Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 B 3 FÓLK  ROSENBORG, lið Árna Gauts Arasonar, leikur til úrslita gegn AIK frá Svíþjóð á æfingamóti sem fram fer á La Manga á Spáni. Árni Gautur lék ekki með liðinu sem lagði rúss- neska liðið Lokomotiv Moskva 2:1 í undanúrslitaleik mótsins, en í hans stað lék Espen Johnsen sem keyptur var frá Start í haust.  MAREL Baldvinsson, leikmaður norska úrvalsdeildarliðsins Stabæk, hefur lítið geta æft með liðinu vegna meiðsla. Marel hefur átt í meiðslum í aftanverðu læri og vonir standa til að hann geti farið að spila æfingaleiki með liðinu en Stabæk dvelur á La Manga á Spáni við æfingar þessa dagana.  JÓNAS Kristinsson hefur tekið við formennsku í Rekstrarfélagi KR af Gunnari Skúlasyni. Jónas hefur verið viðloðandi stjórnarstörf hjá KR-ing- um mörg undanfarin ár og var um tíma framkvæmdastjóri knatt- spyrnudeildarinnar.  GOLFKLÚBBAR landsins hafa margir hverjir komið sér vel fyrir og opnað inniaðstöðu fyrir félagsmenn. Golfklúbbur Reykjavíkur hefur að- stöðu í klúbbhúsi sínu að Korpúlfs- stöðum; Keilir í húsi Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar; GKG í gamla Iðnskól- anum í Hafnarfirði; Oddur, Setberg og Nesklúbburinn hafast að í Hólma- slóð á Granda, Kjölur í íþróttahúsinu í Mosfellsbæ og á Akureyri er David Barnwell með aðstöðu í Golfbænum.  GRAHAM Taylor, knattspyrnu- stjóri Watford, segist hefði skorað sjálfur úr dauðafærinu sem Heiðar Helguson nýtti ekki í lokin gegn Portsmouth síðasta laugardag. Heið- ar gat þá tryggt Watford sigur en skallaði boltann í jörðina og þaðan fór hann yfir þverslána. Taylor sagðist þó ekki hafa skammað Heiðar of mik- ið, hann hefði þó allavega skapað sér færið.  PAUL Jewell er búinn að missa starf sitt sem knattspyrnustjóri enska 1. deildarliðsins Sheffield Wednesday aðeins átta mánuðum eftir að hann tók við stjórn liðsins. Wednesday er við botn 1. deildarinn- ar og eftir tap gegn Wimbledon um síðustu helgi þraut þolimæði stjórn- armanna Wednesday sem ákváðu að losa sig við Jewell. Peter Shreeves, þjálfari, mun stýra liðinu þar til nýr stjóri verður ráðinn.  DAVID Beckham mun ekki yfir- gefa Manchester United og hann verður hjá liðinu allan sinn feril. Þetta segir faðir knattspyrnustjörn- unnar og vísar þeim fréttum á bug að Beckham ætli ekki að skrifa undir samning við félagið nema að það greiði honum tæpar 4 milljarða króna.  NIGEL Martyn er ekki til sölu, seg- ir Peter Ridsdale, stjórnarformaður Leeds United, en blöð á Englandi skýrðu frá því í gær en Gerard Houll- ier, stjóri Liverpool væri að undirbúa 5 milljón punda tilboð í markvörðinn snjalla.  ÞÝSKA knattspyrnuliðið Bochum rak í gær þjálfara sinn, Ralf Zumd- ick, og réð í hans stað Rolf Schafstall fyrrum þjálfara Fortuna Düsseldorf. Bochum hefur gengið illa í þýsku úr- valsdeildinni og eftir sjöunda tapleik- inn í röð um helgina gegn Hamburg fannst stjórnendum félagsins kominn tími á aðgerðir.  ALAN Sugar, fyrrum stjórnarfor- maður Tottenham Hotspur, kennir framkvæmdastjórum liðsins um slæmt gengi liðsins. Sugar tók við stjórnarformennsku Tottenham árið 1991 og hætti fyrir skömmu þegar fjölmiðlarisinn ENIC keypti meiri- hluta í Lundúnafélaginu.  