Morgunblaðið - 04.02.2001, Qupperneq 15
MANNLÍFSSTRAUMAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 B 15
Tvíburar geta verið eineggjaeða tvíeggja. Á Íslandi má
gera ráð fyrir að a.m.k. 50-60 tví-
burar fæðist á ári
en þeir eru lang-
flestir tvíeggja.
Eineggja tvíburar
verða til úr ná-
kvæmlega sama
erfðaefninu, einu
eggi og einni sæð-
isfrumu, og eru
þess vegna að öllu
leyti eins. Tvíeggja tvíburar verða
hins vegar til úr tveimur eggjum
og tveimur sæðisfrumum og eru
ekki líkari erfðafræðilega en
venjuleg systkini. Hér er um að
ræða tilvalinn efnivið til að rann-
saka þátt erfða í sjúkdómum með
því einu að bera saman fylgni
sjúkdóma í eineggja og tvíeggja
tvíburum. Ef annar tvíbura fær
sjúkdóm eru fundnar líkurnar á
því að hinn tvíburinn fái sama
sjúkdóm. Ef um er að ræða sjúk-
dóm sem er algerlega óháður erfð-
um má búast við að líkur á að hinn
tvíburinn fái sjúkdóminn séu þær
sömu hvort sem um er að ræða
eineggja eða tvíeggja tvíbura.
Hins vegar, ef sjúkdómur er mjög
arfgengur, má búast við að báðir
eineggja tvíburar fái mun oftar
þennan sama sjúkdóm en þeir
tvíeggja sem ekki eru eins líkir
erfðafræðilega. Eitt af því sem
takmarkar svona rannsóknir er að
eineggja tvíburar eru ekki mjög
margir og þegar um er að ræða
sjaldgæfa sjúkdóma eru þess
vegna mjög fáir ein-
eggja tvíburar sem
veikjast og niðurstöð-
urnar verða ekki
áreiðanlegar. Tvíbura-
rannsóknir henta því
best til rannsókna á
sjúkdómum sem eru
algengir eða frekar al-
gengir. Önnur tegund
rannsókna til að
greina á milli erfða og
umhverfisþátta er að
nota ættleidda ein-
staklinga og ákvarða
fylgni sjúkdóma milli
þeirra og blóðforeldra
eða systkina. Þeir ætt-
leiddu hafa erfðirnar
frá foreldrunum en
hafa alist upp í um-
hverfi sem er óháð
þeim. Þegar við sjáum
t.d. feita fjölskyldu,
foreldra og börn, gæt-
um við farið að velta
fyrir okkur hvort of-
fita barnanna hafi ein-
faldlega erfst frá for-
eldrunum, hvort hún
byggist á lifnaðarhátt-
um (einkum matar-
venjum og hreyfingu)
fjölskyldunnar eða
hvort þarna komi við
sögu bæði erfðir og
umhverfisþættir (lifn-
aðarhættir).
Fjölmargar rannsóknir hafa ver-
ið gerðar á tvíburum og ættleidd-
um og hafa þær leitt ýmislegt
áhugavert í ljós. Í Danmörku,
Finnlandi og Svíþjóð hafa verið
gerðar ýmiss konar rannsóknir á
tæplega 45 þúsund tvíburapörum.
Þessar rannsóknir hafa m.a. beinst
að arfgengi krabbameina og sam-
kvæmt þeim virðast flestar teg-
undir illkynja sjúkdóma frekar
háðar umhverfisþáttum en erfðum.
Þó kom í ljós að þrjár krabba-
meinstegundir, í blöðruhálskirtli,
brjóstum og endaþarmi eða ristli,
höfðu mun meiri fylgni meðal ein-
eggja tvíbura en þeirra tvíeggja.
Áfengissýki á sér fjölþættar orsak-
ir en erfðaþátturinn er nokkuð
sterkur. Rannsóknir á fjölskyld-
um, tvíburum og ættleiddum hafa
leitt í ljós að börn áfengissjúklinga
eru í um fjórfalt meiri hættu að
verða áfengissjúklingar en þeir
sem eiga heilbrigða foreldra.
Nokkrar rannsóknir á offitu þar
sem notaðir voru tvíburar og ætt-
leiddir sýndu sterk ættartengsl en
arfgengi offitu er flókið og fjöl-
gena. Tvíburarannsóknir á sykur-
sýki hafa sýnt að í insúlínháðri
sykursýki er erfðaþátturinn mjög
sterkur en í fullorðinssykursýki
(gerð 2) virðist vægi erfða og um-
hverfisþátta svipað. Tvíburarann-
sóknir hafa enn fremur sýnt sterk-
an erfðaþátt í þunglyndi og
mígreni. Parkinsons-veiki sem
byrjar fyrir fimmtugt er mikið arf-
geng en sú sem byrjar eftir fimm-
tugt virðist hins vegar vera að
mestu óháð erfðum.
