Morgunblaðið - 14.02.2001, Side 2
ÍÞRÓTTIR
2 B MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Borðtennis
Stigamót Lýsingar:
1. flokkur karla með þátttöku kvenna:
Lilja Rós Jóhannesdóttir, Víkingi
Tryggvi Rósmundsson, Víkingi
Emil Pálsson, Víkingi
Halldóra S. Ólafs, Víkingi
1. flokkur kvenna:
Guðrún G. Björnsdóttir, KR
Valgerður Benediktsd., KR
Magnea Ólafs, Víkingi
Jóna S. Þorvaldsd., Víkingi
2. flokkur karla:
Aldís Rún Lárusdóttir, KR
Magnús K. Magnússon, Víkingi
Sölvi Pétursson, Víkingi
Daði F. Guðmundsson, Víkingi
2. flokkur kvenna:
Magnea Ólafs, Víkingi
Thelma Steingrímsdóttir, Víkingi
Hildur Jónsdóttir, Víkingi
Jóna S. Þorvaldsdóttir, Víkingi
Eldri flokkur karla:
Ragnar Ragnarsson, Erninum
Pétur Ó. Stephensen, Víkingi
Árni Siemsen, Erninum
Emil Pálsson, Víkingi
ÚRSLIT
Ég fann mig mjög vel í leiknumeins og reyndar í undanförnum
leikjum. Við erum með vel spilandi
lið og vill fram-
kvæmdarstjórinn að
spil liðsins fari í
gegnum mig svo að
ég er mikið í boltan-
um og það hentar mér vel,“ sagði
Bjarnólfur sem fékk mjög góða
dóma fyrir leik sinn enda átti hann
nokkur hættuleg skot. Scunthorpe
var mikið í mun að leika vel á laug-
ardag eftir 6:0 tap gegn Blackpool í
síðustu viku.
Bjarnólfur hefur verið einn af
stöðugustu leikmönnum liðsins og
vakið nokkra athygli fyrir leik sinn.
„Ég er nokkuð ánægður með tíma-
bilið hjá mér og gekk sérstaklega
vel í bikarleikjunum á móti Burnley
og Bolton og eftir það hefur Burnley
sýnt áhuga á mér svo að það er
ágætis viðurkenning en tíminn einn
getur leitt í ljós hvað gerist,“ sagði
Bjarnólfur en Scunthorpe sló 1.
deildarliðið Burnley út úr bikar-
keppninni í vítakeppni en tapaði svo
5:1 gegn Bolton. Hann meiddist þó
lítillega á ökkla í leiknum gegn Bolt-
on og missti þá af tveimur leikjum
en er nú búinn að ná sér að fullu.
Þrjú efstu liðin í 3. deild fara sjálf-
krafa upp í 2. deild en liðin í 4.–7.
sæti berjast um eitt laust sæti í 2.
deild. Scunthorpe hefur verið ná-
lægt 7. sætinu allt tímabilið en dalað
nokkuð að undanförnu og situr nú í
11.–13. sæti deildarinnar. „Sæti í úr-
slitakeppninni er raunhæft markmið
hjá okkur. Okkur hefur gengið illa á
útivelli einhverra hluta vegna. Fjór-
ir af síðustu sex leikjum hafa verið á
útivelli en fjórir af næstu sex eru á
heimavelli svo að við ættum að geta
bætt fyrir glötuð stig næsta mán-
uðinn. Svo eigum við líka tvo leiki
inni á hin liðin eftir gott gengi í bik-
arnum,“ sagði Bjarnólfur en 10 stig
aðskilja Scunthorpe og Hartlepool
sem nú situr í 7. sæti deildarinnar.
Þar sem Bjarnólfi hefur gengið
vel í vetur vill Scunthorpe reyna að
halda í hann. „Framtíðin er alveg
óráðin hjá mér. Samningurinn hjá
mér rennur út eftir þetta tímabil en
Scunthorpe er búið að tala við mig
og vill halda mér en ég ætla að halda
öllum möguleikum opnum. Einn af
möguleikunum er að koma heim í
sumar og fara svo aftur út fyrir
næsta tímabil en á þessum tíma-
punkti veit ég ekki hvað gerist,“
sagði Bjarnólfur sem á strangt
leikjaplan fyrir höndum með
Scunthorpe en liðið mætir Rochdale
og Cardiff í næstu viku í afar mik-
ilvægum leikjum. Hann leikur vænt-
anlega með ÍBV, verði raunin sú að
hann komi heim í vor.
Bjarnólfi
líkt við
Beckham
BJARNÓLFUR Lárusson skoraði glæsimark fyrir Scunthorpe í
ensku 3. deildinni á laugardag er liðið sigraði York City 4:0. Bjarn-
ólfur skoraði þriðja mark leiksins með skoti beint úr aukaspyrnu af
tæplega 30 metra færi og sagði á vefsíðunni Teamtalk að David
Beckham hefði orðið stoltur af skotinu, svo hnitmiðað var það. „Ég
sneri boltann yfir varnarvegginn og hann lenti efst í nær-horninu,“
sagði Bjarnólfur við Morgunblaðið.
