Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 2

Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 2
2 C FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ BÍÓBLAÐIÐ LÍTIL frétt í Morgunblaðinu fyrir skemmstu vakti athygli þeirra sem fylgjast með kvikmynda- málum á Íslandi. Hún sagði frá því að Háskólabíó og Sam-bíóin ættu í við- ræðum um hvort hægt sé að hagræða rekstri fyrirtækjanna með sam- vinnu þeirra á milli. Óljóst var hvort af samningum yrði en markaðssetning og sameiginleg innkaup á myndum er meðal þeirra þátta sem verið er að athuga. Tekið er fram í fréttinni að ekki sé um sameiningarhugleiðingar að ræða en hún leiddi engu að síður hugann að þróun bíómarkaðarins undanfarin ár eða áratugi. Rekstur kvikmyndahúsanna hefur færst á færri hendur, kvikmyndahúsum hefur fækkað og kvikmyndahúsin hafa samstarf sín á milli um sýningar margar helstu bíómyndanna sem frá Hollywood koma. Núna eru aðeins fjórir aðilar í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu sem stjórna kvikmyndahúsunum og myndavalinu; Myndform sem rekur Laug- arásbíó, Skífan, sem er með Regnbogann og Stjörnubíó, og samkvæmt fréttum í vikunni er nú það gamla og góða bíó til sölu, Sam-bíóin, sem reka fjögur kvikmyndahús í borginni og Háskólabíó. Fjölmörg kvikmynda- hús hafa dáið drottni sínum eða skipt um eigendur á undanförnum ald- arfjórðungi. Tvö í Hafnarfirði, tvö í Kópavogi, Tónabíó, Nýja bíó og Gamla bíó og Austurbæjarbíó heyrir undir Sam-bíóin svo aðeins séu nefnd þau sem fyrst koma upp í hugann. Stjörnubíó virðist næst undir fallöxina. Samkeppnin á milli bíóanna í Reykjavík er gríðarleg og fækkun kvik- myndahúsaeigenda er ein afleiðing hennar. Með aukinni samkeppni varð þjónustan betri við kvikmyndahúsagesti að því leyti að myndirnar að vest- an tóku að berast hingað mun fyrr en við vorum áður vön þegar við þurft- um að bíða í eitt ef ekki tvö ár eftir stórmyndum; nú fáum við allar helstu myndirnar (frá Hollywood nota bene) nær því glænýjar. Þá er ekki nein spurning um að sýningaraðstaðan er í sumum tilfellum sú besta sem völ er á í heiminum. Hins vegar hefur úrvalið ekki batnað. Það verður þvert á móti sífellt einsleitara. Myndirnar koma, með nokkrum undantekningum þó, frá Holly- wood sem gerir allt það besta og allt það versta í kvikmyndagerð fyrir massann og því rignir yfir okkur með þeim afleiðingum að það koma löng tímabil þar sem varla er farandi í bíó. Var til dæmis síðari hluti síðasta árs alveg sérstaklega slappur hvað úrvalið snertir. Hver lélega myndin var sýnd af annarri og í fá hús að venda. Sýndar eru færri myndir með stærri og meiri uppslætti en lítill greinarmunur virðist gerður á gæðum þeirra. Andófshópar eins og Filmundur eða Hreyfimyndafélagið, sem hafa fengið inni í Háskólabíó, sýna lit með sýningum mynda frá öðrum tíma og öðrum menningarsvæðum en mega sín lítils gegn Hollywood-stórveldinu. Það er eins og það gerist sífellt erfiðara að ná í fólk á myndir sem ekki eru frá Hollywood enda kannski ekki nema von þegar fátt annað er í boði árið út og inn. Maður spyr sig, og fleiri hafa gert það að undanförnu: Er ekki hægt að fórna einum litlum sal í hverju fjölsalahúsi til þess að auka á fjölbreytn- ina? Ömurleg amerísk della eins og Dr. T og konurnar með Richard Gere fær alla þá vigt og virkt sem frumsýningu sæmir en hefði ekki mátt slaufa henni fyrir mynd frá Spáni, Frakklandi eða einhverju