Morgunblaðið - 04.02.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.02.2001, Blaðsíða 16
16 B SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ T UTTUGASTA öldin, með öllum sínum ótrú- legu breytingum í ís- lensku samfélagi, er enn fyrirferðarmikil í huga okkar enda flestar okkar minningar bundnar henni. Sum okkar eiga jafn- vel minningar sem spanna nær alla hina nýliðnu öld og voru stödd á vett- vangi þar sem púls þjóðlífsins sló sem hraðast hverju sinni. Sveinbjörgu Hermannsdóttur er t.d. í barnsminni frostaveturinn mikli 1918, hún var í hópi reykvískra barna sem þá fengu súpu gefins í Gúttó meðan ástandið var sem verst í allsleysi helkuldans. Hún varð innlyksa norður í landi vegna spænsku veikinnar. Hún fór í bæinn með vinkonum sínum þegar ítalski flugkappinn Balboa kom hing- að með sína menn á fjórða áratugn- um. Hún var í vist hjá mörgu þjóð- kunnu fólki sem lifði sitt blómaskeið á fyrstu tugum 20. aldarinnar og starf- aði um áratugaskeið mitt í hringiðu hins íslenska samkvæmislífs. Hún fór á vettvang þegar breski herinn tók land í Reykjavík og horfði á Hótel Ís- land brenna, svo eitthvað sé nefnt. Einkalíf hennar mótaðist af hinum miklu samfélagsbreytingum stríðsár- anna. En allt þetta sem framtíðin bar í skauti sér grunaði fólk ekki einu sinni þegar Sveinbjörg leit dagsins ljós hinn 12. maí 1911 á Laugavegi 92 í gamla barónshúsinu fyrir vestan Stjörnubíó. Hún var fimmta barn hjónanna Júlíönu Jónsdóttur og Her- manns Ólafssonar. Hann var Hún- vetningur en Júlíana af Snæfellsnesi. „Þau voru ástfangin hjón, ég tók eftir því,“ segir Sveinbjörg þegar tal- ið berst að foreldrum hennar. „Þau höfðu kynnst þannig að faðir minn fór til Ólafsvíkur að byggja samkomu- húsið og mamma var þar þá. Hún fylgdi honum til Reykjavíkur og fyrsti sonurinn fæddist 1904, síðan komu þrír drengir og svo ég. Alls urð- um við systkinin tíu talsins. Áður hafði pabbi átt einn son með unnustu sinni sem dó fljótlega eftir fæðingu drengsins. Sá drengur fór í fóstur að Blikastöðum, til Magnúsar bróður Jóns Þorlákssonar forsætisráðherra, en þeir voru náfrændur pabba. Pabbi vann við höfnina, bar á bak- inu salt og kolapoka, hann var verka- maður þegar ég man fyrst eftir mér og vann mikið. Mamma var heima með okkur börnin. Ég man vel eftir mér frá því ég var fjögurra ára. Við bjuggum ekki lengi á Laugaveginum heldur fluttum ofarlega á Vesturgöt- una, þaðan á ég mínar fyrstu minn- ingar. Þú varst að eignast litla systur Þetta var ekki slæmt húsnæði, en þó lúga á gólfinu sem ég datt einu sinni niður um. Herbergin voru tvö og eldhús á milli þeirra. Ég svaf til fóta hjá mömmu og bróðir minn til fóta hjá pabba. Ég elskaði mikið mömmu mína og mér varð því um og ó þegar ég rumskaði nótt eina og sá konu vera að bogra yfir mömmu. Ég hugsaði: „Guð minn, hvað er nú þetta?“ og var hrædd. En þá sagði mamma brosandi við mig: „Sveina mín, farðu bara yfir í hinn endann, pabbi er farinn í vinn- una, farðu í holuna hans, þú varst að eignast litla systur.