Morgunblaðið - 16.03.2001, Síða 1
Binoche
í Súkkulaði
Í dag frumsýnir Regnboginn mynd-
ina Súkkulaði eða Chocolat sem
sænski leikstjórinn Lasse Hallström
gerði í Bandaríkjunum. Með aðal-
hlutverkið fer Juliette Binoche en
hún leikur konu sem setur upp
súkkulaðibúð á móti kirkjunni í litlum
bæ og vekur nokkra úlfúð bæjarbúa.
Eiturlyfja-
vandinn
Sambíóin, Nýja bíó Keflavík og
Nýja bíó Akureyri frumsýna nýj-
ustu mynd bandaríska leikstjórans
Steven Soderberghs, Traffic, með
Michael Douglas og Catherine
Zeta-Jones í aðalhlutverkum.
Myndin gerist í heimi eiturlyfja-
viðskiptanna og segir frá dómara
sem kemst að því að dóttir hans
er fíkill. Benicio Del Toro fer með
þriðja stærsta hlutverkið í mynd-
inni.
Kirikou og
kerlingin
Háskólabíó, Kringlubíó og Nýja
bíó á Akureyri frumsýna teikni-
myndina Kirikou og galdrakerl-
inguna með íslensku tali. Með
helstu hlutverk í talsetningunni
fara Óskar Völundarson og Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir en leik-
stjórn hennar annast Sigurður Sig-
urjónsson. Segir myndin af
drengnum Kirikou í Afríku og bar-
daga hans við norn ógurlega.
Í ÆSKU var Sam Raimi óður í ruddagrín The
Three Stooges. Sem ungur maður gerði hann
hrollvekjuunnendur óða með myndum á borð
við The Evil Dead-þríleikinn og hundakúnstum
í stælmiklu myndmáli. Sem eldri maður hefur
Raimi róast og endurnýjast með spennumynd-
um eins og A Simple Plan og nú The Gift – Náð-
argáfunni, sem í dag verður
frumsýnd hérlendis. Árni Þór-
arinsson segir frá Sam Raimi.
Hrollgerðarmaður hættir gusugangi
Raimi róast
en spennist
4
ÍSLENSKA fjölskyldumyndin
Ikingut í leikstjórn Gísla Snæs
Erlingssonar hlaut önnur tvennra
verðlauna fyrir bestu mynd í fullri
lengd sem alþjóðleg dómnefnd
veitti á barnamyndahátíðinni í
Montréal um síðustu helgi. Að
sögn Hrannar Kristinsdóttur, fram-
leiðanda Ikingut, sem sótti há-
tíðina, fékk myndin svokölluð
CIFEJ-verðlaun en danska mynd-
in Miracle eftir Natöshu Arthy
hreppti „grand prix“. „Í umsögn
dómnefndar stendur að Ikingut fái
verðlaunin fyrir framúrskarandi
leikstjórn, kvikmyndatöku og
mannúðlega efnismeðferð,“ segir
Hrönn. Ikingut hefur þegar verið
seld í kvikmyndahús í Japan, Hol-
landi, Belgíu og Ítalíu og fleiri söl-
ur eru í uppsiglingu. Þá gerir
myndin viðreist á kvikmyndahátíð-
um á næstunni – til Toronto, Sví-
þjóðar, Noregs og London.
Ikingut: Fer víða um þessar mundir.
Ikingut
verðlaunuð í
Montréal
Norrænt
bíó í
brennidepli
Þrír af þekktustu leikstjórum Norð-
urlandanna eru væntanlegir til Ís-
lands í lok næstu viku til að taka
þátt í norrænni kvikmyndahátíð sem
Filmundur og sendikennarar í nor-
rænum málum standa fyrir í Há-
skólabíói.
Myndirnar sem sýndar verða eru
Öen i fuglegaden eftir Sören Kragh-
Jacobsen (Mifunes sidste sang) frá
Danmörku, Lillesöster eftir Taru
Mäkelä frá Finnlandi og Söndags-
engle eftir Berit Nesheim frá Nor-
egi, en þau koma öll til landsins; Til-
sammans eftir Lukas Moodyson
(Fucking Åmål) frá Svíþjóð en aðal-
leikarar hennar koma á hátíðina; og
Cold Fever eftir Friðrik Þór Frið-
riksson sem einnig verður til staðar.
Aðstandendur myndanna munu
taka þátt í umræðum um þær eftir
sýningar og á málþingi í Norræna
húsinu. Hátíðin stendur 22. til 26.
mars.
Hér er á ferðinni algjör konfektmoli sem enginn kvikmyndasælkæri má missa af.
Magnaðir leikarar gera myndina að ógleymanlegri skemmtun.
(Súkkulaði)
FRUMSÝND Í DAG
FRÁ LEIKSTJÓRA „CIDER HOUSE RULES“
Allt sem þarf
er einn moli.
Nýtt í bíó
FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 Á FÖSTUDÖGUM
Nýir apar og
meiri sýndar-
framtíð
ÞEIR sem upplifðu gömlu Apaplánetuna bíða
ugglaust með mikilli eftirvæntingu eftir end-
urgerð Tim Burtons, skrifar Arnaldur Indr-
iðason í samantekt um eina af stóru sumar-
myndum ársins og Sæbjörn Valdimarsson
segir frá fyrirhuguðum framhöldum eins
helsta vísindatryllis seinni ára, The Matrix.
Endurgerð og framhöld vísindaskáldskapar
3/5
Heimildarmynd Sólveigar Anspach valin á Cannes-hátíðina
Gerir leikna bíómyndá Íslandi og í New York /2SkyggnigáfanHáskólabíó, Laugarásbíó og Borg-
arbíó Akureyri frumsýna í dag
spennumyndina The Gift í leikstjórn
Sam Raimis. Handritið gerir Billy
Bob Thornton en með helstu hlut-
verk fara Cate Blanchett, Keanu
Reeves, Hilary Swank og Greg
Kinnear. Segir myndin frá konu með
skyggnigáfu sem aðstoðar lögregl-
una í morðmáli.