Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 5
gu
mi
itt
eð
rið
ru
gi-
að
nd-
eg-
ur,
da-
nn-
ofu
um
an
og
nu
nar
en-
Of
nd
a í
ætt við gamansama ævintýramynd en
hrollvekju. Næst reyndi Raimi fyrir
sér í vestrahefðinni, með The Quick
And the Dead (1995) sem er eins konar
skopstæling á spaghettivestrum, sem
sjálfir voru skopstæling á bandarísku
vestrunum. Það ber vitni um frískleg
vinnubrögð og hugvit Raimis að svona
uppsuða virkar jafn-vel og hún gerir,
þrátt fyrir ýmis ólíkindi og endaleysu;
leikhópurinn á ekki síður þátt í því –
Gene Hackman, Sharon Stone, Russell
Crowe, Leonardo DiCaprio og margir
fleiri.
Horft í eigin barm
Eftir þetta er eins og Sam Raimi
hafi sest niður og horft í spegil um hríð
og ákveðið að róa sig og myndmál sitt
niður. Þrátt fyrir nokkrar gloppur í
handriti Scotts B. Smith um þrjá dreif-
býlisbúa sem missa fótanna er þeir
finna illa fengið fé, var A Simple Plan
(1998) vönduð, hnitmiðuð og lág-
stemmd spennumynd, nánast gamal-
dags miðað við fyrri uppátæki Raimis
og sótti afl sitt í persónusköpun frekar
en tæknilæti. Sama átti við fremur
slaka hornaboltamynd, For Love Of
the Game (1999), þar sem Kevin
Costner lék spilara sem mátti muna
sinn fífil fegurri. The Gift er annar per-
sónukrúinn dreifbýlisþriller en Cate
Blanchett leikur konu með yfirskilvit-
lega hæfileika sem blandast inn í rann-
sókn á morðmáli. Handritið er eftir
annan aðalleikarann í A Simple Plan,
Billy Bob Thornton, og Tom Epperson
en þeir sömdu einnig þá fínu spennu-
mynd One False Move. Thornton er
sagður byggja söguna á reynslu móður
sinnar.
Sam Raimi hefur, auk þess að semja
og leikstýra, leikið aukahlutverk í
mörgum bíómyndum og staðið að
framleiðslu fjölda sjónvarpsþátta, eins
og Xena: Warrior Princess, American
Gothic, Spy Game, Young Hercules,
Jack of All Trades og Cleopatra 2525.
Og núna er hann önnum kafinn við
að vekja æskuhetju sína, Kóngulóar-
manninn, til lífsins.
a
s
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 C 5
BÍÓBLAÐIÐ
Bíóhöllin, Kringlubíó, Bíóborgin, Nýja bíó Akureyri og Nýja bíó
Keflavík frumsýna mynd Stevens Soderberghs, Traffic.
veðrið þegar eiginmaður hennar er
dag einn handtekinn af fíkniefna-
lögreglunni sem einn helsti fíkni-
efnabarón landsins. Hún er ólétt og
ákveður að berjast til þess að halda
lífsgæðum sínum – jafnvel þótt það
þýði að hún verði að taka yfir hin
ólánlegu viðskipti eiginmanns síns.
Þannig eru sögurnar þrjár sem
nýjasta mynd
Stevens Soder-
berghs, Traffic,
segir en hún er
frumsýnd í dag
í fimm kvik-
myndahúsum.
Með aðalhlut-
verkin í henni
fara Michael
Douglas, Ben-
icio Del Toro,
Catherine
Zeta-Jones,
Steven Bauer,
Amy Irving,
Erika Christen-
sen, Don Cheadle og Louis Guz-
man. Myndin er byggð á breskum
sjónvarpsþáttum sem hétu Traffik
og sögðu frá eiturlyfjasmygli frá
Pakistan í gegnum Evrópu til Bret-
lands. Soderbergh breytti því og
hermdi upp á aðstæður í Banda-
ríkjunum. Myndin var nýlega út-
nefnd til fjölda Óskarsverðlauna.