LÆKNISFRÆÐI / Geta rannsóknir á tvíburum svarað erfiðum spurningum í læknisfræði?
Tvíbura-
rannsóknir
Tvíburar geta verið eineggja eða tvíeggja.
eftir Magnús
Jóhannsson
STUNDUM er því haldið fram að flestir eða allir sjúkdómar séu arfgengir og
þá má aftur spyrja hvað menn hafi fyrir sér í því. Hafa ber í huga að sjúk-
dómar geta verið arfgengir að mismunandi miklu leyti; sumir sjúkdómar er-
fast þannig að allir sem bera í sér viðkomandi sjúkdómsgen (meingen) fá
sjúkdóminn en aðrir erfast þannig að sjúkdómurinn kemur ekki fram nema
til komi einhverjir utanaðkomandi þættir. Í síðara tilvikinu erfist hæfileikinn
til að fá sjúkdóminn en aðeins hluti arfberanna veikist. Einnig ber að hafa í
huga að sumir sjúkdómar erfast með einu geni en hitt er algengara að mörg
gen komi við sögu. Rannsaka má hlutfallslegan þátt erfða og umhverfisþátta
í sjúkdómum á ýmsa vegu en til er einföld og tiltölulega örugg aðferð til
slíkra rannsókna, sem er tvíburarannsóknir.
Ég held nefnilega að oft sé fólk aðborða allt of fáar hitaeiningar
yfir daginn, jafnvel hreyfa sig mikið
og skilur svo ekkert
í því að það skuli
ekki grennast.
Kona ein sem ég
þekki er í einu af
svokölluðum
brennslu„átökum“
og átti að skila inn
til þjálfarans ná-
kvæmlegri skýrslu
yfir hitaeiningafjölda sem hún inn-
byrti. Þjálfarinn varð æfur þegar
hann sá listann, því hún lét einungis
um 700 hitaeiningar að meðaltali í sig
á dag, í stað 2000 sem er mun æski-
legra. Líkaminn hefur enga orku til
að brenna almennilega þeim hitaein-
ingum sem honum berast ef hann
nærist ekki nægilega, það er nú heila
málið. Mér finnst einnig auglýsingar
varðandi fitubrennslu oft hreinlega
bera vott um matarhatur og ýta jafn-
vel undir það og mér er fyrirmunað
að skilja að svo þurfi að vera. Margir
tengja orðið megrunarkúr eða megr-
unarfæði einmitt við einhver leiðindi,
skort og þjáningar og það að halda
sér í sæmilegu formi krefjist mikilla
fórna, svita og tára. Fyrir mér á mat-
ur að veita gleði en ekki skapa eintóm
leiðindi, enda er borðhald oft félags-
leg athöfn þar sem maður nærir and-
ann með samræðum við vini eða fjöl-
skyldu um leið og líkamann með mat.
Það hlýtur að vera hægt að sameina
þessa þætti, þ.e. að njóta ljúffengra
rétta og borða vel, oft en ekki of mikið
í einu og það að vera í góðu formi.
Neytendur eru þessa dagana
reyndar í miklum vandræðum varð-
andi kúariðuumræðu undanfarinna
mánaða og er sú umræða alveg til að
kóróna hina miklu fæðupredikun og
viðvaranir undanfarinna missera; eitt
er allra meina bót í dag, á morgun
gætirðu drepist ef þú drekkur heilt
baðkar af því o.s.frv. Það eru vitan-
lega mismiklar öfgar í gangi og mis-
mikill fótur fyrir þessum staðhæfing-
um eins og gengur.
Vitanlega getur hver grafið sér
gröf með tönnunum, hníf og gaffli eða
hverju sem verkast vill ef svo ber
undir. En maturinn er nú einu sinni
það sem heldur í okkur lífinu ásamt
fleiru og ég held að það sé affarasælla
að vingast við hann heldur en gera
hann að óvini sínum. Ef maður lítur
einungis á mat sem bensín, gerist
harla fátt við matseldina en venju-
bundin soðning og saðning og athöfn-
in að borða verður frekar svona leið-
inleg athöfn og ekki miklar líkur að
líflegar samræður og ánægjuhljóð
rísi upp frá borðinu. Þetta er ein leið-
in til að gera fæðu að óvini sínum, eða
í það minnsta þreytandi gesti, gamalli
þreytandi frænku sem þarf sífellt að
sinna af einskærri skyldurækni. Arð-
bær matreiðsla fyrir sál og líkama
krefst þess að við séum með hugann
við matseldina, þorum að prófa eitt-
hvað nýtt, veljum vel hráefnið okkar
og að við leggjum sál okkar í eldunar-
ferlið, með öðrum orðum að við séum
vinveitt hráefninu, þannig hugsum
við vel um okkur sjálf í leiðinni.
