Morgunblaðið - 04.02.2001, Page 7

Morgunblaðið - 04.02.2001, Page 7
eru gerðar æfingar daglega í sjálf- saga. Börnunum er kennt að setjast niður þegar þau eru búin að búa um rúm sín, og áður en matartími byrj- ar. „Við notum ekki skipanir,“ segir Hiroko Shimizu leikskólakennari, „heldur reynum að skapa skemmti- legt andrúmsloft þar sem börnin læra að gera hlutina sjálf í gegnum leik.“ Barnaskólarnir nota sömu aðferð- ir og barnaheimilin til að kenna börnunum skorðaðar samskipta- reglur og sjálfsaga. Strax frá fyrsta degi er mikið lagt í að sýna börn- unum hvernig skólalífið á að ganga fyrir sig, hvaða reglum á að fylgja og að öll beri þau ábyrgð á ákveðn- um hlutum. Börnunum verður því fljótt eðlilegt að mæta í skólann klukkan átta á morgnana, fara sjálf inn í kennslustofuna sína, setjast niður og lesa ein í hálftíma áður en kennarinn kemur. Það er tiltölulega lítið um umgang eða læti. Skólar leggja mikla áherslu á að börnin „sýni þolinmæði“ og „geri sitt besta“, að þau læri að það skipti mestu að taka þátt og gera alltaf eins vel og maður getur. Á sama tíma er reynt að gera samkeppni sem minnsta á milli nemendanna. Í hverju fagi í barnaskólum setja börnin sér sín eigin markmið, hvaða einkunn þau stefni að í næsta móð- urmálsprófi eða stærðfræði. Börnin reyna að ná þeirri einkunn sem þau stefna að og kennarinn verðlaunar þau sem ná þeim. En börnin eru beðin um að bera ekki saman ein- kunnir sínar heldur fara með þær beint heim og sýna fjölskyldunni. Náið samband skóla og heimilis Ein af meginástæðunum fyrir því að svo vel tekst til að fá börn til að gera það sem þau eiga að gera er sú að samband skóla og heimila er mjög náið. Þau markmið sem skólar setja eru tekin mjög alvarlega af foreldrum sem reyna mjög að upp- fylla þær kröfur sem til þeirra og barna þeirra eru gerðar. Uppeldi barna heima við endurspeglar því að miklu leyti það sem kennt er í skólanum. Ætlast er til að foreldrar, og þá aðallega mæður, leggi fram þó nokkra vinnu við undirbúning skóla. Foreldrar eiga að leiðrétta heima- vinnu minni barnanna (reikning og skrift) á hverjum degi og hjálpa barninu að lesa heima og fylla út að því loknu sérstakt lestrarspjald til að staðfesta að barnið hafi lesið það sem fyrir var lagt. Hvert barn er líka með sína eigin „skilaboðabók“ sem það er látið skrifa í hvaða heimavinnu á að gera og hvaða hluti á að koma með í skólann næsta dag. Foreldrar eiga að staðfesta með stimpli á hverjum degi að þeir hafi lesið skilaboð kennarans. Foreldrar taka líka mikinn þátt í skólastarfinu. Þeim er boðið í heim- sókn í skólastofuna og á barnaheim- ili að fylgjast með kennslu einu sinni á önn, boðið er upp á tíma þar sem foreldrar og börn koma saman og föndra eða leika, og foreldra- fundir eru haldnir reglulega. For- eldrafundirnir eru ekki einkafundur foreldra með kennara, heldur fund- ur allra foreldra í viðkomandi bekk og kennarans. Þar útskýrir kenn- arinn skólastarfið framundan og þau markmið sem hann vill ná, oft með fyrirmælum eða óskum til for- eldra. Hvert og eitt foreldri segir síðan nokkur orð um sitt barn, þroska þess og vandamál sem upp hafa komið. Ebata segir að foreldrar og kenn- arar líti á þessa fundi sem mjög mikilvægan þátt skólastarfsins. „Foreldrar bera auðvitað mikla ábyrgð á uppeldi barna sinna og það er eðlilegt að foreldrar og kenn- arar vinni saman,“ segir hún. Fund- irnir færa ekki aðeins foreldra og kennara nær, heldur gefa þeir for- eldrum tækifæri til að kynnast hver öðrum. Einkafundir eru aðeins haldnir ef eitthvað sérstakt er að. Í flestum skólum tíðkast það líka að kennarar fari í heimsókn heim til hvers nemanda við upphaf skólaárs- ins þar sem kennaranum gefst tæki- færi til að tala við foreldrana í ein- rúmi og kanna þær aðstæður sem barnið býr við. Skólar í Japan ráðleggja foreldr- um mikið um uppeldi og umönnun barna. Börn í barnaskólum og barnaheimilum koma heim með fréttabréf frá skólanum reglulega. Þar eru markmið hverrar náms- greinar rædd, og ábendingum kom- ið á framfæri við foreldra, t.d. um öryggi barna við leik, í umferðinni, og um heilsu þeirra. Um miðjan vet- ur er t.d. ekki óalgengt að sú ábend- ing komi frá skólanum að foreldrar láti börn sín ekki vera úti að leika um helgar þar sem kvef sé að ganga í skólanum. Þá er foreldrum oft beint á að nauðsynlegt sé að þeir tryggi að börnin þeirra fari snemma að sofa, að þau læri á réttum tíma, eða að þau hugsi betur um und- irbúning fyrir skólann. Í sumarfrí- inu er brýnt fyrir foreldrum að tryggja að börnin haldi sömu rút- ínu, fari snemma að sofa, leiki