Morgunblaðið - 04.02.2001, Page 14

Morgunblaðið - 04.02.2001, Page 14
14 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ angra eftir langvarandi suð og samningaum- leitanir af hálfu köfunarfyrirtækjanna annars vegar og herforingjastjórnar Myanmar hins vegar, með tilheyrandi sporslum og greiðslum mis-opinberra „stimpilgjalda“. Þeir fáu sem hafa fengið úthlutað leyfi setja sjálfir strangar reglur um verndun umhverfisins. Þar af leið- andi er þessi náttúruperla einn af fáum „ósnortnum blettum“ á jörðinni hvað varðar ágang mannsins í náttúrunni. Einu manna- ferðirnar um svæðið í þennan tíma voru farnar af Moken-flökkufólkinu (sjávarsígaunum), sem enn þann dag í dag flakkar um milli eyjanna og flyst búferlum eftir árstíðum. Þeir slá þá upp hálfgerðum einnota þorpum úr bambus og pálmablöðum þar sem þeir dveljast í nokkra mánuði í senn. Það var því eftirminnileg upp- lifun að verða á vegi þeirra og fylgjast með þeim sigla um eyjarnar og veiða á litlu trébát- unum sínum. Öðru hverju keyptum við líka af þeim ferskan fisk í soðið. Þetta langvarandi ferðabann hefur því stuðlað að varðveislu eyja- klasans sem griðlands fyrir land- og sjávardýr. Ef heppnin er með manni má m.a. sjá villta fíla, apa og jafnvel tígrisdýr á sumum af stærri eyjunum. Neðansjávar eru áhrifin svo þau að þar eru dýrin alls ófeimin við mannskepnuna og synda því hákarlar og aðrir stærri fiskar mun nær manni en víðast hvar annars staðar, eins og myndirnar bera með sér. Þetta á sér- staklega við um Silfuruggana, hákarlana sem til stóð að heimsækja við Burma Banks-hrygg- inn, en þeir hafa reyndar vanist mannaferðum að vissu marki undanfarin ár og því að öðru hvoru sé gaukað að þeim smáfiskbita. Heilsað upp á hákarlana Morguninn fyrir fyrirhugaðar hákarlakaf- anirnar lá eftirvæntingin í loftinu. Þegar á hólminn var komið var ég vissulega spenntur og svitni maður í kafi þá gerði ég það örugg- lega, en hræðslan sem ég hafði búist við að finna fyrir ætlaði að láta á sér standa. Þess í stað fylltist ég djúpri lotninu við þessi fyrstu kynni mín af svo stórum og stæltum hákörlum sem, þrátt fyrir að synda innan um okkur, bók- staflega í seilingarfjarlægð og allt að sjö í einu, voru langt í frá ógnandi. Allar fyrirfram-inn- prentaðar ranghugmyndir um blóðþyrsta mannætuhákarla hrundu líkt og spilaborgir í tólf vindstigum. Þvert á móti hélt maður niðri í sér andanum í þeirri von að þeir kæmu sem allra næst og gat ekki beðið eftir að fara aftur. Enda var það gert – allan daginn. Vissulega var það brýnt fyrir okkur að fara að öllu með gát, halda að okkur höndunum og vera ekki með óþarfa pot og bendingar. Eins hefði ekki verið verra að vera með augu í hnakkanum, enda von á þeim úr öllum áttum. Það var þó helst til þess að missa ekki af því eitt augnablik að fylgjast með þessum tígulegu skepnum spóka sig um í sínum eigin bakgarði, ef svo má að orði komast, en ekki innilokuðum í gler- búrum sædýrasafna eða í hinu óverðskuldaða hlutverki ókindarinnar í veruleikafirrtum af- þreyingarmiðlum. Minn einkaleiðsögumaður Davíð, sem hafði oftar en tölu varð á komið komist í návígi við þessa óumdeilanlegu herra hafsins og þekkti þá orðið í sundur (og suma með nafni), tjáði mér líka að hann fengi aldrei nóg af þessari mögnuðu upplifun. Þrátt fyrir að í örfáum tilvikum í gegnum tíðina hafi ná- lægðin kannski orðið ögn meiri en góðu hófi gegndi og smáklapp á trýnið hugsanlega orðið til að aftra nánari kynnum á „innviðum“ há- karlsins, hafði aðdáun hans og virðing farið sí- vaxandi með auknum samverustundum, enda iðaði hann allur eins og krakki í dótabúð við til- hugsunina eina saman. Við erum jú, þegar öllu er á botninn hvolft, gestirnir í þeirra heim- kynnum. Eftir vægast sagt viðburðaríkan dag ferð- uðumst við yfir nótt til Black Rock þar sem við tók ekki síður æsispennandi upplifun. Þar urð- um við þeirrar einstöku ánægju aðnjótandi að fylgjast með á annan tug hinna krúttlegu hlé- barðaháfa við tilhugalífsbrölt sitt, þar sem fengitími þeirra stóð sem hæst þann mánuð sem við vorum á ferðinni. Við þær kringum- stæður, þar sem þeir hringsnerust hver um annan í eltingarleik við að reyna að vinna hylli hins