Morgunblaðið - 04.02.2001, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.02.2001, Blaðsíða 17
pabbi og bræður mínir höfðu byggt fallegt hús í Hafnarfirði og nú bjó fjöl- skyldan í þessu nýja húsi, sem enn stendur á Hverfisgötu 38. Tvö systk- ini mín spiluðu á hljóðfæri, selló og orgel, þetta fannst mér yndislegt, og allt var fínt og fallegt hjá mömmu. Í vist hjá bróður Maríu Markan Ég var þó ekki heima nema þrjá daga. Þá sagði mamma mér að koma með sér niður í Reykjavík, því ég gæti ekki verið heima. Þá fórum við í hús til hjóna sem mamma þekkti og þang- að var ég ráðin í vist. Fólkið bjó á Laugavegi 19, á miðhæðinni. Þetta var hjá Markúsi Einarssyni, bróður Maríu Markan og konu hans, Málfríði Ólafsdóttur frá Hvítárvöllum. Þau áttu tvo syni, annar þeirra varð síðar vel þekktur, Einar Markan píanóleik- ari. Þarna var ég allan veturinn og hafði það gott. En ég hafði ekki her- bergi, ég svaf í borðstofunni og komst ekki í rúmið fyrr en aðrir voru farnir að sofa og allir gestir farnir, en gest- kvæmt var á heimilinu því þar var oft sungið og spilað. Þetta fólk hélt vin- skap við mig meðan það lifði. Nikkólína var bæði falleg og góð Um vorið fór ég norður aftur eins og ég hafði lofað og átti þar yndislegt sumar. Um haustið fór ég alfarin suð- ur. Auðvitað langaði mig að læra en til þessi voru ekki efni. Hins vegar var ég heppin með hús þar sem ég var í vist. Mamma kom mér til hjóna sem áttu dóttur sem var nýkomin frá Þýskalandi. „Þú skalt fá hana til að kenna þér hannyrðir og dönsku,“ sagði mamma. Ég fékk kennsluna. Þessi unga kona var Nikkolína Árna- dóttir sem gift hafði verið Jóhanni Jónssyni skáldi – hann orti ljóðið Söknuð. Faðir hennar var Árni Sveinsson sem var kaupmaður, áður á Ísafirði. Móðir hennar var Guðrún Brynjólfsdóttir. Nikkólína var bæði falleg og góð manneskja. Hún ætlaði út til Jóhanns aftur en þá var hann farinn að vera með annarri konu þýskri, þeirri sem síðar kom með ösku hans til Íslands. Nikkólína gift- ist síðar manni að nafni Sörensen sem var læknir. Mér fannst endir fyrra hjónabands Nikkólínu mikil sorgarsaga og taldi víst að ef svona lagað myndi henda mig myndi ég deyja. Á þessu heimili sá ég Halldór Kiljan Laxness með fal- legn hatt og skinnhanska ljósa, ég var yfir mig hrifin af þessum glæsilega manni. Tröppukossar Ég hafði ekki húslykil þótt ég væri þarna til heimilis og það kom aldrei neinn herra inn með mér. En ég var auðvitað farin að skjóta mig í strákum og var alltaf ástfangin af nýjum og nýjum mönnum. Einu sinni fór ég á dansleik og það fylgdi mér heim ung- ur og sætur maður. Veðrið var gott og það var aðeins farið að skyggja. Svalir voru á húsinu sem var á Laugavegi 79. Ungi maðurinn kvaddi mig með kossi – tröppukossi, eins og ég kallaði það. Daginn eftir horfði Árni kaup- maður á mig og sagði: Þó hún Sveina sýnist stillt, síst verður hún hissa, á að finna fríðan pilt faðma hana og kyssa. Árni hafði þá séð til mín frá svöl- unum, hafði farið út til að sjá bruna- liðið sem var eitthvað á ferðinni. Ég blússroðnaði og ætlaði að þjóta fram en Árni sagði mér að vera róleg og sitja kyrr. Hann var með skegg og spurði mig nú í gríni hvort ég myndi vilja kyssa skeggjaðan mann. Nei, ég hélt nú ekki. Þá kom önnur vísa. Sveina hún er björt á brún, með bylgjað hárið gyllta, enda kyssir aldrei hún, órakaða pilta. Lærði að sauma Þótt mér líkaði vel í vistinni þarna fór ég nú að hugsa um að ekki væri mikil framtíð í slíkri vinnu. Maður hafði mat og húsnæði en nær ekkert kaup, var marga mánuði að vinna sér inn fyrir einni flík. Ég var bara svo heppin að Nikkólína gaf mér falleg föt af sér. Endirinn varð sá að ég ákvað að læra að sauma. Ég hafði alltaf viljað vera fín og gerði talsvert af að breyta fötunum mínum og laga þau. Ég átti t.d. einn svartan kjól, ég breytti honum á ýmsa vegu með því að setja á hann kraga, belti og uppslög, hvít og mislit – mað- ur varð að bjarga sér. Svo kom að því árið 1933 að kona ein, Aðalbjörg Stef- ánsdóttir, sem verið hafði í Dan- mörku og var kjólameistari, setti upp verslun á Laugavegi 10, á miðhæð- inni. Til hennar fór ég að læra að sauma. Ég gerði samning við hana um að gæta sonar hennar og koma honum í skólann á morgnana en vera svo við saumanámið á verkstæðinu eftir hádegi. Þetta gekk eftir. Um þetta leyti voru síðu kjólarnir að ryðja sér til rúms og þessi kjóla- meistari var mjög eftirsóttur