„Þetta var efni sem ég hafði ver-
ið nokkuð áhugasamur að fjalla um
í langan tíma,“ er haft eftir leik-
stjóranum, „en ég var ekki viss um
hvernig ég átti að fara að því. Ég
vildi ekki gera mynd um eitur-
lyfjafíkla en þegar mér bauðst að
vinna bíómynd eftir bresku þátt-
unum fannst mér eins og ég væri
kominn með rétta efnið upp í hend-
urnar.“
Meira en 110 leikarar hafa eitt-
hvað að segja í myndinni, sem er
gríðarlegur fjöldi. Soderbergh seg-
ir að í helstu hlutverkin hafi hann
fundið leikara sem hann langaði til
þess að vinna með eða sem sýndu
sérstakan áhuga á að vera í mynd-
inni. Harrison Ford átti í fyrstunni
að fara með hlutverk það sem
Michael Douglas hefur en hann
hætti fljótlega við.
MEXÍKÓSKI fíkniefnalögreglu-
maðurinn Javier Rodriguez (Benic-
io Del Toro) starfar við landamæri
Mexíkó og Bandaríkjanna við að
hafa uppi á eiturlyfjasmyglurum
ásamt félaga sínum, Manolo (Jacob
Vargas). Yfirmaður þeirra gengur
hart fram í því að hafa uppi á
smyglurum og þótt Javier láti ekki
freistast til þess
að líta undan þeg-
ar honum eru
boðin gull og
grænir skógar
flækjast hann og
Manolo í net
glæpa og spilling-
ar sem leiðir til
óskapa.
Í Bandaríkjun-
um er hæstarétt-
ardómari í Ohio
settur í nýtt starf
sem yfirmaður
bandarísku fíkni-
efnalögreglunnar.
Hann heitir Robert Wakefield
(Michael Douglas) og er bæði
þrjóskur og íhaldssamur. Hann
safnar upplýsingum héðan og það-
an um vandann sem við er að etja
en heimafyrir þarf hann að kljást
við dóttur sína, sem er forfallinn
eiturlyfjaneitandi.
Í San Diego í Kaliforníu býr Hel-
ena (Catherine Zeta-Jones) með
vellauðugum eiginmanni sínum,
Carlos Ayala (Steven Bauer). Hún
veit ekki hvaðan á sig stendur
Frumsýning
Traffic
Michael Douglas: Dómarinn sem á eiturlyfjafíkil fyrir dóttur.
Benicio Del Toro: Mexíkósk fíkniefnalögga þarf að berjast við freistingar.
Leikarar:
Michael Douglas, Benicio Del
Toro, Catherine Zeta-Jones,
Steven Bauer, Amy Irving, Erika
Christensen, Don Cheadle og
Louis Guzman.
Leikstjóri:
Steven Soderbergh (Erin
Brockovich, The Limey, Out of
Sight, King of the Hill, Kafka,
Sex, Lies and Videotape).
Traffic
THE MATRIX kom nokkuð á óvart árið 1999
þegar hún lenti í hópi vinsælustu mynda þess
ágæta kvikmyndaárs og skilaði 177 milljónum
dala á heimamarkaði einum. Auk þess hlaut
hún mikla aðsókn um víða veröld, ekki síst hjá
áhorfendum í yngri kantinum sem kunnu vel að
meta hraðann, brellurnar og óvenjulega vel
hannaða grafík.
Fljótlega varð til í kringum myndina stór
hópur gallharðra aðdáenda, „cult“, sem vill fá
að sjá meira. Nú hefur verið ákveðið að hefja
tökur á framhaldsmyndunum tveimur í lok
marsmánaðar í Oakland og verða þær kvik-
myndaðar samtímis.
Að sjálfsögðu eru það höfundar fyrstu mynd-
arinnar, Andy og Larry Wachowski, sem skrifa
handritin og leikstýra. Fátt er vitað um vænt-
anlegt útlit annað en að Keanu Reeves fer aftur
með aðalhlutverk Neos, Carrie-Anne Moss leik-
ur Trinity og Laurence Fishburne snýr til baka
sem Morpheus. Kvikmyndasíður á Netinu eru
uppfullar af fréttum um að Trinity verði rænt,
Neo hitti fyrir jafningja sinn í bardagafimi
o.s.frv. o.s.frv.
Sem fyrr segir munu allir aðalleikararnir
halda hlut sínum í framhaldsmyndunum. Það
gildir einnig um Ástralann Hugo Weaving,
hann mun holdi klæða á nýjan leik tölvustýrða
þorparann Smith – þrátt fyrir að virðast enda
sína aumu tilveru í lok Matrix.