SUGAR segir að hann geti ekki tekið á sig sökina og segir að Terry Venables, Peter Shreeves, Ossie Ardiles, Gerry Francis, Christian Gross og George Graham hafi ekki tekist ætlunarverkið sem fram- kvæmdastjórum og aðeins þeim væri hægt að kenna um slakan árangur liðsins á undanförnum árum. Það var mikið í húfi fyrir Arsenal íFrakklandi, liðið hafði aðeins eitt stig eftir fyrstu tvo leikina og því varð liðið að krækja sér í sem flest stig. Það tókst og nú er riðillinn enn opnari en áður þótt gera megi ráð fyrir að Bayern eigi mestu mögu- leikana. Arsenal komst í annað sætið en er aðeins stigi á undan Spartak Moskvu og Lyon og með óhagstæðust marka- töluna í riðlinum þannig að allt getur gerst. Það var raunar ekkert allt of bjart framan af leik og Lundúnaliðið getur þakkað markverði sínum, David Seaman, stigin þrjú því hann varð að taka á honum stóra sínum nokkrum sinnum. Sigurmarkið kom eftir klukku- stund og það var Frakkinn Thierry Henry sem skallaði í netið eftir góða fyrirgjöf Ashley Cola frá vinstri. „Við fengum mörg færi í fyrri hálf- leik en tókst ekki að nýta þau enda var Seaman í stuði í markinu,“ sagði Philippe Violeau, miðjumaður Lyon, eftir leikinn. Arsenal hefur nú leikið í níu klukkustundir og níu mínútur án þess að fá á sig mark, leikmenn Chelsea skoruðu síðast hjá þeim þann 13. janúar. Í byrjunarliðinu voru fjórir Frakkar og þeim tókst ásamt félög- um sínum að sjá til þess að félagið héldi áfram sigurgöngu sinni í Frakk- landi en þar hefur liðið ekki tapað í síðustu sjö leikjum. „Við erum komnir á skrið og í kvöld vorum við heppnir, Seaman hélt okk- ur inni í leiknum,“ sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal. Jacques Santini, þjálfari Lyon, var ekki alveg sáttur við úrslitin en sá þó björtu hliðarnar á málinu. „Við nýtt- um ekki fín færi í fyrri hálfeik og Arsenal nýtti sér mistök í vörn okkar. Þrátt fyrir tapið lékum við vel á móti sterku liði Arsenal og það má líta á það sem björtu hliðarnar,“ sagði þjálfarinn. Bæjarar lengi í gang Það var djúpt á markinu í leik Bay- ern og Spartak Moskvu þegar liðin mættust í München. Það voru ellefu mínútur til leiksloka þegar Elber skallaði í netið og tryggði Bæjurum stigin þrjú og þægilega stöðu í efsta sæti riðilsins. Þar er liðið með sjö stig, þremur stigum meira en Arsenal og eins og áður segir eru níu stig eftir í pottinum og riðillinn því mjög opinn og spennandi. Bæjarar voru betri aðilinn í gær- kvöldi og sigur þeirra í raun aldrei í hættu. Á miðjunni voru Stefan Effen- berg og Mehmet Scholl í essinum sínu og stjórnuðu gangi mála. Færin urðu nokkur en það var eins og fram- línumönnum liðsins væru mislagðir fætur og þeir virtust klaufalegir þeg- ar upp að markinu kom, allt þar til Elber náði að skora. Bæjarar fara til Moskvu næsta miðvikudag og nái þeir í þrjú stig þar eru þeir komnir áfram, því má slá föstu, en Bæjarar munu örugglega hafa hrakfarir Arsenal í Moskvu í huga þegar þeir leggja í hann. ÁSA Katrín Gunnlaugsdóttir og Áslaug Eva Björnsdóttir, frá Akureyri, unnu vöfaldan sigur á fyrsta bikarmóti Skíðasambands Íslands í alpagreinum sem fram fór í Hlíðarfjalli við Akureyri um helgina. Ása Katrín sigraði bæði í svigi og stórsvigi í kvennaflokki og þann eik lék Áslaug Eva eftir í flokki stúlkna 15-16 ára. Að auki hafnaði Áslaug Eva í öðru sæti í stórsvigi í kvennaflokki. Akureyrsku skíðastúlkurnar létu því mjög að sér kveða en í karlaflokki voru það skíðamenn af höfuðborgarsvæðinu sem fóru heim með flest verðlaunin. Jó- hann H. Hafstein, Ármanni, sigraði í stórsvigi í karlaflokki en Andri Þór Kjartansson í flokki 15-16 ára. Steinn Sigurðsson, Ármanni, sigraði í karla- flokki í svigi en Fannar Gíslason, Breiðabliki, í 15-16 ára flokki. Karlar og drengir