í slíkan saumaskap meðal annars. Á sumrin var verkstæðið að mestu leyti lokað og þá var ég í vist. Eitt sumar var ég hjá Gísla Ólafs- syni bakara og Kristínu konu hans, þau áttu þrjú börn, þá var Erlingur sonur þeirra, leikari, í vöggu, hann var mjög fallegt barn. Þetta var ynd- islegt heimili – ég má segja að ég gréti þegar ég hætti þar um haustið og fór aftur að sauma. Þetta sumar kom Balboa flug- kappi með sína menn hingað til lands. Það var mikil spenna hjá okkur stelpunum að fara niður í bæ að sjá hvað um væri að vera. Ég fór til Lárusar Lúð- víkssonar og keypti mér ógurlega fal- lega lakkskó með háum hælum, fór í grænan kjól sem ég hafði saumað – og hjá Jacobsen fékk ég regnkápu sem sást í gegnum. Síðan fór ég niður í bæ með vin- konum mínum. Balboa var á Borginni með yfirmönnunum en þeir óbreyttu voru á Hótel Íslandi. Því miður var ekkert dansað á hvor- ugum staðnum og það voru sannar- lega vonbrigði fyrir okkur stelpurnar. En veðrið var gott og við vorum úti að labba langt fram á nótt, ég á háum pinnahælunum. Þegar ég kom heim um morguninn var ungur maður í fylgd með mér og við sátum í tröppunum. Þá komu þeir niður Gísli og Kristinn bakari og hlógu dátt þegar þeir sáu mig þarna í stiganum. Í vist hjá Emilíu og Þóru Borg Árið 1935 var ég búin að læra heilmikið í saumaskap og þá réð ég mig í ársvist til Emilíu og Þóru Borg á Laufásvegi 5. Sú vist var ynd- isleg og fer mér aldrei úr huga. Heim- ilið þar var svo skemmtilegt og sér- stakt. Ég hafði herbergi á loftinu við hliðina á fósturmóður Stefaníu heit- innar leikkonu og ég fór margar ferð- ir niður í Iðnó. Ég sá þar hvert ein- asta stykki sem sýnt var – þá var gaman að fara í leikhús. Þessar syst- ur héldu við mig vinskap alla tíð. Em- ilía kom mér til hjálpar þegar ég var ófrísk að dóttur minni árið 1942 og átti bara eftir hálfan mánuð en var enn að vinna í eldhúsinu á Hótel Ís- landi. Þær systur sóttu mig og sögðu mér að koma til sín og vera hjá þeim. Þóra Borg fór með mig upp á Land- spítala þegar ég var komin með létta- sóttina. Meðgöngueitrun og fæðing Þóra fór heim og ég var sett inn á fæðingarstofuna en þá gerðist það að ég fæddi ekki heldur varð óskaplega veik. Ég varð fárveik af meðgöngu- eitrun, ég lá frá 9. nóvember en fæddi ekki barnið fyrr en hinn 17. nóvem- ber. Móðir vinkonu minnar kom þarna daginn áður en ég fæddi og heyrði hljóðin í mér, þau voru víst óskapleg. Það kvöld var foreldrum mínum tilkynnt að ég myndi ekki lifa af nóttina en barninu yrði reynt að bjarga. Það sem hélt mér á lífi var að ég fann alltaf spriklið í barninu og ég vildi ekki deyja. Ég fékk enga deyf- ingu heldur varð að fæða barn mitt með allri þeirri þjáningu sem um er getið í Biblíunni. Jóhanna Olgeirsson var yfirljósmóðir og sumir töldu hana harða í horn að taka, en mér var hún afar góð. Þegar dóttir mín var fædd sagði Jóhanna: „Mikið er ég ham- ingjusöm að geta lagt hana við brjóst- ið á þér eftir allar þessar þjáningar.“ Vaknaði steinlömuð Ég fékk að borða og allt virtist vera með eðlilegu móti. En morguninn eft- ir hringdi ég á hjúkrunarkonu og vildi fá bekken en þá reyndist ég vera orð- in steinlömuð upp að mitti. Ég get sagt að það varð ys og þys þegar læknarnir komu á vaktina, Guðmund- ur Thoroddsen, Pétur Jakobsson, Gunnar Cortes og fleiri. Ég fékk aldr- ei skýringu á af hverju þessi lömun stafaði. Ég féll alveg saman við þetta en Gunnar Cortes sagði að ég skyldi ekki láta hugfall- ast, ég myndi fá mátt í fæt- urna aftur en það gæti tekið tals- verðan tíma. Sú varð líka raun- in, en aldrei varð ég þó jafngóð eftir þetta, hef alltaf haft þrautir í mjóhryggnum síðan. Ég lá lömuð á spítal- anum fram að jólum og litla stúlkan mín var þar hjá mér. Ég fór að fá lítilsháttar mátt í fæturna í janúar. Ég hafði leigt herbergi en varð að sleppa því við þessa uppákomu. Ég var svo heppin að eiga góða vina- fjölskyldu sem kom mér til hjálpar. Þetta voru hjónin Ólafur Ey- vindsson, um-  Sveinbjörg 25 ára gömul  Sveinbjörg í nýjustu stríðs- áratísku  Rut, dóttir Sveinbjargar, á æskuárum  Maurice Woodward fyrir fram- an Þrúðvang þegar hann var ungur hermaður á Íslandi 1942  Myndin sem Sveinbjörg sendi Woodward af sér og dóttur þeirra. Þá var hún lömuð og þurfti að bera hana yfir á ljósmyndastofuna.      MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 B 17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.