Norðurlandanna? Má setja hroða eins og Rocky og Bullwinkle beint á myndband en gefa nýrri mynd Liv Ullmann byggðri á handriti eftir Ingmar Bergman tækifæri (ég veit að þetta hljómar eins og hrollvekja í eyrum sumra en fyrir ekki svo löngu síðan hefði slík mynd jafnvel rataði í bíó)? Er sýningarstefnan sem hér hefur ríkt undanfarna áratugi búin að afsiða gersamlega áhorfendur svo þeir hafa ekki lengur áhuga á neinu öðru en hreinum og beinum af- þreyingarmyndum og skiptir þá engu máli hvað þær eru lélegar, bara ef þær koma frá draumaverksmiðjunni og geta svæft mann með hasar og gríni? Er það orðið eina hlutverk kvikmyndahúsanna? Sjónarhorn Fjölbreytni og úrval Eftir Arnald Indriðason Tryllir frá Texas POWERS Boothe er ágætur leikari sem lítið hefur farið fyrir að und- anförnu en átti sínar góðu stundir um miðjan níunda áratuginn. Hann fer nú með áberandi hlutverk í áhugaverðri mynd sem verið er að gera vestra og heitir Frailty og er spennutryllir sem gerist í Texas. Með önnur hlutverk fara Matthew Mc- Conaughey og Matthew Kreis ásamt Bill Paxton en myndin segir frá ungum manni sem heldur að bróðir sinn sé ábyrgur fyrir fjölda- morðum í Dallas. McConaughey og Paxton urðu ágætir vinir þegar þeir léku saman í kafbátamyndinni U – 571 en þeir eru báðir frá Texas. Enn ein úr stríðinu EFTIR að Steven Spielberg gerði Björgun óbreytts Ryans hefur síðari heimsstyrjöldin aftur komist í tísku hjá kvikmyndagerðarmönnum. Ein af stríðsmyndunum sem nú eru í fram- leiðslu heitir All the Queen’s Men og er með Eddie Izzard og Matt Le- blanc í aðalhlutverkum. Leikstjórinn er austurríkismaður að nafni Stefan Ruzowitzky sem áður gerði myndina The Inheritors. All the Queeńs Men er lýst sem spennugamanmynd og segir hún frá tveimur hermönnum bandamanna sem sendir eru til Berlínar að hafa uppi á dulmálsvél- inni Enigma (hún kom einnig við sögu í kafbátamyndinni sem nefnd var hér að ofan og mynd sem brátt verður frumsýnd og heitir einfaldlega Enigma ). Myndinni er lýst sem sam- blandi af Some Like it Hot og Raid- ers of the Lost Ark en eitthvert hik var á mönnum að setja hana í fram- leiðslu því handritið var í 15 ár í geymslu hjá Universal áður en rykið var dustað af því. Connie og Robin CONNIE Nielsen vakti mikla athygli þegar hún fór með eitt aðalhlutverk- anna í mynd Ridley Scotts, Glad- iator, sem sópaði að sér ósk- arsverðlaunaútnefningum. Nielsen var eitt það besta við góða mynd og tilboðin streymdu að henni. Hún mun á næstunni fara með hlutverk á móti Robin Williams í gamanmynd sem ber heitið One Hour Photo. Segir hún af einmanalegum starfsmanni í ljós- myndavöruverslun sem fær Connie á heilann eftir að hafa framkallað myndirnar hennar. „Hann heldur að hún lifi fullkomnu lífi miðað við mynd- irnar sem hún tekur en þegar hann kemst að einhverju allt öðru reiðist hann,“ er haft eftir Connie og hún bætir við: „Við erum alltaf að taka þessar ljósmyndir af okkur brosandi og þegar við horfum á þær dettur okkur sjaldnast í hug að á bak við brosin getur legið harmur.