Morgunblaðið - 04.02.2001, Page 23

Morgunblaðið - 04.02.2001, Page 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 B 23 OD DI H F G 67 30 Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is • Öll heimilistæki í eldhúsið frá Siemens. Eldunartæki, gufugleypar, kæliskápar, frystiskápar, uppþvottavélar, hrærivélar, brauðristar, kaffivélar og flest önnur bráðnauðsynleg smátæki. Þú þrífst betur með Siemens í eldhúsinu. • Þvottavélar og þurrkarar frá Siemens sem snúast í þína þágu. • Ryksugur frá Siemens á skotsilfursparandi kostakjörum. • Ótrúlega ódýr smátæki frá Bomann. • Þráðlausir símar og farsímar frá Siemens halda þér í sambandi. • Firnagóðar tölvur frá Fujitsu Siemens sem allir vilja eignast. • Tölvuprentarar frá Olivetti á hláturtaugakitlandi kostaverði. • Faxtæki frá Olivetti á ómótstæðilegum spottprís. • Ódýr og myndarleg sjónvarpstæki frá Dantax. • Og síðast en ekki síst: Fjölbreytt úrval stórglæsilegra og vandaðra lampa sem lýsa upp og fegra heimili þitt. Þú getur augljóslega gert hreint ótrúlega góð kaup. Láttu sjá þig. Engum flýgur sofanda steikt gæs í munn! Gerðu reyfarakaup hjá okkur þessa vikuna frá 5. – 10. febrúar. Kjarakaupadagar Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni hefst 8. febrúar - Þri. og fim. kl. 19:30 Yoga - breyttur lífsstíll með Önnu Hermannsdóttur hefst 7. febrúar - Mán. og mið. kl. 19:30 4ra vikna uppbyggjandi námskeið, m.a. byggt á eigin reynslu Ásmundar fyrir þá sem eiga við streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg. Ásmundur tekur fyrir þætti eins og jógaleikfimi (asana), öndun, slökun og andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu.Ásmundur Anna 4ra vikna grunnnámskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu spor í jóga. Anna mun leggja áherslu á jógastöður (asana) og öndunaræfingar sem hjálpa að losa um spennu auk slökunar. Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri sem vill læra eitthvað nýtt. Reynsla af jóga er ekki nauðsynleg. www.yogastudio.is Auðbrekku 14, Kópavogi, sími 544 5560 og 864 1445 Yoga Studio - Halur og sprund ehf. Í verslun okkar er að finna: Nýja sendingu af nuddbekkjum frá Custom Craftworks, Biotone nuddvörur á tilboði og Oshadi 100% hágæða ilmkjarnaolíur. Næsta kennaraþjálfun hefst helgina 9.—11. febrúar. LAGÐUR verður til mikill niður- skurður á norska hernum, úr 180.000 manns í 15.000 auk þess sem komið verði á fót 2.500 manna sérsveit. Þetta var fullyrt í norska blaðinu Nordlys, sem kvaðst hafa komist yfir skýrslu sem leggja á fram fyrir norska stórþingið um miðjan þennan mánuð. Viðbrögð yfirmanna norska hersins eru öll á einn veg, afar nei- kvæð. Það er varnarmálaráðuneytið norska sem leggur þessar miklu breytingar til en búist er við að hart verði tekist á um skýrsluna, svo og varnarmál í heild sinni. Skýrslan byggist á því hvað hægt sé að gera fyrir 25 milljarða norskra króna, um 220 milljónir ísl. sem ætlaðir eru til varnarmála. Nú eru 13 stórfylki í norska hern- um, með um 180.000 sem svara her- útboði. Lagt er til að 2-3 stórfylki verði eftir, eða um 15.000 manns. Það þýðir í raun um 4.000 hermenn og 11.000 í viðbragðsstöðu. Lagt er til að herskylda verði áfram við lýði en raunin verði sú að aðeins lítill hluti gegni raunverulegri herþjónustu. Norskur her yrði algerlega ófær um að verja landið og háður bandamönn- um sínum yrði á landið ráðist. Auk þessa er lagt til að komið verði á fót sérsveit sem hægt verði að senda úr landi til friðargæslu og þess háttar. Þá yrðu stofnaðar varasveitir fyrir hana, alls um 2.500 manns. Þetta myndi kosta yfir 1 milljarð nkr., um 10 milljarða ísl. Tillaga um 90% færri hermenn í Noregi Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.