Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 6
Regnboginn frumsýnir myndina Súkkulaði eða
Chocolat með Juliette Binoche í leikstjórn Lasse Hallström.
ina, Judie Dench,
Carrie-Anne
Moss , Lena Olin
og Peter Storm-
are ásamt Johnny
Depp en leik-
stjóri er Lasse
Hallström hinn
sænski. Myndin
byggist á sögu
eftir Joanne
Harris en hand-
ritið gerir Robert
Nelson Jacobs.
„Í mínum huga
er myndin fyndin
dæmisaga um
freistingar og
það hversu mikil-
vægt er að neita
sér ekki um það sem gott er í lífinu,“
er haft eftir leikstjóranum Hall-
ström. „Hún fjallar líka um þessa
stöðugu baráttu á öllum tímum um
hefðir og breytingar. Og hún hefur í
kjarna sínum sögu um óbilgirni
fólks, sem vill ekki leyfa öðru fólki
að fara sínu fram.“
Binoche varð fyrir valinu í aðal-
hlutverk myndarinnar og eitt það
fyrsta sem hún gerði til þess að búa
sig undir hlutverkið var að læra
súkkulaðigerð og á ýmsar tegundir
súkkulaðis. Gerðist hún með tíman-
um nokkuð kunnug þeirri list að
framleiða súkkulaði og eftir það gat
hún ekki hugsað sér að bragða á
neinu nema eðalsúkkulaði.
Um hlutverk sitt í myndinni hefur
hún þetta að segja: „Vianne hefur
flækingseðli og býst við því að eiga
alltaf eftir að vera á ferðinni, festa
aldrei rætur. Það er ekki þar með
sagt að henni líki það en hún á erfitt
með að breyta því. Töfrar hennar
eru sprottnir af þeirri vissu að fólk
geti breyst og orðið hamingjusamt.
Hún hefur þessa hæfileika að frelsa
fólk, opna augu þess og fá það til
þess að finna sitt eigið eðli og það
sem það vill fá út úr lífinu.
Hallström og Depp unnu áður
saman við gerð What’s Eating Gil-
bert Grape? og segir leikarinn að
hann hafi unun af að leika fyrir leik-
stjórann, „og myndi leika í hverju
sem hann biður mig um.“
ALLT hefst þetta í gömlu frönsku
þorpi sem kallast Lansquenet og
hefur ekki breyst í hundrað ár.
Þangað kemur ferðalangurinn Vi-
anne Rocher (Juliette Binoche) og
dóttir hennar, Anouk (Victoire Thiv-
isol). Vianne ákveður að setjast að í
bænum og opna súkkulaðiverslun
með ómótstæðilegum molum er
vekja ástríður þorpsbúa af værum
blundi.
Brátt taka ákveðin öfl í bænum að
líta á Vianne sem óvin sinn. Þar fer
fremstur í flokki hinn trúaði heið-
ursmaður Reynaud (Alfred Molina) .
Hann er sannfærður um að súkkul-
aðigerð Vianne eigi eftir að skapa
glundroða í friðsælu bæjarfélaginu
og grafa undan siðgæðisvitund
fólks. Hefst svo baráttan á milli þess
sem kallast má gott og illt.
Þannig er söguþráðurinn í banda-
rísku bíómyndinni Súkkulaði eða
Chocolat, sem frumsýnd er í dag í
Regnboganum. Með aðalhlutverkin
fara Juliette Binoche, Alfred Mol-
Frumsýning
Juliette Binoche: Varð sérfræðingur í eðalsúkkulaði.
Chocolat: Dæmisaga um freistingar.
Lífið er
súkkulaði
6 C FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BÍÓBLAÐIÐ
Leikarar:
Juliette Binoche, Alfred Molina,
Judie Dench, Carrie-Anne
Moss, Lena Olin, Peter Storm-
are og Johnny Depp.
Leikstjóri:
Lasse Hallström (Mit liv som
en hund, Once Around, What’s
Eating Gilbert Grape? The Cider
House Rules).
Chocolat
Háskólabíó, Laugarásbíó og Borgarbíó
Akureyri frumsýna spennutryllinn The Gift með
Cate Blanchett og Keanu Reeves.
anum Jim Jacks. Hann fékk mynd-
ina gerða í samstarfi við Paramount
kvikmyndaverið og réð hryllings-
myndaleikstjórann Sam Raimi til
þess að halda utan um
hana.
„Anne er misskilin
af mörgum þeim sem í
kringum hana eru,“
segir ástralska leik-
konan Cate Blanch-
ett, sem sló í gegn í
Elizabeth um árið,
þegar hún talar um
persónuna sem hún
leikur í The Gift. „Hún
er haldin mikilli sekt-
arkennd vegna þess
hvernig maðurinn
hennar lét lífið og að
hún skyldi ekki geta
komið í veg fyrir
hvernig fór. Í framhaldi af því verð-
ur hún að einskonar samblandi af
félagsráðgjafa og miðli. Hún leggur
ekki svo mikla áherslu á sitt eigið líf
heldur hefur hún opnað það til þess
að taka við vandamálum allra þeirra
sem leita til hennar.“
Blanchett bjó sig undir hlutverkið
meðal annars með því að leita til
miðla og fylgjast með þeim að störf-
um en hún segist ekki hafa haft
mikla trú á þeim eða viljað vita mikið
um framtíð sína. „Það var alveg
furðuleg reynsla,“ segir hún. „Flest-
ir miðlar vilja nota hæfileika sína til
þess að gefa eitthvað til baka vegna
þess að hæfileikunum fylgir mikil
ábyrgð.“
ANNE Wilson (Cate Blanchett) vill
öllum vel. Hún býr í bænum Brixton
í Georgíu í Suðurríkjum Bandaríkj-
anna og er ekkja með þrjá unga
drengi á sínu framfæri. Hún er mið-
ill. Hún sér hluti sem aðrir sjá ekki.
