Morgunblaðið - 04.02.2001, Side 20

Morgunblaðið - 04.02.2001, Side 20
20 B SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ V IÐ HÖFUM beðið þessaregns af óþreyju í einar 8vikur. Loksins, loksinsbrást þrumuguðinn Þór við. Unaðslegt regn, ilmur þess fyllti vitin. Við störðum á regnið steypast niður úr loftinu. Um nóttina lá ég grafkyrr og hlustaði á óm regnsins sem buldi á þakinu. Reyndar ein sú besta tónlist sem hér heyrist. Var fegin að ég hafði fært pottaplönturnar inn undir þakskýlið því regnið blátt áfram helltist úr loftinu. Á morgun myndu froskarnir kvaka allan liðlangan daginn. Heilir herskarar af þeim eins og þeir hefðu vaknað til lífsins í þessu óveðri. Mig langaði til þess að horfa út um gluggann en vissi að það sást ekkert. Myrkrið var algjört. Neyðarástand í Nýju Suður-Wales En það stytti ekki upp. Hann rigndi í meira en tíu daga og allt var á floti alls staðar. Sjálfboðaliðar hlóðu sandpokum í gríð og erg en ekkert dugði. Afleiðingar vatnavaxtanna urðu skelfilegar fyrir bændur. Lækirnir uxu, árnar flæddu og á skullu flóð sem eyðilögðu mestalla uppskeru bænda í norðurhluta Nýju Suður- Wales. Margir bóndabæir einangruðust svo vikum skipti. Sáu bátar og einar fimm þyrlur um að flytja mat og aðr- ar nauðþurftir til íbúanna, þeirra sem ekki höfðu verið fluttir á burt. Lítið tvö þúsund manna þorp skammt frá Narrabri, Wee Waa, var einangrað í einar tvær vikur. Þar komu bátar óspart í gagnið. Þessi flóð hafa afar alvarlegar af- leiðingar fyrir fjölmarga bændur. Má búast við að margir þeirra verði að selja jarðir sínar þrátt fyrir aðstoð frá stjórnvöldum uppá 200 milljónir ástralska dollara, sem er andvirði rúmlega níu milljarða króna. Hætt er við að ýmis stórfyrirtæki eða gróða- hringar kaupi jarðirnar. Gífurleg vinna er fólgin í að hreinsa aur og leðju eftir flóðin og hefur fjöldi sjálfboðaliða hjálpað mikið til. Í kjölfar flóðanna fylgir svo mosk- ítófaraldur en bit þeirra bera stund- um með sér svokallaðan „Ross fever“ sem er slæmur sjúkdómur með mikl- um beinverkjum og höfuðverk sem vara í 3 mánuði og jafnvel lengur. Flugurnar eru svo stórar í ár að þær minna á hrossaflugurnar heima! Nauðsynlegt er að úða á sig flugnafráfælingarefni frá toppi til tá- ar áður en farið er út fyrir hússins dyr og klæðast langerma flíkum. Jafnvel húsdýrin eru úðuð því þau bera sig illa undan moskítóflugunum og vilja komast í skjól. Náttúran lifnar þó öll við og gjör- breytir um svip þegar nóg er af væt- unni. Vistfræðileg klukka Nýju Suð- ur-Wales hefur verið sett að nýju. Um það bil 2.600 billjón lítrar af vatni fljóta nú yfir flóðasléttur og votlendi. Beit er næg fyrir búpening, reynd- ar gríðarleg grasveisla sem ekki hef- ur séð sinn líka í ein þrjú ár. Dreka- flugum, fiðrildum, kengúrum, fuglum og öðrum kvikindum hefur fjölgað með ólíkindum eftir flóðin. Fyrir fáeinum vikum voru um það bil sjö þúsund fuglar á Macquarie- flæðienginu en nýlega eftir að svæðið hafði verið undir telitu vatni í nokkr- ar vikur hafði þeim fjölgað í einar þrjátíu þúsundir. Heyra má fugla- kliðin í margra kílómetra fjarlægð. Og enn þekur vatnið hundruð þús- unda hektara lands í vesturhluta Nýju Suður-Wales svo fiskar, vatna- bjöllur og froskar njóta lífsins í rík- um mæli. Flóð eru náttúrlegur viðburður hér í Ástralíu, hluti af lífskeðjunni. „Áður fyrr áleit fólk að þetta flóða- vatn færi til ónýtis en í raun er það kjarni ánna sem renna í miðhluta landsins – án svona flóða myndu árn- ar hverfa.“ Þannig komst Dr. Richard Kings- ford, aðalvísindamaður þjóðgarða- og dýralífs þjónustunnar í Nýju-Suð- ur-Wales, að orði. Skrautleg skrúðganga í Narrabri Þetta 7–8.000 manna þorp í norð- vestur hluta Nýju Suður-Wales er ekki orðlagt fyrir víðsýni og umburð- arlyndi þótt þar búi fólk víðs vegar að úr heiminum. Andrúmsloftið í garð þessara innflytjenda er oft kaldrana- legt og gildir hið sama um frum- byggjana sem þar búa. Viðkomandi þarf helst að vera fæddur á staðnum og með hvítan litarhátt til þess að vera tekinn góður og gildur íbúi þessa bæjar. Er þetta afar ólíkt því sem gerist í stórborgunum þar sem öll samskipti fólks af ólíkum kynþátt- um virðast ganga auðveldar fyrir sig. Hér starfa nokkrar vísindastofn- anir svo sem Stjörnurannsóknarstöð (Australian Telescope), og stórar baðmullar- og hveitirannsóknar- stöðvar. Þar vinna þónokkrir