Morgunblaðið - 11.03.2001, Page 4
Bílaleigubílar
Sumarhús
í Danmörku
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga
Vikugjald 3ja vikna
gjald
Opel Corsa dkr. 1.645 dkr. 3.995
Opel Astra dkr. 1.845 dkr. 4.495
Opel Astra Station dkr. 1.995 dkr. 4.995
Ford Mondeo dkr. 2.195 dkr. 6.295
Opel Zafira,
6-7 manna dkr. 2.995
Fáið nánari verðtilboð
Til afgreiðslu m.a. á Kastrup-
og Billund flugvellir
Innifalið í verði ótakmarkaður akstur og
tryggingar. (Allt nema bensín).
Aðrir litlir og stórir bílar,
minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Fáið sendan nýjasta verðlistann.
Útvegum sumarhús, íbúðir og
bændagistingu. Höfum íbúðir til
leigu í orlofshverfum með
skiptidögum samkvæmt
samkomulagi, s.s. Lalandia,
Dansk folkeferie og
DanskeFeriecentre.
Margar stærðir íbúða.
Húsbílar
Fáið nánari upplýsingar.
Heimasíða
Á heimasíðu má velja sumarhús og
orlofsíbúðir, panta bílaleigubíl og fá
fjölbreyttar upplýsingar.
Skoðið www.fylkir.is
Fylkir Ágústsson
Fylkir — Bílaleiga ehf.
sími 456 3745
netfang fylkirag@snerpa.is
heimasíða www.fylkir.is
FERÐALÖG
4 C SUNNUDAGUR 11. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐASKRIFSTOFAN Sól hefur
nýverið skrifað undir 3 ára samn-
ing við nýja hótelið Paraiso de
Albufeira í Algarve í Portúgal.
Ferðaskrifstofan er jafnframt önn-
ur tveggja ferðaskrifstofa í heim-
inum sem er með samning við hót-
elið, hitt er fyrirtækið JMC í
Bretlandi. Jóhann Óli Guðmunds-
son, stjórnarformaður Sólar, segir
að hér sé um glæsihótel að ræða.
„Hótelið er mikilfenglegt, móttak-
an stór og íbúðirnar, sem eru 450
talsins, eru allar innréttaðar með
vönduðum húsgögnum. Þá er þjón-
ustan fyrsta flokks og það má segja
að með opnun hótelsins þann 25.
febrúar síðastliðinn gefist almenn-
ingi kostur á að dvelja á glæsihót-
eli á lágu verði,“ segir Jóhann Óli.
Sól gerði 3 ára
samning
Semja við nýja hótelið Paraiso de Albufeira
FERÐIR ætlaðar Íslendingum
bjóðast nú í fyrsta sinn í sumar um
Arnarvatnsheiði og nágrenni með
Arinbirni Jóhannssyni ferðaþjón-
ustubónda á Brekkulæk í Miðfirði
en hingað til hefur hann að mestu
sinnt erlendum ferðamönnum.
Arngrímur segir að í flestum til-
fellum sé um að ræða nokkurra
daga gönguferðir þar sem gisting
og fullt fæði er innifalið í verði.
„Ferðirnar hafa verið vinsælar
undanfarin 14 ár meðal útlendinga
en nú er um að gera er að leyfa
Íslendingum að njóta líka vel gró-
ins hálendissvæðis og fjölbreytts
dýralífs.“
Meðal nýjunga nefnir Arinbjörn
ferð að nýbyggðum skála Ferða-
málafélags Vestur-Húnvetninga
sem er staðsettur við Hveraborg á
Hrútafjarðarhálsi. Skálinn stendur
á háhitasvæði og eru heitir pottar
(skessukatlar) í síkánni sem renn-
ur rétt neðan skálans. Þar geta
gestir baðað sig í pottunum en ann-
ar þeirra er af náttúrunnar hendi
en hinn manngerður.
Veiðiferðir og ganga
Þá býður Arinbjörn einnig upp á
veiði og göngu um Arnarvatnsheiði
og Tvídægru sem er eitt stærsta
votlendissvæði heims, að sögn Ar-
inbjarnar. Á heiðinni eru fjölmörg
veiðivötn, tjarnir og straumvötn og
gnægt fiskjar. Stærsta varpland
himbrima í Evrópu er á þessum
slóðum, refur og minkur eiga þar
sín heimkynni, auk þess sem
göngumenn hitta af og til hross og
kindur á beit í friðsæld fjallanna.
Göngu- og veiðiferðir um Arnarvatnsheiði
Njóta á vel gróins
hálendis og dýralífs
Í sumar bjóðast ferðir fyrir Íslendinga á vegum Arinbjarnar Jó-
hannssonar um Arnarvatnsheiði og nágrenni.
Undirbúningur
þessarar seinni
Id-hátíðar er
ekki síst mik-
ilvægur að því
mér skilst, allar
svartklæddu kon-
urnar komu fram
og allar virtust
vera að kaupa
sér sápu eða ilm-
vatn og öll börn virtust í þann
veginn að eignast nýja skó.
Það varð ekki þverfótað í
gömlu Sanaa því einhverra hluta
vegna komu allir þangað í stað-
inn fyrir að fara á finu göturnar
sem vissulega eru til hér í bæ.
Svo þegar allir höfðu keypt
nægju sína hurfu þeir til síns
heima og næstu daga sást varla
hræða á ferli.
En úr öllum húsum barst
lambakjötsilmur því á þessari há-
tíð borða allir lambakjöt. Þessi
hátíð er til að minnast þess þegar
guð skipaði Abraham að fórna
sér syni sínum Ismail en hlífði
honum síðan og sagði honum að
fórna lambi í staðinn.
Allir virtust eiga
pening til innkaupa
Það var ekki laust við að erfitt
væri að trúa því að 3,5 milljónir
Jemena lifi undir fátæktar-
mörkum og 6 milljónir til við-
bótar búi við sára fátækt þegar
fylgst var með
fjálglegum inn-
kaupunum. En á
þessari hátíð er
raunar líka siður
að þeir sem
minna eiga eru
teknir í tíma-
bundið fóstur
hjá efnameiri
fjölskyldu sem
gefur þeim peninga svo fjöl-
skyldan geti keypt inn það helsta
sem nauðsynlegt er til að allir
geti átt góða og gleðilega Id-
hátíð.
Það þarf ekki að spyrja að því:
auðvitað var frí í skólanum hjá
mér og sem betur fer áttu bygg-
ingarmenn líka frí, það er nefni-
lega verið að byggja eina hæð til
viðbótar ofan á skólann minn.
Þar hafa verkamenn verið svo
önnum kafnir að þeir hafa ekki
einu sinni fengið frí á föstudög-
um svo það hefur verið ógerning-
ur fyrir okkur á kvennavistinni
að sofa lengur en til rúmlega
hálfsex á morgnana því þá eru
byggingarmenn komnir á stjá.
Fyrir nokkru tók ég svo næsta
stigs próf í arabísku, meira upp á
grín en það gekk svona öldungis
bærilega og þar með er ég komin
upp á næstu hæð í tungumálinu.
Sú hæð er á hinn bóginn svo und-
arleg að enn sem komið er vafra
ég um í villu og svíma.
DAGBÓK FRÁ SANAA
Sautjándi
júní eða
Þorláksmessa
Það hefur verið haldin Id-hátíðin seinni þessa viku og
umferðin í Sanaa hefur verið eins og á sautjánda júní,
skrifar Jóhanna Kristjónsdóttir. Eftir undirbúninginn
allan skall á þvílík þögn og kyrrð að það var eins og
enginn væri neins staðar.