Morgunblaðið - 16.03.2001, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 16.03.2001, Qupperneq 8
8 C FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ BÍÓBLAÐIÐ LANCE HENRIKSEN Hinn tággranni, skarpleiti og harðneskjulegi Henriksen er í miklu uppáhaldi á þessum bæ og vafalaust víðar. Útlitsins vegna er þessi fjöl- hæfi skapgerðarleikari oftar en ekki valinn í hlutverk ódámanna og sinn- ir þeim af kostgæfni. Henriksen hefur ríkulegt skopskyn og stendur sig engu síður vel þá sjaldan hann fær að nýta það, þá helst í ómerki- legum myndum þar sem hann hefur gnæft yfir efnið og samverkamenn- ina. Þá á karl það til að gera grín að sjálfum sér og öllu heila klabbinu. Það fengum við að sjá m.a. í Quick and the Dead, undirmálsvestranum hennar Sharon Stone. Þar gekk Henriksen á braut með leiklistar- sigurinn, þrátt fyrir Hackman, Crowe, De Caprio, og allt stjörnu- gengið. Enn betri var hann nokkr- um árum síðar í afleitri B-mynd sem heitir Baja (sýnd í Stjörnubíói). Tætti mótleikarann í sig og stal myndinni með dýrðlegum ofleik. Aumingja Molly Ringwald. Myndin átti að vera endurkoman hennar, en myndin var bærilega ásjáleg, jafn- vel eftirminnileg, þökk sé gassal- átum Henriksens. Eftir nám við hið valinkunna Act- or’s Studio í New York eyddi Hen- riksen næstu tveim áratugum í að leika þorpara. Sagður manna geð- ugastur hversdagslega, en sá fjöldi morðingja, nauðgara, ofbeldis- seggja, brennuvarga og öfugugga, sem hann hefur túlkað í kvikmynd- um, sjónvarpi og á sviði (Ríkharður III., m.a.), skiptir tugum. Á fyrstu árunum kom hann m.a. fram í Dog Day Afternoon (’75), Network (’77), Prince of the City (’82), The Right Stuff (’83), The Jagged Edge (’86). Lék í tæplega 30 myndum fyrstu tvo áratugina, sem er nánast dvali miðað við afköstin á 10. áratugnum, er hann kom fram í hartnær 40 myndum, oft í stórum og aðalhlut- verkum. Vinur hans James Cameron gaf Henriksen fyrsta, ærlega tækifærið, í Aliens (’86). Eins fékk hann stórt hlutverk í Alien 3 (’91), og vakti mikla athygli í Powder, forvitnilegri mynd frá ’95. Sama ár fór Henrik- sen með hlutverk í Dead Man eftir Jim Jarmusch og á síðasta ári lék hann í hrollinum Scream 3, og fór á kostum í raddsetningu apaforingj- ans í Tarzan, teiknimyndinni vin- sælu. JENNIFER TILLY Jennifer, yngri systir Meg, er sú sem hefur hæfileikana í Tilly-fjöl- skyldunni. Fædd í Kanada fyrir 38 árum og fylgdi stóru systur í hum- átt suður fyrir landamærin. Jenni- fer var lengi að fá viðurkenningu í kvikmyndaborginni en vann myrkr- ana á milli í hverri B-myndinni á eftir annarri, einum 10, frá fyrsta hlutverki hennar í No Small Affair (’84), uns hún fékk eitthvað bita- stætt í The Fabulous Baker Boys (’89). Í kjölfarið fylgdu þokkaleg hlutverk í Made in America (’93), enn frekar endurgerð The Getaway (’94). Sama ár kom stóra tækifærið, hlutverk nautheimkrar hjásvæfu mafíósa í hinni bráðskemmtilegu Bullets Over Broadway eftir Woody Allen. Þráir hún það heitast að komast á leiksviðið og er Tilly óborganleg í kröfuhörðu grínhlut- verki. 1996 vann Jennifer ekki síður merkilegan sigur í Bound, frumraun Wachowskibræðra (Matrix). Drep- fyndin, kolsvört gamanmynd þar sem Jennifer er ógleymanleg sem samkynhneigð meri, í ástasambandi við viðsjárverða kvenpersónu (Gina Gershon), og mafíunnar peninga- þvottamann (Joe Pantoliano). Stöll- urnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar, er þær leggja á ráðin að ræna karlinn og mafíuna. Síðan hefur Jennifer haft nóg fyr- ir stafni, þótt ekki sé það allt merki- legt. Lék t.d. eiginkonu djöfulóðrar brúðu í „cult“-myndinni Chucky’s Bride (’98), og mun koma fram í einum sjö myndum á þessu ári, þ. á m. Joplin: The Movie. WILL PATTON Allir sem eitthvað stunda kvik- myndahús hafa örugglega séð and- litið á Patton og þekkja það – jafn- vel án þess að geta nafngreint það. Patton er afkastamikill og eftirsótt- ur skapgerðarleikari á sviði, í