Alþýðublaðið - 26.11.1972, Side 2
Konur fæddar undir
HRUTSMERKI,
21. marz—20. apríl.
Konur fæddar undir Hrúts-
merki eru harla viljasterkar,
kraftmiklar og oft skjótar til á-
kvaróana. Karlmenn laðast yfir-
leitt að þeim, þær eru oft ástriðu
heitar, hneigðar til ásta og hafa
þar mikiö að gel'a. Gáf'ur þeirra
og kraftur gerir þeim kleift að
hafa i fullu tré við karlmenn, ef
þvi er að skipta, eigi að siður eru
þær oft séðar til að sýna ráðriki,
en tekst oft að eggja karlmenn
með hrósi og jafnvel smjaöri.
Yfirleitt ganga þær samt hreint
til verks, vita hvað þær vilja og
hika ekki við að eiga sjálfar
frumkvæðið til að ná ástum þess
karlmanns, sem þær unna, ef
þess þarf með. Lifsfjör og lifs-
þorsta eiga þær i rikum mæli,
njóta þess að kynnast fólki og
eignast nýja vini, — jafnvel þótt
það verði á kostnað gamalla vina
og reyndra.
Þegar þær fara að svipast um
eítir eiginmanni, draga þær ekki
af sér við að krækja i þann, sem
þær leggja á annað borð hug á.
Þeim tekst það og oftast nær með
þvi að sannfæra viðkomandi um
að mikilhæfari eiginkonu og dá
samlegri móður sé ekki að finna á
hverju strái. Þær sanna að þær
séu bunar fágætum hæfileika til
að hlusta og að þær séu færar um
að axla að minnsta kosti sinn
hluta af byrðum hjónabands og
hjúskapar.
Flestar eru þær vel á sig komn-
ar likamlega, bera sig vel og eru
tignlegar i fasi. Þær eru flestar
snyrtilegar með afbrigðum,
smekklegar i klæðaburði og vel til
hafðar. Leynir sér ekki að þær
hafa fullan hug á að bera af öðrum
konum og að sjálfsvirðing þeirra
eykst að sama skapi og þeim er
auðsýnd aðdáun. Þegar þær eru
komnar i hjónabandið, annast
þær heimili sitt og fjölskyldu af
takmarkalausum dugnaði, stað-
ráðnar i að bera þar af öðrum,
eins og á annan hátt. Spara þær
hvorki lima né erfiði i þvi skyni
að heimilið megi verða sem
glæsilegast og heimilislifið ham-
ingjurikt.
Konum, læddum undir Hrúts-
merki, þykir flestum mjög vænt
um börn, þær eru yfirleitt góðar
mæður og ákefð þeirra og sivök-
ull áhugi gerir þeim kleift að
samstilla sig börnum sinum á öll-
um aldri. En þvi ber samt ekki aö
neita að meðfætt ráðriki þeirra
leiðir oft tii þess að þær haldi
helzt til fast i taumana við börn
sin og leyfi þeim ekki að taka sin-
ar eigin ákvarðanir og getur þetta
reynst óheppilegt uppeldi, eink-
um þegar börnin eru vaxin úr
grasi. Og vist er um það að slik er
oft skapgerð þeirra kvenna, sem
undir firútsmerki eru fæddar, að
ekki eru þær að hæfi hvaða karl-
manns sem er.
Hrútsmerkiskona og maður
fæddur undir
HRUTSMERKI,
21. marz—20. apríl.
