Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 8
BANDARÍSKUR kjarnorku-kafbátur rakst á japanskt hafrannsóknaskip á föstudag. Níu manns drukknuðu. Aðdragandinn var sá að hafrannsóknaskip var á siglingu skammt frá Hawaii-eyjum í Kyrrahafi. Um borð voru 35 manns, þar af þrettán nemendur við sjávarútvegs-skóla í Japan ásamt tveimur kennurum sínum. Tilgangur ferðarinnar var að veiða túnfisk, sverðfisk og hákarl. Í djúpinu fyrir neðan skipið lá bandarískur kjarnorkukafbátur. Áhöfnin ákvað að koma kafbátnum hratt upp á yfirborðið. Hann rakst á rannsóknaskipið og reif gat á vélarúmið. Skipið sökk á nokkrum mínútum. 26 manns tókst að komast í björgunarbáta og sluppu ómeiddir. Ekki tókst að bjarga kennurunum, fimm nemendum og þremur skipverjum. Stjórnvöld í Japan vilja að Bandaríkjamenn reyni að ná rannsóknaskipinu upp. Slysið vakti mikla reiði í Japan þegar ljóst var að hægt hefði verið að koma í veg fyrir það. Skipverjar í kafbátnum notuðu tæki til að nema hljóð frá skrúfum skipa, en vantaði tæki sem greinir bergmál frá skipsskrokki á siglingu. Öryggisnefnd hafði hvatt til þess að slíkt tæki yrði notað en sjóherinn hafnaði þeim tilmælum. Verið er að rannsaka hvers vegna kafbáturinn kom úr hafinu undir skipinu. Í Japan hefur slysið dregið úr áliti landsmanna á forsætis-ráðherranum Mori en hann hélt áfram að leika golf eftir að hann frétti af slysinu. Bandarískur kjarnorku-kafbátur rakst á japanskt hafrannsóknaskip Vantaði öryggistæki í kafbátinn Reuters Margir komust í björgunarbáta áður en skipið sökk. Hér sést strandgæslan hjálpa mönnum úr bát. AUÐLESIÐ EFNI 8 D FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ KRISTÍN RÓS HÁKONARDÓTTIR setti tvö heimsmet á sundmóti í Sundhöll Reykjavíkur um helgina. Hún bætti eigið heimsmet í 100 metra bringusundi kvenna. Þá bætti hún eigið met í 200 metra baksundi. Íþróttir Tvö heimsmet Netfang: auefni@mbl.is Á SUNNUDAG, 18. febrúar, verður þorrablót í Hinu húsinu. „Þetta er smakk,“ sagði Kristinn Ingvarsson, því að maturinn verður skorinn í litla bita. Hefst blótið klukkan þrjú síðdegis. Spiluð verður þjóðleg tónlist. Húsið verður opið frá klukkan eitt til sex og er aðgangur ókeypis. Á döfinni „Tipptopp“- þorrablót KÍSILIÐJAN við Mývatn hefur verið seld, en ríkið átti meirihluta í fyrirtækinu. Nýir eigendur ætla að reka þar kísildufts-verksmiðju í framtíðinni. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-ráðherra sagðist vonast til að nú skapaðist tækifæri til að byggja upp atvinnulífið í Mývatnssveit. Kísiliðjan seld PLATA Sigur Rósar, Ágætis byrjun, fær mikið hrós í bandarísku stórblaði. Höfundur greinarinnar segir að tónlistin sé falleg og dulúðug og söngrödd Jóns Þórs Birgissonar líkist stundum hvalasöng. „Það er engu líkara en strákarnir sem standa að plötunni hafi vaknað upp í ævintýra-landi,“ segir hann ennfremur. Strákarnir dvelja löngum í Mosfellssveit þar sem þeir eru að smíða hljóðver. Græjurnar eru svo umfangsmiklar að það þurfti að taka þakið af húsinu til að koma þeim fyrir. Hljómsveitin ætlar að taka upp nýja breiðskífu þegar hljóðverið verður tilbúið. Sigur Rós fær hrós TERJE SØVIKNES áhrifamaður í Framfara-flokknum í Noregi hefur orðið að segja af sér öllum trúnaðarstörfum. Hann er sakaður um að hafa nauðgað sextán ára stúlku á landsfundi ungliða-hreyfingarinnar. Önnur ung kona greindi frá því á flokksfundi að sér hefði verið nauðgað. Hún vissi einnig um fleiri ungliða sem hefðu verið beittir kynferðislegu ofbeldi af flokksforystunni. Málið hefur vakið mikla athygli í Noregi og stórskaðað Framfaraflokkinn. Hann var fyrir skömmu stærsti flokkur landsins samkvæmt skoðana-könnunum. Ólifnaður innan flokks HOLLYWOOD-STJÖRNURNAR Tom Cruise og Nicole Kidman ætla að skilja. Þau eru eitt frægasta leikarapar í heimi og hafa þótt algjört draumapar. Þau segja ástæðu skilnaðarins vera langvarandi aðskilnað vegna mikillar vinnu. Kidman og Cruise kynntust við töku á kappaksturs-mynd árið 1990. Það var ást við fyrstu sýn og þau giftu sig á jóladag sama ár. Skilnaðurinn kemur mörgum á óvart. Hjónin eiga saman tvö börn sem þau ættleiddu. Stjörnur skilja Reuters Cruise og Kidman hamingjusök á Óskarsverðlauna-- hátíðinni í fyrra. BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR hefur verið kjörin formaður þingflokks Samfylkingarinnar. Bryndís er lögfræðingur að mennt og hefur setið á þingi í rúm fimm ár. Hún tekur við formennsku af Rannveigu Guðmundsdóttur. Formaður þingflokks Á MÁNUDAG lenti bandarískt geimfar á stjörnunni Eros. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem geimfar lendir á smástirni. Geimfarið hefur sent mikinn fjölda mynda af lendingunni sem vísindamenn á jörðu niðri hafa getað fylgst með. Þá hefur geimfarið gert mælingar, sem munu nýtast í geimferðum í framtíðinni. Geimfarinu var skotið upp fyrir fjórum árum. Það var þrjú ár á leiðinni, en síðan hefur það hringsólað um Eros. Lendingin var mjög vandasöm þar sem smástirnið er óreglulegt í laginu og geimfarið var ekki hannað til að lenda. Smástirnið Eros er nefnt eftir gríska ástarguðinum. Það er mjög lítið, rúmlega 30 kílómetrar á lengd. Lent á Eros Reuters Smástirnið Eros er óreglulegt að lögun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.