sjón- varpi og bíómyndum, og setur oftar en ekki svip á myndir sínar, þótt þær séu ekki allar í efstu gæða- flokkum. Líkt og The Postman, þar sem illkvitnislegt fésið á Patton er mun minnisstæðara en væflu- gangurinn á aðalstjörnunni, Kevin Costner. Patton (f. ’54) er Suðurríkjamað- ur, sem hóf leiknám í heimafylkinu, North Carolina, áður en hann sett- ist á skólabekk hjá Lee Strasberg, við Actor’s Studio. Þaðan lá leiðin á fjalir Broadway-leikhúsanna, þar sem Patton vann tvisvar til Obie- verðlaunanna; fyrir Tourists and Refugees 2 og Fool For Love eftir Sam Shepard. Þá vann Patton um sinn á sviði í London. Fyrstu kvikmyndahlutverkin voru í stuttmyndum og neðanjarð- armyndum í New York, við upphaf níunda áratugarins. Fyrst minnist maður hans sem skálks í Desperat- ely Seeking Susan (’85), og annars skrattakolls í After Hours, mynd Scorsese frá ’85, sem jafnframt var fyrsta, stóra mynd leikarans. Patton er þó langminnisstæðastur frá þess- um tíma sem enn eitt varmennið í No Way Out (’87). Lék á móti Gene Hackman og Kevin Costner – og hélt sínu. Á síðustu árum hefur Patton ver- ið iðinn við kolann, lék í yfir 40 myndum á síðasta áratug! Bar síð- ast fyrir augu í Armageddon (’98), Breakfast of Champions (’99), Gone In 60 Seconds (’00) og Remember the Titans (’00). Þessa dagana fer hann með hlutverk í The Mothman Prophecies, ásamt Richard Gere, og hinni ungu og efnilegu Lauru Linn- ey. FRED DALTON THOMPSON Mér dauðbrá er ég sá þennan kempulega mann í fyrsta skiptið á hvíta tjaldinu; hélt hann hefði verið að rífa af miðanum mínum! Sem var náttúrlega misskilningur. Thomp- son (f. ’42) komst einmitt inní kvik- myndirnar útá vörpulegt útlitið. Hafði unnið sem lögfræðingur í ald- arfjórðung í Nashville og Wash- ington, D.C. er hann var fenginn til að leika sjálfan sig í Marie (’85). Byggð á sönnum atburðum, átökum konu (Sissy Spacek) við kerfið, þó einkum rotinn ríkisstjóra Tenn- essee. Thompson hlaut miklu betri dóma en stjörnur myndarinnar, Spacek og Jeff Daniels. Enda mað- urinn að leika sjálfan sig – saksókn- ara Tennessee-fylkis. Lögmaðurinn féll kylliflatur fyrir Hollywood-tildrinu og gerðist af- kastamikill skapgerðarleikari og lék í hartnær 30 myndum á sínum 10 ára ferli. Það muna allir Thompson sem hafa séð hann, enda skagar maðurinn á þriðja metra uppí há- loftin og yfirbragð allt hið valds- mannslegasta. Myndirnar voru hinsvegar ekki allar háreistar. Glitti þó í góðar á milli, einsog The Hunt For Red October (’90). Class Action (’91), Cape Fear (’91), Thunder- heart (’92), In the Line of Fire (’93) og Barbarians at the Gate (’93). Ferill Thompsons endaði jafnsnögg- lega og hann hófst. Nú voru það stjórnmálin sem heilluðu. Thomp- son var kjörinn ríkisstjóri Tenn- essee ’94, náði endurkjöri ’98, og hefur vakið athygli fyrir afar íhalds- samar skoðanir. MICHAEL MADSEN Leikarar með útlit Madsens, hafa jafnan nóg fyrir stafni í Hollywood. Stæðilegur náungi, svipurinn gefur til kynna gaur sem er til alls vís. Hentar því vel í krassandi auka- hlutverk frekar vafasamra náunga. Madsen (’58) (bróðir hinnar gull- fallegu leikkonu, Virginiu) er sonur slökkviliðsmanns í Chicago og vann við bensínafgreiðslu er hann komst í kynni við Steppenwolf-leikhóp Gar- ys Sinise. Um 1980 var hann kom- inn áleiðis til kvikmyndaborgarinn- ar þar sem hann hafði fljótlega í nógu að snúast, mestmegnis í hlut- verkum fóla. Fyrsta minnisstæða hlutverkið var í Kill Me Again (’89), mynd Johns Dahl og Sigurjóns Sighvats- sonar. Þar skyggði hann á sjálfa stjörnuna, Val Kilmer. Frammi- staða hans vakti örugglega athygli því næstu árin voru frjósöm. Mad- sen stóð sig mæta vel, oftast sem rusti, í ágætum myndum einsog Thelma and Louise (’91), The Doors (’91), The Getaway (’94), Wyatt Earp (’94), Mulholland Falls (’96) og Donnie Brasco (’97). Eins lék hann aðalhlutverkið á allt öðrum nótum í fjölskyldumyndinni Free Willy (’93), og gerði