Íris Björk
Eysteinsdóttir
skrifar
Júlíus til Noregs
JÚLÍUS Tryggvason, knattspyrnumaður frá Akureyri, er á förum
til Noregs og hefur samið þar við 3. deildarliðið Stryn til eins árs.
Júlíus, sem er 34 ára, er fjórði leikjahæsti leikmaður efstu deildar
frá upphafi með 239 leiki fyrir Þór og Leiftur, en hann er leikja-
hæsti leikmaður beggja félaganna í efstu deild. Hann hefur leikið
með Leiftri undanfarin sex ár.
Stryn er frá Vestur-Noregi og vann 19 af 22 leikjum sínum í 3.
deild á síðasta ári, og skoraði 98 mörk, en varð samt aðeins í öðru
sæti síns riðils og komst ekki í úrslit. Fyrirliði liðsins er íslenskur,
Jóhann Sigurðsson, en hann hefur verið búsettur í Noregi frá
barnsaldri og var valinn leikmaður ársins hjá félaginu í fyrra.
Á
E
tv
S
s
u
s
le
1
ö
m
þ
s
h
s
K
S
f
B
u
Y
ig
e
b
le
í
m
d
e
v
u
u
in
k
h
S
o
Á
o
Ítölsku gestirnir úr Lazio byrjuðuheldur betur vel á Spáni, náðu
forystu með marki Hernan Crespo á
fjórðu mínútu. Glæsilegt mark og
vel að verki verið hjá Crespo, sem
fór illa með sofandi varnarmenn
Real Madrid og skoraði af öryggi
með laglegu utanfótarskoti og
hringaði þannig knöttinn fram hjá
Iker Casillas markverði og í blá-
hornið.
Eftir markið tóku heimamenn öll
völd á vellinum. Luis Figo, sem var
utan vallar rétt á meðan gestirnir
skoruðu til að láta taka af sér háls-
festi sem dómaranum líkaði ekki,
fór á kostum og byggði upp hverja
sókn liðsins af annarri. Hann átti
frábært skot í stöng utan af hægri
kanti, boltinn datt yfir markvörðinn
og í stöngina og út. Jöfnunarmarkið
kom á 32. mínútu og var það seinna
en von var á miðað við gang leiksins.
Þar var Fernando Morientes að
verki.
Tveir varnarmanna Lazio fengu
gult spjald í fyrri hálfleik og gátu
því ekki leikið af sömu ákefð og ella.
Á lokamínútu fyrri hálfleiks átti
Steve McManaman fast skot í slána
og skórinn fygldi á eftir.
Gestirnir hófu síðari hálfleikinn
ekki ósvipað og þann fyrri þegar
Crespo komst einn í gegnum vörn
Madrídinga en náði ekki að setja
markvörðinn úr jafnvægi og skot
hans fór í hliðarnetið utanvert.
Þetta gerðist á fimmtu mínútu síð-
ari hálfleiks og Crespo komst aftur í
dauðafæri en hinn ungi markvörður
sýndi mikinn styrk, stóð í fæturna
og varði með því að fá boltann í höf-
uðið. Glæsilega gert.
Figo átti síðan mjög gott skot af
ríflega 20 metra færi en það var vel
varið. Crespo var enn og aftur á
ferðinni á 65. mínútu þegar hann
átti skot úr markteignum en mark-
vörðurinn varði vel með fætinum.
Það var allt annað að sjá til pilta
Dinos Zoffs eftir hlé, þeir tóku á
móti heimamönnum framar á vell-
inum og tókst að skapa sér nokkur
færi eins og áður er rakið.
Það dró síðan til tíðinda á 82. mín-
útu þegar Helguera kom heima-
mönnum yfir en Guerino Gottardi
jafnaði tveimur mínútum síðar.
Fjórum mínútum eftir það var hann
enn á ferðinni og nú taldi dómarinn
að hann hefði brotið á sóknarmanni
heimamanna og benti á vítapunkt-
inn. Rangur dómur að flestra mati
en Figo skoraði úr spyrnunni.
Englendingar standa
vel að vígi
Ef svo heldur fram sem horfir
gætu þrjú ensk lið komist áfram í
keppninni, Manchester United,
Leeds og Arsenal, og yrði það mikill
áfangi fyrir enska knattspyrnu.
Leikur Leeds og Anderlecht var
fremur rólegur og í fyrri hálfleik var
fátt um færi utan dauðafæri gest-
anna á áttundu mínútu. Þeir voru
fyrri til að skora því Alin Stoica kom
gestunum yfir á 65. mínútu og vonir
þeirra um að sigra loks á enskum
knattspyrnuvelli glæddust. En Ian
Harte jafnaði beint úr aukaspyrnu
þar sem varnarveggur Anderlecht
var furðulega staðsettur. Bowyer
tryggði síðan sigurinn eftir send-
ingu Alan Smiths, renndi knettinum
fram hjá markverðinum og í netið.
