Alþýðublaðið - 26.11.1972, Síða 3
KIÐ
KONA
og hjónaband með þeim aðilum
getur orðið hamingjusamt. Þar
getur a,ð sjálfsögðu orðið um ýmis
torleyst vandamál að ræða, en
það ætti þó að takast, ef einlægur
vilji beggja er fyrir hendi. Vogar-
merkingurinn vill athuga sér-
hvert vandamál frá öllum hlið-
um, henni hættir við að láta hug-
boð eða skyndihugdettu ráða
ákvörðunum sinum. Aftur á móti
getur það hæglega dottið i hann
að vilja tefla djarft i peningamál-
um. Sennilega yrði hann um of
eftirlátur við börnin ef til kæmi.
Honum mundi mjög á móti skapi
að aga þau eða gagnrýna, mundi
heldur vilja verða þeim einlægur
og ráðhollur vinur. Ekki er ó-
sennilegt að hinni ráðriku og
ástriðuheitu Hrútsmerkiskonu
þætti meira en nóg um hvernig
aðrar konur drægjust að honum,
og eins þótt hann reynist henni at-
lotaheitur elskandi og geti veitt
henni fullnægjandi svörun. Og
yfirleitt er hann lika trúr eigin-
maður, enda þótt hann sé hylli
kvenna ekki frábitinn, þegar svo
ber undir.
Hrútsmerkiskona og maöur
fæddur undir
DREKAMERKI,
23. okt.—22. nóv.
Það væri harla óhyggilegt af
Hrústmerkiskonu að kjósa sér
eiginmann, fæddan undir Dreka-
merki, enda þótt hún kunni að
laðast að honum fyrst i stað.
Hann getur verið ástriðuheitur,
jafnvel úr hófi, en um leið eigin-
gjarn, ráðrikur og afbrýðisamur,
og mundi krefjast þess að eigin-
konan helgaði sig honum einvörð-
ungu og i öllum skilningi. Sjálf-
stæðishneigð hennar er hinsvegar
svo rik, að hún mundi aldrei
verða við þeim kröfum hans.
Vegna skaprikis sins mundi hann
vilja stjórna heimili sinu með
járnaga en Hrútsmerkiskona
mundi risa gegn sliku athæfi og
ekki spara álit sitt. Vegna þess
hve hreinskilin hún er að eðlisfari
og opinská mundi henni verða
örðugt að átta sig á tortryggni
hans og hneigð til að vefja öll mál
leynd, fremur en að ræða þau af
einlægni. f fáum orðum sagt —
það mætti merkilegt heita ef slikt
hjónaband yrði hamingjusamt.
Hrútsmerkiskona og maöur
fæddur undir
BOGAMANNSMERKI,
23. nóv.—20. des.
Sennilega yrði Bogmaður
áskjósanlegastur eiginmaður
Hrútsmerkiskonu til handa, þar
sem hans skaphöfn er um margt
lik hennar — en þó ekki um of.
Eins og hún, þá kærir hann sig
ekki um að honum sé skipað fyrir
verkum, en vill njóta fyllsta frels-
is og telur það þvi ekki nema
sjálfsagt að eins sé um eiginkon-
una. Hún mundi þvi fá að vera
sjálfráð um stjórn heimilisins,
hvernig hún skipulegði allt þar
innanstokks og eins hvernig hún
eyddi þeim peningum sem hún
hefði yfir að ráða. Fjármála-
dirfska og fjárhættuspilaraskap-
gerð Bogamannsins kynnu að
valda henni nokkurri gremju
vegna raunhyggju hennar.en hún
mundi þó sýna honum umburðar-
lyndi, svo fremi sem hann færi
þar ekki yfir viss takmörk. Hann
er yfirleitt glaðsinna og hefur
mikla ánægju af að lyfta sér upp,
heimiliskær getur hann ekki bein-
linis talizt. Þar sem hann er mjög
ástrikur og þrátt fyrir glaðværð
sina trúr eiginmaður yfirleitt, en
hún yfirleitt laus við alla smá-
munasemi og getur verið tillits-
söm, ef hún vilí það við hafa, þá
bendir allt til þess að hjónaband
þeirra geti orðið hið ánægjuleg-
asta.
Hrútsmerkiskona og maður
fæddur undir
STEINGEITARMERKI,
21. des.—19. janúar.
Karlmaður undir þessu merki
fæddur, er oft á tiðum eigingjarn,
sjálfumgla.ur og ráðrikur heima
fyrir — mundi til dæmis vilja ráða
heimilishaldinu i einu og öllu.
Vafalaust mundi hún risa kröft-
uglega gegn sliku ofriki, til dæmis
neita þvi algerlega að láta hann
ráða nokkru um klæðaval hennar.
Þá mundi hann vilja hafa öll fjár-
mál heimilisins algerlega i sinum
höndum og skammta henni
naumt. Honum er stöðugt fram-
tiðaröryggið efst i huga, að spara
fyrir hið ókomna, og hann mundi
þvi ekki liða eiginkonunni neitt
peningabruðl. Þó að hann eigi til
bæði ástriki og ástriður, stillir
hann söllu sliku i hóf, og yrði
harla ólikur konu sinni hvað það
snerti. Enda er það vægast sagt
harla óliklegt, að hún nyti nokk-
urrar teljandi hamingju i hjóna-
bandi við mann, fæddan undir
þessu stjörnumerki.