Það gefur auga leið að skap-
hafnarsérkenni konu og karls,
sem bæði eru fædd undir þessu
stjórnunarmerki, eru slik að ekk-
ert er liklegra en að hjónaband
með þeim gæti orðið allt annað en
átakalaust. Hvorugt þeirra kærir
sig um að taka við fyrirskipunum
eða beygja sig undir vilja
annara og gæti þvi oröir litt um
samstarf i þvi hjónabandi. Bæði
mundu vilja ráða öllu á heimilinu
og taka allar ákvarðanir, hvort
um sig. Hrútsmerkingur mundi
ætlast til þess af hverri konu, sem
honum væri gift, að hún gerði
HRÚTSAAER
Stjörnuspekin spurð
áiits um sambúðina
vilja hans i einu og öllu, en væri
hún fædd undir hans eigin
stjörnumerki, mundi hún risa
gegn sliku ofriki og fara sinu
fram. Bæði eru stolt, báðum gefið
mikið sjálfstraust, bæði vilja-
sterk og skapbráð og þvi harla
liklegt að slá mundi i brýnu. Þess
ber þó að geta að þau eru bæði vel
gefin — i flestum tilvikum að
minnsta kosti — og bæði mjög
ástrik og ástriðuheit, svo ekki er
útilokað að hjónabandið gæti far-
ið sæmilega ef bæði gættu þess að
vægja og auðsýna hvort öðru til-
litssemi.
Hrútsmerkiskona og maður
fæddur undir
NAUTSMERKI,
21. april—20. maí.
Sá maður yrði að visu öllu
heppilegri eiginmaður handa
llrútsmerkiskonu að öllu jöfnu og
er þó liklegt að ekki yrði það
hjónaband átakalaust. Nauts-
merkingurinn kýs til dæmis helzt
að vera heima á kvöldin, en ólik-
legt er að slikt hugnaðist hinni
fjörmiklu og lifsþyrstu konu hans.
Það getur þó bætt úr skák, að
hann vill gjarna bjóða vinum
heim og taka þeim sem bezt og
það veitir henni tækifæri til að
sýna hvilik afburöa húsmóðir,
veitandi og gleðigjafi hún er.
Hann mundi verða örlátur eigin-
maður og undantekningalitið sjá
vel fyrir sinu heimili, en ekki er
samt vist að honum félli vel
eyðslusemi hennar. Hann hefur
ekki likt þvi slikan lifsþrótt og at-
lotaákefð sem hún og það er harla
sennilegt að henni finnist fátt um
viðbrögð hans, og teldi sig van-
rækta, þegar til lengdar léti. Ekki
þar fyrir, að hann getur unnað
heitt og af einlægni, en það er
samt óliklegt að hann geti full-
nægt ástriðuhita hennar. Og þó —
hjónabandið gæti orðið farsælt, ef
hún einsetti sér að sýna eigin-
manni sinum nokkurt umburðar-
lyndi, og þó einkum ef hún yrði
sér úti um áhugamál og störf, þar
sem hún fengi útrás umframorku
sinni.
Hrútsmerkiskona og maöur
fæddur undir
TVÍBURAMERKI,
21. mai—21. júni.
Karlmaður, fæddurundir þessu
merki hefur venjulega sterkt að-
dráttarafl á Hrútsmerkiskonu, og
oft verður hjónaband þeirra hið
farsælasta. Yfirleitt er hann
áhirfanæmur, og konu hans mun
þvi auðvelt að koma fram vilja
sinum. Hann er oft og tiðum mak-
ráður, hefur ekki neinar fast-
ákveðnar hugmyndir um
heimilishald eða fyrirkomulag á
heimili og mundi þvi láta hana
um að taka allar ákvarðanir. Hún
er yfirleitt góðum gáfum gædd og
getur þvi fullnægt þörf hans fyrir
rökræður, auk þess sem hún yrði
hrifin af mælsku hans og orðsnilli.
Hann er alltaf fús til að skemmta
sér innan vissra takmarka, eink-
um ef eitthvað æsilegt er þvi sam-
fara, og mundi það koma vel
heim við löngun hennar til að taka
þátt i glæsibrag samkvæmislifs-
ins. Ekki er ósennilegt að hann
gæti hrifist af öðrum konum, en
það yrði ekki nema snöggvast,
hin ástriðuheita kona hans mundi
kunna tökin á honum og sjá um að
hann þyrfti ekki til annarra að
leita. Hann hefur þörf fyrir þrótt-
mikla konu, sem haldið getur i
skefjum eirðarleysi hans og si-
breytilegu skapi. Ef bæði hefðu
fullan vilja og löngun til, gæti
hjónabandið orðið þeim báðum
hið ánægjulegasta.
