjarri öllu lagi að leikstjórinn hafi „blásið út“ áætlunina og bendir á að tökum lauk á til- settum tíma. „Þetta er eðlilegur kostnaður við þrjár bíómyndir,“ segir Osborne. Gott andrúmsloft Sagt er að andrúmsloftið á tökustað hafi ver- ið með besta móti. Breski leikarinn Ian Holm var svo hrifinn af Nýja-Sjálandi að hann dvaldi áfram í landinu eftir að atriðin með honum höfðu verið tekin upp. Nýir leikarar bættust í hópinn þegar leið á tökurnar eins og Bernard Hill, sem leikur konunginn Þéoden af Rohan, og Miranda Otto (What Lies Beneath) sem fer með hlutverk dóttur hans, Éowyn. Hins vegar eru sumar persónurnar alls ekki af holdi og blóði heldur gerðar einvörðungu í tölvum og á það til dæmis við um hinn óttalega Balrog. Fæstir leikaranna hafa hugmynd um hvernig tölvuteikningarnar koma til með að líta út. Þannig hefur Ian McKellen sagt að hann viti ekkert um það hvernig Gollúm, fyrr- um handhafi hringsins og mikið eftirlæti les- enda sagnabálksins, verður í sjón. „Ég geri mér enga grein fyrir því hvað Andy Serkis (breskur leikari sem talar fyrir Gollúm) og Pet- er Jackson eru að gera úr honum.“ „McKellen, sem mjög hefur verið áberandi í bandarískum kvikmyndum að undanförnu (Gods and Monsters, Apt Pupil, X-Men), hefur látið hafa eftir sér að persónurnar í Hringa- dróttinssögu tali með blönduðum breskum hreim. Skýringartexti fylgir álfunum og Gan- dalfur, sem McKellen leikur, mun tala ekki ósvipað „og Tolkien sjálfur hljómar á upptök- um“. Tolkien var ekki hrifinn af því að láta kvik- mynda sögur sínar og honum var t.d. sérstak- lega í nöp við Disney-fyrirtækið og þann æv- intýraheim sem það skapaði í myndum sínum. Það verður ekki annað séð, miðað við þær litlu fréttir sem fengist hafa af framleiðslu mynd- anna, en að Peter Jackson hafi gert sitt besta til þess að heiðra minningu höfundarins með Hringadróttinssögu 1, 2 og 3 sem verða jóla- myndir árin 2001, 2002 og 2003. Tökum er lokið á fjárfrekustu kvikmynd sem sögur fara af, Hringadróttinssögu eftir nýsjálenska leikstjórann Peter Jackson sem byggð er á verk- um J.R.R. Tolkiens. Hún verð- ur sýnd í þremur hlutum á þessu ári og næstu tveimur en Jackson segist fyrst og fremst trúr Tolkien. Arnaldur Indriðason kynnti sér kvikmyndunina en fimm ár eru liðin frá því undirbúningur hennar hófst. xxx

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.