vel menntaðir innflytjendur sem ýmist hafa lokið námi eða eru við doktors- nám. Dag nokkurn tóku innflytjendur og nokkrir „innfæddir“ höndum saman og ákváðu að kynna þorpsbú- um lönd sín og siði. Halda í skrúð- göngu um aðalgötu bæjarins rétt fyr- ir jólin þegar kaupmennskan væri í algleymingi. Þessi gata er aðalversl- unargata bæjarins og er ekki um aðrar að ræða. Þarna eru einir fjórir bankar, pósthús, tvö „Hagkaup“, fjórar krár, engin „alvöru“ bókabúð en blaðasala, tveir kínverskir mat- sölustaðir og svo framvegis. Haldnir voru nokkrir fundir og lögð á ráðin. Lúðrasveit bæjarins (sem reyndar er eina tónlist þessa sveitaþorps að frátöldum 2–3 heim- sóknum tónlistarmanna á ári) var fengin til þess að fara í fararbroddi göngunnar. Fólk skrifaði sendiráðum sínum og bað um plaköt, fána og ferðabækl- inga. (Undirrituð hefur reyndar ekk- ert sendiráð að leita til hér í álfunni því samband Íslands og Ástralíu er lítið sem ekkert.) Einhver hugsandi persóna fékk styrk einhvers staðar frá sem kom sér afar vel og fimmtu- dagurinn 7. des. var valinn. þá yrðu búðir opnar fram eftir kvöldi. Gang- an skyldi hefjast kl. 18.30. Komið var að máli við alla þá sem vitað var að flust hefðu frá öðrum löndum og þeir beðnir að vera með. Nokkrir skoruðust undan, auðsjáan- lega smeykir við viðbrögð þorpsbúa. Svona fjölþjóðlegur viðburður hafði ekki verið skipulagður áður. Fengin var aðstaða á túnbletti við pósthúsið. Hvert land skyldi fá borð fyrir sig og múrsteinsveggirnir voru kjörnir til að bera veggspjöld. Sem flestir skyldu vera í þjóðbúningum og skarta sínu besta. Bæjarstjórinn var boðinn og viðbúnaðurinn var hinn viðamesti. Allir tjölduðu því sem til var. Laust eftir klukkan fimm mættum við til að raða munum okkar á borðin. Hitinn var yfir 30 stig og nokkur ógnvekjandi ský skreiddust yfir norðurhimininn. Gáfum við þeim hornauga annað slagið. Ég tíndi til þær myndabækur um Ísland á ensku sem til voru á heim- ilinu; eintök af Iceland Review; for- síður úr Morgunblaðinu með fréttum af Heklugosi og síðasta jarðskjálfta; svarta hraungrýtismola (því þetta fólk hefur aldrei séð hraun); íslenska lopapeysu, virðulega peysufatakerl- ingu, handgerða fyrir norðan, og síð- ast en ekki síst jólasveinadagatalið. Ég ætlaði sannarlega að halda til streitu mínum þrettán jólasveinum. Ekki má gleyma risastórum stöfl- um af pönnukökum sem ég hafði bakað í sveita míns andlitis allan dag- inn. Plakat átti ég af íslenskum fugl- um og gróðurverndaráróður með myndum af íslenskum plöntum. þetta yrði að duga. Við aðra hönd mér var borð til- einkað Kóreu en á hina höndina voru frumbyggjar með sitt borð. Gat þar að líta ýmsa fagurlega listmuni gerða í Narrabri en Kóral, konan sem sá um borðið, sagði að engin verslun í þorpinu vildi taka þá til sölu, ekki einu sinni Ferðamannamiðstöðin. þarf varla að taka fram að frum- byggjar reka ekki verslanir hér. Nú voru borðin tilbúin. Gat þarna að líta sjaldséða gripi sem fólk hafði komið með að heiman, ferðamanna- bæklinga og margt, margt fleira. En kæmu nú nokkrir? Þorpsblað- ið, The Courier, sem kemur út tvisv- ar í viku, hafði getið okkar vinsam- lega (enda ritstjórinn hinn framsýnasti maður), hvatt fólk til að vera með og klæðast ýmsum búning- um – ekki síst lagt áherslu á að fólki gæfist tækifæri til að smakka á sér- réttum hinna ýmsu þjóða. Tækist VATNAVEXTIR OG ELDHÆTTA Reuters Bærinn Wee Waa í Nýju Suður-Wales þegar flóðið var í hámarki. „Við erum komnir til að tilkynna um nýjan veg.“ Þegar rigndi hvað mest í Nýju Suður-Wales í haust bárust af því fréttir að John Howard og alrík- isstjórnin hefðu ákveðið að veita milljónir dollara í vegagerð á landsbyggðinni. Þessi skopteikning birtist í tilefni þess í einu áströlsku dagblaðanna. Innflytjendur og nokkrir „innfæddir“ í ástralska þorpinu Narrabri tóku sig til í desember og kynntu þorpsbúum lönd sín og siði. Sólveig Kr. Einarsdóttir segir hér frá því og flóðadögunum í Nýju Suður-Wales í lok nóvember, en fregnir berast nú af því að gífurleg flóð séu hafin á ný á svipuðum slóðum. Ekki má gleyma risa- stórum stöflum af pönnukökum sem ég hafði bakað í sveita míns andlits allan daginn. Plakat átti ég af íslenskum fuglum og gróður- verndaráróður með myndum af íslenskum plöntum. Fréttir úr sveitinni í Ástralíu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.