Morgunblaðið - 11.03.2001, Side 2
FERÐALÖG
2 C SUNNUDAGUR 11. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hvaðan ertu að koma?
Úr þriggja vikna ferð frá Pattaya-
ströndinni í Tælandi sem er í
rúmlega tveggja tíma akst-
ursfjarlægð frá höfuðborginni
Bangkok.
Með hverjum fórstu?
Ég fór með vinkonu minni, Jónínu Þorsteinsdóttur.
Einhver sérstök ástæða fyrir ferðinni?
Engin ein en efst fjölmargra var þó að komast á golfvellina þar í
landi. Þeir eru frábærir, þeir bestu sem ég hef kynnst í heiminum, og
ég hef komið víða. Við lékum samtals á átta golfvöllum enda hafði
fararstjóri Samvinnuferða-Landsýnar það að leiðarljósi að kynna
þátttakendum hina skemmtilegu fjölbreytni vallanna. Við spiluðum
golf fjóra daga á viku, frí um helgar og á miðvikudögum.
Hefurðu komið til Tælands áður?
Þetta var í þriðja sinn. Ástæða þess að við förum aftur og aftur er
fyrst og fremst umhverfið og einstaklega ljúft og elskulegt viðmót
innfæddra, sem bræðir og mýkir á manni „úthverfuna“ í bráðnauð-
synlegu mannbótarskyni.
Mælirðu með einhverjum veitingastöðum?
Það er mergð af góðum veitingastöðum í Tælandi. Við borðum iðu-
lega á litlum stöðum sem eru nafnlausir fyrir mér því það má eig-
inlega segja að maður renni á lyktina, þar sem úrval tælenskra, víet-
namskra, kóreanskra og asískra rétta er á boðstólum. Fjöldi slíkra
staða var í göngufæri við hótelið okkar, t.d. Mai Kai, sem er pólýnes-
ískur veitingastaður, og þar er hægt að fá ódýrar máltíðir m.a. pek-
ingönd. Rétt hjá er annar staður sem heitir „pIc“ kitchen en þar er
einstaklega gaman að borða að tælenskum sið sitjandi á hækjum
sér við lág borð og njóta rétta frá norðurhluta Tælands. Það er allt
gott um þennan stað að segja fyrir utan að það getur verið lýjandi að
borða með krosslagða fætur þegar maður er kominn á okkar aldur.
Á hvaða hóteli varstu?
Það heitir Montien og er í dýrari kantinum en öll þjónusta er fyrsta
flokks. Öll herbergi snúa til strandarinnar og þar er mikið bátalíf.
Stutt er á breiðgötuna, Fyrsta stræti.
Til að komast ferða sinna eru iðulega notaðir svokallaðir baht-bílar
en það eru opnir lágpallsbílar. Í hvern bíl komast vel fyrir tólf manns
en þetta er ódýr og góður ferðamáti.
Einhverjir staðir sem vert er að heimsækja?
Í Pattaya eru tígra- og fílagarðar sem gaman er að skoða. Þá er höf-
uðborgin Bangkok einstök og allir falla í stafi yfir styttunni af Buddha
í „hvíldarstellingunni“ og glæsileik musteranna og ekki síst kon-
ungshallarinnar. Bangkok er nánast „fljótandi“ með aragrúa fljótandi
markaða seljandi allt milli himins og jarðar. Mergðin er mikil í Taí-
landi en andrúmsloftið slíkt að menn finna sig örugga og alls
óhrædda við að vera á ferli jafnt á nóttu sem degi.
Skemmtilegasta fríið sem þú hefur farið í?
Þetta frí var það langbesta en jafnmögulegt að næsta Taílandsfrí
verði enn betra.
Var á Taílandi
að spila golf
Sigurður Þ. Guð-
mundsson læknir er
nýkominn úr þriggja
vikna ferð frá Taílandi
þar sem hann naut
þess m.a. að leika
golf á völlum sem
hann segir þá bestu
sem hann hefur
leikið á.
Hvaðan ertu að koma?
V ETUR konungur ræður núríkjum í Noregi og skíðafæriðer víða frábært. Í landinu er
sterk hefð fyrir skíðaíþróttinni enda
liggur við að Norðmenn læri á skíð-
um áður en þeir læra að ganga. Það
er því ekki að undra að þar sé að
finna stór og fjölbreytileg skíða-
svæði og er eitt það besta og
stærsta við bæinn Lillehammer sem
er suður af Ósló. Guðbrandsdalur-
inn við Lillehammer hefur allt frá
aldamótunum 1900 verið þekkt úti-
vistarsvæði meðal Norðmanna.
Þangað hafa listamenn sótt inn-
blástur um aldirnar enda svæðið
einkar stórbrotið í þröngum dalnum
og landslagið fagurt. Þar er að finna
fjögur aðalskíðasvæði; Hafjellet
sem hér verður fjallað um, Skei,
Gala og Kvitfjell sem var sérstak-
lega byggt upp er ákveðið var að
halda Vetrarólympíuleikana í
Lillehammer árið 1994. Þá varð
svæðið heimsþekkt sem skíðaparad-
ís og allar götur síðan hefur það not-
ið mikilla vinsælda sem slíkt.
Skíðaíþróttin er fjölskylduíþrótt
og er öll aðstaða við Hafjellet miðuð
við það. Þar er að finna brekkur sem
eru sniðnar fyrir byrjendur jafnt
sem lengra komna og eru börnin
boðin sérstaklega velkomin og öll
aðstaða fyrir þau til fyrirmyndar.