kynsins, skeyttu þeir engu návist okkar, heldur syntu stundum í óðagoti sínu beint í flasið á manni svo það þurfti bókstaflega að ýta þeim frá sér. Við það var hægt að strjúka þeim eftir endilöngum skrokknum og virtust þeir kunna því vel. Enn ein ólýsanlega tilfinn- ingin! Í fótspor stjarnanna Eftir fjóra ævintýralega daga og um tuttugu kafanir við hinar ýmsu eyjar Mergui-hafsins lá leiðin aftur yfir landa/sjóamærin til Taílands. Var stefnan tekin aftur á Similan-eyjaklasann og þaðan til Phi Phi-eyjanna og svæðisins þar í kring sem margrómað er fyrir stórbrotið landslag þar sem skógivaxin klettabelti rísa á annað hundrað metra upp úr sjónum. Yfir höfði okkar svifu svo hafernir og skönnuðu hafflötinn í leit að einhverju í soðið. Sumir kannast e.t.v. við svæðið sem tökustað kvik- myndanna The Beach og Cutthroat Island og nokkurra Bond-mynda. Þar er landslagið ekki síður magnað neðansjávar, en þverhníptir klettaveggir þaktir kóral og iðandi af lífi ná frá yfirborðinu tugi metra niður á sendinn botn- inn. Þar gafst mér kostur á fyrstu hellaköfun minni. Það verður að segjast að það að kafa inn í myrkvaða hella er ekki fyrir alla, enda létu nokkrir í hópnum sér nægja að dást að þeim utan frá. Inni í hellunum var heldur minna líf og fjör en úti fyrir á rifinu. Þess í stað gat þar að líta margbrotnar bergmyndanir og skúma- skot. Í einum hellinum, sem innangengt/synt var í úr öðrum stærri, var hægt að synda upp í rjáfur og stinga höfðinu upp úr vatninu þar sem í gegnum tíðina höfðu safnast fyrir loft- bólur annarra kafara og myndað loftrými á stærð við lítið herbergi. Það var svolítið súrr- ealískt að vera staddur um 10 metra undir yf- irborði sjávar en þó draga andann án hjálpar köfunarbúnaðarins. Að lokinni fertugustu og síðustu köfun ferðarinnar var svo haldið aftur til Phuket með viðkomu á Ströndinni – The Beach – á einni af Phi Phi-eyjunum og fetað í fótspor Leonardo „Des Caprio“, eins og þjóð- verjarnir kölluðu hann. Úr sjó í snjó Það var svo sannarlega reynslunni ríkari hópur sem sté frá borði, heldur seltinn og þrekaður, en ánægðari en orð fá lýst. Eftir að hafa þakkað fyrir mig; áhöfninni fyrir örugga og ánægjulega dvöl um borð, Davíð fyrir leið- sögn og liðveislu og síðast en ekki síst veð- urguðunum fyrir að hafa rekið mig af stað heiman frá til að byrja með, var tími til kominn að fara og finna sér hótel og svo þaðan heim á leið daginn eftir. Fyrir svona landkrabba eins og mig tók það enda nánast allan daginn að komast yfir sjóriðuna sem stundum sækir á menn eftir slíka dvöl á sjó og lýsir sér ekki ósvipað mjög útþynntri sjóveiki. Það var ekki laust við að Davíð glotti við tönn að ástandi mínu, enda vannst honum varla tími til sjóriðu þar sem haldið skyldi út á sjó aftur og allt pró- gramið endurtekið með nýjum hópi eftir að- eins sólarhringsdvöl í landi. Það var svo með blendnum tilfinningum; fullnægju og söknuði að ég hallaði hausnum á koddann í ThaiAirways-vélinni og lét hugann reika á milli hríðarbyljarins sem eflaust biði mín heima og hinnar ógleymanlegu dvalar minnar í djúpunum. Stuttu síðar var ég svo sofnaður og farinn að dreyma röndótta há- karla og bleikar risaskötur með grænum dopp- um sem syntu inn um annað eyrað á mér og út um hitt. Það er ekki að furða þótt hugtakið draumaheimur komi fyrst upp í hugann þegar lýsa skal þeim fjarlæga í vissum skilningi, en þó svo nálæga, heimi sem hrærist undir yf- irborði sjávar. Þangað ætla ég sko aftur! Sjávarsígaunarnir, Moken-flökkufólkið, á einum báta sinna við strendur Búrma. Ljósmynd/Davíð Sigurþórsson Þorkell í góðum félagsskap hins vingjarnlega hlébarðaháfs (Stegostome Fasciatum). Handagangur var í öskjunni enda fengitími þessarar hákarlategundar í hámarki þegar leiðangurinn var í heimkynnum þeirra. Litla myndin er tekin á einni af mörgum paradísareyjum á svæðinu. Morgunblaðið/Þorkell Búddalíkneski í Búrma. Lúxusbáturinn Genesis 1 sem köfunarleiðangurinn hafði til umráða. Ljósmynd/Davíð Sigurþórsson Einn sá flottasti á rifinu er þessi skrautlegi indverski ljónfiskur (Pterois Miles). Morgunblaðið/Þorkell Morgunblaðið/ÞorkellMorgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.