Morgunblaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 3
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 B 3
LÁRUS Orri Sigurðsson og Heið-
ar Helguson leika ekki með
landsliðinu gegn Möltubúum á
Möltu 25. apríl. Þeir verða í leik-
banni – Lárus Orri fyrir brott-
reksturinn gegn Búlgaríu og
Heiðar fyrir að hafa fengið að sjá
tvö gul spjöld í undankeppni HM.
Hann var bókaður í leiknum í
Sofíu og einnig í leik gegn Norð-
ur-Írlandi á Laugardalsvellinum.
Tveir leikmenn landsliðsins
hafa tekið út leikbönn í HM.
Brynjar Björn Gunnarsson fyrir
að vera rekinn af leikvelli í leik
gegn Dönum og Auðun Helgason
lék ekki með gegn Búlgaríu, þar
sem hann fékk að sjá gula spjald-
ið í leikjum gegn Tékkum og
Norður-Írum.
Lárusi Orra hefur tvisvar ver-
ið vísað af leikvelli í leikjum með
íslenska landsliðinu. Hann var
áður rekinn af leikvelli í leik
gegn Írlandi á Laugardalsvell-
inum 6. september 1997. Hann
fékk að sjá rauða spjaldið eftir
að tvær áminningar.
Lárus Orri og Heiðar í bann
ef eitthvað var sterkari aðilinn og
hættulegra í sóknaraðgerðum. Ís-
lendingar fengu vissulega sín tæki-
færi í leiknum en eins og í síðustu
leikjum hefur gengið illa að reka
smiðshöggið og það er hlutur sem
strákarnir verða að kippa í liðinn ef
leikir eiga að vinnast. Árni Gautur
Arason stóð fyrir sínu í markinu og í
reynd má segja að íslenska vörnin
hafi leikið vel. Eyjólfur og Hermann
voru fastir fyrir í miðju varnarinnar
og Arnar Þór Viðarsson hefur sýnt
og sannað að hann eigi vel heima í
stöðu vinstri bakvarðar. Rúnar
Kristinsson var einn besti leikmaður
íslenska liðsins. Hann gerði góða
hluti með knöttinn og skilaði bak-
varðarstöðunni með sóma í seinni
hálfleiknum. Brynjar Björn var að
venju óhemjuduglegur á miðsvæð-
inu og var alltaf að, Þórður Guð-
jónsson tók góðar rispur í fyrri hálf-
leiknum og Heiðar Helguson var
sterkur í návígjum en meira hefði
þurft að koma út úr honum sókn-
arlega séð. Eiður Smári og Ríkharð-
ur unnu báðir mjög vel en einhvern
neista vantaði hjá þeim báðum og
það verður að gera þærkröfur til
sóknarmanna að þeir skori mörk.
Ríkharður hefur leikið fjóra leiki án
þess að skora og Eiður er með eitt
mark í 10 landsleikjum. Arnar Grét-
arsson átti ágæta innkomu en
Tryggvi Guðmundsson og Andri
Sigþórsson náðu ekki takti við leik-
inn á þeim tíma sem þeir voru inná.
Vonbrigðin eru mikil að hafa ekki
náð í stig en gæfuhjólið hefur ekki
snúist með íslenska liðinu í þessari
undankeppni.
Uppskeran er þrjú stig af tólf
mögulegum sem engan veginn getur
talist nógu gott en fram undan eru
tveir leikir gegn Möltu og svo
heimaleikur á móti Búlgörum og í
þessum þremur leikjum verða Ís-
lendingar helst að fá fullt hús ef
markmiðin eiga að nást, það er að
lenda ekki neðar en í þriðja sæti og
hækka þannig á styrkleikalistanum.
Morgunblaðið/Brynjar GautiEnski dómarinn Mike Riley
sýnir Lárusi Orra Sigurðs-
syni rauða spjaldið á CSKA-
leikvanginum í Sofíu. Þórð-
ur Guðjónsson gat ekki
stöðvað það.
Ég lenti í einhverju orðaskaki viðeinn Búlgarann og það næsta
sem gerist er að ég brosi framan í
hann og klappa honum létt á kinnina.
