Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 4
DAGLEGT LÍF 4 D FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ SKÓR með krókódílanefi,sagði umboðsmaðurinngrafalvarlegur á svip. Oghann hafði alveg rétt fyrir sér, oddmjó táin bar dálítinn svip af krókódíl þótt hún minnti líka óneit- anlega á skóna sem mamma átti þeg- ar hún var ung og hefðu vafalaust reynst gott vopn hefði verið á hana ráðist. En eru krókódílar annars með nef? Sennilega trýni. En nóg um það. Skórnir voru fínir og reyndar allt of margt af því sem verið var að kynna af hausttískunni á tveimur risastórum innkaupasýningum í Kaupmannahöfn í byrjun febrúar. Tískufræðingarnir sögðu lúxusinn hafa haldið innreið sína að nýju og það kann vel að vera að þeir hafi haft rétt fyrir sér. Það var hins vegar ekki annað að sjá en gerviefnin hefðu einnig fest sig í sessi. Og liturinn næsta haust: Plómulitt, brún-fjólu- blár. Gráu fötunum er hins vegar best að koma fyrir niðri í geymslu. Það er ekki gott að vita hvar á að byrja eða enda þar sem hundruð fyr- irtækja sýna allt frá beltum og upp í sófa. Fatnaður var þó í fyrirrúmi, bæði á Kaupmannahafnartískustefn- unni, sem haldin er árlega í Bella Center, svo og á Kaupmannahafnar- sýningunni sem er í vaxandi sam- keppni við þá fyrrnefndu og er hald- in í gömlum kjötgeymslum á Vesturbrú, sem kallast Øksne- hallen. Einstaklingshyggjan ríkir Hátískan var fjarri góðu gamni á báðum sýningum. Fatnaðurinn sem til sýnis var er fjöldaframleidd- ur og verður á boðstólum í tísku- verslunum í haust. Innkaupastjórar af öllum stærðum og gerðum gengu um, reyndu að átta sig á því hvað hæst ber, uppgötva ný og spennandi merki og svo auðvitað að gera góð kaup. Verðandi viðskiptavinir prís- uðu sig sæla að ekki skyldi vera hægt að festa kaup á því sem fyrir augu bar. Annars væru þeir líklega á leið í skuldafangelsi. Það er huggun harmi gegn að margt af því sem sést hefur í verslunum í vetur lifir góðu lífi fram á næsta haust, svo sem kvartbuxur, skræpóttar blússur, að- sniðnar peysur og stígvél. Hönnuðirnir sem sýndu í Bella Center segja enga eina línu vera gefna, einstaklingshyggjan hafi náð Áprentaðar og gullhúðaðar gallabuxur eru það heitasta. En athugið að týna ekki ermunum. Ljósmynd/Katrín Ragnars Rautt og fjólublátt virðist algeng litasamsetning á kom- andi vetri, samkvæmt Kaupmannahafnarsýningunni, Copenhagen Vision í Øksnehallen. Peysur verða áberandi næsta haust og blágrænar ríkjandi. Plómur, Tvær feiknastórar sölu- sýningar á tísku næsta vetrar voru haldnar í Kaupmannahöfn fyrir skemmstu. Urður Gunnarsdóttir kíkti á fataslárnar og reyndi að átta sig á því sem koma skal. Brúnir litir koma sterkir inn og rúllukragapeysur henta öllum aldurshópum. Skór næsta vetrar eru tilbrigði við kunnuglegt stef. Því óvenjulegri sem hælarnir eru, því betra. Örþreytt básnum. H Toppurinn á fjöldaframleiðslunni gull og krókódíla yfirhöndinni, hugmyndaflugið ráði ekki aðeins kaupum á hverri og einni flík, heldur hvernig þær séu settar saman. Þeir tímar þegar hönnuðirnir ákváðu faldlengd, liti og form eru liðnir. En það er reyndar aðeins hálf- ur sannleikurinn, greinilegar áhersl- ur voru í litum, efni og sniði. Litur haustsins virðist eins og áð- ur segir vera plómulitur en ljós- brúnn var reyndar í harðri sam- keppni við hann. Gallaefni var að sjá í hverjum bás en oft lituð eða mynstruð, t.d. með mattri gyllingu. Gerviefnin virðast hafa hafið innreið sína fyrir fulla alvöru þótt ekki eigi lengur að sjást að ekki sé ekta vara á ferð. Yfirhöfn næsta vetrar verður gervimokkajakki og það getur reynst hægara sagt en gert að greina á milli gerviskinns og loð- skinns fyrir óreynda. Ekta loðfeldir og skinn eiga sér reyndar dygga stuðningsmenn og öf- ugt við gerviefnin, sem voru flest í náttúrulitunum, reyndist meirihluti skinnanna hafa lent í litapottum sem innihéldu pastelbleikt og blátt, knall- rautt og fagurgrænt. Fyrir þá sem óhræddir eru við gerviefni kynnti breskur hönnuður plastblússu sem virtist vera úr papp- ír og hörbuxur sem hann hafði plast- húðað. Finnskur hönnuður sýndi bómullarblússu í japönskum stíl sem skartaði glitrandi plastfilmu og þeg- ar að var gáð reyndust býsna margar peysur vera úr fyrrum bannefninu akrýl. Fatnaðurinn er fremur aðskorinn, nema einna helst buxurnar. Mynstr- in eru af ýmsum toga, oft breskar yf- irstéttarköflur sem blanda má sam- an við hvað sem menn kjósa. Ólíkir áratugir mætast Yfirhönnuður franska tískuhúss- ins Carlin, Svíinn Bengt Jacobsson, sagði lúxusinn hafa náð yfirhöndinni. Boðorðið væri kvenlegur og glæsi- legur fatnaður. Allar þægilegu Liturinn næsta haust: Plómuli brún-fjólublár Gráu fötunum hins vegar bes að koma fyrir niðri í geymslu Morgunblaðið/Urður Skór úr hrosshári með oddmjórri tá; eins konar krókó- dílanef.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.