“ Tim í tæknitrylli TIM Robbins fer með aðalhlutverkið í nýjum tæknitrylli sem ber nafnið Antitrust og er leikstýrt af Peter Howitt sem síðast gerði þá ágætu mynd Sliding Doors. Með önnur hlut- verk fara Ryan Philippe og Rachael Leigh Cook en myndin gerist í heimi hátækninnar og segir frá tölvunörd- um sem finna upp hættulegan hlut á upplýsingaöld og halda að yfirmaður sinn, sem Robbins leikur, ætli sér ekkert gott með það. Það er hið forna veldi Metro Goldwyn Meyer sem framleiðir en MGM gerði einnig Hannibal sem nú er til sýninga hér á landi. Fólk Paxton og McConaughey: Saman á ný. Associated Press Nielsen og Robbins: Bæði í nýjum myndum. Reuters „ÞETTA er saga um tvær ungar konur og hún hefst í New York,“ segir Sólveig sem hefur tvo félaga frá kvikmyndaskólaárunum í París sér til aðstoðar við handritsskrifin, þau Cécile Vargaftig og Pierre Erwan Guillaume en hann skrifaði einnig með henni handritið að myndinni Hertu upp hugann. „Önn- ur konan er bandarísk en fædd og uppalin í Rúmeníu, fjölskyldan flutt- ist til Bandaríkjanna þegar hún var tólf ára svo hún hefur rúmenskan málhreim. Hún er að læra til geð- læknis og vinnur tvo daga í viku á geðsjúkrahúsi. Þar á hún að annast konu sem haldið er að sé bæði mál- laus og heyrnarlaus, einnig er talið að hún sé heimilislaus New York- búi. Svo kemur í ljós að hún er frá Íslandi, nánar tiltekið Vestmanna- eyjum, og að hún er geðklofi en ekki daufdumb. Fyrsti þriðjungur mynd- arinnar verður tekinn í New York en afgangurinn í Vestmannaeyjum. Íslenska konan fer þangað aftur og sú bandaríska kemur á eftir henni því henni leikur forvitni á að vita hvað kom fyrir þá íslensku á sínum tíma, hvernig fjölskyldutengsl hún býr við, í stuttu máli ævisögu henn- ar. Reyndar snýst sagan minna um hvers hún verður vísari um íslensku stúlkuna heldur meira hvað hún uppgötvar í sér sjálfri í þessari ferð. Það gerir brjálað veður í Vest- mannaeyjum, hún verður þar inn- lyksa og til þess vísar heiti mynd- arinnar, Stormy Weather, en undirtitillinn er: psychiatry, love & weather report.“ Myndin verður tekin á ensku, rúmensku og íslensku; þarna bland- ast saman ýmis þjóðmenning – svo nærtækt er að álykta að Sólveig sé að gera upp sinn eigin fjölþjóðlega uppruna. „Kannski er ég að því,“ segir hún. „Ég er sjálf fædd í Vest- mannaeyjum, á íslenska móður og bandarískan föður sem fæddur er í Þýskalandi og amma mín var rúm- ensk. Ég hef unnið heimildarmynd í Vestmannaeyjum en langaði alltaf til að gera leikna mynd þar líka. Annars eru þeir þættir sem liggja að baki Stormy Weather marg- slungnir og bæði persónulegir og faglegir. Kveikjan að sögunni um geðklofa konuna er frétt sem ég las í blaði fyrir mörgum árum, hún var þó ekki íslensk heldur ensk og end- aði á frönsku geðsjúkrahúsi. Ég varð snortin af sögu hennar og lang- aði að gera um hana heimildarmynd en þegar til kom vildi hún ekki leyfa mér það. Eftir Hertu upp hugann, sem var mjög persónuleg mynd, velti ég lengi fyrir mér hvað ég ætti að gera næst. Ég fékk mörg tilboð um að leikstýra handritum eftir aðra en ekkert þeirra höfðaði nógu sterkt til mín. Ég ákvað því að gera heimildarmynd, ekki fyrir sjónvarp heldur kvikmyndahús og í fullri bíó- lengd, um mann sem tekinn var af lífi í Texas. Eftir hana byrjaði ég á Stormy Weather og vil undirstrika að myndin er fyrst og fremst skáld- skapur.“ Að framleiðslu Stormy Weather standa franskt og bandarískt fyr- irtæki og nýtt fyrirtæki Baltasar Kormáks og konu hans Lilju Pálmadóttur, Sögn ehf. „Ég veit ekki alveg hvenær tökur hefjast, við eigum eftir að ráða leikarana, sem flestir verða íslenskir, og ganga frá endanlegri fjármögnun. Góðu frétt- irnar í því sambandi er að heimild- armyndin mín frá Texas, Made in the USA, hefur verið valin á „direct- or’s forthnight“ Cannes-hátíðarinn- ar í vor, sem ætti að auðvelda okkur að fá peninga í Stormy Weather. Ég er svo spennt fyrir þessari mynd að ég get ekki beðið eftir að komast í gang.