Hann greip um andlitið og þóttist
vera stórslasaður og Riley beit á
agnið. Mistökin hjá mér liggja í því
að gefa kost á svona löguðu. Maður á
að vita að þegar maður er að spila á
móti svona þjóðum eiga leikmenn til
að vera með leikaraskap. Riley sagði
við mig þegar hann sýndi mér rauða
spjaldið að það mætti ekki snerta
andlitið á mönnum og vissulega
gerði ég það, en þetta var bara svona
létt vinarklapp,“ sagði Lárus Orri.
Hvernig fannst þér að koma inn í
liðið aftur eftir svona langt hlé?
,,Þetta var erfitt fyrstu 15 mínúturn-
ar en eftir það var þetta í fínu lagi.
Við skoruðum gott mark en vorum
klaufar að fá á okkur jöfnunarmark-
ið skömmu síðar og síðan kom áfallið
þegar mér var vísað af velli. Mér
fannst strákarnir spila mjög vel
manni færri og ég er hundsvekktur
yfir því að ná ekki stigi út úr þessum
leik. Mér leið skelfilega eftir að hafa
lent í þessu atviki og ég var ekki bara
að brjóta sjálfan mig niður heldur
var ég að bregðast öðrum.“
Mistök að gefa
kost á þessu
Reuters
Michael Riley segir Lárusi Orra að yfirgefa völlinn.
LÁRUS Orri Sigurðsson var að
vonum mjög svekktur eftir leik-
inn á móti Búlgörum en hann
fékk að líta rauða spjaldið hjá
Englendingnum Michael Riley á
40. mínútu leiksins. Lárus var
að leika sinn fyrsta landsleik í
16 mánuði eða frá því Íslend-
ingar töpuðu fyrir Frökkum, 3:2,
í eftirminnilegum leik í París í
nóvember árið 1999.
ANDRI Sigþórsson fékk nýliða-
merki KSÍ í kvöldverði eftir leikinn á
móti Búlgaríu, en Andri lék sinn
fyrsta landsleik í Sofíu.
BRYNJAR Björn Gunnarsson og
Helgi Kolviðsson fengu við sama
tækifæri afhent gullúr frá KSÍ fyrir
að hafa leikið 25 landsleiki, en þeir
náðu báðir þeim áfanga á síðasta ári.
Brynjar var að leika sinn 26. lands-
leik í Sofíu. Helgi, sem ekki fékk að
spreyta sig, hefur leikið einum leik
meira.
RÚNAR Kristinsson hélt áfram að
bæta landsleikjamet sinn en hann
lék sinn 88. landsleik í Sofíu. Rúnar
fékk klapp frá félögum sínum í
kvöldverðinum eftir leikinn við Búlg-
ari en ef fram heldur sem horfir á
Rúnar góða möguleika á að ná 100
landsleikjum.
ARNAR Grétarsson lék sinn 50.
A-landsleik fyrir Íslandshönd gegn
Búlgaríu í Sofíu á laugardaginn.
Arnar er 13. íslenski knattspyrnu-
maðurinn frá upphafi sem nær þess-
um áfanga og deilir nú 11.–13. sætinu
á listanum með þeim Árna Sveins-
syni og Gunnari Gíslasyni. Hann lék
sinn fyrsta landsleik fyrir tíu árum,
þegar Ísland sigraði Tyrkland, 5:1, á
Laugardalsvellinum í júlí 1991.
FYRIRLIÐARNIR Eyjólfur
Sverrisson og Krassimir Balakov
eiga það sameiginlegt að hafa báðir
leikið með Stuttgart. Balakov leikur
með liðinu í dag en Eyjólfur hóf sinn
glæsilega atvinnumannaferil hjá lið-
inu fyrir 12 árum.
EIÐUR Smári Guðjohnsen varð að
fara af leikvelli á 60. mínútu. Hann
fékk högg aftan á hnésbótina og
haltraði útaf. Gunnar Sverrisson,
sjúkraþjálfari landsliðsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið að meiðsl-
in væru ekki alvarleg og að Eiður
yrði fljótur að ná sér.
FÓLK