Oft óorðna hluti.
Til þess að framfleyta sér og
drengjunum hjálpar hún fólki með
hæfileikum sínum hvort sem það er
æstur bifvélavirki eða
eiginkona sem sæta
má ofbeldi á heimili
sínu.
En það eru ekki all-
ir á því að miðlar séu
af því góða, sérstak-
lega ekki þegar þeir
fara að skipta sér af
því sem þeim kemur
ekki við. Þegar hin
auðuga og fallega
Jessica King (Katie
Holmes) hverfur einn
daginn tekur illa farið
lík hennar að birtast í
sýnum Anne og brátt
er hún tekin að að-
stoða lögregluna við
að hafa uppi á henni og leggja sjálfa
sig þar með í bráða hættu.
Þannig er söguþráðurinn í
spennumyndinni The Gift í leik-
stjórn Sam Raimis sem frumsýnd
er í þremur kvikmyndahúsum í dag.
Með aðalhlutverkin fara Cate
Blanchett, Keanu Reeves, Hilary
Swank, Katie Holmes og Giovanni
Ribisi ásamt Greg Kinnear en það er
leikarinn og leikstjórinn Billy Bob
Thornton sem skrifar handritið
ásamt Tom Epperson. Er sagt að
Thornton byggi myndina að ein-
hverju leyti á sögum af móður sinni,
sem er miðill.
„Billy Bob sagði mér frá þessu
handriti sínu fyrir fimm eða sex ár-
um síðan,“ er haft eftir framleiðand-
Frumsýning
Miðill blandast inn í mannshvarf: Blanchett og Keanu Reeves í
hlutverkum sínum í The Gift.
Kate Blanchett í The Gift: Miðill í nýjustu mynd Sams Raimi.
Hættulegur
hæfileiki
Leikarar:
Cate Blanchett, Keanu Reeves,
Hilary Swank, Katie Holmes,
Giovanni Ribisi og Greg Kinn-
ear.
Leikstjóri:
Sam Raimi (For Love of the
Game, A Simple Plan, Army of
Darkness, The Evil Dead, The
Quick and the Dead).
The Gift
Háskólabíó, Kringlubíó
og Nýja bíó Akureyri frumsýna teikni-
myndina Kirikou og galdrakerlinguna
með íslensku tali.
Fríðu og dýrið en uppgangur þeirra
hefur verið gríðarlegur á undanförn-
um áratug.
Talsverð hefð er hins vegar fyrir
evrópskri teiknimyndagerð einnig,
sem er sýnilegri í sjónvarpi, og er
Cartoon-sjóðurinn evrópski sérstak-
lega stofnaður til þess að styrkja evr-
ópska teiknimyndagerð. Hann er einn
þeim sem styrktu gerð myndarinnar
ásamt Eurimages og Mediaáætlun
Evrópubandalagsins.
EINU sinni í litlu þorpi einhvers stað-
ar í hinni fjarlægu Afríku heyrist rödd
innan úr móðurkviði sem segir: Móð-
ir, fæddu mig. Og út kemur lítill
drengur sem klippir sjálfur á nafla-
strenginn sinn og tilkynnir þeim sem
heyra vilja: Ég er Kirikou.
Hann kemst fljótt að því að þorpið
hans undir álögum galdrakerlingar-
innar hræðilegu, Karaba, og ákveður
að gera eitthvað í því. Spurningin er
hvort Kirikou tekst að ráða við kerl-
inguna ógurlegu, sem hyggst ekki
láta strákkríli stöðva sig og sínar illu
ráðagerðir.
Kirikou tekur málin í sínar hendur
vopnaður furðulegri áræðni og blöndu
af þúsund ára gömlum vísdómi og al-
geru sakleysi barnsins, og heldur í
leiðangur yfir lönd og vötn til landsins
í fjarska.
Þannig er söguþráðurinn í teikni-
myndinni Kirikou og galdrakerlingin
sem frumsýnd er í Háskólabíói, Nýja
bíói Akureyri og Kringlubíói. Hún er
gerð í samvinnu Belga, Frakka og
Luxemborgara og er frá árinu 1998
en handritshöfundur, leikstjóri og
listrænn stjórnandi er Michel Ocelot.
Myndin er sýnd hér á landi með ís-
lensku tali og annaðist Sigurður Sig-
urjónsson leikstjórn talsetningarinn-
ar. Karl Ágúst Úlfsson sá um að þýða
textann en með helstu hlutverk í tal-
setningunni fara Óskar Völundarson,
Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Stefán
Karl Stefánsson, Guðmundur Ólafs-
son, Sigrún Waage, Arnar Jónsson,
Gunnar Hansson, Guðfinna Rúnars-
dóttir, Jakob Þór Einarsson og Örn
Árnason . Hljóðsetning annaðist tal-
setninguna.
Tónlistin í myndinni er eftir Yo-
ussou N’Dour, þekkt fyrir lagið Sjö
sekúndur með Neneh Cherry.
Við þekkjum helst teiknimyndir
bíóanna í gegnum stóru Disneymynd-
irnar eins og Konung ljónanna og
Frumsýning
Kirikou og
kerlingin vonda
Kirikou og galdrakerlingin: Evrópsk
teiknimynd.
Íslensk talsetning:
Óskar Völundarson, Jóhanna
Vigdís Arnardóttir, Stefán Karl
Stefánsson, Guðmundur Ólafs-
son, Sigrún Waage, Arnar Jóns-
son, Gunnar Hansson o.fl.
Leikstjóri:
Michel Ocelot.
Kirikou og
galdrakerlingin