“ Þarna hafði hún fætt barnið í rúminu meðan ég svaf. Ég trítlaði yfir í pabba rúm en ljós- móðirin vafði litla krílið í einhver föt og lagði það fyrir ofan mömmu. Mamma var stillt og róleg kona eins og þessi frásögn ber með sér, þrifin og nýtin, hún bætti meira að segja svunturnar sínar, koddaver og hvað eina. Við fluttum næst á Vesturgötu 17, þar sem hafði verið gamalt hótel, þar fannst mér gaman – portið á bak við, túnin öll og Unuhús – Una og næp- urnar í garðinum hjá henni. Hún var yndisleg kona, hún gaf okkur krökk- unum oft brauðsneið. Foreldrar mínir sögðu að við mættum aldrei taka næpur úr garðinum hennar Unu, en það var nú erfitt að láta það vera. Beint á móti okkur bjó Árni Eiríks- son, kaupmaður og leikari. Höfðum eina langa stofu Við höfðum eina langa stofu, innst var kolavélin, svo kom panelskápur, rauður, með leirtaui og ágætis borð sem mamma skar brauð á og fleira – eins og gengur. Síðan komu rúmin eitt af öðru og loks var svo lítið horn sem var nokkurs konar stofa. Þetta var sólrík stofa á móti suðri og okkur leið vel þarna. Í stóra rúminu mömmu og pabba svaf ég til fóta, systir mín svaf fyrir ofan mömmu, önnur systir mín svaf fyrir framan hana og ein lítill í vöggu. Pabbi svaf svo rétt hjá hon- um og einn bróðir minn til fóta hjá honum. Hinir bræðurnir sváfu tilfæt- is, eins og það var kallað nema einn sem lá alltaf á Landakoti. Hann var með berkla og hét Sigmundur Jó- hann. Við systkinin fórum oft að heimsækja hann og auðvitað mamma og pabbi. Kistan stóð í stofunni heima Sigmundur dó í ágúst 1917. Mamma hafði beðið mig að passa bróður minn í vagni. Ég var með hann hjá mér, þar sem ég var í parís, þegar mamma kom fyrir hornið. Ég sá að eitthvað var að og fór inn á eftir henni, þá sagði hún mér að Simmi væri dáinn. Kistan hans stóð í stof- unni heima og blessaður séra Friðrik Friðriksson kom til okkar og tvær konur úr Hjálpræðishernum sem ég hafði oft fengið stjörnur í bókina mína hjá í sunnudagaskólanum. Lítill bróð- ir minn var skírður við kistu Simma og hlaut nöfnin hans. Frostaveturinn mikli Við vorum á Vesturgötu 17 frosta- veturinn mikla 1918. Frostkúlurnar voru á gólfinu fyrir innan þröskuldinn hjá okkur. Allt vatn var stokkfrosið og pabbi fór með okkur niður Norð- urstíg og út á ísinn á höfninni. Mikið atvinnuleysi var þennan vetur. Pabbi fór á fætur um miðjar nætur, þetta var ekki kreppa – þetta var allsleysi. Við komumst þó einhvernveginn af. Mamma eldaði hafragraut og setti svolitla mjólk út í, þetta var kölluð hafraþynnka og gaf okkur með eina brauðsneið með magaríni og strau- sykri. Mamma var mjög regluföst í heim- ilishaldi og barnauppeldi. Hún leyfði okkur systrunum t.d. ekki að fara út nema búið væri að flétta hárið á okk- ur og þvo okkur. Síðan fórum við út í dyr, héldumst í hendur og fórum með: „Nú er ég klæddur og kominn á ról.“ Frostaveturinn mikla vorum við krakkarnir oft í rúminu dúðuð í hyrn- ur og fleira og rerum fram og aftur okkur til hita. Dag einn gerðist það að það kom kona í heimsókn. Ég var forvitin en mátti ekki vera inni. En svo var ég kölluð inn, mér boðið ásamt systur minni að fá gefins súpu hjá Samverj- anum í Gúttó. Tveimur börnum frá hverju heimili var boðið þetta. Mamma þáði boðið og ég fór með Lóu systur á hverjum degi að fá súpuna. Þarna var fjöldi af börnum alls staðar að, allir að fá súpu. Þú átt að fara norður í Húnavatnssýslu Um vorið 1918 töluðu pabbi og mamma við okkur krakkana og sögðu okkur að við yrðum að fara úr þessu húsnæði, erfitt væri að fá vinnu og ekki væri víst hvað yrði um okkur. Pabbi átti þó góða að og til hans komu tveir höfðingsmenn. Litlu síðar sagði mamma: „Jæja, nú er pabbi ykkar búinn að fá vinnu í Hafnarfirði og við flytjum þangað.“ En við mig sagði hún: „Þú átt að fara norður í Húna- vatnssýslu, að Kárastöðum til föður- systur þinnar og vera þar í sumar.