Morgunblaðið - 04.02.2001, Side 11

Morgunblaðið - 04.02.2001, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 B 11 Staðlaráð Íslands Morgunverðarfundur Grand Hótel miðvikudaginn 7. febrúar kl. 8.15 - 11.00 Hvað er UN/SPSC? Hverjir nota kerfið og styðja þróun þess? Þjónusta við fyrirtæki sem vilja nota sér kerfið. Hvers vegna UN/SPSC? Aðalfyrirlesari er John Sverre Svendsen, svæðisstjóri Electronic Commerce Code Management Association. Fundurinn er ætlaður fyrirtækjum, stofnunum og hagsmunasamtökum í verslun og þjónustu. Þátttaka tilkynnist fyrir kl. 14.00 þriðjudaginn 6. febrúar. Skráning stendur yfir í síma 520 7150 eða með tölvupósti: skraning@stri.is. Þátttökugjald kr. 3.900. ávinningur af rafrænum viðskiptum milli fyrirtækja UN/SPSC vöruflokkunarkerfið og EINN af þekktustu og bestu veiði- mönnum og flugukösturum Bret- landseyja, Michael Evans, verður með fluguveiðikennslu á bökkum Ytri-Rangár í sumar í samvinnu við Þröst Elliðason, leigutaka árinnar og eiganda veiðiþjónustunar Strengja. Evans, sem gefið hefur út mynd- bönd um hin mikilfenglegu „Spey“- köst með tvíhendum, verður við ána í tveimur tveggja daga hollum síðla í júní, 21.–23. júní og 23.–25.júní. Að sögn Þrastar tekur Evans á móti veiðimönnum beggja holla við komuna, heldur tölu um fluguveið- ar, og verður síðan við Rangárflúðir og leiðbeinir mönnum þegar þeir eiga að veiða á því svæði. Evans hefur hannað eigin línu veiðibún- aðar, stangir, línur og þess háttar og mun hann leggja áherslu á „Spey“- köstin sem eiga vaxandi fylgi að fagna hér á landi, en menn komast vart af án ytra. Þau eru notuð í breiðum vatnsmiklum ám á borð við Rangárnar, Sogið, Laxá í Aðaldal og fleiri, auk þess sem slík köst geta bjargað deginum í minni ám þar sem þröngt er um bakköst vegna kletta, hárra bakka eða birkikjarrs. Eldislaxinn grisjaður úr? Pétur Pétursson, leigutaki Vatns- dalsár, er einn þeirra stangaveiði- manna sem hafa áhyggjur af því að norskir eldislaxar muni sleppa úr kvíum, ganga í laxveiðiár og hrygna með villtum fiski. „Ég sé ekki ann- að en að ef raunin verður sú að þessum laxakvíum verði dritað um allan sjó hér við land þá verði að koma upp einhvers konar laxaskilj- un við hverja á. Það gæti verið ein- faldur kistubúnaður sem væri vakt- aður og eldisfiskur vinsaður burt áður en hann kæmist í ána. Ekki er það vandamálið að þekkja þennan fisk frá þeim villta. Munurinn er svona álíka og á hreinræktuðum hundi annars vegar og aflóga, illa útlítandi blendingi hins vegar. Það er auðvitað óeðlilegt að þurfa að standa í slíku, en það verður að standa vörð um þessa laxastofna með öllum þeim leiðum sem færar eru,“ segir Pétur. Ekki í sumar ... Pétur sagði enn fremur að hann hefði orðið var við að menn væntu þess að fyrsti mögulegi bati vegna hrygningar laxa sem nutu „veiða- sleppa“ fyrirkomulags væri vænt- anlegur í sumar. „Ég reikna með betri veiði heldur en í fyrra, en það er einfaldlega vegna þess að veiðin getur varla orðið verri. Hvað fyr- irkomulagið í Vatnsdalnum varðar, þá er seiðabúskapur í ánni sá besti sem mælst hefur og betri en í öllum ám hér í kring. Næsta sumar fara fyrstu seiði til sjávar úr hrygningu árgangs sem naut þessa sleppifyr- irkomulags, seiði sem klöktust vor- ið 1998. Það er sumarið 2002 sem smálax úr því klaki á að ganga í ána. Allt tekur þetta sinn tíma,“ sagði Pétur. Enski kastsnillingurinn Michael Evans mundar stöngina við Ytri-Rangá. Kastsnillingur við Ytri-Rangá í sumar ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Golfkúlur 3 stk. í pakka aðeins 850 kr. NETVERSLUN Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.