Morgunblaðið - 04.02.2001, Síða 21

Morgunblaðið - 04.02.2001, Síða 21
ekki að lokka fólk að með ilmandi fæðu þá værum við illa svikin. Nú tókum við fánana og stilltum okkur upp að baki lúðrasveitarinnar. Ég hélt á litla 17. júní fánanum mín- um og þrammaði af stað, eini Íslend- ingurinn. Þar sem ég á ekki þjóðbún- ing, hafði ég ákveðið að klæðast skrautlegum gulum búningi frá Bangladesh! Á undan mér gekk hópur barna sem hafði klæðst að hætti araba á hugvitsamlegan og ódýran hátt. Þetta var bekkur úr barnaskóla und- ir leiðsögn kennara síns. Á eftir mér gengu Íranir, Pakist- anar og Bangladesh-búar allir í undrafögrum búningum, afar stoltir með fánana sína. Fjöldi fólks stóð meðfram götunni, horfði, starði og það sem mig undraði mest, klappaði! En svo fór sem margir höfðu ótt- ast. Ekki höfðum við fyrr þrammað götuna á enda en bikasvart ský hellti úr sér yfir okkur. Sem betur fór stóð demban aðeins stutta stund. Borð- unum okkar hafði verið forðað upp á verönd við pósthúsið og var fljótgert að setja þau upp á nýjan leik. Ég hafði Íslandsbók Hjálmars Bárðar- sonar opna á bls. 102 þar sem sjá má íslenska þjóðbúninga. Og þorpsbúar þyrptust að. Fjöl- margir foreldrar komu með börn sín, spurðu og vildu fræðast. Ég talaði stanslaust í eina 3 tíma við fólk og mataði það á pönnukökum. Þær reyndust afar vinsælar og hurfu eins og dögg fyrir sólu enda uppskriftin frá minni einu sönnu tengdamömmu. Vonlaust var að bjóða upp á þeyttan rjóma í hitanum svo fólk gat valið bláberjasultu eða strásykur. Reynd- ar hvarf allur matur eins og dögg fyr- ir sólu á rúmum hálftíma! Kínversku veitingahúsin sendu sýnishorn af réttum, Pakistanarnir höfðu eldað ýmislegt lostæti og þannig mætti lengi telja. Börnin höfðu gaman af að heyra um Hurðaskelli, Kjötkrók og Kerta- sníki, trúðu reyndar varla sínum eig- in eyrum og störðu á mig stórum augum rétt eins og ég væri Grýla sjálf. Dr. Shakir Shah, frá Pakistan, einn af hvatamönnum göngunnar, hélt tölu, hið sama gerði bæjarstjór- inn. þemað var að hjörtun eru hin sömu – í anda Tómasar og Þórbergs. Nokkur börn stigu þjóðdans. And- rúmsloftið var létt og ljúft. Ég hélt heim á leið, hás en glöð og ánægð með allt mitt hafurtask auk fallegrar leirskálar sem ég hafði keypt af frumbyggjunum, handmál- aða og skreytta með greinum trölla- trésins. Næsta dag komu að máli við mig konur frá Líbanon og Frakklandi sem höfðu hikað og ekki verið með. Sögðust ætla að vera með næsta ár! Ein kona hló og sagðist hafa verið svo heppin að næla í síðustu pönnu- kökuna. Fólki þótti vel hafa til tekist og ekkert sjálfsagðara en Narrabri hefði fjölþjóðlega kynningu og skrúðgöngu árlega! Nýjar hugmyndir hafa nú þegar skotið upp kollinum eins og t.d. að setja upp taflborð og kenna þorps- búum að tefla. Hugsa! Eldhætta Og nú þessa dagana er sumarhit- inn skollinn á fyrir alvöru. Grasið er farið að sviðna og hefur tekið á sig brúnleitan blæ. Janúar er oft heitasti mánuður ársins. Hitinn þetta rétt um og yfir 40 gráður á Celsíus. Þessum mikla hita fylgir gífurleg eldhætta, ekki síst nú þar sem allur gróður tók kipp í vatnavöxtunum. Á hverjum degi glymja í útvarpi við- varanir til fólks um að fleygja ekki sígarettustubbum út um bílglugga; að tilkynna strax verði það vart við eld; að algjört bann sé við að kveikja eld og glóðarsteiking sé bönnuð nema í eða við heimahús. Þegar hafa kviknað nokkrir eldar en sem betur fer hefur tekist að slökkva þá. Sem sagt kominn tími til að fara að spjalla við þrumuguðinn sjálfan á nýjan leik. Reuters Gary Briggs, einn íbúa þorpsins Gunnedah í Nýju Suður-Wales, fyrir ut- an heimili sitt í flóðunum miklu. Þar komu bátar að betri notum en bílar. Morgunblaðið/Sólveig Kátir krakkar þegar skrúðgangan í Narrabri var að hefjast. Höfundur er rithöfundur, búsettur í Narrabri í Nýju Suður-Wales í Ástralíu. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 B 21 Nýskr. 6.1999, 2500cc dieselvél, 5 dyra, sjálfskiptur, grænn, ekinn 18 þ. 7 sæta, skriðstillir, hiti í sætum o.m.fl. Verð 3.250 þ. Land Rover Discovery II S Grjóthálsi 1 Sími 575 1230/00 b b íla a la a nd notaðir bílar bilaland.is B&L

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.