Hrútsmerkiskona og maður
fæddur undir
KRABBAMERKI,
21. júní—20. júli.
Þessi maður er yfirleitt ekki
heppilegur eiginmaður Hrúts-
merkiskonu. Hann vill láta eigin-
konu sina dekra við sig og sýna
sér móðurlega umhyggju. Fálæti
hans og jafnvel þvergirðingur
mundi koma illa heim við þessa
lifsþyrstu og umsvifamiklu konu,
sem vill að eiginmaðurinn sé
metoröagjarn og fjörmikill.
Krabbamerkingurinn er oft og
tiðum smámunasamur, nákvæm-
ur og þrasgjarn, og ekki sjaldan
að hann ber eiginkonuna saman
við móður sina. Hinni stoltu konu
hans mundi að sjálfsögðu þykja
sér gróflega misboðið, þar eð hún
þolir alls ekki gagnrýni. Þar sem
hún sjálf er hreinskilin og opin-
ská, og um leið oft tillitslaus i
orði, en Krabbamerkingurinn
fljótur að móögast og viökvæmur,
og seinn að gleyma móðgunum,
sem hann telur sig hafa orðið fyr-
ir, þá er hætt við að það gæti
aldrei farið vel. En hann er yfir
leitt mjög svo trúr og traustur
eiginmaður, og virðir konu sina
mikils — það gæti bætt nokkuð úr
að visu, en aldrei svo að þess sé
von að slikt hjónaband yrði af-
farasælt.
Hrútsmerkiskona og maöur
fæddur undir
LJÓNSMERKI,
21. júlí—21. ágúst.
Það munar ekki miklu að
I.jónsmerkingurinn sé hinn alfull-
komni eiginmaður Hrútsmerkis-
konu til handa, þvi að bæði eru
stolt i skapi og bæði hneigð fyrir
þátttöku i samkvæmislifi, auk
þess sem hann er oft ákafur i ást-
um. og litur upp til þeirrar konu
sem hann ann. Glæsileiki hennar
mundi hafa mikil áhrif á hann og
hann væri líklegur til að færa
henni skartgripi og aðrar dýrar
gjafir — jafnvel dýrari en hann
hefði i rauninni efni á — til að
sannfæra hana um ást sina. Hann
temur sér oft tigullega fram-
komu, litur tiðum stórt á sig, og
hún mun sóma sér sem drottning
við hliö honum. Hún mundi og búa
honum glæsilegasta heimili, og
þótt hún sjái að þýðingarlaust sé
með öllu að freista að sveigja
hann undir vilja sinn, hittir hún
eflaust einhver ráð til að fá þvi
framgengt, sem hún vill. Bæði
eru skapbráð og geta verið hvass-
yrt i orðasennum, en báðum
rennur lika fljótt reiðin og hvor-
ugt erfir slikt eftir á. Ljónsmerk
ingurinn er þvi fyrir flestra hluta
sakir vel til þess gerður að kvæn-
ast Hrútsmerkiskonu, og allt
hendir til að hjónaband þeirra
geti orðið hamingjusamt.
Hrútsmerkiskona og maður
fæddur undir
MEYJARMERKI,
22. ágúst—22. september.
Venjulega hefur hann ekki sér-
legt aðdráttarafl á Hrútsmerkis-
konu, þar sem skaphöfn þeirra er
svo gerólik, sem hugsast getur.
Meymerkingurinn er allt of sér-
sinna til þess að geta verið sá
ástriðuheiti elskhugi, sem slik
kona þarfnast. Hann vill að allt sé
fullkomið og á erfitt með að sætta
sig gagnrýnislaust við galla sem
hann taldi sig finna i fasi hennar,
hversu smámunalegir, sem þeir
svo kynnu að vera. Hann er raun-
sær og sparsamur og mundi þvi
ekki fella sig við örlæti hennar og
hve gjarnt henni er að sjást ekki
fyrir i peningasökum. Hann á það
til að vera haldinn ofstæki i sam-
bandi við matarræði og heilbrigt
liferni og mundi vafalaust telja
sér skylt að snúa henni til sömu
„trúar”. Hann nýtur þess að sitja
heima við lestur á kvöldin, hún
kýs heldur glit og glaum sam-
kvæmislifsins. Dirfska hennar og
ævintýraþrá er alger andstæða
við gætni hans, sem metur örygg-
ið mest. Það skal þurfa tök til að
hjónaband svo gerólikra aðila
geti orðið hamingjusamt.
