Morgunblaðið - 16.02.2001, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 6 . F E B R Ú A R 2 0 0 1 B L A Ð D
SANDHOLT OG SÚKKULAÐIÁSTIN/2 PLÓMUR, GULL OG KRÓKÓ-
DÍLANEF/4 SKÍÐAIÐKUN FATLAÐRA – FÆRIR Í FLESTAN SNJÓ/6
KARLAR Í KONULEIK/7 AUÐLESIÐ EFNI/8
gramsar í veski sínu, reyndar ekki
eins krókloppinn og ella því hann
beið eftir strætó í biðskýli.
Sumir standa daglega og kannski
oft á dag í strætisvagnaskýlum,
stutt eða lengi. Einhverjir eiga jafn-
vel sín uppáhaldsskýli en öðrum
finnst eitt skýli öðru líkt.
Í Reykjavík
eru biðskýli
SVR af ýms-
um gerðum. Vestan
Elliðaáa ber mest á gagnsæjum
skýlum sem formlega voru tekin
í gagnið haustið 1998. Þau eru í
eigu fyrirtækisins AFA JCDec-
aux Ísland sem fjármagnar við-
hald og þrif skýlanna með auglýs-
ingum. Þá þekkja margir rauðu
bogaskýlin og þau grænu og gráu
sem eru enn eldri.
„Rauðu bogaskýlin urðu nú
þannig til að fyrir tæpum
tveimur áratugum var
haldin samkeppni um
hönnun biðskýla. Ef ég
man rétt er þó aðeins til
eitt skýli sem er ná-
kvæmlega gert eftir sigurtillögunni.
Það stendur við Kjarvalsstaði,“ seg-
ir Þórhallur Guðlaugsson, mark-
aðsstjóri SVR. „Með tímanum, þeg-
ar skýlin voru komin í framleiðslu
hjá vélsmiðju, var ýmsu hliðrað til
með tilliti til reynslu og notkunar.
Litnum og laginu var haldið, sem og
álinu í bakinu, en gleri var breytt og
fallið frá hita í gólfi. Í ljós kom að ef
glerið í upphaflegu skýlunum brotn-
aði var það svo mikið tjón enda rúð-
an stór og heil. Þannig þróuðust
rauðu skýlin og þau sem nú standa
eru meira að segja ekki öll eins.“
Þórhallur bendir á að fáein græn
plastskýli, sem eitt sinn voru keypt
frá Danmörku, megi enn finna. Til
að mynda við Austurbrún. „Steyptu
skýlin, sem m.a. settu svip sinn á
Miklubraut, hurfu hins vegar end-
anlega með nýju skýlunum,“ bætir
hann við.
Enn er verið að bæta við skýlum
af nýju gerðinni og eru 30 vænt-
anleg í næstu sendingu. Þeim er að-
allega komið fyrir í kringum
miðbæinn og við fjölfarnar götur
enda ræðst staðsetning ekki síst af
viðskiptaástæðum og væntingum
eigendanna sem selja auglýsingar
undir hert glerið. Skýli eru nú á yfir
70% biðstöðva SVR í borginni, að
sögn Þórhalls. Helst er að skýli
vanti á stöðvar þar sem fólk fer ein-
göngu úr vögnum en ekki inn, eða
þar sem þeim verður illa komið við
vegna þrengsla.
„Annars hvað það er nú gott að
hafa þessi skýli, svona í hríðinni,“
segir vegfarandi við annan á snjó-
barinni biðstöð við Grensásveg.
„Já, það er ekki alltaf blíðunni
fyrir að fara hér í borginni,“ segir
hinn og skimar út úr skýlinu. „En
þarna kemur fimman þín – viltu
kannski eiga skiptimiðann minn?“
sþ
Rauðu bogaskýlin með álbakinu spruttu upp úr hönn-
unarsamkeppni fyrir um tveimur áratugum.
Biðskýlið við Ásmundarsafn er úr trefjaplasti og var
flutt stakt inn frá Danmörku sem tilraunaskýli e. 1960.
Morgunblaðið/Kristinn
Gömlu gráu skýlunum fer fækk-
andi með árunum.
á hverju
horni
Hringlaga biðskýli úr timbri frá 1948 eftir Einar
Sveinsson og Gunnar H. Ólafsson. Stóð við Sunnu-
torg. Líkan: Axel Helgason.
Skjól
GET ég fengið skiptimiða?“ segir
vegfarandi þegar hann kemur inn
úr kuldanum í stóran gulan Volvo
sem er á leið niður á torg. Annar
tekur sér stöðu hjá vagnstjóranum:
„Bíddu, ég var hérna einhvers stað-
ar með 150 kall,“ segir hann og
Nýju skýlin eftir Knud Holscher
eru að mestu úr 12 mm hertu gleri.