“ Stormy Weather eftir Sólveigu Anspach fékk framleiðsluvilyrði upp á 26 milljónir við síðustu úthlutun úr Kvikmyndasjóði. Páll Kristinn Pálsson spjallaði við Sólveigu. Geðlæknisfræði, ást & veðurfréttir KAUP- MANNA HÖFN Verðlaun og von- brigði Í síðasta pistli fjallaði ég um verðlaunaveitingar til danskra kvikmynda fyrir árið 2000, en þá hafði danski kvikmyndabransinn veitt Ro- bert-verðlaunin fyrir bestu dönsku myndina til Bænken, sem ég gerði örlítil skil í sama pistli. Gullpálmamynd Triers Dancer... og silf- urbjarnar-sigurvegarinn frá Berlín, Italiensk for begynd- ere voru settar til hliðar. 4. MARS útdeildu svo danskir gagnrýn- endur hinum hefð- bundnu Bodil- verðlaununum, sem hafa verið „aðal“- dönsku kvikmyndaverð- launin í hálfa öld – og þeir end- urtóku nánast Robert-inn lið fyrir lið. Bænken hirti þrenn af fimm mögulegum verðlaunum, besta mynd, besti aðalleik- ari (Jesper Christensen) og besti auka- leikari (Nikolaj Kopernikus). Björk var sem áð- ur valin besta leikkonan, og Lene Thiemroth besta leikkona í aukahlutverki í Italiensk... Einn af dönsku gagnrýnend- unum veltir því skiljanlega fyrir sér, hvernig geti staðið á því, að myndir, sem hafa fengið al- þjóðlega viðurkenningu, m.a. ekkert minna en sjálfan gull- pálmann í Cannes, skuli í tví- gang heima fyrir vera settar til hliðar og að Bænken, ramm- dönsk mynd um alkóhólisma, hirði öll verðlaunin. Hann skýrir sitt eigið atkvæði til Bænken með því, að hinar tvær fyrr- nefndu séu „alþjóðlegri“ hvað varðar efni og innhald, en að Bænken fjalli um sérdanskt fyr- irbrigði. Ég brá mér bíó til þess að geta dæmt fyrir sjálfan mig. Bænken þykir mér ágæt, og Jesper er hreint stórkostlegur í hlutverki alkóhólistans. Ég varð fyrir vonbrigðum með Itali- ensk... Þetta er fyrsta dogma- gamanmyndin, ágætis af- þreying og leikararnir skila mjög góðum árangri, en ég átta mig samt ekki á því, af hverju mynd- in fær Silfurbjörn. Blinkende lygter (leikstýrt af Anders Thom- as Jensen, sem áður hefur feng- ið Oscars-verðlaun fyrir stutt- mynd) kom mér hins vegar skemmtilega á óvart, auk þess að vera konfekt fyrir augað. Léleg mynd- og hljóðgæði er eitt af aðalsmerkjum dogma- veirunnar og er um leið afsök- unin fyrir því, að með þessum aðferðum fái leikararnir meira frelsi og rými til túlkunar, sem á að skila einstökum árangri. Bull og vitleysa. Bæði í Bæn- ken og Blinkende lygter tekst leikurunum að búa til frábæra karaktera og sýna leikræn til- þrif, sem jafnast fullkomlega á við það, sem boðið er upp á í Italiensk...., en leikararnir eru einmitt einasti styrkur þeirrar myndar. Dómsniðurstaða? Kvikmyndir á að sjá í bíó, dogmamyndir á að sjá í sjón- varpi. Sigurður Sverrir Pálsson fæddist í Vest- mannaeyjum en ólst upp í París. Hún lauk námi í kvik- myndagerð frá FEMIS í París 1989. Sólveig hefur einkum fengist við heim- ildarmyndagerð, en er þekkt- ust fyrir leiknu myndina Hertu upp hugann (1999), sem bygg- ist á persónulegri reynslu af því að vera samtímis barnshaf- andi og greinast við krabba- mein. M.a. hlaut Karin Viard, sem fór með aðalhlutverkið, frönsku Cesarverðlaunin sem besta leikkona ársins fyrir leik sinn í myndinni. Sólveig Anspach Bænken: Þjóð- legt og gott.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.