Morgunblaðið - 04.02.2001, Síða 22

Morgunblaðið - 04.02.2001, Síða 22
DÆGURTÓNLIST 22 B SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Snot er hugarfóstur gítar-leikarans Mike Doling og söngvarans Lynn Straits sem leituðu til liðsmanna nokkurra Kaliforníusveita haustið 1995 og stungu upp á að þeir legðu saman í púkk. Upphaflega var lítil alvara í því sem þeir félag- ar voru að gera og nafnið, Snot, sem snara má sem hor, var valið í bríaríi. Þeir félagar komu úr ýmsum áttum, Dol- ing spilaði speed-metal með Kronix, Strait spilaði á bassa í pönksveitinni Lethal Dose, gítarleikarinn Sonny Mayo var í thrash-rokksveitinni Sil- ence og bassaleikarinn John Fahnestock og trommuleikar- inn Jamie Miller voru meðal annars í M.F. Pit Bulls. Snot þótti svo mögnuð á tónleikum með Strait fremst- an í flokki að Geffen-útgáfan gerði við hana samning sum- arið 1996 og fyrsta breiðskíf- an, Get Some, kom út vorið 1997. Plötunni var bráðvel tek- ið og ekki síður þótti tónleika- ferð til að fylgja henni eftir hafa heppnast bráðvel. Meðal annars var Snot boðið að leika á tónleikahátíð Ozzy Osbourne, Ozzfest, 1998 þar sem það bar meðal annars til tíðinda að Strait var handtekinn fyrir ósiðlegt athæfi, en hann kom nakinn fram í einu lagi sveit- arinnar og hafði mök við leð- urklædda svipukonu á sviðinu. Strait hafði reyndar oft verið handtekinn áður og setið inni nokkrum sinnum fyrir ýmsar sakir. Hann lýsti því í viðtali að tónlistin hefði bjargað lífi sínu; ef ekki hefði verið fyrir Snot hefði hann endað ævina með nál í handleggnum. Eftir hamaganginn sumarið 1998 brugðu Snot-félagar sér í hljóðver að taka upp nýja breiðskífu, en þegar þeir voru rétt búnir að taka upp grunna að níu lögum lenti Strait í bílslysi á leið í hljóðverið í desemberbyrj- un og lést samstundis. Þeir félagar hans voru svo slegnir yf- ir þessu að þeir treystu sér ekki til að halda sveitinni gangandi en tóku þó upp þráðinn á síðasta ári til að gera áðurnefnda minn- ingarplötu um Strait. Á skífunni, sem hefur að geyma meðal annars lögin níu sem áttu að fara á plötuna sem var í smíðum, syngja þeir Jonathan Davis úr Korn, Fred Durst úr Limp Bizkit, Mark McGrath úr Sugar Ray, Brand- on Boyd úr Incubus, Max Cava- lera úr Soulfly, Corey (#8) úr Slipknot, Serj Tankian og Shavo Odadjian úr System of a Down og Lajon Witherspoon úr Sev- endust, Dez úr Coal Chamber og M.C.U.D. úr (hed) p.e. en Ozzy Osbourne segir nokkur orð. MARGIR MUNA eflaust eft- ir hljómsveitinni Snot sem vakti athygli með fram- úrskarandi skemmtilegri skífu fyrir þremur árum. Áð- ur en þeim Snot-mönnum tókst að taka upp aðra breið- skífu lést söngvari sveit- arinnar og helsti lagasmiður í bílslysi. Fyrir stuttu kom út minningarplata um hann, Strait Up, þar sem margir frestu rokksöngvarar seinni ára hefja upp raust sína. Minningaplata um Lynn Strait Morgunblaðið/Jón Svavarsson Músíktilraunir vorufyrst haldnar 1982 og hvert ár upp frá því ut- an að þær féllu niður 1984 vegna verkfalls. Sigur- sveitin á fyrstu Músíktil- raununum var Dans- hljómsveit Reykjavíkur og nágrennis, DRON, 1983 sigruðu Dúkkulís- urnar, 1985 Gipsy, 1986 Greifarnir, 1987 