Skíðaskóli fyrir þá sem vilja
Við Hafjellet er rekinn skíðaskóli
fyrir þá sem vilja hafa kennara sér
við hlið þegar fyrstu sporin eru tek-
in á skíðunum eða snjóbrettinu en
einnig þegar ákveðinni grunnhæfni
hefur verið náð. Hægt er að kaupa
bæði einkatíma og hóptíma og kost-
ar fyrsti tíminn (um 45 mín.) 3.000
krónur á mann en ef 2 eða fleiri taka
tíma saman kostar hann um 1.500–
2.000 krónur. Hægt er að læra á
hvers kyns skíðum, t.d. gönguskíð-
um, telemarkskíðum, svigskíðum og
snjóbrettum. Börn á aldrinum 4–6
ára geta svo skráð sig í Tröllaklúbb-
inn þar sem kennsla og leikur fara
saman á afmörkuðu barnasvæði
undir leiðsögn skíðakennara.
Allt að 14.000
skíðaiðkendur í einu
Í Hafjellet hafa allar 13 brekk-
urnar verið opnar í vetur en svæðið
er opið til enda apríl. Samtals eru
brekkurnar um 25 km að lengd og
er sú lengsta um 5 km. Svæðið ann-
ar tæplega 14 þúsund skíðaiðkend-
um í einu þó að fjöldinn sé sjaldnast
svo mikill. Langar biðraðir við lyft-
ur heyra því til undantekninga enda
sjá starfsmenn svæðisins um að all-
ar lyftur séu fullnýttar á háannatím-
um. Fjölbreytileikinn í brekkunum
er mikill og allir geta fundið brekku
við sitt hæfi. Veðurblíðan í Lille-
hammer er mikil, að vísu getur
frostið bitið í kinnarnar þegar verst
lætur, en vart hreyfir þar vind, enda
umhverfi skíðabrautanna vaxið
háum barrtrjám, og þegar sólin skín
um hávetur verður upplifunin stór-
kostleg. Þegar greinarhöfundur var
á Hafjellet á dögunum var þoka
neðst á svæðinu. Eftir að hafa tekið
hverja lyftuna á fætur annarri upp á
Þar sem tröllin tr
niður brautirn
Lillehammer í Noregi er sann-
kölluð paradís skíðamannsins.
Sunna Ósk Logadóttir fetaði í
skíðaför meistaranna sem renndu
sér niður brekkur Hafjellet á Vetr-
arólympíuleikunum árið 1994.
Gist var í litlum fjallakofa
Í Hafjellet hafa allar 13 brekkurnar verið opnar í vetur en svæðið er opið til
25 km að lengd og er sú lengsta um 5 km
Allir geta fundið brekku við sitt hæfi í Hafjellet í Guðbrandsdal við Lilleh
EVRÓPA
FERÐAVEFUR SKELJUNGS
Á heimasíðu Skeljungs, www.shell.is,
er að finna tengilinn „ShellGeostar“ en
með því að smella á hann er komið inn
á ferðavef sem er sérstaklega hann-
aður fyrir þá sem hyggja á ferðalög um
Evrópu og vilja panta gistingu, skoða
hvaða staðir eru á leiðinni, hversu lang-
an tíma tekur að keyra á milli staða
o.s.frv. Í fréttatilkynningu segir jafn-
framt að á vefnum sé hægt að fá upp-
lýsingar um veitingastaði og panta
ferðabækur, kort og tónlist til að taka
með sér í fríið. Á vefnum er einnig að
finna nákvæmt vegakort af Evrópu.
Hægt er að skoða vefinn á sex mismun-
andi tungumálum; ensku, þýsku,
frönsku, dönsku, sænsku og hol-
lensku.
ÍSLAND
KYNNINGARFUNDUR Á
FERÐUM GÖNGU-HRÓLFS
Í dag, 11. mars, klukkan 15 verður
haldinn kynningarfundur á ferðum
Göngu-Hrólfs í sumar. Fundurinn er
haldinn á Grand hóteli.
Göngu-Hrólfur er gönguklúbbur sem
stofnaður var í samvinnu við Úrval-
Útsýn fyrir þremur árum. Klúbburinn
býður upp á skipulagðar gönguferðir til
ýmissa staða á erlendri grund eins og
til Mallorca, Toscana, Krítar og fleiri
staða.
ÍSLAND
GRÆNLENSKIR DAGAR
Grænlenskir dagar verða í Hafnarfirði
frá 15. mars til 1. apríl. Í fréttatilkynn-
ingu segir að tilgangur grænlensku dag-
anna sé að efla enn frekar samstarf
sem hefur verið að þróast, ekki síst
með tilkomu Vestnorræna gisti- og
menningarhússins við Fjörukrána. Á
grænlensku dögunum verður græn-
lensk menningu kynnt, t.d. matarhefðir,
tónlist, myndlist og fjölbreytt handverk
svo eitthvað sé nefnt. Grænlenskir dag-
ar verða í hverri viku frá fimmtudegi til
sunnudags með fjölbreyttri dagskrá.
Sérstakt upplýsingahorn um Grænland
verður í Vestnorræna gisti - og menning-
arhúsinu og þar verður Benedikta Thor-
steinsson með upplýsingar um allt
hvað eina sem lýtur að Grænlandi. Nán-
ari upplýsingar er að finna hjá Fjöru-
kránni í síma: 565-1213.
SUÐUR-SPÁNN
GOLFFERÐ
Þann 4. til 11. apríl verður farin golfferð
til Novo Sancti Petri, sem er rétt við
borgina Cadiz í Andalúsíu á Suður-
Spáni, á vegum Samvinnuferða-
Landsýnar.
Gist verður á Hotel Tryp Costa Golf sem
er fjögurra stjörnu gisting. Novo Sancti
Petri-golfvöllurinn er skammt frá hót-