mikið úti og læri helst svolítið á hverjum degi. Foreldrar taka slíkum ábend- ingum vel og er samvinna nær und- antekningarlaust góð. Foreldrar eru líka beðnir um að hjálpa til við hreingerningar í skól- um og koma einu sinni á önn eða svo að hjálpa til við að hreinsa skólalóðina og þrífa skólastofur. Hreingerningarfólk er ekki ráðið í skólana heldur sjá nemendur um dagleg þrif og foreldrar um stærri hreingerningar. Þá skiptast foreldr- ar á að standa vörð við gangbrautir á helstu umferðargötum sem börnin fara um á leið í skólann á morgn- ana. Forræðishyggja? Japanska skólakerfið er þó ekki fullkomið. Agaleysi er mikið í sum- um skólum, sérstaklega í gagn- fræða- og menntaskólum. Þá er ein- elti orðið alvarlegt vandamál sem erfitt hefur verið að stemma stigu við. Á barnaheimilum er farið að bera á því að börn kunni ekki eins vel að leika með öðrum og taka tillit til annarra og áður. Er það rakið til mjög lágrar fæðingartíðni í Japan en nú alast mörg börn upp sem ein- birni. Margir þeirra Vesturlandabúa sem komist hafa í snertingu við jap- anska skólakerfið kvarta undan því að það byggi á of mikilli forræð- ishyggju og segja að foreldrum og börnum sé of mikið sagt fyrir verk- um og að of margar reglur séu sett- ar um smáatriði. Á hinn bóginn eru líka margir sem dást að því hve mikla ábyrgð japönsk skólabörn eru látin bera og hve mikið sjálfstæði þau sýna í skólanum. Foreldrar eru látnir taka mikinn þátt í skólastarf- inu sem útheimtir mikla vinnu en gerir það að verkum að foreldrar vita allt um markmið skólastarfsins og hvernig barninu gengur og taka meiri þátt í námi barnsins en þekk- ist á Íslandi. Ljósmynd/Hulda Þóra Hörn, 4 ára, í drullumallsleik með öðrum börnum á góðum sumardegi í leikskólanum. Systurnar Hörn og Hrafnkatla Arnarsdætur ásamt japanskri skólasyst- ur, íklæddar kímónóum, hefðbundnum klæðnaði japanskra kvenna. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 B 7 HÉR má sjá svokallað „lestr- arkort“, eyðublað, sem foreldri (í langflestum tilvikum: móður) hvers barnaskólabarns í Japan er ætlað að fylla út er barninu er hlýtt yfir heimalærdóminn. Þetta er lestr- arkort Hrafnkötlu frá því í sept- ember 1999. Í reitinn efst á blaðinu hefur hún skrifað nafnið sitt (hljóðritun á japönsku skrif- táknunum myndi samsvara „Furab- unkatara“ en á samt að tákna nafn Hrafnkötlu). Í hinum fremsta af lóð- réttu dálkunum átta er dagsetning, þá lýsing á heimalesefninu (sem barnið skrifar sjálft), þá hversu oft er lesið, svo hversu hátt er lesið, hversu hratt er lesið og hvort lesið er fallega. Í næstsíðasta dálkinum er nafnstimpill foreldrisins (í þessu tilviki „Furuda“ sem er nálgunar- umritun á „Hulda“), sem vottar með því að hafa hlýtt barninu yfir. Aftast er svo stimpill kennara. Stimpillinn með lárviðarkransinum, sem sjá má í neðsta dálkinum, þýðir að barnið hafi gert „sérlega vel“ að mati kennarans. Enn ítarlegra skýrsluhalds er krafizt af foreldri leikskólabarns. Í þar til gerða dagbók er foreldrinu ætlað að skrifa allt það helzta sem barnið gerir allt frá því það vaknar og þar til það sofnar. Leikskóla- kennarinn heldur hliðstæða dag- bók yfir það sem á daga barnsins drífur þær stundir sem hún er á leikskólanum. Sem dæmi um það sem móð- urinni er ætlað að skrá er hvenær barnið vaknaði, hversu lengi það svaf og hvort það svaf vel, hvenær og hvað það borðaði, hvort og hve lengi það leikur sér, og hvort það leiki sér við önnur börn. Foreldrinu er meira að segja ætlað að leggja mat á hægðir barnsins. Stimpill fyrir heimalær- dóminn UNGLÆKNAR Sérfræðinám (framhaldsnám) í heimilislækningum í Skaraborg, Svíþjóð Boðið er til kynningar á vegum heilsugæslunnar í Skaraborg, Svíþjóð um sérfræðinám í heimilislækningum. Löng hefð er fyrir því að íslenskir læknar sérmennti sig í Svíþjóð og hafa margir verið í Skaraborg og líkað vel. Mikill áhugi er fyrir áframhaldandi samvinnu og því boðið til þessarar kynningar. Verið velkomin Fimmtudaginn 8. febrúar kl. 18.00 - kynning og umræður kl. 19.00 - buffé GRAND Hótel Reykjavík, Sigtúni 38 Fyrir hönd heilsugæslunnar í Skaraborg mæta: Hasse Johansson, primärvårdsområdeschef Lars Gotthardsson, vårdcentralchef/studierektor Kerstin Ekenstierna, vårdcentralchef Helena Wennås, distriktsläkare Magnus Geirsson, distriktsläkare Ove Hansson, vårdutvecklare Frekari upplýsingar veita: Jóhann Ág. Sigurðsson, prófessor í heimilislækningum HÍ, netfang: johsig@hi.is Guðrún Gunnarsdóttir, sérfr. í heimilislækningum, Sólvangi Hf., s. 550 2600

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.