“ Ég hét nafni þessarar frænku minnar og manns hennar. Ég vildi ekki fara og var að springa úr gráti en ég fór þó – og foreldrar mínir og systkini fluttu til Hafnar- fjarðar. Þar fékk pabbi skömmu síðar vinnu á símstöðinni og var þar þar til hann hætti að vinna. Hann bar út sím- skeyti og gekk allra sinna ferða, hann átti ekki hjól. Mamma var heima með barnahópinn. Varð innlyksa vegna spönsku veikinnar Mér leiddist ákaflega í Húnavatns- sýslunni og vildi fara heim til mömmu og pabba. En það varð bið á því. Um haustið kom upp spánska veikin og þá varð ég innlyksa fyrir norðan. Nær engar ferðir voru á milli landshlut- anna. Það endaði með að ég var fyrir norðan fram yfir fermingu. Það fór vel um mig en ég þurfti að vinna mik- ið. Á Kárastöðum var stórbú og það var bakað óskaplega mikið, enda gestagangur stöðugur. Ég lærði þarna mikið í alls kyns vinnubrögðum og hef búið að þeim lærdómi alla mína ævi. Fermdist með hvíta blúnduhanska Ég var hárprúð svo til var tekið og fermdist í hvítum skautbúningi. Talað var um í sveitinni hve myndarleg ég væri. Mamma og pabbi sendu mér sálmabók, slæðu til að hafa yfir herð- arnar og hvíta blúnduhanska. Ég var sú eina sem var með slíkt og það var ekki nein smáræðis upphefð fyrir mig. Ekki spilltu lakkskórnir sem ég hafði keypt fyrir upptíning, ullar- lagða sem ég tíndi úti í móum, og lagði inn í kaupfélagið. Ég var alsæl. Ég lærði minn barnaskólalærdóm þarna nyrðra, hafði góðan kennara og fékk undirstöðugóða kennslu. En eftir fermingu þá fór mig að langa æ meira suður til fjölskyldu minnar. Ég byrjaði á að fara í vist á Hvammstanga til yndislegra hjóna í apríl 1925. Þessi hjón áttu tvo litla drengi og var faðir þeirra berklaveik- ur. Þau vildu fá stúlku til að gæta yngri drengsins sem ekki mátti sofa nálægt pabba sínum. Ég tók þetta að mér gegn því að þessi góðu hjón sæju um að ég kæmist heim til mömmu og pabba fyrir jólin þetta ár. Þau gerðu það og ég komst heim aftur rösklega fimmtán ára, eftir sjö ára fjarveru. Komst loks suður Ég var himinsæl að komast suður en hjónin vildu fá mig aftur um vorið og ég tók því ekki ólíklega. Ég átti að fara heim með Suðurlandinu en sú ferð féll niður vegna þess hve veðrið var slæmt og ég fór suður með mót- orbát. Þegar ég kom upp á stein- bryggjuna var enginn kominn til þess að taka á móti mér. Ég hafði beðið konu að hringja til Hafnarfjarðar að láta vita af komu minni en það hafði farist fyrir. Ég stóð eins og glópur á bryggjunni þar til maður einn vék sér að mér og spurði hvort ég vildi bara ekki koma með sér. Ég þáði það og fór með honum til frænku hans og þar var vel tekið á móti mér. En ég var eirðarlaus að komast til foreldra minna svo það var hringt á bíl frá Steindóri, ég átti fyrir honum, og til Hafnarfjarðar komst ég þegar langt var liðið á kvöld. Allir voru mjög undrandi að sjá mig því engin skila- boð höfðu komið og ég hafði líka tals- vert breyst á þessum sjö árum. En það var himneskt að koma heim, Stríðsástin Frostaveturinn mikli, koma Balboa og flug- sveitar hans, hernámið, Hótel Íslands-bruninn – um allt þetta og miklu fleira talar Sveinbjörg Hermannsdóttir í viðtali Guðrúnar Guðlaugsdóttur við hana. Sveinbjörg var á ýmsan hátt nálæg miðdepli atburða í íslensku samfélagi á ýmsum örlagastundum þess. Morgunblaðið/Golli Sveinbjörg Hermannsdóttir er sterk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.