Stuðkomp- aníið, 1988 Jójó, 1989 Lag- lausir, 1990 Nabblastrengir, 1991 Infusoria, 1992 Kol- rassa krókríðandi, 1993 Yuc- atan, 1994 Maus, 1995 Botn- leðja, 1996 Stjörnukisi, 1997 Soðin fiðla, 1998 Stæner, 1999 Mínus og á síðustu til- raunum urðu þau tímamót að rappsveitin 110 Rotweil- Músíktilraunir Tónabæjar Bikarinn í Árbæinn – tveir – Rotweilerhundar í stuði. erhundar fór með sigur af hólmi. Af sigursveitunum eru átta enn starfandi, en tvær þeirra hafa breytt um nafn, Kolrassa krókríðandi heitir nú Bellatrix, Infus- oria Sororicide og 110 Rot- weilerhundar XX Rotweil- erhundar. Fyrsta tilrauna- kvöld Músíktilrauna að þessu sinni verður haldið 15. mars, annað kvöld 22. mars, það þriðja 23. mars og síðasta undanúrslitakvöldið verður haldið 29. mars. Úrslit verða svo 30. mars. Tilraunirnar eru haldnar í Tónabæ eins og áður segir, en frá síðustu tilraunum hefur Tónabær flutt úr Skafta- hlíðinni, er í Safamýri 28. MÚSÍKTILRAUNIR Tónabæjar, árleg hljómsveitakeppni, verður haldin í nítjánda sinn í mars næstkomandi. Sigurlaun í tilraununum eru jafnan hljóðverstímar og hafa dugað hljóm- sveitum býsna vel til að koma sér á framfæri í kjölfarið, en einnig hefur sigursveitin leikið á vegum Reykjavíkurborgar við ýmis tækifæri. Erna Björt Baraflokkurinn var akureyrsk hljómsveit og þegarsveitin varð til á sínum tíma, í kringum 1980, var nóg af hljómsveitum þar fyrir norðan en upp til hópa danshljómsveitir. Þór var búinn að vera í hljómsveitum frá því hann var fimmtán ára og hann og Jón bróðir hans gengu til liðs við þá Ásgeir og Balla og þáverandi tromm- ara, Árna Henningsen. Hann segir að þeir Balli og Ásgeir hafi verið búnir að semja talsvert og þeir hafi því strax byrjað á að leika frumsamin lög og í nýbylgj- ustíl framan af. Þór segir að það hafi lítið verið hægt að spila fyrir norðan, þó að sveitin hafi haft sína traustu aðdáendur þar, og því hafi þeir snemma byrjað á því að fara suður til að spila, á Borginni, Zafarí eða stærri tónleikum. Þór segir að ferðirnar suður hafi haft mikið að segja fyrir þá félaga og sitt mat að það hafi meðal annars haldið lífinu í hljómsveitinni. „Við spiluðum saman í á fimmta ár og lifðum meðal annars öll bönd sem voru starfandi á sama tíma. Fyrir norðan höfðum við mjög góða aðstöðu til að semja og æfa og síðan fórum við reglulega suður til að spila sem gaf okkur ákveðinn tilgang með öllu saman.“ Þór segist ekki hafa verið búinn að hlusta á plötur sveitarinnar í mörg árþegar kom að því að setja saman safnskífuna sem getið er í upphafi. „Það var mjög sér- kennilegt að hlusta á þessar gömlu plötur aftur, en mjög gaman. Fyrsta platan er náttúrulega barn síns tíma, tónlistin köld í takt við það sem við vorum að pæla þá. Plata númer tvö hefur elst einna síst, það var svo mikil nýrómantík í gangi og ekki nema nokkur lög af henni sem komu til greina. Það var aftur á móti gaman að heyra þriðju plötuna og hvað hún hefur staðist tím- ans tönn, enda ákváðum við snemma að láta hana alla fara inn á diskinn.