Hrútsmerkiskona og maður
fæddur undir
VOGARMERKI,
23. sept.—22. okt.
Enda þótt hann sé einnig alló-
likur henni að skapgerð, eru þau
dæmi um að hið ólika getur búið
yfir gagnkvæmu aðdráttarafli —
MD ER HÆGT AD TRYGGJA SIG
GEGN HVERJU SEM ER - HÉR UM BIL
Það er hægt að tryggja sig fyrir
nærri hverju sem er. Nema sölu-
mönnum tryggingafélaga. t Eng-
landi er t.d. hægt að tryggja sig
gegn þvi , að maður missi öku-
skirteinið vegna ölvunar við
akstur.
Enska tryggingafélagið, sem
tekið hefur slikar tryggingar að
sér, þurfti á s.l. ári að láta u.þ.b.
300 ökumönnum i té einkabil-
stjóra. Ekkert islenzkt trygginga-
félag myndi þó fást til þess að
selja slika tryggingu, en sum
þeirra munu hafa umboð fyrir er-
lend tryggingafélög svo það er
e.t.v. hægt að reyna.
Frægasta tryggingafélag heims
er án efa Lloyds i London. sem
hefur útibú og umboðsskrifstofur
viða um heim. Það tryggingafé-
lag tryggir svo til allt gegn svo til
öllu. Trygging á fögrum fótleggj-
um og verklegum brjóstum er
daglegt brauð, eða þvi sem næst,
hjá þvi fyrirtæki.
Hvernig á að tryggja si g
gegn þvi að eignast tvibura? For-
stjóri umboðsskrifstofunnar i
Danmörku lýsir þvi svo.
— Það er ekki hægt að taka
slika tryggingu ef móðirin er
komin meira en þrjá mánuði á
leið. Ef ekki er tilhneiging til tvi-
burafæðinga i fjölskyldu hennar
kostar trygging, sem kveður á um
greiðslu 5000 d.kr. ef tviburar
fæðast, aðeins 15 d.krónur, — eða
þrjá af þúsundi. En ef tilhneiging
er til tviburafæðingar i fjölskyld-
unni, þá getur tryggingin kostað
allt upp i 10 þúsundustu hluta
tryggingaupphæðarinnar. Danski
umboðsmaðurinn segir enn frem-
ur að umboðsskrifstofan selji
nokkrar slikar tryggingar árlega,
en hún auglýsi þær ekki og hvetji
fölk ekki til að taka sér slika
tryggingu.
En er hægt að tryggja sig gegn
þvi, að verða faðir. Nei. Ekkert
tryggingafélag mun selja slika
tryggingu svo vitað sé til. Það er
hægt að kaupa liftryggingu fyrir
hundinn sinn og köttinn, tryggja
rödd sina, nef eða fætur, tryggja
sig fyrir að koma of seint á
stefnumót vegna veðurs eða gegn
þvi að eignast tvibura, — en ekki
gegn þvi að verða faðir. Þá
áhættu vill vist ekkert trygginga-
félag taka.
Lloyds i London var eitt sinn
beðið um það af rigfullorðnum
manni, sem var nýbúinn að kvæn-
ast ungri og fallegri stúlku, aö
tryggja hann gegn þvi, að konan
héldi framhjá. Vildi eiginmaður-
inn, að ef svo færi, þá greiddi
tryggingafé1agið hon-
um ákveðna upphæð og spurði:
Hvað kostar tryggingin. Hún
kostar ekki neitt, sagði starfs-
maðurinn hjá Lloyds, þvi slika
tryggingu viljum við ekki selja
0
Sunnudagur 26. nóvember 1972