Hrútsmerkiskona og maður
fæddur undir
VATNSBERAMERKI,
20. janúar—18. febrúar.
Hann er ástrikur og tillitssam-
ur eiginmaður, og eflaust ættu
þau að mörgu leyti vel saman.
Hann hefur gaman af að koma
innan um fólk og skemmta sér, og
hann mundi láta eiginkonuna ein-
ráða um heimilishaldið og vera
þvi feginn að þurfa ekki að hafa
neinar áhyggjur af þvi. Enda þótt
Vatnsberinn sé, eins og áður er
sagt, ástrikur eiginmaður, er
hætt við að Hrútsmerkiskonan
mundi finna það helzt að honum
sem sllkum, að hann gæfi ástrið-
um sinum ekki nógu lausan taum-
inn, þar vill hún yfirleitt ekkert
taumhald á tilfinningunum hafa.
Liklegt er þó að henni mundi tak-
ast að espa svo atlota funa hans,
að jafnvel henni þætti nógu heitt
áður en lyki, og væri hún hyggin
mundi hún stilla nokkuð við hóf
kröfum sinum. Og þar sem
Vatnsberinn er hvorki gagnrýn-
inn að eðlisfari né smámunasam-
ur, getur hann verið hinn
skemmtilegasti lifsförunaútur.
Hrútsmerkiskona og maður
fæddur undir
FISKAMERKI,
19. febrúar—20 marz.
Ekki er það óliklegt að hann
yrði viðkvæmur um of, Fiska-
maðurinn, og of háður henni til
þess að hún gæti virt hann og dáð.
Auk þess yrði hann alltaf háður
henni um of til þess. Ást hans er
einlæg og heit, en samt sem áður
er óliklegt að hann mundi full-
nægja ástriðuhita hennar. Hann
setur fullkomnun öllu ofar, og
mundi verða fyrir miklum von-
brigðum ef hann kæmist að ein-
hverjum brestum i fari hennar
eða framkomu, og gæti þá jafnvel
gerst henni frábitinn. Það er hætt
við að hún yrði þvi að leggja
nokkurt haft á hreinskilni sina og
heldur óvarlegt orðalag, ef hún
ætti að komast hjá að særa hinn
tilfinninganæma eiginmann sinn.
Þess ber þó aö gæta, að hin skap-
meiri og viljasterkari Fiska-
manngerð kann betri stjórn á til-
finningum sinum og mundi geta
reynst henni góður og að mörgu
leyti heppilegur eiginmaður.
NÆST:
KARL í
HRÚTS-
MERKI
Sú nýgifta, hin unga og fallega
kona, gerði sér þá litið fyrir og
stefndi tryggingafélaginu. Hvers
vegna? Vegna þess að hún taldi
neitunin grófa móðgun við sið-
gæði sitt. Neitunin fæli það i sér,
að tryggingafélagið teldi, að hún
myndi örugglega halda framhjá
kalli sinum fyrr eða seinna. En
þótt siðgæði eiginkvenna fáist
ekki tryggt eru þúsundir annarra
hluta, atvika og fyrirbæra, sem
hægt er að tryggja sig gegn. Þú
getur t.d. kéypt þér tryggingu
(a.m.k. erlendis ) sem borgar
brennivinið ofan i kunningjana ef
þú verður svo lánsamur að slá
holu i höggi i golfi. Og golfklúbb-
urinn þinn getur einnig keypt sér
tryggingu i sama tilfelli þannig að
hann geti boðið þér og kunningj-
unum einn gráan næsta dag á
eftir.
Og það nýjasta nýja á þess-
um tima flugrána, — þú getur
keypt þér tryggingu gegn þvi að
þér verði rænt innan eða utan
flugvélar.
verður haldinn þriðjudaginn 28. nóvember
1972 kl. 8.30 e.h. i Félagsheimili Kópavogs.
Dagskrá
1. Félagsmál.
2. Fréttir frá MSl og ASÍ þingum.
3. önnur mál.Mætið vel.
STJÓRNIN.
FWA JFJLUGFE.LÆGI1WU
Skrifstofustarf
Karlmaður óskast til starfa i bókhalds-
deild félagsins.
Umsóknareyðublöðum, sem fást i skrif-
stofum félagsins sé skilað til starfs-
mannahalds fyrir 4. desember.
FLUCFÉLAG ÍSLANDS
Fríki rkjusöf nuðuri nn
í Reykjavík
í veikindaforföllum séra Þorsteins Björns-
sonar gegnir séra Páll Pálsson allri al-
mennri prestsþjónustu fyrir söfnuðinn.
Viðtalstimi prestsins er i Frikirkjunni alla
virka daga nema laugardaga kl. 5-6, simi
14579. Heimasimi 13795.
Safnaðarstjórinn.
LOKAÐ
Vegna jarðarfarar verða skrifstofur
okkar og verzlun lokaðar mánudaginn 27.
þ.m. kl. 1-4.
GLOBUSH/F
Það er meira að segja hægt að tryggja sig gegn
þvi að eignast tvibura!
Menntaskólann
við Hamrahlíð
vantar stundkennara i eðlis- og efnafræði
og liffræði á næsta kennslutimabili, en
það hefst 13. janúar 1973.
Nánari vitneskju veitir Guðmundur Arn-
laugsson.
Sunnudagur 26. nóvember 1972
o