og konur og stúlk- ur keyrðu sömu braut í báðum greinum. Yngra fólkið keppti upp fyrir sig, þann- g að það var einnig fullgildir þátttak- endur í fullorðinsflokkunum. Aðstæður í Hlíðarfjalli voru eins og best verður á kosið. Þrátt fyrir að snjó- eysi hafi plagað skíðafólk víða um land vetur varð ekki séð að það hefði haft mikil áhrif enda hafa skíðamenn verið duglegir að mæta til æfinga í Hlíðarfjall eða Tindastól, þar sem aðstæður hafa verið með besta móti. Bikarmótið var einnig minningarmót um frumkvöðla í skíðaíþróttinni á Ak- ureyri, þau Helgu Tulinius skíðadrottn- ngu og Hermann Stefánsson íþrótta- kennara. Fyrir bestan árangur kvenna hlaut Ása Katrín Gunnlaugsdóttir, Skíðafélagi Akureyrar, Helgubikarinn og í karlaflokki hlaut Steinn Sigurðsson, Ármanni, Hermannsbikarinn. Tvöfalt hjá Ásu og Áslaugu Evu Reuters ttu við Edmilson í leik Arsenal og Lyon. SPENNAN minnkaði ekkert í C-riðli Meistaradeildar Evrópu í gær- kvöldi þegar þriðja umferðin var leikinn. Deildin er nú hálfnuð, níu stig eru eftir í pottinum og það eina sem breyttist í C-riðli var röðun liðanna og þá helst þannig að Arsenal skaust upp í annað sætið úr því neðsta með 1:0 sigri á Lyon á útivelli og á meðan kom Bayern München sér enn betur fyrir í efsta sætinu með 1:0 sigri á Spörtu frá Moskvu. Arsenal er að rétta úr kútnum Bjarni Guðjónsson, knatt-spyrnumaður hjá Stoke City, var í gær orðaður við belgíska stór- liðið Anderlecht í enskum fjölmiðl- um. Sagt var að Anderlecht væri tilbúið til að greiða um 90 milljónir króna fyrir Bjarna en Stoke keypti hann frá Genk í Belgíu fyrir 29 milljónir í mars á síðasta ári. Þjálf- ari Anderlecht er Aime Anthuenis, sá hinn sami og fékk Bjarna til Genk á sínum tíma og þjálfaði hann þar. Haft var eftir Guðjóni Þórðar- syni, knattspyrnustjóra Stoke og föður Bjarna, að Anderlecht hefði ekki haft samband við sig og Bjarni væri hvort sem væri ekki til sölu. „Ég hef ekkert heyrt af þessu. Ég þekki þjálfarann vissulega vel en svona lagað er einfaldlega ekki uppi á borðinu hjá mér. Það er of mikið um að vera hjá okkur í Stoke til að ég fari að hugleiða eitthvað annað, hjá okkur kemst ekkert annað að en að komast upp í 1. deild eftir gott gengi að undan- förnu,“ sagði Bjarni við Morgun- blaðið í gærkvöld. Bjarni slær á orðróm um Anderlecht Tveir nýir útlend- ingar í Leiftur LEIFTURSMENN frá Ólafsfirði, sem féllu úr efstu deildinni í knattspyrnu síðasta haust, hafa fengið til sín tvo nýja er- lenda leikmenn fyrir næsta tímabil. Þeir heita Michael Bow- es, 19 ára enskur miðjumaður, sem kemur frá 3. deildar lið- inu Darlington, þar sem hann var á unglingasamningi, og John McDonald, 22 ára skoskur miðju- eða sóknarmaður, sem hefur leikið í neðri deildum í heimalandi sínu. Þeir komu til Ólafsfjarðar fyrir skömmu og hafa gert samning við Leiftur. Þar með eru fjórir nýir leikmenn komnir til Ólafsfirðinga í vetur en til viðbótar eru það Páll Guðmunds- son frá ÍBV, sem þjálfar liðið ásamt Páli Guðlaugssyni, og varnarmaðurinn Marinó Ólason, sem kom frá nágrönnunum í Dalvík. Aftur á móti eru átta leikmenn sem léku með lið- inu í efstu deild í fyrra horfnir á braut. Hlynur Birgisson, Páll V. Gíslason, Ingi Hrannar Heimisson og Örlygur Þór Helgason í Þór, Steinn Viðar Gunnarsson og Hlynur Jó- hannsson í KA, Jens Martin Knudsen í NSÍ í Færeyjum og Júlíus Tryggvason, sem er á förum til Noregs eins og fram kemur annars staðar á opnunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.