það ekkert síður vel. Minn- isstæðastur er Madsen sem Mr. Blonde í Reservoir Dogs (’92), klassíkinni hans Tarantinos. Síðustu árin hefur hann haft nóg að gera, mestmegnis í ruslmyndum. Leikur um þessar mundir á móti Dennis Hopper í The LAPD Conspiracy. TONY SHALHOUB Gyðingar hafa ekki aðeins und- irtökin í viðskiptum sínum við araba á heimavígstöðvum heldur eiga þeir nánast kvikmyndaiðnaðinn og ótrú- lega margar kvikmyndastjörnur voru og eru af gyðingaættum. Arab- ar hafa hinsvegar lítil ítök í Holly- wood og alþjóðlegar stjörnur af þeim kynstofni eru teljandi á fingr- um annarrar handar. Omar Sharif sá eini sem sett hefur mark sitt á kvikmyndaheiminn síðustu 50 árin, eða svo. Tony Shalhoub, sá frábæri gamanleikari, er einn fárra sem halda merki araba á lofti nú um stundir, Bandaríkjamaður af líb- önskum ættum, og er að vinna sig upp hægt en örugglega. Shalhoub vakti fyrst athygli á sér og það verðskuldað, í örhlutverki leigubílstjóra í New York í Quick Change (’97), þeirri frábæru og van- metnu gamanmynd. (Bill Murray sagði eitthvað á þá leið að hann væri svo vankunnandi í ensku að hann þekkti ekki einu sinni litina, er Shalhoub ók á rauðu ljósi yfir hver gatnamótin af öðrum). Síðan hefur Shalhoub leikið í yfir 20 myndum og jafnan sett skemmtilegan svip á þær með hlýlegri nærveru og góð- um gamanleik. Jaðarmaður jafnan. Minnisstæðastur í Honeymoon in Vegas (’92), Galaxy Quest (’99), en sjálfsagt muna hann flestir úr Big Night (’96), þar sem þeir Stanley Tucci fóru á kostum í kokkabúning- unum. STANLEY TUCCI Bíógestir voru örugglega búnir að kannast lengi við hinn grannvaxna, þunnhærða Tucci án þess að þekkja hann með nafni. Eitthvað rámar manni í leikarann í Prizzi’s Honor (’85) og Quick Change (’90). Með Beethoven (’92), og The Pelican Brief (’93) stimplaði hann sig inn hjá mörgum kvikmyndafíklinum og hefur verið verið að gera góða hluti síðan. Oftast til hlés og í hlutverk- um í öllum regnbogans litum. Ávallt myndbætandi. Tucci (’60) er háskólamenntaður leikari frá New York og fékk sitt fyrsta hlutverk í fyrrgreindri mynd Johns Huston, Prizzi’s Honor. Við tóku ár í aukahlutverkum slordóna, láglífismanna, þjófa, morðingja og annarra lágstéttarmanna í þjóð- félagsstiganum. Þvert á eigin per- sónuleika, en Tucci er sagður trygg- astur vina og ástríkastur heim- ilisfeðra í einkalífinu. Vinna við sjónvarp og ólík en faglega afgreidd smáhlutverk í bíómyndum juku jafnt og þétt á orðstír hans um og eftir ’90. Tucci aflaði sér einnig mik- illa vinsælda sem slægvitur ódámur í sjónvarpsþáttunum Murder One (’94 –95). Hvað minnisstæðust frá þessum árum er frammistaða hans sem tungulipur og háll lögreglu- maður í Kiss of Death, framúrskar- andi vel leikinni og gerðri mynd með David Caruso, Nicolas Cage, Samuel L. Jackson o.fl., góðu fólki. Endurgerð hinnar klassísku film noir frá 1947 (með Richard Wid- mark), en tæpast eins góð. Það er hinsvegar listaverkið Big Night, þar sem Tucci fer með aðal- hlutverkið, framleiðir og leikstýrir (ásamt Campbell Scott), sem færði leikaranum þá frægð og virðingu sem honum ber. Tucci hefur þó ekki sagt skilið við jaðarhlutverkin, skemmst að minnast eftirminnilegs leiks hans og vinar hans Olivers Platt sem laumufarþegar um borð í skipi í The Impostors (’99). Um þessar mundir er Tucci að leika í American Sweetheart, mynd Re- volution Studios Joes Roth, ásamt John Cusack, öðrum frábærum leik- ara sem löngum hefur daðrað við jaðarinn. Kantmenn kvikmyndal iksins 2 Aftur verður gerð liðskönnun á bakvörð- um herja kvikmyndaleiksins. Sæbjörn Valdimarsson bregður sjónum sínum að nokkrum athyglisverðum og ómissandi góðvinum bíógesta í gegnum árin. Leik- urum sem jafnan standa fyrir sínu þótt þeir fái ekki aðalhlutverkin af ýmsum ástæðum – og sjaldan umfjöllun. PattonShalhoub ZUMA Press Henriksen Madsen Tilly Thompson Tucci Reuters

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.