Svíinn Frederik Ljungberg á hér í barát
Heimamenn fengu
gefins vítaspyrnu
REAL Madrid er svo gott sem búið að tryggja sig áfram í Meistara-
keppni Evrópu eftir 3:2 sigur á Lazio í gærkvöldi. Þar tryggði Louis
Figo sigurinn með marki úr vítaspyrnu sem heimamenn fengu á silf-
urfati. Á sama tíma vann Leeds lið Anderlecht 2:1 og er enska liðið
einnig í góðum málum en Lazio er illa statt á botni D-riðils með ekk-
ert stig. Það var Lee Bowyer sem tryggði Leeds sigurinn með marki
fjórum mínútum fyrir leikslok.
HANDKNATTLEIKUR
2. deild karla:
Selfoss: Selfoss - Fylkir .............................20
Í KVÖLD
Bikarmót SKÍ í Hlíðarfjalli:
Stórsvig kvenna:
Ása K. Gunnlaugsdóttir, SKA...........1.59,22
Áslaug E. Björnsdóttir, SKA ............2.00,24
Fanney Blöndahl, SLR......................2.01,64
Stórsvig stúlkna, 15-16 ára:
Áslaug E. Björnsdóttir, SKA .............2.0024
Fanney Blöndahl, SLR......................2.01,64
Agnes Þorsteinsdóttir, SLR..............2.06,24
Stórsvig karla:
Jóhann H. Hafstein, Árm. .................1.55,96
Ingvar Steinarsson, SKA ..................1.56,85
Arnar G. Reynisson, Árm. .................1.57,29
Stórsvig drengja, 15-16 ára:
Andri Þ. Kjartansson, BBL...............1.59,82
Fannar Gíslason, BBL.......................2.00,91
Kristinn I. Valsson, Dalv. ..................2.01,38
Svig kvenna:
Ása K. Gunnlaugsdóttir, SKA...........1.43,90
Arna Arnardóttir, SKA......................1.48,73
Lilja R. Kristjánsdóttir, SLR ...........1.49,29
Svig stúlkna:
Áslaug E. Björnsdóttir, SKA ............1.51,36
Fanney Blöndahl, SLR......................1.51,62
Elín Arnarsdóttir, Árm......................1.52,83
Svig karla:
Steinn Sigurðsson, Árm.....................1.38,55
Óskar Ö. Steindórsson, SLR.............1.39,56
Fjalar Úlfarsson, SKA.......................1.40,49
Svig drengja:
Fannar Gíslason, BBL.......................1.44,26
Andri Þ. Kjartansson, BBL...............1.46,70
Kristinn I. Valsson, Dalv. ..................1.47,93
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
C-RIÐILL:
Bayern München – Spartak Moskva ... 1:0
Elber 79. - 31.000.
Lyon – Arsenal....................................... 0:1
– Thierry Henry 58. - 42.000.
Staðan:
Bayern M ................... 3 2 1 0 6:1 7
Arsenal ....................... 3 1 1 1 4:6 4
Lyon ........................... 3 1 0 2 3:2 3
Spartak Moskva ........ 3 1 0 2 4:5 3
D-RIÐILL:
Leeds – Anderlecht ............................... 2:1
Ian Harte 74., Lee Bowyer 86. – Alin
Stoica 65. - 36.064.
Real Madrid – Lazio .............................. 3:2
Fernando Morientes 32., Ivan Helguera
82., Luis Figo 88. (vsp.). – Hernan Crespo
4., Guerino Gottardi 84. - 75.000.
Staðan:
Real Madrid............... 3 3 0 0 9:3 9
Leeds.......................... 3 2 0 1 3:3 6
Anderlecht ................. 3 1 0 2 3:5 3
Lazio ........................... 3 0 0 3 2:3 0
England
Bikarkeppnin, 4. umferð:
Wimbledon – Middlesbrough ............... 3:1
Neal Ardley 76. (vsp.), Jason Euell 95.,
Jonathan Hunt 112. – Hamilton Ricard 45.
Rautt spjald: Ugo Ehiogu (Midd.) - 5.991.
1. deild:
Portsmouth – Bolton.............................. 1:2
Sheff. Wednesday – Tranmere ............. 1:0
Stockport – Preston ............................... 0:1
Guðni Bergsson lék allan leikinn með
Bolton sem styrkti stöðu sína í 2. sæti
deildarinnar. Bjarki Gunnlaugsson sat á
varamannabekk Preston allan tímann.
2. deild:
Bristol City – Wrexham......................... 2:1
Notts County – Luton............................ 1:3
3. deild:
Blackpool – Cardiff .................................1:0
Carlisle – Hartlepool.............................. 2:3
Macclesfield – Shrewsbury ................... 2:1
Mansfield – Cheltenham........................ 2:1
Scunthorpe – Rochdale.......................... 0:0
Bjarnólfur Lárusson lék ekki með
Scunthorpe þar sem hann tók út leikbann.
Skotland
Bikarkeppnin, 3. umferð:
Dunfermline – St. Johnstone ................ 3:2