Ostafondue-rétturinn sem hér fer
á eftir er tilvalinn vetrarréttur til að
ylja sér við í góðra vina hópi. Ekki
sakar að hafa glas af kölduhvítvíni við
höndina þegar hans er neytt. Þegar
rétturinn er tilbúinn er brauðbitun-
um komið fyrir á fondue-gaffli og
þeim dýft ofan í pottinn.
1 hvítlauksrif (skorið í tvennt)
1 bolli þurrt hvítvín
1 msk sítrónusafi
230 g gruyère-ostur eða annar hley-
piostur, t.d. íslenskur fondue-ostur
230 g emmentaler-ostur skorinn í litla
teninga
2 tsk kartöflumjöl leyst upp í 1 msk af
hvítvíni
1/4 tsk 1/8 tsk cayennapipar
2 msk kirsuberjavín
1 bagettubrauð, skorið í fernt eftir
endilöngu, síðan í 2 1/2 cm bita á ská.
Nuddið pönnu að innan með hvít-
laukshelmingunum og hendið þeim
svo. Hellið hvítvíninu og sítrónusaf-
anum á pönnuna og hitið við vægan
hita. Þegar blandan er orðin heit,
bætið þá ostbitunum út í þar til þeir
hafa bráðnað.
Hellið þá kartöflumjölsblöndunni
saman við ásamt pipar og cayenne-
piparnum og hrærið í við vægan hita í
2 mín. eða þar til blandan hefur
þykknað. Athugið að fondue-blandan
má ekki sjóða. Hrærið kirsuberjavín-
inu út í og hrærið í um mínútu. Hellið
því næst ostablöndunni í fondue-pott.
Kveikið á sprittkerti fondue-grindar-
innar og setjið pottinn yfir hitann.
Berist sem sé fram með brauðbitun-
um og ef vill köldu þurru hvítvíni.
MATARLIST/Matarást eða matarhatur?
Arðbær matur
MEGRUNAR- og fitubrennslu-
umræðan virðist alltaf vera mjög of-
arlega á baugi, sérstaklega hjá kon-
um. Sem betur fer hef ég ekki átt við
offituvandamál að stríða þrátt fyrir
að ég sé mikill sælkeri og leyfi mér
ýmislegt matardekur oft, sem e.t.v.
myndi taka sinn toll í aukakílóum
hjá mörgum öðrum. Ég geri mér
grein fyrir að maður þarf að hreyfa
sig auðvitað og geri það og brenni
þannig mínum oft mörgu hitaein-
ingum sem ég hef látið í mig yfir
daginn.
eftir Álfheiði Hönnu
Friðriksdóttur
AP
Frakkar hafa vingast við matinn.
Fólksbílar Toyota, Subaru, Mazda, Mitsub.,
Honda, Buick, Oldsmobile, Chev.
6,2 dísil, Cherokee, Amc, Willys,
Bronco II, Explorer, Ford 6,9 og
7,2 dísil, Escort, Econoline, Golf,
M. Benz, Peugeot, Renault o.fl.
Vinnuvélar Brøyt Caterpillar, Case, Clark,
Cummins, Deutz, Fiat, Hyster,
Perkins, Payloader, M. Ferguson,
Same, Zetor, Ursus o.fl.
Vörubílar M.gBenz, MAN, Iveco, Scania,
Volvo o.fl.
Bátavélar Volvo Penta, Bukh, Cat, Cummins,
Ford, Marmet, Iveco, Lister, Perkins
Trumatic Gasmiðstöðvar í húsbílinn, bátinn
o.fl.
Alternatorar og startarar
Bílaraf Auðbrekku 20,sími 564 0400 Áður Borgartúni 19,Rkv.
ERTU Í HÚSEIGNARHUGLEIÐINGUM Á SPÁNI?
tm International
býður gæði í fyrirrúmi
Hoppið yfir aukakostnað og kaupið
beint frá byggingaraðila.
TM INTERNATIONAL ER EITT AF STÆRSTU BYGGINGAR-
FYRIRTÆKJUM Í TORREVIEJA, SEM LIGGUR VIÐ COSTA
BLANCA STRÖNDINA Á SPÁNI.
Hjá tm International, sem hefur 30 ára reynslu á byggingarmarkaði,
getur þú keypt hús og íbúð í hæsta gæðaflokki, fullbúnar húsgögnum
og allt í eldhús. 3ja daga skoðunarferð er frí fyrir kaupendur.
UPPLÝSINGAR Í SÍMA
0034 606 719032.
ÍSLENSKA TÖLUÐ.