“ Þór segir að þeir Baraflokksmenn hafi æft vel fyrir tónleikana í nóvember síðastliðnum og það hafi verið einkar gaman að taka upp þráðinn aftur, ekki síst hvað þeir voru fljótir að ná saman að nýju. Hann segir að þá þegar hafi menn velt fyrir sér þeim möguleika að halda fleiri tónleika, enda eftirspurnin meiri en þeir hefðu annað með einum tónleikum. Það sé þó erfitt um vik að koma því á, meðal annars vegna þess að Jón býr í Dan- mörku. „Við ætlum þó að taka eina tónleika að minnsta kosti, erum búnir að bóka Gaukinn 15. mars, og vonandi tekst okkur líka að halda eina tónleika fyrir norðan.“ eftir Árna Matthíasson BARAFLOKKINN þekkja kannski ekki margir nú orðið en á sínum tíma var hann með helstu rokk- sveitum landsins. Tæpir tveir áratugir eru síðan Bara- flokkurinn lagði upp laupana en seint á síðasta ári kom út safnplatan Zahír með helstu lögum hljómsveit- arinnar og í lok nóvember sl. hélt hún tónleika fyrir troðfullu húsi. Svo vel þótti mönnum takast til og svo margir urðu frá að hverfa að sveitin hyggst halda aðra tónleika, öðrum þræði til að minna betur á skífuna. Bara-flokkurinn sýndi snilli sína í hljómflutningi. Baraflokkurinn snýr aftur ÞAÐ GETUR gefist vel að klæða sig upp og mála ef vekja á athygli, eins og sannast eftirminnilega á Marilyn Manson. Þær eru þó fleiri sveitirnar sem gera slíkt og við hæfi að ein af þeim hljómsveitum vest- an hafs sem ganga einna lengst í þessum efnum, gODHEAD, er á mála hjá Manson. Leður og svipur gODHEAD skipa þeir James O’Conner sem leikur á tromm- ur, Jason Miller, sem leikur á gít- ar og syngur, The Method sem leikur á bassa og sinnir forritun og Mike Miller sem leikur á gít- ar. Sveitinni hefur gjarnan verið líkt við Marilyn Manson, ekki síst fyrir það hvað þeir félagar hafa gaman af að mála sig og skreyta, en samkvæmt því sem þeir segja sjálfir þá hófu þeir sína skreytilist um líkt leyti og Manson, það tók þá bara lengri tíma að koma sér á framfæri. gODHEAD er frá Washington og búin að starfa þar alllengi og gefa út þrjár breiðskífur á eigin vegum. Hljómsveitin hefur verið iðin við að spila og meðal ann- ars hitað upp fyrir sveitir eins og GWAR, Genitorturers og Christi- an Death, sem gefur góða mynd af því hvaða blær er á tónlist- inni, en einnig hafði söngvari sveitarinnar og leiðtogi, Jason Miller, þann starfa að vera veislustjóri í leður- og svipu- veislum. Fyrsta skífan kom út 1994 og hét einfaldlega gODHEAD, þá kom Nothingness 1996 og Pow- er Tool Stigmata 1998. Sú síð- asttalda varð til þess að Marilyn Manson sperrti eyrun og gerði við sveitina útgáfusamning á nýrri útgáfu sinni, Posthuman Records. Fyrir rúmri viku kom svo fjórða skífan út, 2000 Years Of Human Error, en útgáfa þeirra félaga á gamla bítlaslag- aranum Eleanor Rigby hefur vakið athygli. Upptökustjóri á plötunni er Danny Saber, sem meðal ann- ars hefur unnið með Black Sabbath, U2 og Rolling Stones, en Marilyn Manson sjálfur hefur yfirumsjón með plötunni. Jason Miller segir að Manson hafi gert þeim félögum kleift að yfirstíga byrjendabraginn sem verið hafi á fyrri skífum, en hann syngur einnig í einu lagi. Annar nafntog- aður gestur á skífunni er gítar- leikarinn Reeves Gabrels, sem hefur víst stutt sveitina með ráðum og dáð í nokkur ár. gODHEAD

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.