Í hópi nýrra leikara verður Jada Pinkett
Smith sem mun fara með hlutverk Niobi, vin-
konu Morpheusar.
Söngkonan Aaliyah leikur Zee, sem kynnt
verður til leiks í mynd 2, en er sögð auka mjög
við sig í síðustu myndinni. Þá er ætlunin að
fríkka leikhópinn með þátttöku hinnar und-
urfögru ítölsku Monicu Bellucci (Maléna).
Þeir sem koma ekki til með að sjást í 2 og 3
eru fyrst og fremst kínverski leikarinn og
bardagatröllið kattliðuga, Jet Li. Hann sýndi
áhuga á að taka að sér hlutverk í framhalds-
myndunum er þær komu til tals á síðasta ári.
Það féll í góðan jarðveg hjá Wachowski-bræðr-
um en síðan hefur Jet Li komist í hóp stjarn-
anna með frammistöðu sinni í aðsóknarmynd-
inni Romeo Must Die (þar sem Aaliyah lék á
móti honum). Nýstirninu geðjaðist víst ekki að
laununum sem buðust fyrir framhaldsmynd-
irnar en samningaviðræður stóðu yfir mán-
uðum saman. Er Jet Li hinn fimi þar með úr
sögunni og er það miður; hann hefði örugglega
gert myndunum gott.
Samkvæmt fréttum í Variety var hlutverk Li
því næst boðið bardagalistakonunni Michelle
Yeoh sem kom, sá og sigraði í Krjúpandi tígri.
Það fagra og fima fljóð afþakkaði hins vegar
gott boð og tók að sér störf í myndum í Aust-
urlöndum fjær fram yfir stjörnuskinið í Holly-
wood.
Meginvandi þeirra sem stjórna gerð fram-
haldsmynda er einfaldlega að „gera betur og
betur, betur í dag en í gær“. Bræðranna bíður
því hrikalegt verkefni, að toppa hina firnagóðu
Matrix, þar sem uppistaðan var bardagafimi og
framúrskarandi tækni- og tölvubrellur.
Annað eins hefur tæpast sést á tjaldinu.
Kvisast hefur út að menn grípi til einhverra
vopna að þessu sinni, eitthvað krassandi verður
að gerast, svo mikið er víst. Í fyrstu myndinni
voru átökin einskorðuð við maður á mann. „Nú
verða fjöldaslagsmál,“ er haft eftir Reeves. Það
verður forvitnilegt að sjá hvernig bræðurnir
standa að slíkum uppákomum í þeirra und-
arlegu framtíðarsýn.
Wachowskiar hafa örugglega séð Krjúpandi
tígur, því aðalleikarinn lýsti því yfir í Rolling
Stone-tímaritinu að von væri á mun meiri víra-
vinnu í framhaldsmyndunum, þar sem aðal-
persónurnar verða fleygar! Bardagaatriðin
munu því ekki aðeins verða jarðbundin sem
gefur ýmsa nýja möguleika.
Áætlað er að tökur taki í það minnsta sjö
mánuði, svo veit enginn hvað gerist í júlí þegar
leikarar hafa hótað verkfalli.
Tökurnar munu standa yfir í 12 vikur í Kali-
forníu, síðan verður þeim hætt sökum yfirvof-
andi verkfalls.
Þá munu tæknimenn, eins og klipparar og
brellumeistarar, og reyndar flestir aðrir en
leikararnir, vinna við að koma afrakstrinum í
sýningarhæft form. Síðar meir mun verða hald-
ið áfram kvikmyndatökum í Kaliforníu og Ástr-
alíu.
Heyrst hefur að reynt verði að frumsýna
myndirnar sumarið og haustið 2002, sem sagt í
bullandi samkeppni við nýjustu Stjörnustríðs-
mynd George Lucas, Star Wars: Episode II.
Warner Bros, sem framleiðir Matrix-þrennuna,
hvorki neitar því né játar.
atrix 2 & 3
Eftir langar fæðingarhríðir,
þar sem ekki lá alltaf ljóst
fyrir hvort eitthvað yrði af
fæðingunni, er loksins
kominn skriður á gang
framhaldsmyndanna
Matrix 2 og 3. Sæbjörn
Valdimarsson
gluggaði í skýrslur.
Neo: Keanu Reeves snýr aftur í aðalhlutverkinu.